Kennaraverkfall 2024-25
1 2 3 4 5 6 … 9 ›
Boða til allsherjarfundar samninganefnda Kennarasambandsins Samninganefndir allra aðildarfélaga Kennarasambands Íslands hafa verið boðaðar til stöðufundar í húskynnum Kennarasambandsins eftir hádegi. Algjör pattstaða er uppi í kjaraviðræðum kennara og sveitarfélaga. Formaður Kennarasambandsins vonar að skýrari mynd fáist af afstöðu félagsfólks að loknum fundi. Innlent 24.1.2025 11:53
Ég get horft í augun á ykkur og sagt Stefna foreldra snýst ekki um að mótmæla kjaradeilu kennara, ekki að því að svipta kennara verkfallsrétti og er ekki aðför gegn kennurum. Skoðun 24.1.2025 10:02
Hvenær er lögbrot lögbrot og hvenær er lögbrot ekki lögbrot!! Lögbrot eða ekki lögbrot. Foreldrar leikskólabarna eru mjög leiðir og reiðir yfir því að Kennarasambandið sé að brjóta á réttindum barna þeirra og ætla því í mál við Kennarasambandið vegna verkfalla sem hafa haft áhrif á líf og framavonir leikskólabarnanna. Það er gott og blessað að fara í mál þegar á manni er brotið. Ég vil hins vegar benda þessum foreldrum sem bera hag barna sinna fyrir brjósti að annað lögbrot hefur fengið að viðgangast ansi lengi en það er ráðning starfsfólks í leikskóla í stað kennara. Skoðun 23.1.2025 22:33
„Við erum algjörlega komin á endastöð“ Kjaraviðræður kennara við ríki og sveitarfélög eru komnar stál í stál og fátt virðist geta komið í veg fyrir að verkföll skelli á um mánaðamótin. Formaður samninganefndar sveitarfélaga segir viðræðurnar á endastöð og stranda á kröfum um miklar launahækkanir. Innlent 23.1.2025 20:31
Spyr hvort foreldrarnir muni geta horft í augun á kennurum barnanna Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, segir kæru foreldrahóps leikskólabarna vera aðför að kennurum barna þeirra en fréttastofa greindi frá því í hádegisfréttum að foreldrahópurinn hefði stefnt Kennarasambandi Íslands því hann teldi hinar ótímabundnu verkfallsaðgerðir í leikskólum vera ólöglegar. Innlent 23.1.2025 14:56
Foreldrar stefna Kennarasambandinu vegna verkfallsaðgerða Hópur foreldrar leikskólabarna hefur stefnt Kennarasambandi Íslands vegna verkfallsaðgerða kennara. Foreldrarnir telja aðgerðirnar ólöglegar. Innlent 23.1.2025 12:12
Kallar eftir þjóðarátaki: Skólastjóri segir agaleysi innan skólanna óboðlegt Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skólastjóri í Hörðuvallaskóla segir kjarasamningsviðræður kennara sem nú standa yfir þær dýrmætustu fyrr og síðar. Staðan í skólunum sé orðin óboðleg og álagið gífurlegt. Börn beiti miklu ofbeldi og það sé mikið agaleysi. Innlent 21.1.2025 09:38
Opið bréf til foreldra í Stakkaborg Kæru foreldrar og forráðamenn. Mig langar að senda ykkur nokkrar línur um stöðu mála í kjaradeilu kennara. Við erum því miður ekki komin með neinn kjarasamning og það virðist vera litið að gerast í samningamálum KÍ og SÍS. Skoðun 20.1.2025 15:02
Hvernig þjóð viljum við vera? Á Íslandi teljum við það sjálfsagðan hlut að það renni hreint vatn úr krönum og að þar sé rafmagn fyrir tæki og tól. Það er árangur fjárfestingar sem þjóðin gerði í byrjun síðustu aldar. Kennarasamband Íslands hefur á undanförunum mánuðum beðið þjóðina að fjárfesta í kennurum enda teljum við slíka fjárfestingu jafn nauðsynlega og hreina vatnið og rafmagnið. Skoðun 20.1.2025 13:33
13,5 milljónir Nú þegar líður á janúarmánuð og verkföll kennara á öllum skólastigum virðast blasa við er gott að huga að því um hvað málið snýst. Skoðun 18.1.2025 19:01
