Þýski boltinn

Leipzig bikarmeistari eftir sigur í vítaspyrnukeppni
RB Leipzig varð í kvöld þýskur bikarmeistari í fótbolta eftir sigur á Freiburg. Það þurfti vítaspyrnukeppni til að skera úr um sigurvegara eftir að staðan var jöfn 1-1 að loknum venjulegum leiktíma.

Barcelona komið í viðræður við Lewandowski
Xavi, Knattspyrnustjóri Barcelona, hefur staðfest að liðið er komið í viðræður við Robert Lewandowski, framherja Bayern Munich.

Haaland gaf öllum liðsfélögunum milljóna Rolex úr
Erling Braut Haaland kvaddi Borussia Dortmund á dögunum en hann er að ganga til liðs við Manchester City í sumar.

Rose rekinn frá Dortmund
Borussia Dortmund hefur sagt knattspyrnustjóranum Marco Rose upp störfum.

Þjálfari íslensku stelpnanna í Brann gæti orðið þjálfari íslensku stelpnanna í Bayern
Alexander Straus hefur verið að gera góða hluti með kvennalið Brann í norska fótboltanum og nú er hann orðaður við starfið hjá kvennaliði Bayern München.

Ruddust inn á blaðamannafund þjálfarans með bjór og bikarinn
Eintracht Frankfurt var lið gærkvöldsins í fótboltaheiminum þegar liðið tryggði sér sigur í Evrópudeildinni og sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar með sigri á Rangers í úrslitaleik á Spáni.

Frankfurt er Evrópumeistari
Eintracht Frankfurt er sigurvegari Europa Leauge árið 2022 eftir sigur í vítaspyrnukeppni gegn Rangers. Staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma og framlengingu.

William Cole frá FH til Borussia Dortmund
FH hefur selt hinn 16 ára gamla William Cole Campbell til þýska stórliðsins Borussia Dortmund.

Fannst ömurlegt á körfuboltaæfingum og veit ekki hvaðan löngu innköstin komu
Sveindís Jane Jónsdóttir, nýkrýndur Þýskalandsmeistari, veit ekki hvaðan hæfileiki hennar til að grýta boltanum langt inn í vítateig andstæðinganna kemur. Í yngri flokkunum stundaði hún það að kasta boltanum í mótherja og inn.

Guðlaugur kom inn af bekknum er Schalke tryggði sér deildarmeistaratitilinn
Guðlaugur Victor Pálsson lék seinasta hálftíman er Schalke tryggði sér deildarmeistaratitilinn í þýsku B-deildinni í fótbolta með 2-1 sigri gegn Nurnberg í lokaumferð deildarinnar í dag.

Íslendingaliðin unnu stórsigra í lokaumferð þýsku deildarinnar
Íslendingalið Bayern München og Wolfsburg unnu stórsigra í lokaumferð þýsku úrvalsdeildar kvenna í fótbolta í dag. Bayern vann 5-0 sigur gegn Potsdam og Wolfsburg skoraði sjö gegn Bayer Leverkusen.

Xavi gefur sögusögnum um Lewandowski undir fótinn
Pólski markahrókurinn Robert Lewandowski mun gera allt sem í hans valdi stendur til að losna frá Þýskalandsmeisturum Bayern Munchen í sumar.

Bellingham ætlar ekki að fylgja Haaland til Englands
Þýska úrvalsdeildarliðið Borussia Dortmund þarf ekki að hafa áhyggjur af því að missa annan af sínum verðmætustu leikmönnum í sumar en ljóst er að sá verðmætasti mun yfirgefa félagið þar sem Norðmaðurinn Erling Braut Haaland er á leið til ensku meistaranna í Manchester City.

„Góðar líkur á að þetta hafi verið minn seinasti leikur fyrir Bayern“
Markamaskínan Robert Lewandowski gæti hafa leikið sinn seinasta leik fyrir Bayern München er liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Wolfsburg í lokaumferð þýsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag.

Haaland skoraði í kveðjuleiknum | Alfreð kom inná í sigri
Lokaumferð þýsku úrvalsdeildarinnar fór fram í dag þegar níu leikir voru spilaðir á sama tíma. Norski framherjinn Erling Braut Haaland skoraði í kveðjuleik sínum er Dortmund vann 2-1 endurkomusigur gegn Hertha Berlin og Alfreð Finnbogason kom inn af varamannabekknum í 2-1 sigri Augsbyrg gegn Greuther Fürth.

