Sjúkratryggingar

Fréttamynd

Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ó­dýrasta kostinn

Erla Gerður Sveins­dóttir, sér­fræðilæknir í of­fitu­með­ferð, segir kostnaðinn sem fylgi þyngdar­stjórnunarúrræðum sem nú standi til boða því miður reynast sumum of­viða. Þá sé eðlis­munurinn á þyngdar­stjórnunar­lyfjum slíkur að ekki geti allir stokkið á ódýrustu lausnina í þeim efnum.

Innlent
Fréttamynd

Kæru sjúkra­tryggingar, má ég eignast barn núna?

Þann 1. desember 2022 gekk samningur um niðurgreiðslu á aðgerðum vegna endómetríósu í gegn. Þáverandi heilbrigðisráðherra skrifaði að “það er mikið gleðiefni að samningar hafi náðst um þessar mikilvægu aðgerðir. Eins er samningurinn mikilvægur liður í framtíðarfyrirkomulagi þessara aðgerða” Nú hefur hinsvegar fjármagn verið skert aftur og lítið hefur verið fjallað um það.

Skoðun
Fréttamynd

Sjúkra­tryggingar Ís­lands eyði­leggja líf fatlaðs barns

Ég hefði aldrei trúað því að stærsta hindrun fatlaðs barns yrði ekki fötlunin sjálf heldur íslenskt velferðarkerfi – það kerfi sem á að standa vörð um réttindi þeirra sem þurfa á mestum stuðningi að halda. En þetta er raunveruleikinn sem fjölskyldan mín lifir á hverjum degi.

Skoðun
Fréttamynd

Tólf sagt upp hjá Sjúkra­tryggingum

Nýtt skipurit hefur verið samþykkt hjá Sjúkratryggingum sem felur í sér fækkun skipulagseininga þar sem dregið er úr yfirbyggingu og stjórnendum fækkað. Samhliða breytingunum hefur verið ákveðið að leggja niður tólf störf hjá Sjúkratryggingum.

Innlent
Fréttamynd

Tímamótasamningur Sjúkra­trygginga og SÁÁ

Sjúkratryggingar og SÁÁ hafa undirritað nýjan heildarsamning um meðferð við fíknsjúkdómi. Samningurinn er sagður marka tímamót í íslenskri heilbrigðisþjónustu og felur í sér mikilvæga viðurkenningu á fíknsjúkdómi sem alvarlegum og langvinnum heilbrigðisvanda sem krefst samfelldrar og faglegrar meðferðar.

Innlent
Fréttamynd

Ó­vænt breyting hækkaði lyfin um tugi þúsunda

Sjúklingar sem hugðust leysa út ákveðin lyf í vikunni þurftu sumir að greiða tugþúsundum meira en þeir áttu von á út af reglugerðarbreytingu Sjúkratrygginga. Formaður Lyfjafræðingafélags Íslands segir breytinguna hafa verið fyrirvaralausa, sem sé ótækt.

Innlent
Fréttamynd

Missir úr skóla og tekur ekki þátt í fé­lags­lífi eftir að vökva­gjöf var hætt

Eva Birgisdóttir var fyrir ári síðan greind með POTS-heilkennið. Hún byrjaði í framhaldsskóla í haust en nær aðeins að mæta tvo eða þrjá daga í viku eftir að hún hætti að komast í reglulega vökvagjöf. Birgir, faðir Evu, hvetur stjórnvöld til að endurskoða ákvörðun sína um kostnaðarþátttöku, sérstaklega á meðan vinnuhópur er enn við störf og engar aðrar lausnir eða meðferðir eru í boði.

Innlent
Fréttamynd

Enga skamm­sýni í skamm­deginu

Vetur konungur minnti á sig fyrir skemmstu þegar snjó kyngdi niður á suðvesturhorninu. Í skammdeginu skapa snjór og myrkur aðstæður sem krefjast varúðar, hvort sem þú ert að keyra, hjóla, ganga eða njóta útivistar. Í þessum aðstæðum er sýnileiki allra vegfarenda lykilatriði og að ökumenn sjái vel út.

Skoðun
Fréttamynd

Segja eins og áður að­eins samið til skamms tíma og leið­rétta ráð­herra

Erna Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Ljóssins, segir það ekki rétt sem kom fram í máli Ölmu Möller heilbrigðisráðherra í umræðum um Ljósið að það hafi verið undirritaður nýr samningur um fjárveitingar til Ljóssins. Sjúkratryggingar og Ljósið hafi aðeins komist að samkomulagi um fjármagn þessa árs og samningurinn sé til skamms tíma eins og áður.