Undirbúa verkföll: „Þetta er ömurleg staða að svona skuli standa“ Algjör pattstaða er uppi í kjaraviðræðum framhaldskólakennara við ríkið að sögn formanns Félags framhaldsskólakennara. Félagið hefur hafið undirbúning að verkfallsaðgerðum sem formaðurinn vonar þó að ekki þurfi að grípa til. Að svo stöddu fæst ekki gefið upp í hvaða framhaldsskólum verkföll koma til greina. Þeir verða þó fleiri en í síðustu aðgerðum og ná til nokkur hundruð kennara. Innlent 18.1.2025 13:57
Hefja undirbúning verkfalla í framhaldsskólum Trúnaðarmenn Félags framhaldsskólakennara hafa lýst yfir þungum áhyggjum af pattstöðu í kjaraviðræðum þeirra við ríkið. Trúnaðarmennirnir eru sammála um að hefja skuli undirbúning verkfalla sem hefjast í næsta mánuði að óbreyttu. Innlent 17.1.2025 17:30
Kennarar mæta aftur í Karphúsið Samninganefndir kennara og sveitarfélaga komu saman til fundar hjá ríkissáttasemjara klukkan ellefu eftir stutt viðræðuhlé. Samninganefnd ríkisins er ekki á fundinum. Innlent 15.1.2025 12:13
Segir miður að þurfa að lyfta hnefa svo hlustað sé á kennara Samninganefndir kennara og sveitarfélaga funda í Karphúsinu á morgun eftir stutt hlé á samningaviðræðunum. Formaður Kennarasambandsins segir miður að vera aftur að lenda á þeim stað að þurfa að lyfta hnefanum til þess að láta hlusta á kennara. Innlent 14.1.2025 20:04
Deilan í algjörum hnút Kjaradeila kennara og ríkis og sveitarfélaga er í algjörum hnút og óvíst hvenær sest verður aftur við samningaborðið. Formaður samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga segir deiluna helst stranda á launakröfum kennara. Innlent 13.1.2025 12:51
Viðræður í kjaradeilu kennara sigldu í strand Enn er langt á milli aðila í kjaradeilu kennara við ríki og sveitarfélög hjá ríkissáttasemjara og var tekið ótímabundið hlé í viðræðunum í gær. Verkföll hefjast 1. febrúar náist ekki að semja fyrir það. Innlent 11.1.2025 08:46
Kennarar segja: „Nóg komið!“ – Verkfall fyrir virðingu og verðskulduð réttindi Það er með ólíkindum að við sem kennarar finnum okkur í stöðu þar sem eina leiðin til að ná fram réttindum okkar og bættum starfsskilyrðum er að grípa til verkfalls. Skoðun 10.1.2025 10:45
Af hverju eru kennarar að fara í verkfall? Nú stefnir í að kennarar og stjórnendur í fjölmörgum skólum landsins fari í verkfall. Þann 1. febrúar næstkomandi hefjast að óbreyttu verkföll í 14 leikskólum og 7 grunnskólum. Viðbúið er að tveir eða fleiri framhaldsskólar sigli í kjölfarið. Skoðun 10.1.2025 07:32
Vinna að því að koma í veg fyrir frekari aðgerðir hjá kennurum Verkfall kennara hefst að nýju um næstu mánaðamót verði ekki samið. Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands segir deiluaðila hafa fundað þétt síðan í nóvember desember þegar verkfalli var frestað. Magnús Þór fór yfir stöðuna í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Innlent 3.1.2025 08:28
Veit vel að önnur kjör en laun þurfi að ræða Formaður Kennarafélags Íslands (KÍ) segir verkefnið við kjarasamningaborðið oft einfaldað af almenningi. Meginmarkmiðið er jöfnun launa kennara og sambærilegra stétta á almennum markaði. Hann segir sambandið vera meðvitað um að önnur kjör en laun þurfi að ræða við samningaborðið. Innlent 27.12.2024 16:57
