Íhlutun Bandaríkjanna í Venesúela
1 2 ›
Gæti leitt til aukinnar íhlutunar í Atlantshafi Bandaríski herinn tók yfir stjórn rússnesks olíuflutningaskips í íslenskri efnahagslögsögu fyrr í dag eftir tveggja vikna eftirför og tóku rússneska áhafnarmeðlimi um borð fasta. Rússar hafa fordæmt aðgerðina og krafist þess að borgurum sínum verði skilað heim en því verða Bandaríkjamenn ekki við. Erlent 7.1.2026 20:04
Maduro, Diddy og Mangione í sama fangelsi Stuttu eftir að bandarísk herþota með Nicolás Maduro forseta Venesúela og eiginkonu hans Ciliu Flores lenti á flugvelli skammt frá New York-borg voru hjónin flogin með þyrlu í eitt alræmdasta fangelsi Bandaríkjanna: Metropolitan detention center. Þar dvelur einnig Luigi Mangione, sem grunaður er um að hafa myrt forstjóra UnitedHealthcare, og þangað til nýlega Sean Combs, betur þekktur sem P Diddy. Erlent 7.1.2026 18:10
Tóku einnig skuggaskip í Karíbahafinu Bandarískir hermenn gerðu í dag áhlaup um borð í olíuflutningskip sem bendlað hefur verið Venesúela á Karíbahafinu. Bandaríkjamenn tóku því yfir tvö slík skip sem sögð eru hafa verið notuð til að brjóta á viðskiptaþvingunum. Erlent 7.1.2026 15:17
Allra augu á Íslandi og Atlantshafinu Flugferðir sem tengjast aðgerðum Bandaríkjamanna á Atlantshafi í dag og flugferðir milli Bretlands og Íslands hafa verið mikið milli tannanna, ef svo má segja, á fólki á internetinu í dag. Mögulegt er að Bandaríkjamenn séu að flytja hergögn og hermenn frá Bretlandi aftur til Bandaríkjanna eftir aðgerðirnar. Erlent 7.1.2026 14:40
Hvað er Trump eiginlega að bralla? Hvað er forseti Bandaríkjanna að meina með því að ræna Maduro? Trump sjálfur hefur vísað í tvær réttlætingar fyrir því að framkvæma þennan gjörning: í fyrsta lagi hefur hann sakað forseta Venesúela um að taka beinan þátt í fíkniefnasmygl og í öðru lagi er Maduro sakaður um að hafa „stolið“ olíu frá Bandaríkjunum (fyrir valdatíð Hugo Chavez og síðan Maduro höfðu bandarísk olíufélög greiðan aðgang að olíuauði landsins). Skoðun 6.1.2026 20:33
Varnarsamningur við ESB settur á oddinn og þjóðaratkvæðagreiðsla brátt fyrir þingið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir að áfram verði unnið að tvíhliða varnarsamningi við Evrópusambandið en segir samstarf Íslands og Bandaríkjanna í varnarmálum enn gott þrátt fyrir vendingar í alþjóðamálum og hótanir um innlimun Grænlands. Yfirlýsingar um annað eru að mati ráðherra glannalegar en hún vill ræða málið á vettvangi NATO. Frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við ESB verði lagt fram á þessu þingi. Innlent 6.1.2026 14:29
Vill afhenda Trump friðarverðlaunin Maria Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela, segist ætla að snúa aftur til landsins eins fljótt og henni er auðið. Hún segist einnig vilja afhenda Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, friðarverðlaun Nóbels, sem hún hlaut í fyrra. Trump hefur sagt að hún njóti ekki nægilegrar virðingar til að stýra Venesúela eftir að hann lét nema Nicolás Maduro, forseta, á brott á dögunum. Erlent 6.1.2026 11:21
Huldumaður hagnaðist verulega á árásinni á Venesúela Minna en fimm klukkustundum áður en fyrstu sprengjurnar lentu í Caracas, höfuðborg Venesúela, um helgina og bandarískir sérsveitarmenn námu Nicolás Maduro, forseta, á brott, veðjaði einn maður á að Maduro yrði steypt af stóli. Nokkrum klukkustundum síðar fékk hann rúmlega fjögur hundruð þúsund dali vegna veðmálsins, eða um tólffalt það sem hann hafði veðjað. Erlent 6.1.2026 10:02
„Ég er forseti sem hefur verið rænt; stríðsfangi!“ Nicolás Maduro óskaði viðstöddum gleðilegs nýs árs þegar hann var leiddur fyrir dómara í New York í gær. Þá sagði hann að honum hefði verið rænt á heimili sínu og að hann væri stríðsfangi. Bæði hann og eiginkona hans, Cilia Flores, sögðust saklaus af þeim ákærum sem þau sæta í Bandaríkjunum. Erlent 6.1.2026 06:43
