Skotvopn

Fréttamynd

Fengu öll á­letraða skamm­byssu að gjöf frá Erdogan

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og aðrir leiðtogar NATO-ríkjanna fengu skammbyssu að gjöf frá Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta við lok leiðtogafundar NATO í Ankara í gær. Nafn hvers og eins leiðtoga var áletrað á byssuna sem sá fékk að gjöf og fylgdi kassi af skotfærum með, auk græja til að hreinsa byssuna.

Innlent
Fréttamynd

Fimm sagðir látnir í skot­á­rás nærri Ham­borg

Byssumaður er sagður hafa skotið fimm manns til bana og sært fleiri við æskulýðsmiðstöð í bænum Stade nærri Hamborg í Þýskalandi. Lögregla segir að tveir séu í haldi, þar á meðal sá sem er grunaður um að hafa skotið fólkið.

Erlent
Fréttamynd

Gerðu vopnin upp­tæk og sviptu hann leyfinu

Axel Aage Schiöth sölumaður og lögmaður hans, Ívar Pálsson, hyggjast kæra til dómsmálaráðuneytisins það sem þeir telja ólögmæta sviptingu lögreglu á skotvopnaleyfi Axels. Svo virðist sem aukin harka hafi færst í aðgerðir lögreglu gagnvart íslenskum veiðimönnum. Veiðimenn ættu að hafa varann á sér.

Innlent
Fréttamynd

Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana

Lucy Harrison, 23 ára bresk kona frá Warrington í Cheshire, var skotin til bana þann 10. janúar í fyrra þegar hún var í heimsókn hjá föður sínum í Prosper, nærri Dallas í Texas í Bandaríkjunum. Faðir Harrison er sagður hafa skotið dóttur sína í bringuna með þeim afleiðingum að hún lést, eftir að feðginin hafi átt í rifrildi um Donald Trump Bandaríkjaforseta.

Erlent
Fréttamynd

Tveir hand­teknir fyrir brot á skotvopnalögum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi tvo menn í heimahúsi í Grafarvogi fyrir brot á skotvopnalögum. Frá þessu er greint í yfirliti lögreglu yfir verkefni gærkvöldsins og næturinnar en leiða má líkur að því að um sé að ræða sömu aðgerð og greint var frá í gærkvöldi, þar sem sérsveitin kom við sögu.

Innlent
Fréttamynd

„Mark­mið mitt var bara að ná byssunni af honum“

„Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum og stoppa hann í því að myrða fólk og taka saklaus líf,“ segir Ahmed al Ahmed, maðurinn sem hljóp að öðrum árásarmannanna á Bondi strönd í desember og tók af honum byssuna. „Ég veit að ég bjargaði mörgum lífum en ég finn til með þeim sem létust.“

Erlent
Fréttamynd

Árásarfeðgarnir nafn­greindir

Feðgarnir sem stóðu fyrir skotárásinni á Bondi strönd í Nýju Suður Wales í Ástralíu í gær voru Naveed Akram, 24, ára og Sajid Akram, 50 ára. Sajid var skotinn til bana af lögreglu en Naveed var handtekinn og fluttur á sjúkrahús, alvarlega særður.

Erlent
Fréttamynd

Skotmennirnir feðgar

Lögregla greinir frá því að mennirnir sem skutu tugi á Bondi-strönd í Ástralíu í gær eru feðgar. Faðirinn, 50 ára, er látinn, og sonur hans, 24 ára, í lífshættu á spítala. Faðirinn hét Naveed Akram og sonurinn Sajid. Alls eru sextán látin ef faðirinn er talinn með. Fórnarlömbin eru á aldrinum 10 til 87 ára. 

Erlent
Fréttamynd

Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skot­manninn

Karlmaðurinn sem tæklaði annan skotmanninn á Bondi-ströndinni í Ástralíu heitir Ahmed Al Ahmed og er 43 ára tveggja barna faðir samkvæmt frétt 7NEWS Australia. Maðurinn var sjálfur skotinn og segir í frétt miðilsins að þau hafi rætt við ættingja hans, Mustafa.

Erlent
Fréttamynd

Starfs­leyfi skot­vallar á Álfs­nesi enn á ný fellt úr gildi

Úrskurðarnefnd hefur fellt úr gildi ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur að samþykkja starfsleyfi fyrir skotvelli á Álfsnesi sem lengi hefur verið deilt um. Heilbrigðiseftirlitið er sagt hafa átt að krefjast þess að hljóðmælingar færu fram á vellinum áður en það tók afstöðu til leyfisins.

Innlent
Fréttamynd

Fara fram á dauða­refsingu yfir Robinson

Ríkissaksóknari í Utah hefur farið fram á dauðarefsingu yfir hinum 22 ára Tyler Robinson sem grunaður er um að hafa banað Charlie Kirk í síðustu viku. Hann hefur verið ákærður í sjö ákæruliðum.

Erlent
Fréttamynd

Sagði frá fyrir­ætlunum sínum í SMS-i fyrir morðið

Hinn 22 ára gamli Tyler Robinson, sem grunaður er um að hafa skotið fjarhægrimanninn Charlie Kirk til bana á háskólasamkomu í Utah í síðustu viku, sendi smáskilaboð í aðdraganda morðsins þar sem hann sagðist ætla að drepa Kirk. 

Erlent
Fréttamynd

„Ég hélt að hann yrði for­stjóri“

Ungi maðurinn sem grunaður er um að bana íhaldssama áhrifavaldinum Charlie Kirk í Utah á miðvikudag ólst upp í hægrisinnaðri mormónafjölskyldu þar sem skotvopn virðast hafa verið í hávegum höfð. Þó foreldrar hans séu repúblikanar er hann sjálfur ekki skráður í flokk og hefur aldrei kosið. Kunningjar hans lýsa honum sem hlédrægu gáfnaljósi með mikinn áhuga á tölvuleikjum. Hann hafi alla tíð verið afbragðsnámsmaður, og jafnvel smá kennarasleikja.

Erlent
Fréttamynd

Morðið á Kirk vekur upp um­ræðu um mál­frelsi

Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar, og Stefán Einar Stefánsson ræddu umræðu sem hefur skapast eftir morðið á bandaríska áhrifavaldinum Charlie Kirk sem var myrtur í gær. Hugtök líkt og málfrelsi og þöggun hafa verið áberandi í íslensku samfélagi undanfarna daga.

Innlent
Fréttamynd

Skoða að banna trans fólki að eiga skot­vopn

Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna skoðar nú að banna trans fólki að bera skotvopn, í kjölfar skotárásar í kaþólskum skóla í Minneapolis í síðustu viku. Tvö börn létust en 23 ára trans kona er grunuð um árásina.

Erlent
Fréttamynd

Engin byssa reyndist vera í bílnum

Lögregla naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra við að taka ökumann fastan vegna gruns um að hann væri með skotvopn í bílnum. Lögreglu barst tilkynning um að maðurinn æki um vopnaður og var stöðvaður í kjölfarið í Mjóddinni. Hann reyndist ekkert skotvopn hafa.

Innlent
Fréttamynd

Ís­lensk stúlka í út­skriftar­veislu sem breyttist í mar­tröð

Íslensk móðir búsett í Texas í Bandaríkjunum er hugsi eftir að ungur piltur í blóma lífsins var skotinn til bana í útskriftarveislu um helgina en dóttir hennar var í veislunni. Hún veltir fyrir sér hvað verði til þess að börn og ungt fólk ákveði að vopnast þegar þau haldi úr húsi. Enginn hefur verið handtekinn vegna árásarinnar.

Innlent