Að þora að stíga skref Árið 2024 hefur ekki bara verið viðburðaríkt þegar kemur að því að velja einstaklinga til að leiða þjóð, þing og kirkju. Eitt af því sem einkenndi árið var vinna við kjarasamninga, bæði á opinberum og almennum markaði. Sumum samningum tókst að ljúka á meðan aðrir, þar á meðal samningar við aðildarfélög Kennarasambands Íslands (KÍ), eru enn í viðræðuferli. Skoðun 27.12.2024 16:31
Menntun fyrir Hans Vögg Nú þegar ég hef lagt nótt við dag að fara yfir ritgerðir, próf og verkefni til að komast sómasamlega frá kennslunni eftir fimm vikna verkfall situr eitthvað í mér. Ég er svolítið sár út í upphrópanir um að þetta verkfall okkar kennara í Fjölbrautaskóla Suðurlands hafi ekki haft nein áhrif. Skoðun 21.12.2024 23:32
Erindisleysa Kennarasambandsins Tilgangslausu fimm vikna verkfalli Kennarasambandsins var frestað daginn fyrir kosningar. Sú frétt var fljót að drukkna undan stjórnmálaþrefinu. Forysta kennara gat því læðst á brott án þess að standa fyrir máli sínu. Skoðun 9.12.2024 07:03
Fá engin svör og íhuga réttarstöðu sína Foreldrar barna á Leikskóla Seltjarnarness íhuga réttarstöðu sína vegna útfærslu verkfalls kennara á fáum útvöldum leikskólum. Foreldrar séu í mikilli óvissu varðandi hvað taki við eftir áramót og hafa sent fyrirspurnir á Kennarasambandið en engin svör fengið. Innlent 6.12.2024 12:02
Útiloka verkfall í FSu á nýju ári Stjórnir og samninganefndir Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum hafa tekið þá ákvörðun að verkföll hefjist ekki aftur í Fjölbrautarskóla Suðurlands verði enn ósamið í kjaradeilunni þann 1. febrúar. Í staðinn muni hugsanlegar aðgerðir beinast að öðrum framhaldsskólum strax í febrúar. Innlent 5.12.2024 16:11
Gátu loksins mætt aftur í skólann sinn á Selfossi Það ríkti mikil ánægja hjá nemendum Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi í morgun þegar þau gátu loksins mætt aftur í skólann eftir nokkra vikna verkfall kennara. Skólameistari skólans trúir ekki öðru en að samið verði við kennara en verkfallinu var bara aflýst. Innlent 3.12.2024 21:06
Getur ekki hugsað til þess að þurfa að loka aftur eftir tvo mánuði Grátklökkir foreldrar, kennarar og glöð börn hittust á leikskólanum Drafnarsteini í Reykjavík í dag eftir langt verkfall. Leikskólastjórinn segist ekki geta hugsað til þess að þurfa mögulega að loka leikskólanum aftur eftir tvo mánuði ef samningar nást ekki í tæka tíð. Innlent 2.12.2024 19:33
„Maður er einhvern veginn í spennufalli“ Móðir tæplega þriggja ára stúlku á leikskólanum Drafnarsteini segir dóttur sína hafa mætt alsæla aftur í leikskólann í morgun eftir fimm vikna verkfall kennara. Hún vonar að setið sé við samningaborðið dag og nótt til að samningar náist áður en verkfallsaðgerðir hefjast á ný. Innlent 2.12.2024 12:32
Önnin kláruð með eðlilegum hætti í MR Rektor Menntaskólans í Reykjavík fagnar því að fá nemendur aftur í skólann á mánudaginn næstkomandi. Verkfall hefur staðið yfir í skólanum síðustu tvær vikur, en hefur nú verið slegið á frest. Önnin verður kláruð með eðlilegum hætti. Innlent 29.11.2024 19:40
Miklar gleðifréttir og gott að fá nemendur og starfsfólk aftur í hús Soffía Sveinsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla suðurlands, segir miklar gleðifréttir að verkfalli kennara hafi verið frestað. Verkfall hefur staðið yfir í skólanum síðan 29. október. Kennsla hefst á ný á þriðjudaginn og mun standa yfir til 20. desember. Innlent 29.11.2024 17:44