
Fréttir

Umferðareyjan sem ekið var yfir bæti öryggi vegfarenda
Enn má sjá ummerki þess að ölvaður ökumaður ók yfir nýgerða umferðareyju í vesturbæ Reykjavíkur. Sumir íbúar á svæðinu létu í ljósi óánægju með framkvæmdirnar í kjölfar þessara frétta en Katrín Halldórsdóttir verkfræðingur hjá Vegagerðinni vill ekki meina að framkvæmdirnar séu gagnslausar.

Réttindi íslenskra sjómanna séu færð marga áratugi aftur í tímann
Sjómannasamband Íslands segir Brim hf., Sjómannafélag Íslands og SFS standa að réttindamissi sjómanna og færi þá marga áratugi aftur í tímann með nýjum kjarasamningi. Samningurinn kveður á um að sjómennirnir landi aflanum sjálfir fyrir smánarlaun.

Vaxandi vanskil merki um víðtækari vanda framundan
Merki eru um að vanskil heimila og fyrirtækja fari vaxandi. Alvarleg vanskil fyrirtækja hafa aukist á þessu ári samkvæmt gögnum frá innheimtufyrirtækinu Motus. Þróunin er möguleg vísbending um að víðtækari fjárhagsvandi sé framundan. Forstjóri segir þetta merki um að nú séu langvarandi verðbólga og háir vextir farnir að segja til sín.

Ríkið taki við uppbyggingu hjúkrunarheimila
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur birt til umsagnar í samráðsgátt breytingu á lögum sem fellir brott skyldu sveitarfélaga til að greiða fimmtán prósent stofnkostnaðar við uppbyggingu hjúkrunarheimila. Einar Þorsteinsson borgarstjóri segist fagna breytingunum og að þær komi til með að létta byrði smærri sveitarfélaga sem gætu átt erfitt með að standa undir sínum hluta.

Byrjaði að öskra við fyrstu sprengingu
Að minnsta kosti 36 almennir borgarar létust í árásum Rússa á fjölda borga í Úkraínu í dag. Árásirnar eru einar þær mannskæðustu frá upphafi stríðs. Fimm létust og fólks er enn leitað í rústum stærsta barnaspítala Úkraínu, sem Rússar sprengdu. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kemur saman á neyðarfundi á morgun vegna árásarinnar.

Bíll í ljósum logum eftir veltu við Rauðavatn
Einn er slasaður eftir að bíll valt með þeim afleiðingum að það kviknaði í honum á Suðurlandsvegi við Rauðavatn fyrir stuttu.

Parkinsons-sérfræðingur heimsótti Hvíta húsið átta sinnum
Yfir átta mánaða tímabil frá júlí í fyrra og með febrúar í ár heimsótti sérfræðingur í lækningum við Parkinson-sjúkdómnum Hvíta húsið að minnsta kosti átta sinnum.

Afmælisfundur NATO í skugga átaka í gjörbreyttum heimi
Utanríkisráðherra segir 75 ára afmælisleiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem hefst í Washington á morgun, haldinn í skugga meiriháttar breytinga og spennu í alþjóðakerfinu. Á fundinum muni bandalagsríkin formfesta stuðning sinn við Úkraínu til lengri tíma.

Stefna að útrýmingu sauðfjárriðu innan tuttugu ára
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra undirritaði í dag landsáætlun um útrýmingu á sauðfjárriðu ásamt Hrönn Ólínu Jörundsdóttur, forstjóra Matvælastofnunar og Trausta Hjálmarssyni, formanni Bændasamtaka Íslands. Stefnt er að því að útrýma riðuveiki í sauðfé á Íslandi innan tuttugu ára.

Þjóðfylking Le Pen gengur til liðs við jaðarhægri fylkingu Orbán
Þjóðfylking Marine Le Pen hefur gengið til liðs við flokk Viktors Orbán, forsætisráðherrans ungverska, og hafa þau myndað nýtt bandalag jaðarhægri flokka á Evrópuþinginu.

Fluttur á sjúkrahús eftir slys á Snæfellsnesi
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út fyrr í dag vegna slyss á Snæfellsnesi. Einn var fluttur með þyrlu og lenti við sjúkrahúsið í Fossvogi fyrir stuttu.

Ísland hafi lengi verið einn dýrasti áfangastaður heims
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að Ísland hafi í tíu ár verið eitt af þremur dýrustu löndum heims. Ferðamenn vilji þrátt fyrir það koma til Íslands, og greiða fyrir það þessi háu verð. Ísland sé þó að dragast aftur úr í samkeppni við lönd eins og Noreg, meðal annars vegna þrálátrar verðbólgu.

Alvarleg vanskil aukast og hryllingur í Úkraínu
Merki eru um að vanskil heimila og fyrirtækja fari vaxandi. Alvarleg vanskil fyrirtækja hafa aukist á þessu ári samkvæmt gögnum frá innheimtufyrirtækinu Motus. Þróunin er möguleg vísbending um að víðtækari fjárhagsvandi sé framundan í efnahagslífinu. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Skúli Tómas kominn með lækningaleyfi
Skúli Tómas Gunnlaugsson, sem grunaður er um að hafa sett sjúklinga sína í tilefnislausar lífslokameðferðir, er kominn með lækningaleyfi á nýjan leik. Hann er grunaður um röð alvarlegra mistaka og vanrækslu og um að hafa valdið ótímabærum dauða níu sjúklinga.