Íslendingarnir hjá Bayern fá nýjan þjálfara á næsta tímabili
Ljóst er að Bayern München, sem þrjár íslenskar landsliðskonur leika með, verður með nýjan þjálfara á næsta tímabili.

Aðlögunartímabilið varð að draumatímabili
Sveindís Jane Jónsdóttir er að vonum í skýjunum hvernig fyrsta tímabil hennar hjá þýska stórliðinu Wolfsburg hefur gengið. Hún vonaðist til að fá að spila með Wolfsburg en segir að hlutverk sitt hafi verið talsvert stærra en hún bjóst við.

Alexandra lánuð til Breiðabliks til að komast í leikform fyrir EM
Alexandra Jóhannsdóttir, landsliðskona í fótbolta, hefur verið lánuð frá Frankfurt til Breiðabliks.

Dortmund búið að finna arftaka Haaland
Þýska liðið Borussia Dortmund var ekki lengi að kynna til leiks arftaka Erlings Haaland eftir að tilkynnt var um að sá norski myndi yfirgefa félagið í sumar. Karim Adeyemi gengur til liðs við Dortmund eftir tímabilið.

Man. City staðfestir samkomulag sitt við Dortmund um Haaland
Erling Haaland verður leikmaður enska liðsins Manchester City frá og með 1. júlí. Ensku meistarnir staðfestu í dag það sem fjölmiðlar hafa haldið fram undanfarna daga.

Íslenska þríeykið í Bayern á glænýjum Audi
Eftir að hafa þurft að bíta í það súra epli um helgina að Wolfsburg skyldi verða Þýskalandsmeistari fengu leikmenn Bayern München góðar fréttir í gær.

Sveindís verðlaunuð með nýjum samningi
Ekki fer á milli mála að forráðamenn Wolfsburg séu ánægðir með íslensku landsliðskonuna Sveindísi Jane Jónsdóttur því hún hefur skrifað undir nýjan samning við félagið.

Bayern íhugar að bjóða í Mané
Þýskalandsmeistarar Bayern München skoða möguleikann á að fá Sadio Mané, framherja Liverpool, í sínar raðir í sumar. Mané á aðeins rúmlega ár eftir af samningi sínum í Bítlaborginni og gæti hugsað sér til hreyfings.

Bjórbað og söngur þegar Sveindís og stöllur fögnuðu langt fram á kvöld
Sveindís Jane Jónsdóttir og liðsfélagar hennar í Wolfsburg fögnuðu að vonum vel í gær eftir að hafa orðið Þýskalandsmeistarar í fótbolta þrátt fyrir harða samkeppni við Bayern München.

Müller fagnaði nýjum samningi með marki
Bayern München gerði 2-2-jafntefli þegar liðið fékk Stuttgart í heimsókn í næstsíðustu umferð þýsku efstu deildarinnar í fótbolta karla í dag.

Sveindís Jane skoraði og lagði upp er Wolfsburg tryggði sér þýska meistaratitilinn
Sveindís Jane Jónsdóttir var í byrjunarliði Wolfsburg sem vann 10-1 stórsigur á botnliði Jena í þýsku úrvalsdeild kvenna í fótbolta í dag. Sigurinn þýðir að Wolfsburg er Þýskalandsmeistari.

Guðlaugur Victor aðstoðaði við að sigla sætinu í efstu deild í höfn
Guðlaugur Victor Pálsson kom inná sem varamaður á 79. mínútu þegar lið hans, Schalke, fór með 3-2 sigur af hólmi á móti St. Pauli í þýsku B-deildinni í fótbolta karla í kvöld.

Íslendingalið Bayern heldur í vonina
Bayern München heldur í vonina um að landa þýska meistaratitlinum í fótbolta en Íslendingaliðið vann 3-0 sigur á Bayer Leverkusen í kvöld. Glódís Perla Viggósdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir voru í byrjunarliði Bayern.

Stórleikur Janusar Daða dugði ekki gegn Teiti Erni og félögum | Melsungen tapaði
Það var Íslendingaslagur í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld er Flensburg og Goppingen mættust. Þá tapaði Íslendingalið Melsungen fyrir Hannover.

Sveindís Jane hvíld er Wolfsburg setti aðra hönd á titilinn
Sveindís Jane Jónsdóttir sat allan tímann á varamannabekk Wolfsburg er liðið vann öruggan 5-1 útisigur á Essen og er því aðeins einum sigri frá því að tryggja sér þýska meistaratitilinn.