Erlent
274 275 276 277 278 279 280 281 282 … 334 ›
Útdeila peningum til eldri borgara vegna verðbólgu Danska þingið samþykkti að gefa tekjulágum eldri borgara fimm þúsund danskar krónur skattfrjálsar hverjum til að vega upp á móti verðbólgu og háu orkuverði. Aðgerðin á ekki að ýta undir verðbólgu. Erlent 24.6.2022 11:36
Vildi að dómsmálaráðuneytið segði kosningarnar spilltar Donald Trump Bandaríkjaforseti þrýsti á æðstu embættismenn dómsmálaráðuneytisins um að lýsa því yfir að forsetakosningarnar árið 2020 hefðu verið „spilltar“. Hann og þingmenn repúblikana tækju svo við. Forsetinn lét ekki segjast fyrr en hann var varaður við þetta gæti leitt til hundraða afsagna. Erlent 24.6.2022 09:38
Vaktin: Úkraínska hernum skipað að hörfa úr Sieveródonetsk Stjórnvöld í Úkraínu hafa ákveðið að láta hersveitirnar sem barist hafa í Sieverodonetsk hörfa og segja ekkert vit í því að láta þær sæta mannfalli í langan tíma til að verja svæðið. Ríkisstjórinn segir 90 prósent allra heimila í borginni skemmd eða eyðilögð. Erlent 24.6.2022 08:26
Almennt ekki hugað að kynjasjónarmiðum í Covid-viðbrögðum ríkja heims Aðeins þrettán af 226 ríkjum eða ríkissvæðum heims gerðu aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi að ríkjandi stefnu í aðgerðaráætlunum sínum vegna Covid-19 faraldursins. Erlent 24.6.2022 08:01
Flaug til Mallorca eftir að hafa verið neitað um þungunarrof á Möltu Bandarísk kona sem hefur ekki fengið að gangast undir þungunarrof á Möltu þrátt fyrir að hún sé að missa fóstur og að heilsa hennar sé í hættu, fékk í gær grænt ljós frá tryggingafélaginu sínu til að ferðast til Spánar til að fá nauðsynlega heilbrigðisþjónustu. Erlent 24.6.2022 07:46
Fimm látnir og tugir særðir eftir eldsvoða í háhýsi í Buenos Aires Fimm eru látnir og 35 slasaðir eftir mikinn eldsvoða í háhýsi í argentínsku Buenos Aires í gær. Erlent 24.6.2022 07:39
Fimmtán repúblikanar greiddu atkvæði með nýrri skotvopnalöggjöf Bandaríska öldungadeildin samþykkti í nótt lög um takmörkun á skotvopnaeign en um er að ræða mestu breytingu á slíkum lögum í fjölda ára. Erlent 24.6.2022 07:07
„Þetta er sigur“ Volodímir Selenskí, forseti Úkraínu, fagnaði þeim tíðindum sem bárust í dag um að Úkraína væri formlega orðið umsóknarríki að aðild að Evrópusambandinu. Erlent 23.6.2022 21:27
Úkraína og Moldóva formlega orðin umsóknarríki Leiðtogaráð Evrópusambandsins hefur samþykkt að veita Úkraínu og Moldóvu formlega stöðu umsóknarríkja um aðild að Evrópusambandinu. Erlent 23.6.2022 18:58
Aðstandendur hljóti meira en milljarð Bandaríkjadala í bætur Degi áður en eitt ár er liðið frá hruni hluta tólf hæða íbúðarhúss við ströndina í Miami er bótaupphæð til fjölskyldna fórnarlamba slyssins ákveðin. Heildarupphæð bótanna nemur 1,02 milljarði Bandaríkjadala. Erlent 23.6.2022 18:30
Mega ekki setja takmörk á vopnaburð á almannafæri Hæstiréttur Bandaríkjanna ógilti lög sem settu takmarkanir við skotvopnaburði í New York sem þýðir að mun fleiri geta gengið um vopnaðir í stærstu borgum landsins í dag. Dómurinn kemur á sama tíma og Bandaríkjaþing er nálægt því að samþykkja nýjar takmarkanir á skotvopn í fyrsta skipti í áratugi. Erlent 23.6.2022 15:13
Réttað verður yfir læknaliði Maradona Dómari í Argentínu hefur ákveðið að réttað skuli yfir læknaliði Diego Maradona vegna manndráp af gáleysi. Sérfræðinganefnd komst að þeirri niðurstöðu að meðferðin sem Maradona fékk hafi einkennst af vanrækslu og óreglu. Erlent 23.6.2022 14:37
Úkraína og Moldóva fái stöðu umsóknarríkis tafarlaust Þingsályktunartillaga um að ráðherraráð Evrópusambandsins veiti Úkraínu og Moldóvu stöðu umsóknarríkis án tafar var samþykkt á Evrópuþinginu í dag. Erlent 23.6.2022 14:30
Húsleitir og stefnur vegna falskra kjörmanna Trump Alríkislögreglumenn gerðu húsleit og birtu hópi stuðningsmanna Donalds Trump stefnur víðsvegar um Bandaríkin í gær. Aðgerðirnar eru sagðar tengjast rannsókn á fölskum kjörmönnum sem stuðningsmenn Trump reyndu að tefla fram til þess að halda honum við völd í fyrra. Erlent 23.6.2022 11:49
Settu af dómsmálaráðherra sem varð manni að bana Öldungadeild ríkisþings Suður-Dakóta í Bandaríkjunum sakfelldi dómsmálaráðherra ríkisins fyrir embættisbrot sem tengjast banaslysi sem hann átti aðild að á þriðjudag. Ráðherranum var vikið úr embætti og honum bannað að gegna opinberu embætti aftur. Erlent 23.6.2022 09:33