Rekinn umsvifalaust úr klúbbnum í miðju meistaramóti
Davíð Jónsson var rekinn umsvifalaust úr Golfklúbbi Sandgerðis ásamt sonum hans tveimur í miðju meistaramóti. Von er á yfirlýsingu frá Golfklúbbi Sandgerðis vegna málsins.

Læknirinn sem varð fyrir árásinni ætlar lengra með málið
Heimilislæknir sem varð fyrir árás sjúklings á heilsugæslu í Reykjavík en fær ekki bætur frá ríkinu vegna málsins hyggst áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis.

Bifhjólamaðurinn á Vestfjörðum ekki í lífshættu
Svo virðist sem bifhjólaslysið sem varð í norðanverðum Arnarfirði í gær hafi komið til vegna óhapps. Engin umferðarlagabrot virðast hafa átt stað, segir Helgi Jensson, lögreglustjóri á Vestfjörðum.

Náttúran hafi sterkt umboð í samfélaginu og þurfi ekki umboðsmann
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis- orku og loftslagsráðherra, sér ekki ástæðu til þess að stofna sérstakt embætti umboðsmanns náttúrunnar, náttúran hafi þegar sterkt umboð í samfélaginu. Þetta kemur fram í svari ráðherrans við fyrirspurn Valgerðar Árnadóttur, varaþingmanns Pírata.

Lokað frá Heklu að Nóatúni í hálfan mánuð
Laugavegi verður lokað í báðar áttir milli gatnamóta Nóatúns og Laugavegs og Laugavegs 172, þar sem bílaumboðið Hekla er til húsa. Veginum verður lokað frá og með 15. júlí út 29. júlí.

Flestir treysta ríkisstjórninni miklu verr eftir að Bjarni tók við
Sjötíu og tvö prósent landsmanna treysta ríkisstjórninni verr eftir að Bjarni Benediktsson tók við embætti forsætisráðherra. Hins vegar treysta ellefu prósent ríkisstjórninni betur eftir að Bjarni tók við stjórnartaumunum en átján prósent jafn mikið. Þetta eru niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Maskínu.

Þaulskipulagt af hagsmunaaðilum og þeirra fulltrúum á þingi
Formaður atvinnuveganefndar Alþingis á hlut í félagi sem Kaupfélag Skagfirðinga er að kaupa. Kaupin ganga í gegn án aðkomu Samkeppniseftirlitsins vegna breytinga á búvörulögum sem atvinnuveganefnd gerði. Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir um skipulagða aðgerða hagsmunaaðila og fulltrúa þeirra á þingi að ræða.

„Ég þekki líka kolruglaða menn og ég læt drepa þig“
Karlmaður á fertugsaldri hlaut þriggja mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness á dögunum fyrir að hafa haft í ítrekuðum hótunum við lögreglumenn á ellefu mánaða tímabili.

Hillir loks undir framkvæmdir í Vesturbugt eftir sjö ára töf
Félagið M3 fasteignaþróun var með hærra tilboð af tveimur í uppbyggingu tæplega tvö hundruð íbúða í Vesturbugt við Reykjavíkurhöfn sem opnuð voru á föstudag. Reykjavíkurborg rifti samningum við fyrri lóðarhafa sem sátu aðgerðarlausir í sjö ár eftir að hafa fengið lóðunum úthlutað til sín.

Óvissa og spenna í Frakklandi næstu daga
Óvenjuleg staða, þrungin óvissu, er uppi í frönskum stjórnmálum eftir seinni umferð þingkosninga í gær, þar sem undið var ofan af stórsigri Þjóðfylkingarinnar frá því í fyrri umferð en enginn flokkur náði meirihluta. Íslendingur búsettur í París segir næstu daga verða spennandi.

Nú má heita Roj
Mannanafnanefnd samþykkti í síðustu viku sex eiginnöfn, þar af fjögur kvenmannsnöfn og tvö karlmannsnöfn. Hins vegar var einu nafni hafnað.

Samþjöppun á kjötmarkaði og vinstrimenn fagna í Frakklandi
Í hádegisfréttum fjöllum við um fyrirhuguð kaup Kaupfélags Skagfirðinga á Kjarnafæði Norðlenska.

Afstaða Sjálfstæðismanna á skjön við lýðheilsustefnu stjórnvalda
„Standa þarf vörð um íslenska forvarnarmódelið og gagnreynda áfengisstefnu sem m.a. felst í takmörkun á aðgengi með því að viðhalda einkasölufyrirkomulagi ríkisins,“ segir í nýrri skýrslu heilbrigðisráðherra um áætlun um framkvæmd lýðheilsustefnu til fimm ára.

Gerðu loftárás á barnaspítala í Kænugarði
Minnst tuttugu almennir borgarar létust í loftárásum Rússa á fjölda borga í Úkraínu í dag. Meðal skotmarka Rússa var barnaspítali í Kænugarði.

„Klæðingin er engin skítaredding“
Forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar segir klæðingu á vegum ekki skítareddingu. Vegakerfið á Íslandi væri ekki að meirihluta á bundnu slitlagi ef ekki væri fyrir hana. Það sem sé hamlandi sé að vegna fjármagns nái Vegagerðin ekki að sinna viðhaldi eftir þörf. Viðhaldsskuld í íslensku vegakerfi kosti líklega tugi eða hundrað milljarða.

Komu sér af vettvangi eftir árás á fjóra á veitingastað
Enginn hefur verið handtekinn vegna líkamsárásar sem beindist gegn fjórum einstaklingum og átti sér stað á veitingastað í umdæmi Lögreglustöðvar þrjú, sem fer með mál í Kópavogi og Breiðholti, aðfaranótt sunnudags.