Rekstur hins opinbera

Fréttamynd

Af­koma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með

Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta Reykjavíkurborgar var neikvæð um 5,5 millljarða króna á fyrri helmingi ársins. Það er 10,6 milljörðum króna lakari niðurstaða en á sama tímabili árið 2025. Í áætlun var gert ráð fyrir 6,7 milljarða króna rekstrarafgangi. Þannig er afkoman 12,2 milljörðum króna verri en búist var við.

Innlent
Fréttamynd

Fjórar af hverjum fimm í­búðum seljast undir aug­lýstu verði: „Við höfum miklar á­hyggjur“

Fjórar af hverjum fimm íbúðum seldust undir auglýstu verði í júlí. Leyfum fyrir ný íbúðarhús hefur fækkað um helming frá árunum 2021 til 2023, atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgað um 27 prósent og vanskil greinarinnar aukist hratt. Aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins segir boðaða skattahækkun geta leitt til þess að enn minna verði byggt.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Skuldadagar í Reykja­vík

Það dylst engum að núverandi meirihluti í Reykjavík tekur við erfiðu búi; fjárhagur borgarinnar hefur verið þaninn um langa hríð og ósjálfbær með tilheyrandi biðlistum um alla borg.

Skoðun
Fréttamynd

Loksins úr mínus í plús

Eftir átta ára samfelldan hallarekstur og 866 milljarða króna uppsafnaðan halla verður ríkissjóður rekinn með afgangi á næsta ári. Þetta eru mikilvæg tímamót. Halli ríkissjóðs jókst mikið í heimsfaraldrinum en hvarf ekki þegar faraldurinn var genginn yfir. Tímabundin útgjöld urðu varanleg og kostnaðurinn hélt áfram að vaxa hraðar en tekjurnar. Sú staða var ósjálfbær og leiddi til þenslu.

Skoðun
Fréttamynd

Fleiri upp­sagnir og ó­vissa um Borgar­línuna

Frekari uppsagnir og skipulagsbreytingar eru fram undan hjá Reykjavíkurborg. Sjóðir eru tómir og því gæti komið til frekari gjaldskrárhækkana. Framtíð samgöngusáttmálans veltur á því að ríkið standi við gefin loforð og óvissa ríkir um Borgarlínuna.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjart­sýni“

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og fyrrverandi fjármálaráðherra, segir boðuð fjárlög ekki senda góð skilaboð inn í kjaraviðræður. Þungt hljóð sé í atvinnurekendum vegna efnahagsástandsins og boðaðar skattahækkanir hjálpi ekki til.

Innlent
Fréttamynd

Eins og að vera kippt aftur á sjötta ára­tuginn

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, segist hafa liðið eins og honum væri kippt aftur til fortíðar í upphafi viku þegar síðasti kvöldfréttatími Sýnar var sendur út. Hann segir breytinguna vera afskaplega slæma, sér í lagi þar sem það hafi aldrei verið mikilvægara að geta treyst á sterka, áreiðanlega, góða og ritstýrða fjölmiðla.

Innlent
Fréttamynd

Rúvarar verði einir eftir í Efsta­leitinu

Reykjavíkurborg hyggst segja upp leigusamningum eftir að miðstöðvar borgarinnar og frístundamiðstöðvar voru lagðar niður. Þar á meðal er leigusamningur þeirra í húsnæði Ríkisútvarpsins við Efstaleiti.

Innlent
Fréttamynd

Tekjuáætlun veru­lega undir á­ætlun

Tekjuáætlun Laugardalslaugar, Sundhallar Reykjavíkur og Vesturbæjarlaugar er tæpum fjörutíu milljónum króna undir áætlun. Afar mikil aðsókn er í eina laugina en illa gengur hjá hinum tveimur. Mögulega þarf að skerða enn meira aðgengi að Laugardalslaug.

Innlent
Fréttamynd

Starfs­fólki hafi verið boðin lægri laun

Þrjátíu og tveimur starfsmönnum Reykjavíkurborgar sem fengu boð um ný eða breytt störf við hópuppsögn í gær var boðið lakari kjör að sögn formanns Sameykis sem segir starfsmennina hafa fengið afar skamman tíma til að ákveða næstu skref.

Innlent
Fréttamynd

„Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“

Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segist hafa viljað sjá meiri umræðu í borgarstjórn um ákvörðun dagsins um að segja upp tugum starfsmanna borgarinnar og að með skipulagsbreytingum sé þjónusta á leið út úr hverfum borgarinnar. Borgarstjóri segir að við breytingarnar verði ekki þjónusturof og að börn muni fá þjónustu óháð því hvar þau búa.

Innlent
Fréttamynd

„Það er ekkert við þetta mann­úð­legt“

Tugum starfsmanna Reykjavíkurborgar var sagt upp stöfum í dag í hópuppsögn sem nær til velferðar-, frístunda-, og skólasviða. Formaður Sameykis segir að um starfsmenn í framlínustörfum sé að ræða og gagnrýnir uppsagnarferlið harðlega.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri staðfestir í skilaboðum til fréttastofu að í kjölfar aukafundar borgarráðs í morgun sé unnið að skipulagsbreytingum hjá borginni. Enn er verið að ræða við það starfsfólk sem breytingarnar hafa áhrif á.

Innlent
Fréttamynd

Tugum borgar­starfs­manna sagt upp

Boðað var til aukafundar í borgarráði Reykjavíkur í morgun. Samkvæmt heimildum fréttastofu snerist fundurinn um uppsagnir og skipulagsbreytingar hjá að minnsta kosti tveimur sérsviðum innan borgarkerfisins en enginn þeirra borgarfulltrúa sem fréttastofa náði tali af í morgun vildi tjá sig um málið.

Innlent
Fréttamynd

Vellystingar á yfir­drætti

Íslensk efnahagsumræða er of oft grunn og brotakennd. Hún snýst gjarnan um að hækka þetta, lækka hitt, setja af stað átak hér og annað þar — eins konar stöðug slökkvistörf og fikt í mælaborðum þjóðfélagsins.

Skoðun
Fréttamynd

Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar, er efst á lista Tekjublaðs Frjálsrar verslunar yfir tekjuhæstu sveitarstjórnarmenn á síðasta ári. Hún var þá með rúmlega þrjár og hálfa milljón króna í laun á mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Hin hliðin ljúgi að lands­mönnum

Forsvarsfólk bæði já- og nei- hreyfinga saka hina hliðina um að hafa farið með rangt mál frá því að kosningabarátta hófst. Þau mættust í Pallborði Vísis í dag. Fréttamaður sem stýrði Pallborðinu hafði á orði að það væri um stund sem forsvarsmenn væru að ræða hvor sinn hlutinn, svo ólíkar væru áherslurnar.

Innlent
Fréttamynd

Krist­rún skýtur fimm­tíu milljarðana niður

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir fundarferð sína um landið í aðdraganda þjóðaratkvæðis ganga vel og skapa tækifæri fyrir kjósendur að hittast, ræða málin og heyra skoðanir hver annars. Hún tekur fyrir þær háu tölur sem nefndar hafa verið um kostnað Íslands við aðild og segir upphæðina í raun mun lægri. 

Innlent