Vaktin: íhuga að hörfa frá Lysychansk Besta öryggistrygging Úkraínu liggur í aðild að Evrópusambandinu, sem myndi gera Vladimir Pútín Rússlandsforseta erfiðara fyrir að ráðast aftur inn í landið. Þetta segir Jonathan Powell, fyrrverandi starfsmannastjóri Tony Blair og samningamaður Breta í málefnum Norður-Írlands. Erlent 23.6.2022 08:36
Dæmd í rúmlega fjögurra ára fangelsi vegna peningaþvættis Danske bank Dómstóll í Kaupmannahöfn dæmdi litháska konu í fjögurra ára og eins mánaðar fangelsi vegna margmilljarða peningaþvættis í gegnum útibú Danske bank í Eistlandi. Konan afplánar fyrir hátt í fjögurra ára fangelsisdóm vegna annars peningsþvættismáls. Erlent 23.6.2022 08:34
Inger Støjberg stofnar Danmerkurdemókrata Inger Støjberg, fyrrverandi ráðherra innflytjendamála og varaformaður Venstre, hefur tilkynnt að hún hafi stofnað nýjan flokk – Danmerkurdemókrata. Erlent 23.6.2022 08:12
Bíður þess að hjartað hætti að slá eða að hún fái sýkingu Óttast er um líf bandarískrar konu sem er að missa fóstur á spítala á Möltu en fær ekki að gangast undir þungunarrof þar sem slíkar aðgerðir eru bannaðar með öllu í landinu. „Ég vil bara komast héðan lifandi,“ sagði konan við Guardian í gær. Erlent 23.6.2022 07:49
Tugþúsundir lestarstarfsmanna aftur í verkfall Starfsmenn breska lestarkerfisins eru í verkfalli í dag, í annað sinn í þessari viku. Það þýðir að hálft kerfið er óstarfhæft í Englandi, Wales og í Skotlandi. Landsmönnum hefur verið ráðlagt að ferðast ekki nema það sé bráðnauðsynlegt. Erlent 23.6.2022 06:59
Vilja að Maxwell verði dæmd í að minnsta kosti 30 ára fangelsi Saksóknarar í New York hafa farið fram á að minnsta kosti 30 ára dóm yfir Ghislaine Maxwell, vinkonu Jeffrey Epstein sem var fundin sek um að hafa stundað mansal með því að útvega Epstein stúlkur undir lögaldri til að misnota. Erlent 23.6.2022 06:49
Telur líklegt að Rússar skrúfi fyrir gasið í vetur Forstjóri Alþjóðaorkumálastofnunarinnar telur líklegt að Rússar muni skrúfa fyrir gasleiðslurnar til Evrópu í vetur. Erlent 22.6.2022 23:30
Talibanar óska eftir aðstoð vegna jarðskjálftans mannskæða Talibanar, sem fara með völd í Afganistan, hafa óskað eftir aðstoð alþjóðasamfélagsins, vegna jarðskjálftans sem reið þar yfir í morgun. Erlent 22.6.2022 22:05
Vill að þingið leggi eldsneytisskatt til hliðar Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, fór fram á það í dag við Bandaríkjaþing, að það myndi samþykkja þriggja mánaða hlé á álagningu eldsneytisskatts. Erlent 22.6.2022 20:47
Forn borg fannst í Írak vegna mikilla þurrka Forn borg í Írak hefur litið dagsins ljós vegna mikilla þurrka en borgin er sögð vera 3.400 ára gömul. Borgin er talin vera bronsaldarborgin Zakhiku, borgin fór á kaf eftir að stjórnvöld í Írak byggðu Mosul stífluna á níunda áratugi tuttugustu aldar og hefur varla sést síðan. Erlent 22.6.2022 18:34
Íslenskur fréttamaður á vegum Pútíns tók viðtal við meintan stríðsglæpamann Haukur Hauksson hefur ferðast á átakasvæði í Úkraínu í boði rússneskra stjórnvalda. Nýlega tók Haukur viðtal við Graham Phillips, annan sjálfstætt starfandi blaðamann, sem nú er sakaður um stríðsglæp. Erlent 22.6.2022 17:12
Rannsaka ásakanir um nauðganir á hendur frönskum ráðherra Saksóknari í París rannsakar nú ásakanir tveggja kvenna um að Chrysoula Zacharopoulou, þróunarmálaráðherra, hafi nauðgað þeim. Brotin eiga að hafa átt sér stað þegar Zacharopoulous starfaði sem kvensjúkdómalæknir. Erlent 22.6.2022 16:01
Samþykktu að svipta stóriðju fríum losunarheimildum fyrir 2032 Evrópuþingið samþykkti stórtækar breytingar á viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir í dag. Stóriðjufyrirtæki hætta að fá ókeypis losunarheimildir fyrir árið 2032 en í staðinn verður tekinn upp kolefnisskattur á innflutt stál, sement og fleiri vörur. Erlent 22.6.2022 14:46
Ætla að setja hámark á magn nikótíns í vindlingum Bandaríkjastjórn hyggst leggja til staðla um hámarksmagn nikótíns í vindlingum. Tillagan er liður í áætlun ríkisstjórnar Joes Biden forseta um að fækka dauðsföllum af völdum krabbameins um helming næsta aldarfjórðunginn. Erlent 22.6.2022 13:48
Tala látinna í Afganistan komin í 950 og talin líkleg til að hækka Öflugur jarðskjálfti reið yfir í Afganistan í morgun með þeim afleiðingum að minnst 950 eru látin og minnst 600 slösuð. Erlent 22.6.2022 10:07