Sigurði Inga heitt í hamsi þegar hann flutti eldræðu um útlendinga Líflegar og hvassar umræður sköpuðust um útlendingamál í fyrstu kappræðum formanna stjórnmálaflokkanna fyrir komandi alþingiskosningar á RÚV í kvöld. Sigmundur Davíð spyr hvort við eigum að hjálpa Rússum að tæma Úkraínu. Sigurði Inga var heitt í hamsi þegar hann spurði hvort kosningabaráttan ætti að snúast um svokölluð útlendingamál, og sagði að umræðan ætti að snúast um staðreyndir en ekki vera ofan í drullupotti. Hann segir suma stjórnmálamenn hræddari við lítinn strák í hjólastól en erlenda auðkýfinga sem kaupa upp jarðir. Innlent 1.11.2024 23:36
Íbúum Úkraínu fækkað um tíu milljónir frá innrásinni Sameinuðu þjóðirnar áætla að íbúum Úkraínu hafi fækkað um fjórðung eða tíu milljónir manna frá því að innrás Rússa í landið hófst af fullum krafti fyrir tveimur árum. Fækkunin er rakin til fólksflótta, hruni í fæðingartíðni og mannfalli í stríðinu. Erlent 23.10.2024 11:50
Vígahópum vex ásmegin: Stór hluti Sahelsvæðisins í hættu Óreiða ríkir á stórum hlutum Sahelsvæðisins í Afríku. Átök eru víða og hafa þau komið verulega niður á fólki sem býr þar og er hætta á að óreiðan muni dreifa úr sér á komandi mánuðum og árum með tilheyrandi ódæðum, óstöðugleika og fólksflótta. Erlent 21.10.2024 07:03
Vita ekki hvernig Rússar skilgreina gildi sín Utanríkisráðuneytið segir íslensk stjórnvöld ekki hafa neina leið til þess að greina hvernig rússnesk stjórnvöld kjósa að skilgreina siðferðisleg og andleg gildi þjóðar sinnar. Ísland er á lista ríkja sem Rússar telja að hafi viðhorf sem stangist á við gildi sín. Innlent 30. september 2024 13:45
Þjóðverjar herða tökin á landamærum Ríkisstjórn Þýskalands tilkynnti í dag að tímabundið landamæraeftirlit verði tekið upp til þess að stemma stigu við fólksflutningum til landsins og hryðjuverkaógn. Erlent 9. september 2024 17:00
Byggja upp eða pakka? Flokksráðsfundur VG umhelgina sendi frá sér ályktun um málefni Palestínu og stríðið á Gasa þar sem ákvörðun Bjarna Ben, þáverandi utanríkisráðherra, um að frysta framlög til UNRWA var gagnrýnd og hvatt til vopnahlés. Ályktunin kom mér, sem fyrrverandi félaga í VG, kunnuglega fyrir sjónir og var ég ekki lengi að finna út af hverju. Skoðun 19. ágúst 2024 19:31
Þúsundir gagn-mótmælenda kæfðu boðaðar óeirðir Þúsundir Breta söfnuðust saman í borgum víða um Bretland í gær og tóku höndum saman til að vernda miðstöðvar fyrir flóttamenn og aðra staði þar sem óttast var að óeirðarseggir myndu koma saman. Erlent 8. ágúst 2024 06:40
Vandræðasaga Helga: Skortur á hommum, meint „kerlingartussa“ og Facebook-þumallinn „Það má því segja að þau séu að verða þétt tvíeyki, Sigríður og Helgi Magnús,“ var skrifað í Viðskiptablaðið þegar Sigríður Friðjónsdóttir og Helgi Magnús Gunnarsson voru skipuð í embætti ríkissaksóknara og vararíkissaksóknara árið 2011, en þar á undan höfðu þau verið saksóknarar Alþingis í málaferlum á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, í Landsdómsmálinu svokallaða. Innlent 1. ágúst 2024 08:01
Verndum Yazan og Barnasáttmálann Yazan er 11 ára drengur á flótta. Hann er greindur með vöðvarýrnunarsjúkdóminn Duchenne sem er einn ágengasti og alvarlegasti vöðvarýrnunarsjúkdómurinn. Lífslíkur þeirra sem ekki fá meðferð við sjúkdómnum eru 19 ár. Skoðun 20. júlí 2024 08:32
Ómannúðlegur forsendubrestur – aðrir möguleikar en brottvísun og ólögleg dvöl Margir á Íslandi hafa upplifað forsendubrest af mörgu tagi. Tökum sem dæmi hjónin sem unnu hörðum höndum í hraðfrystihúsinu í heimabæ sínum þegar kvótakerfið kom til sögunnar. Kvótinn í heimabæ þeirra var síðan framseldur og þau misstu atvinnuna. Erfitt var að láta enda ná saman. Skoðun 10. júlí 2024 11:30
Vill koma upp móttöku flóttamanna við Kaffi Vest Stefán Einar Stefánsson siðfræðingur, víninnflytjandi og fjölmiðlamaður á Mogganum segir mjög óþægilegt að bera fram erfiðar spurningar í viðtölum, en það sé hlutverk blaðamanna. Og er hann þá ekki síst að tala um innflytjenda- og hælisleitendamál. Innlent 8. júlí 2024 09:04
Engin gögn bendi til tengsla við Hamas Útlendingastofnun býr ekki yfir neinum gögnum sem gefa til kynna að þeir sem fengu dvalarleyfi hér á landi á grundvelli fjölskyldusameiningar Palestínumanna á þessu ári og síðasta hafi nokkur tengsl við Hamas-samtökin. Samanlagt hafa 184 dvalarleyfi hafa verið veitt í ár og í fyrra. Innlent 4. júlí 2024 09:01
