
Úkraína

Halda að sér höndum vegna skotfæraleysis
Úkraínskir hermenn standa frammi fyrir skorti á skotfærum fyrir stórskotalið og hafa þurft að hætta við árásir og aðrar hernaðaraðgerðir vegna þessa skorts. Úkraínskur herforingi segir að rekja megi skortinn til samdráttar í hernaðaraðstoð frá bakhjörlum Úkraínu og að hann eigi mest við skotfæri fyrir vestræn stórskotaliðsvopn.

Kastaði handsprengjum inn á fjölmennan fund
Bæjarfulltrúi sprengdi að virðist þrjár handsprengjur á fjölmennum fundi í ráðhúsi Keretsk-bæjar í vesturhluta Úkraínu í dag. Árásarmaðurinn var sagður hafa dáið og 26 aðrir eru særðir, en lögreglan dró síðar til baka að maðurinn hefði dáið og er hann sagður í alvarlegu ástandi.

Orban stöðvar 50 milljarða evru hjálparpakka ESB til Úkraínu
Stjórnvöld í Ungverjalandi hafa stöðvað fyrirhugaðan 50 milljarða evru hjálparpakka Evrópusambandsins til Úkraínu. Ákvörðun Ungverja var tekin fáeinum klukkustundum eftir að samkomulag náðist um að hefja viðræður um aðild Úkraínu að sambandinu.

Úkraínu boðið að hefja aðildarviðræður við ESB
Leiðtogaráð Evrópusambandsins bauð í dag Úkraínu og Moldóvu að hefja formlegar viðræður um inngöngu í sambandið. Það kom fram á fundi leiðtoganna sem stendur nú yfir í Brussel.

Enginn friður fyrr en markmiðum Pútíns er náð
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að markmið hans varðandi innrásina í Úkraínu gildi enn. Enginn friður verði fyrr en þeim markmiðum hafi verið náð. Þetta sagði forsetinn á maraþonfundi þar sem hann á að hafa svarað spurningum almennings í Rússlandi.

Sagði frið ekki nást án réttlætis
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra lagði áherslu á að friður í Úkraínu myndi ekki nást án réttlætis. Hún sagði íslensk stjórnvöld vinna að því með öðrum innan Sameinuðu þjóðanna að koma sérstökum glæpadómstól vegna innrásar Rússa í Úkraínu.

Herir Evrópu standa á brauðfótum eftir áratuga niðurskurð
Frá því kalda stríðinu lauk á tíunda áratug síðustu aldar hafa ráðamenn í Evrópu varið sífellt minni fjármunum til varnarmála og hergagnaframleiðslu. Vopnabúr Evrópu eru svo gott sem tóm og getan til hergagnaframleiðslu lítil.

Úllen-dúllen-doff: hverjum hjálpum við?
Nú þegar Úkraínumenn hafa barist í bráðum tvö ár, fyrir sameiginlegum gildum okkar og frelsi, deila bandamenn okkar um áframhaldandi stuðning við þá.

Selenskí á leiðtogafundi Norðurlandanna í Osló
Volodómír Selenskí Úkraínuforseti kom í óvænta heimsókn til Noregs í morgun en hann hefur síðustu daga verið í Bandaríkjunum til að afla Úkraínu stuðnings í stríðinu gegn Rússum.

Telja þúsundir Rússa hafa fallið við Avdívka
Leyniþjónustur Bandaríkjanna áætla að um þrettán þúsund Rússneskir hermenn hafi fallið í áhlaupum Rússa í austurhluta Úkraínu frá því í október og þá sérstaklega áhlaupinu á bæinn Avdívka í austurhluta Úkraínu. Þá hafi Rússar misst rúmlega 220 skrið- og bryndreka á þessu tímabili.

Óreiða í Washington og tilhlökkun í Moskvu
Sendiherra Úkraínu í Bandaríkjunum segist vongóð um að bandarískir þingmenn muni samþykkja frekari hernaðaraðstoð, þó sífellt ólíklegra verði að slíkt verði gert fyrir jól. Repúblikanar í öldungadeild Bandaríkjaþings komu í veg fyrir atkvæðagreiðslu um frumvarp þar að lútandi í gærkvöldi og krefjast mikilla fjármuna til aukins eftirlits á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó.

Biden tilbúinn að lúffa fyrir Repúblikönum
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segir að frekari hernaðaraðstoð handa Úkraínumönnum geti ekki beðið þar til eftir jól. Þingið þurfi að samþykkja nýjar fjárveitingar til aðstoðarinnar og bað hann þingmenn um að leggja deilur sínar til hliðar í bili.

Skaut mann á tæplega fjögurra kílómetra færi
Úkraínsk leyniskytta er sögð hafa sett nýtt met þegar hann skaut rússneskan hermann á 3.800 metra færi. Það gerði hinn 58 ára gamli Vyacheslav Kovalskiy með sérsmíðaðri byssu og sérstökum skotum. Skotið sem hæfði hermanninn var um níu sekúndur á leiðinni.

Hvíta húsið segir fjármuni og tíma á þrotum
Hvíta húsið segir peninga og tíma á þrotum þegar kemur að aðstoð við Úkraínumenn, ef bandaríska þingið gefur sig ekki og samþykkir frekari fjárhagsaðstoð og stuðning.

Saka Rússa um að myrða hermenn sem gefast upp
Yfirvöld í Kænugarði hafa sakað Rússa um stríðsglæpi eftir að myndband fór í dreifingu á samfélagsmiðlum sem virðist sýna hóp hermanna skjóta tvo úkraínska hermenn sem gáfu sig rússneskum hermönnum á vald til bana þegar þeir klifruðu upp úr skotgröf.