Innlent
Fréttamynd

Segir erfitt fyrir lækna að starfa við boðuð skil­yrði

Samstarf lækna og stjórnvalda er í hættu ef af fyrirhuguðum breytingum á Sjúkratryggingum verður. Þetta segir Ragnar Freyr Ingvarsson formaður Læknafélags Reykjavíkur og að breytingarnar komi þvert á sátt sem náðist fyrir tveimur árum. 

Innlent
Fréttamynd

„Mér finnst þeir vera að taka frá mér lífið“

Kona sem var rúmliggjandi í nokkurn tíma vegna baráttu sinnar við POTS-heilkennið neyddist til að leita á bráðamóttökuna eftir að heilsugæsla hennar hætti að veita vökvagjöf. Hún óttast að enda aftur á sama stað nú þegar búið er að stöðva niðurgreiðslu úrræðisins

Innlent
Fréttamynd

Bætir þrepi við greiðsluþátttökukerfið

Heilbrigðisráðherra hyggst gera breytingar á kerfi fyrir greiðsluþátttöku sjúkratryggðra um næstu áramót. Breytingarnar, sem eiga að spara Sjúkratryggingum Íslands fjögur hundruð milljónir króna á ári, felast í að bæta þrepi við greiðsluþátttökukerfið.

Innlent
Fréttamynd

„Vökvagjöfin er ekki bara eitt­hvað sem ég trúi á“

„Ég þori eiginlega ekki að hugsa út í það hvernig lífið mitt á eftir að verða. Þegar ég fer að pæla í því þá er það svo kvíðavaldandi og stressandi, þannig að ég reyni eiginlega bara að hugsa ekkert um það,“ segir Ethel María Hjartardóttir. 

Lífið
Fréttamynd

Heild­stætt heil­brigðis­kerfi – hagur okkar allra

Við Íslendingar viljum sterkt opinbert heilbrigðiskerfi, það sýna fjölmargar rannsóknir. Einkaaðilar bera þó uppi umtalsverðan hluta heilbrigðiskerfisins í gegnum samninga við Sjúkratryggingar Íslands. Samspil einkareksturs og opinbers reksturs í heilbrigðisþjónustu er flókið úrlausnarefni sem huga þarf mun betur að.

Skoðun
Fréttamynd

„Gull­húðun“ EES-reglna á sviði heil­brigðisþjónustu

Allir einstaklingar, þar á meðal efnahagslega óvirkir EES-borgarar, öðlast rétt til trygginga í íslenska sjúkratryggingakerfinu, eftir sex mánaða löglega búsetu hér á landi. Þetta þýðir að íslenska ríkið veitir mun víðtækari réttindi í þessum efnum en því er skylt.

Umræðan
Fréttamynd

Krefjast þess að ráð­herra dragi um­mæli sín til baka

Samtökin um POTS á Íslandi fordæma ummæli sem Alma Möller heilbrigðisráðherra lét falla í samtali við fréttastofu í gær. Hún sagðist hafaskilning á að það sé erfitt að „hætta í meðferð sem maður trúir á,“ en þar vísar hún til vökvagjafarmeðferð sem POTS-sjúklingar nýta sér. Sjúkratryggingar hyggjast hætta greiðsluþátttöku vegna hennar í lok september.

Innlent
Fréttamynd

Marg­föld að­sókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“

Aðsókn í vökvagjöf vegna POTS-heilkennis hefur margfaldast á aðeins örfáum árum. Ákvörðun um að hætta að greiða niður þjónustuna byggir á faglegum forsendum að sögn Sjúkratrygginga Íslands en hjartalæknir og Samtök um POTS á Íslandi óttast um afdrif þeirra sem ekki munu lengur geta sótt þjónustuna. Þrátt fyrir skort á rannsóknum hafi meðferðin skilað árangri og skipt sköpum fyrir lífsgæði þeirra sem hana þiggja og eflt getu þeirra til að taka þátt í samfélaginu.

Innlent
Fréttamynd

„Al­var­legar af­leiðingar“ verði greiðsluþátttöku hætt

Það myndi hafa alvarlegar afleiðingar ef greiðsluþátttöku vegna vökvagjafar POTS-sjúklinga verður alfarið hætt. Þetta segir formaður Samtaka um POTS á Íslandi. Hætt sé við því að fólk sem hafi náð framförum með hjálp vökvagjafar detti aftur úr vinnu eða skóla og verði jafnvel aftur rúmliggjandi.

Innlent