Semjum við Trump: Breytt heimsmynd sem tækifæri, ekki ógn Örar breytingar í alþjóðamálum undanfarið hafa breytt öryggisumhverfi Íslands í öllum grundvallaratriðum. Handtaka Bandaríkjanna á Nicolás Maduro, forseta Venesúela, um síðustu helgi, og vaxandi áhugi Washington á Grænlandi eru einungis nýjustu dæmin um að hinir sterku fara sínu fram; að þjóðir eiga ekki vini – bara hagsmuni. Skoðun 6.1.2026 06:01
„Loksins ljós við enda ganganna“ Flóttafólk frá Venesúela sem hefur búið hér á landi í þrjú ár fagnar handtöku Niculás Maduro. Loksins ljós við enda ganganna, segir eitt þeirra. Þau óttast þó að fólkið sem er nú við stjórnarvölinn sé enn hættulegra en hann. Það þurfi að koma því öllu frá svo hægt sé að hefja endurreisn í landinu. Innlent 5.1.2026 22:00
„Ég er ekki í pólitík til að gera fólk glatt“ Utanríkisráðherra telur alþjóðasamfélagið ekki hafa borið næga virðingu fyrir Alþjóðlega sakamáladómstólnum eftir aðgerðir Bandaríkjastjórnar um liðna helgi. Hún segir áríðandi að Íslendingar standi vörð um hagsmuni sína gagnvart Bandaríkjamönnum þó að „vinur sé sá er til vamms segir“. Erlent 5.1.2026 21:57
„Einhver verður að gera eitthvað til að stoppa manninn af“ Hernaðaraðgerð Bandaríkjanna í Venesúela og ummæli Bandaríkjaforseta um Grænland ýfðu upp gömul sár og vöktu reiði hjá Grænlendingum. Þetta segir íbúi í Nuuk sem hvetur Íslendinga til að „ybba gogg“ fyrir hönd Grænlendinga, eins og hún kemst að orði. Bandaríkin séu að hlusta. Erlent 5.1.2026 19:09
Hæddist að vörnum Dana á Grænlandi: „Þeir bættu við einum hundasleða“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur ítrekað talað um að Bandaríkin „verði“ að eignast Grænland. Það sé einkar mikilvægt fyrir þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Trump nefndi þetta fyrst árið 2019 á sínu fyrra kjörtímabili en mun meiri þungi hefur færst í orðræðuna vestanhafs á undanförnum dögum. Erlent 5.1.2026 16:56
Upphaf langra málaferla Nicolás Maduro, forseti Venesúela, og Cilia Flores, eiginkona hans, hafa verið flutt í dómshúsi í New York þar sem þau verða færð fyrir dómara fyrsta sinn. Bæði eru ákærð fyrir aðkomu að umfangsmiklu smygli fíkniefna til Bandaríkjanna og hryðjuverkastarfsemi en þau voru fjarlægð með hervaldi frá Venesúela á dögunum. Erlent 5.1.2026 16:00
„Það mun reyna á okkur hér“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, kveðst sátt við þau svör og skýringar sem utanríkisráðherra hafi veitt á fundi utanríkismálanefndar í morgun vegna þeirrar stöðu sem uppi er eftir aðgerðir Bandaríkjanna gegn Venesúela um helgina. Hún telur ljóst að aðgerðirnar stangist á við alþjóðalög en hún væntir þess að þingnefndin muni eiga enn reglulegri fundi með utanríkisráðherra og fulltrúum ráðuneytisins í ljósi þeirra víðsjárverðu tíma sem uppi eru í alþjóðakerfinu. Það muni reyna enn frekar á stjórnmálamenn hér sem annars staðar að takast á við nýjan veruleika. Innlent 5.1.2026 15:10
Ítrekaðar íhlutanir í „bakgarði“ Bandaríkjanna Árás Bandaríkjastjórnar á Venesúela um helgina var fyrsta hernaðaraðgerð hennar í Rómönsku Ameríku á þessari öld. Bandaríkin eiga sér hins vegar aldalanga sögu íhlutana í heimshluta sem þarlendir ráðamenn hafa oft skilgreint sem „bakgarð“ þeirra. Erlent 5.1.2026 15:03
Venesúela og sögulegu fordæmin Trump og ráðgjafar hans virðast vilja pólitískan ávinning stríðs án þess að þurfa í raun að heyja það. Þeir vilja stuttu leiðina að fasísku stjórnarfari – lýsa strax yfir miklum sigri og nota samfélagsmiðla til að ráðast gegn óvinum heima fyrir. En fasismi krefst ekki skyndiaðgerða, heldur raunverulegra átaka sem setja almenning í hættu og draga hann þannig inn í ofbeldið. Umræðan 5.1.2026 14:18
Nýr veruleiki ætli Bandaríkin að taka Grænland Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins segir það skipta mestu máli í yfirlýsingum íslenskra yfirvalda að ítreka að allar þjóðir virði alþjóðalög. Hann segir yfirlýsingar utanríkisráðherra um helgina hafa verið veikar. Samstaða meðal þjóða um að virða alþjóðalög, lýðræði og frið sé það mikilvægasta. Hann segir það nýjan veruleika ætli Bandaríkin að taka Grænland og ekkert land verði óhult verði það raunin, ekki Ísland heldur. Innlent 5.1.2026 13:43
