Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Söluaðila hefur verið gert að afhenda viðskiptavini nýjan eyrnahreinsi sem búinn er myndavél, eftir að ekki tókst að hlaða hreinsinn sex dögum eftir kaupin og hann metinn ónothæfur. Neytendur 27.6.2026 22:16
Lækkandi markaðsverð hafi ekki skilað sér í lítranum Alþýðusambandið segir lækkandi heimsmarkaðsverð á bensíni ekki hafa skilað sér í lægra lítraverði á bensínstöðvum á Íslandi. Neytendur 26.6.2026 12:13
Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Verð á vinsælum súkkulaði- og sælgætisvörum hefur hækkað um tæp 33 prósent að meðaltali frá júní 2024 til júní 2026 samkvæmt nýrri verðkönnun ASÍ. Neytendur 25.6.2026 12:40
Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Íslendingar borga 55 prósentum meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins og eina Evrópulandið þar sem matvara er dýrari er Sviss, að sögn Samkeppniseftirlitsins. Þá hefur verð hækkað mest hér á landi á árunum 2020-2025. Samkeppniseftirlitið telur búvörulögin frá 2024 vera helstu skýringuna á því hvers vegna kjöt- og mjólkurverð hefur hækkað hraðar á Íslandi heldur en í Evrópu. Neytendur 10.6.2026 13:03
Innkalla vegna aðskotahlutar Þykkvabæjar ehf. hefur ákveðið að innkalla og taka úr sölu Þykkvabæjar Kartöflugratín í ostasósu. Aðskotahlutur fannst í vörunni. Neytendur 8.6.2026 21:49
Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Mánaðarlega kvarta fjölmargir yfir því að fá tvær kröfur í heimabankann vegna kílómetragjaldsins. Yfirmaður þjónustulausna hjá Skattinum segir að í langflestum tilvikum sé ekki verið að tvírukka fólk. Neytendur 8.6.2026 08:00
Ölgerðin hækkar verðin Ölgerðin hefur tilkynnt viðskiptavinum að hún ætli að hækka verð á framleiðsluvörum sínum. Vörur í dós hækka um 2,1 prósent í verði, að undanskildum Collab sem hækkar um 1,1 prósent. Vörur í plasti hækka einnig um 1,1 prósent en aðrar framleiðsluvörur um 0,8 prósent. Neytendur 5.6.2026 19:54
Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Þvert á það sem margir halda fram hefur sjaldan verið auðveldara fyrir ungt fólk að kaupa sér húsnæði, að sögn fasteignasala. Hann bendir á að fyrstu kaupendur geti fengið allt að 90% fjármögnun, tekið hlutdeildarlán, nýtt séreignasparnað í fyrstu kaup og nýtt ýmsar aðrar sérlausnir sem ekki voru til staðar áður fyrr. Neytendur 5.6.2026 19:22
Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Fyrstu Spar-verslanirnar verða opnaðar á laugardaginn við Barónsstíg í Reykjavík og Staðarberg í Hafnarfirði. Greint var frá því í febrúar að Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 yrðu Spar. Neytendur 3.6.2026 18:39
Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Kerfisvilla varð til þess að verðmerkingar í hillum verslana Samkaupa, sem eru meðal annars Nettó og Prís, sýndu rangar upphæðir í gær, þriðjudaginn 2. júní. Mistökin uppgötvuðust í bítið í gær og var strax hafist handa við að leiðrétta þau. Neytendur 3.6.2026 14:15
Innkalla pipar vegna eiturs Eftir samráð við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur Dai Phat Asian Grocery innkallað vöruna Villta Sichuan-piparinn. Ástæðan er sú að varan inniheldur skordýraeitur yfir leyfilegu hámarksgildi. Neytendur 1.6.2026 11:42
Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Íslendingur sem skellti sér á tónleika Oasis í Manchester í pakkaferð Icelandair á ekki rétt á endurgreiðslu þrátt fyrir að afhending á tónleikamiðanum hafi farið fram síðar en boðað hafði verið. Flugfélagið bauð tónleikagestinum inneign í sárabætur en því boði var ekki svarað. Neytendur 24.5.2026 10:02
Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti af dælu virðist hafa skilað sér að fullu með lægra verðlagi hjá öllum hefðbundnu olíufélögunum. Undantekningin var Costco sem býður þó enn upp á ódýrasta eldsneytið. Neytendur 22.5.2026 15:07
Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Bónus í Skipholti er nú opið klukkutíma lengur en áður, til tíu að kvöldi. Tvær Bónus verslanir eru nú opnar svo lengi en framkvæmdastjóri Bónus segir lengri opnunartíma ekki skila sér út í verðlag. Ákvörðunin sé svar við kalli viðskiptavina. Neytendur 16.5.2026 08:38
Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Aflýst flugferð Icelandair til Seattle í síðustu viku hafði mest áhrif á eldra fólk og farþega sem treystu á beint flug vestur um haf. Þetta segir Magnús Halldórsson, ráðgjafi hjá Business Iceland, sem dáist að þremur pólskum konum á þjónustuborði Icelandair sem fóru á kostum við að hjálpa strandaglópum. Neytendur 15.5.2026 16:54
Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur fellt úr gildi úrskurð Neytendastofu að Isavia hafi gerst brotlegt við lög með því að hefja gjaldtöku í svokallaðri brottfararrennu við Keflavíkurflugvöll. Neytendur 6.5.2026 17:05
Súperdósin snýr aftur Coca-Cola á Íslandi mun á næstu dögum hefja sölu á hinni vinsælu 500ml Coca-Cola dós, betur þekktri sem súperdósin. Í tilkynningu segir að endurkoma vörunnar komi í kjölfar mikils ákalls frá neytendum og viðskiptavinum undanfarin ár og nú sé komið til móts við þær óskir. Neytendur 6.5.2026 15:36
Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendastofa hefur bannað fræðslufyrirtækinu Akademias að nota heitið „Executive MBA“, í markaðs- og kynningarefni fyrirtækisins, þar sem aðeins háskólar geta boðið upp á meistaranám. Neytendur 4.5.2026 16:24
Löggan bankaði upp á á skírdag Sífleiri versla áfengi hjá netverslunum á Akureyri eftir að ÁTVR færði vínbúð bæjarins úr miðbænum á Norðurtorg í Þorpinu. Á skírdag lokaði lögreglan öllum afhendingarstöðum áfengis í bænum og kallar eigandi netverslunar eftir skýrari lagaramma. Neytendur 25.4.2026 15:30
„Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendasamtökin vöktu athygli á erfiðri stöðu fyrir viðgerðarþjónustu hér á landi í ályktun í gær. Þau segja þjónustuna í hættu og kalla eftir því að stjórnvöld felli niður virðisaukaskatt á viðgerðum. Neytendur 25.4.2026 13:48
Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Matvælastofnun innkallar tvær framleiðslulotur af Bónus Nautgripahakki frá Ferskum kjötvörum vegna gruns um salmonellu. Neytendur 21.4.2026 10:37
Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Ólíkt mörgum ríkjum í Evrópu gilda engar reglur hér á landi um það hvað brauð þurfi að uppfylla svo kalla megi það súrdeigsbrauð. Matarbloggari segir brauð með súr í ekki endilega súrdeigsbrauð. Neytendur 20.4.2026 21:00
Gjaldskylda sett á við Egilshöll Gjaldskylda verður sett á bílastæði við Egilshöllina til að stýra umferðinni betur á svæðinu. Fyrstu þrjár klukkustundirnar verða gjaldfrjálsar. Neytendur 18.4.2026 09:11
Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Hagar eru komnir í innkaupasasamstarf við danska smásölufyrirtækið Salling Group, sem er stærsti aðilinn á dagvörumarkaði í Danmörku. Samstarfið með Salling Group býður upp á fjölda tækifæra og gerir Högum kleift að bjóða landsmönnum upp á lægra verð, aukið vöruúrval, og enn betri gæði en fyrr í verslunum félagsins, að því er fullyrt í tilkynningu frá félaginu. Neytendur 16.4.2026 10:33