Efndu til gjörnings við Lækjartorg Stuðningsmenn Yazans Tamimi, ellefu ára palestínsks drengs með vöðvahrörnunarsjúkdóm, efndu í dag til gjörnings við Lækjartorg til að mótmæla fyrirhugaðri brottvísun hans úr landi. Innlent 27. júní 2024 23:13
Yazan endanlega vísað úr landi og boðað hefur verið til mótmæla Ellefu ára palestínskum dreng með hrörnunarsjúkdóm verður vísað úr landi eftir að Kærunefnd útlendinga vísaði máli hans frá og neitaði honum endanlega um vernd hér á landi. Boðað hefur verið til mótmæla á sunnudag vegna þessa. Innlent 21. júní 2024 08:40
Hvað verður um þau? „Af hverju eru þau að flýja?“ spurði dóttir mín þegar hún settist hjá mér þar sem ég horfði á fréttaskýringu um hættulega för flóttafólks í gegnum Mexíkó. Ég þurfti að hugsa mig um augnablik – þarna var verið að fjalla um fólk frá Venesúela en líka öllum heiminum sem fór þessa leið í von um að komast til Bandaríkjanna – og ég hugsaði um allar ólíku ástæðurnar fyrir því að fólk leggi allt í sölurnar, yfirgefi allt sem það á og þekkir, og fari í slíka glæfraför með sig og börnin sín. Skoðun 20. júní 2024 16:00
Virkja leyniherbergi Alþingis vegna frumvarps um ríkisborgararétt Ákveðið var í dag að virkja leyniherbergi Alþingis vegna frumvarps um ríkisborgararétt. Þingmönnum verður í samræmi við það heimilt að skoða trúnaðargögn sem tengjast frumvarpinu í sérstöku herbergi, undir eftirliti, fram að afgreiðslu málsins. Ekki má skrifa niður eða taka myndir af gögnunum. Innlent 19. júní 2024 20:18
Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Í gær birti Hanna Símonardóttir mynd á X, áður Twitter, þar sem sjá má nokkra Palestínufána blakta ásamt fána með merki Mosfellsbæjar og íslenska fánanum. Yfirskrift Hönnu var „dagurinn sem Mosfellsbær varð öðrum til fyrirmyndar“, en færslan hefur vakið misgóð viðbrögð. Innlent 17. júní 2024 13:43
Þeir sem „brjóta alvarlega af sér“ verði sviptir dvalarleyfum Dómsmálaráðherra vill svipta þá flóttamenn sem „brjóta alvarlega af sér“ dvalarleyfum. Nýsamþykkt frumvarp segir hún stærstu breytingar á útlendingalögum til þessa. Innlent 14. júní 2024 20:39
Þrettán ungliðahreyfingar fordæma breytingar á útlendingalögum Þrettán íslenskar ungliðahreyfingar krefjast þess að ný útlendingalög verði samin í samráði við sérfræðinga í málaflokknum, mannréttindasamtök og hagsmunaaðila. Þau fordæma breytingarnar sem á að gera á útlendingalögunum og krefjast þess að allar lagabreytingar séu gerðar með mannréttindi að leiðarljósi. Innlent 10. júní 2024 22:27
Enginn ágreiningur uppi og útlendingafrumvarpið afgreitt í vikunni Bryndís Haraldsdóttir, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, segir engan ágreining uppi á milli stjórnarflokkanna um útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra. Innlent 4. júní 2024 06:26
Hagsmunir barna ekki „tromp spil“ og niðurstaða umboðsmanns ótæk Dómsmálaráðuneytið segir umboðsmann barna komast að „ótækri“ niðurstöðu í umsögnum sínum um útlendingafrumvarpið svokallaða. Hagsmunir barna séu ekki „tromp spil“ í útlendingamálum. Innlent 3. júní 2024 11:31
Vilja samstarf við Norðurlöndin vegna fólks sem vill ekki fara Fjórir þingmenn hafa lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að Alþingi feli dómsmálaráðherra að leita samstarfs við kollega sína á Norðurlöndum um móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd sem hafa fengið umsókn sinni synjað. Innlent 3. júní 2024 10:18
Um 200 bíða þess að vera flutt af landi í þvinguðum brottflutningi Á lista stoðdeildar ríkislögreglustjóra eru 227 verkbeiðnir um þvingaðan brottflutning einstaklinga. Þar af er verið að afla ferðaskilríkja fyrir 58 einstaklinga. Síðustu tólf mánuði hafa alls 188 einstaklingar verið fluttir á brott í þvinguðum flutningi til margra ólíkra landa. Innlent 29. maí 2024 06:46
Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Jódís Skúladóttir, þingkona Vinstri grænna, hefur óskað eftir því að fulltrúar Útlendingastofnunar, kærunefndar útlendingamála og ríkislögreglustjóra komi á fund allsherjar- og menntamálanefndar til að ræða um brottvísun þriggja nígerískra kvenna í fyrradag. Konurnar hafa allar lýst því að vera þolendur mansals. Innlent 15. maí 2024 15:00