Ekki hægt að útiloka að Bandaríkin beiti valdi á Grænlandi Prófessor í stjórnmálafræði segir að taka þurfi orð forseta Bandaríkjanna um Grænland og hans ásælni alvarlega. Í ljósi framgöngu Bandaríkjastjórnar í Venesúela sé ekki hægt að útiloka að Bandaríkin beiti valdi til þess að ná yfirráðum yfir Grænlandi. Innlent 5.1.2026 13:18
Maduro verður leiddur fyrir dómara síðdegis Delcy Rodríguez, varaforseti Venesúela, mun í dag sverja embættiseið og taka við sem forseti landsins. Nicolas Maduro forseti Venesúela, sem var handsamaður af Bandaríkjamönnum um helgina, mætir fyrir dómara í New York í dag. Erlent 5.1.2026 12:26
Ekki endilega betri heimur fyrir Ísland Formaður utanríkismálanefndar segir heim þar sem stórveldi beita valdi til að ná sínu fram ekki gera heiminn betri fyrir smáríki eins og Ísland. Það sé erfitt að sjá hvernig aðgerðir Bandaríkjanna í Venesúela samrýmist alþjóðalögum, en á móti hafi stjórn Maduro einkennst af „ógeðslegu stjórnarfari“. Trúnaður ríkir um það sem fram kom á fundi utanríkismálanefndar í morgun en utanríkisráðherra var gestur fundarins sem boðaður var í framhaldi af aðgerðum Bandaríkjanna gegn Venesúela um helgina. Innlent 5.1.2026 11:09
Reyna að koma sextán skipum gegnum herkví Áhafnir að minnsta kosti sextán olíuflutningaskipa virðast vera að reyna að komast gegnum herkví Bandaríkjanna um Venesúela. Slökkt hefur verið á sendum skipanna eða raunverulegar staðsetningar þeirra huldar á síðustu tveimur dögum en þar áður höfðu skipin verið við bryggju í Venesúela til lengri tíma. Erlent 5.1.2026 10:17
Rúmlega þrjátíu Kúbverjar sagðir hafa fallið í Venesúela Stjórnvöld á Kúbu fullyrða að 32 kúbverskir liðsforingjar hafi fallið í hernaðaraðgerðum Bandaríkjanna í Venesúela um helgina. Þeir hafi unnið að aðgerðum í Venesúela að ósk þarlendra yfirvalda. Erlent 5.1.2026 08:34
Dýpra samtal og samvinna við Evrópusambandið „lykilbreyta“ „Sundurlyndi, yfirlýsingagleði og dauðahald í horfinn heim er ekki það sem við þörfnumst nú um stundir,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í aðsendri grein sem birtist á Vísi nú í morgun. Hún segir sótt að þeim grunngildum sem Ísland byggir utanríkisstefnu sína á og að Íslendingar geti ekki „lokað augunum“ á sama tíma og umheimurinn tekur „sögulegum breytingum“. Innlent 5.1.2026 07:50
Rodríguez réttir Bandaríkjunum sáttarhönd Delcy Rodríguez, varaforseti Venesúela og sitjandi forseti í fjarveru Nicolás Maduro, sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hún virðist rétta fram sáttarhönd til stjórnvalda í Bandaríkjunum. Erlent 5.1.2026 06:49
Stjórn Maduro situr sem fastast Venesúelski herinn hefur viðurkennt valdatöku Delcy Rodríguez sem starfandi forseta landsins. Hún var varaforseti, fjármálaráðherra og olíumálaráðherra í valdatíð Maduro. Því er ekki ljóst hvaða breytingar, ef einhverjar, árás Bandaríkjanna kemur til með að hafa á stjórnarfar í Venesúela. Bandamenn Maduro hafa enn töglin og hagldirnar í stjórn landsins. Erlent 4.1.2026 19:15
Svona handsömuðu Bandaríkin Maduro: Njósnarar, lóðlampar og eftirlíking af dvalarstað Maduros í fullri stærð Drónar, njósnarar, tölvuárás, uppljóstrari í venesúelsku ríkisstjórninni, lóðlampar, og nær fullkomin eftirlíking af dvalarstað Nicolás Maduros komu við sögu við undirbúning hernaðaraðgerðarinnar sem Bandaríkjaher réðst í í höfuðborg Venesúela í fyrrinótt þar sem venesúelski forsetinn og forsetafrúin voru handsömuð. Erlent 4.1.2026 18:25
„BRÁÐUM“ „BRÁÐUM“ skrifar Katie Miller, fyrrverandi fjölmiðlafulltrúi úr ríkisstjórn Trumps, hástöfum í færslu á X í gær þar sem hún birtir kort af Grænlandi sem er málað með bandarískum fánalitum. Erlent 4.1.2026 14:37
Mögulegt að íhlutun Bandaríkjamanna leiði til borgarastyrjaldar Alþjóðastjórnmálafræðingur segir ekki hægt að útiloka að borgarastyrjöld brjótist út í Venesúela í kjölfar innrásar Bandaríkjamanna. Innrásin sjálf hafi ekki endilega komið á óvart, en hvernig var staðið að henni sé forvitnilegt. Erlent 4.1.2026 13:41