Fyrrverandi forseta neitað að fara úr landi
Landamæraverðir í Úkraínu neituðu fyrrum forseta landsins Petro Porosjenkó um að fara úr landi í gær vegna þess að hann ætlaði sér að fara á fund Viktors Orbáns Ungverjalandsforseta. Þetta segir SBU, öryggisþjónusta Úkraínu.

Eiginkona Budanovs á sjúkrahúsi vegna eitrunar
Marianna Budanova, eiginkona Kyrylo Budanov, yfirmanns leyniþjónustu úkraínska hersins (GUR), er sögð vera á sjúkrahúsi eftir að eitrað var fyrir henni. Eiginmaður hennar hefur lifað af fjölmörg banatilræði á undanförnum árum.

Vaknaði við sprengingar meðan kollegarnir eyddu nóttinni í sprengjubyrgi
Sendiherra Íslands gagnvart Úkraínu segir óhugnanlegt að hafa vaknað upp við sprengjudrunur í Kænugarði í gærmorgun, þegar Rússar gerðu umfangsmikla drónaárás á borgina. Úkraínumenn minntust þess í gær að 90 ár eru liðin frá hungurmorðum Rússa á milljónum Úkraínumanna.

Stærsta drónaárásin hingað til
Rússar gerðu í nótt umfangsmestu drónaárásina sem gerð hefur verið á Kænugarð. 75 sjálfsprengidrónum var flogið að höfuðborg Úkraínu en flugher landsins segir 74 þeirra hafa verið skotna niður. Langflestir voru skotnir niður yfir borginni eða úthverfum hennar.

Færanlega neyðarsjúkrahúsið komið í notkun í Úkraínu
Færanlega neyðarsjúkrahúsið sem Alþingi ákvað í vor að gefa úkraínsku þjóðinni, er komið til Úkraínu og hefur verið tekið í gagnið.

Stúlkubarn frá Úkraínu endaði hjá pólitískum stuðningsmanni Pútín
Blaðamenn á vegum BBC hafa komist að því að stúlkubarn sem fæddist í Kherson í Úkraínu var flutt til Rússlands að undirlagi konu sem nú er gift einum helsta pólitíska stuðningsmanni Vladimir Pútín Rússlandsforseta.

Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Við höfum ekki næg skotfæri en þeir hafa nóg af fólki“
Harðir bardagar eiga sér enn stað á víglínunum í Úkraínu, þó byrjað sé að hægja á þeim vegna blautveðurs í aðdraganda vetrar. Í austri gera Rússar enn umfangsmiklar árásir á þreytta úkraínska hermenn við bæinn Avdívka og líkja Úkraínumenn Rússum við uppvakninga sem sækja fram í bylgjum.

Róbert Spanó kjörinn í stjórn tjónaskrár fyrir Úkraínu
Róbert Spanó var í dag kjörinn í stjórn alþjóðlegar tjónaskrár fyrir Úkraínu. Skráin mun taka til eignaskemmda, manntjóns og meiðsla af völdum stríðs Rússlands í Úkraínu. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Hið forna Garðaríki er mikið hitamál þessa dagana
Salka gengst fyrir einkar spennandi bókakvöldi, umræðum sem tengjast átökunum í Úkraínu. Íslendingasögur eru komnar í deigluna í deilunni um Úkraínu.

Hafa náð fótfestu á austurbakka Dnipro
Úkraínskir landgönguliðar vinna nú hörðum höndum að því að stækka fótfestu þeirra á austurbakka Dnipro-ár í Kherson-héraði. Harðir bardagar hafa geisað á svæðinu en Úkraínumenn vilja koma bryndrekum yfir ánna.

Andspyrnumenn felldu þrjá rússneska leyniþjónustumenn
Að minnsta kosti þrír rússneskir leyniþjónustumenn voru drepnir í úkraínsku borginni Melitopol í gær.

Selenskí varar Úkraínumenn við auknum árásum á innviði
Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur varað Úkraínumenn við auknar árásir Rússa á innviði í landinu nú þegar vetur gengur í garð. Hann segir herinn búinn undir sókn Rússa á austurvígstöðvunum.

Dó þegar afmælisgjöfin sprakk
Aðstoðarmaður yfirmanns herafla Úkraínu dó í gær þegar handsprengja sem hann fékk í afmælisgjöf sprakk. Þrettán ára sonur mannsins, sem hét Gennadiy Chastyakov og var majór, særðist alvarlega en fyrst var talið að um banatilræði hefði verið að ræða.

Salúsjní segir þrátefli á víglínunni
Valerí Salúsjní, yfirmaður herafla Úkraínu, segir ólíklegt að Úkraínumenn muni ná að brjóta sér leið í gegnum varnir Rússa og að stríðið í Úkraínu sé að færast í nýjan fasa staðbundins hernaðar og þreytistríðs (e: attritional warfare). Hann segir nýja tækni lykilinn að því að gera Úkraínumönnum kleift að sigra Rússa.

Úkraínsk Rússahækja skotin á Krímskaga
Oleg Tsarev, fyrrverandi þingmaður í Úkraínu, er á sjúkrahúsi og sagður í alvarlegu ástandi eftir að hann var skotinn á Krímskaga síðustu nótt. Tsarev er sakaður um að hafa svikið Úkraínu og gengið til liðs við Rússa.