Ferðamaður ók húsbíl niður göngustíg Ferðamaður ók húsbíl inn á göngustíg við gatnamót Laugavegs og Kringlumýrarbrautar eftir að hafa næstum ekið yfir gangandi vegfaranda á gangbraut gatnanna á milli. Útleigjandinn segir það ekki á ábyrgð bílaleiga að upplýsa leigjendur um að forðast eigi að aka á göngustígum. Innlent 5.6.2025 16:16
Gera fjölmargar breytingar á kílómetragjaldinu Frumvarp um kílómetragjald hefur tekið fjölmörgum breytingum í efnahags- og viðskiptanefnd. Formaður nefndarinnar vonast til þess að meiri sátt muni ríkja um frumvarpið, en lagt er til að gildistökunni, sem átti að gerast 1. júlí næstkomandi, verði frestað. Neytendur 5.6.2025 12:18
Topplúgan kom á óvart á annars praktískum ferðatrukk Tveggja stafa tölur um allt land, þetta á ekki að geta gerst! Hitamælirinn steig hratt og ekki sást ský á himni. Sólarfiðringurinn hríslaðist um mig svo ég gat ekki setið kyrr. Ég varð að gera eitthvað, nota sólina, fara í ferðalag, útilegu, fjallgöngu, fá mér ís. Ég var líka á splunkunýjum bíl sem hreinlega hrópaði á ferðalag, Dacia Bigster Extreme. Samstarf 5.6.2025 08:47
Saka hagfræðing SFF um að reyna að draga úr samkeppni í tryggingum Viðskipti innlent 4.6.2025 09:47
Fangelsisdómar yfir stjórnendum Volkswagen vegna útblásturshneykslis Viðskipti erlent 26.5.2025 08:59
Dráttarvéladagur er á Blikastöðum í dag Það er mikið um að vera á jörðinni Blikastöðum á höfuðborgarsvæðinu í dag en þar fer fram dráttarvéladagur þar sem margar af elstu dráttarvélum landsins eru til sýnis. Þá er markaður á staðnum með allskonar traktorsdóti þar sem hægt er að gera góð kaup. Lífið 24. maí 2025 13:02
Með andlit sem fleiri en bara mæður þeirra geta elskað Í sjöunda þætti Tork gaurs skoðar James Einar Becker KGM Rexton. Hann hefur þetta að segja um bílinn. Lífið samstarf 23. maí 2025 12:02
Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Bílabúð Benna fagnar 50 ára stórafmæli á laugardaginn með veglegri afmælishátíð í nýjum höfuðstöðvum að Krókhálsi 9. Hátíðahöldin fara fram milli klukkan 12 og 16 og þar verður líf og fjör með hoppuköstulum, andlitsmálningu, ís og pylsum og sýningu á sögu fyrirtækisins. Samstarf 22. maí 2025 15:48
Leigubílstjóri fór í svaðilför á Teslunni inn í Þórsmörk og sneri heill heim Leigubílstjóri sem ók Teslu yfir fjölda lækja inn í Þórsmörk segir nútímarafbíla vel hannaða til að keyra gegnum djúpa polla eða læki. Hann hafi verið meðvitaður um áhættuna en farið varlega og eru engin ummerki eftir svaðilförina á bílnum. Innlent 21. maí 2025 16:45
Aka um Ísland í allt sumar og mynda vegakerfið í þrívídd Alþjóðlega tæknifyrirtækið HERE Technologies ætlar í sumar að kortleggja stærstan hluta íslenska vegakerfisins úr fólksbílum á vegum fyrirtækisins. Tilgangurinn er meðal annars sá að styðja við akstur sjálfkeyrandi ökutækja. Viðskipti innlent 21. maí 2025 13:07
Þjónustudagur Toyota Árlegur þjónustudagur Toyota verður á laugardag, 17. maí frá kl. 11 – 15. Valdir þjónustuaðilar taka vel á móti Toyota- og Lexuseigendum, bíllinn fær sumarþvott, gestir fá glaðning í bílinn og boðið verður upp á grill og skemmtun. Samstarf 16. maí 2025 10:57
Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Bleikum bíl af tegundinni Porsche var stolið úr Mosfellsdal í nótt. Eiganda þykir furðulegt að bíl með slíka sérstöðu skuli hafa verið stolið. Hann fékk upplýsingar um að þjófurinn hafi rúntað á bílnum um borgina í dag en bíllinn komst í leitirnar fyrr í kvöld. Innlent 14. maí 2025 18:17
Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Ferðamannarúta var meðal farartækjanna sem voru kyrrsett í umfangsmikilli eftirlitsaðgerð lögreglu á Suðurlandsvegi í dag. Lögregla gerði athugasemd við réttindi bílstjóra. Innlent 14. maí 2025 15:55
Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Slökkviliðið og lögregla á höfuðborgarsvæðinu voru kölluð út á fjórða tímanum í dag vegna tilkynningar um mengunarslys. Bíll, fullur af bensínbrúsum, sem stendur við Stigahlíð lekur. Íbúi í hverfinu hefur áður óskað eftir aðstoð slökkviliðs og lögreglu vegna bílsins þar sem hann taldi aðstæðurnar geta valdið alvarlegu slysi. Innlent 14. maí 2025 15:31
Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Tónlistarkonan Sigga Beinteins setti nýverið inn færslu á Facebook-hópinn, Hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagnar og útilegubúnaður til sölu, þar sem hún auglýsti hjólhýsi frá árinu 1979 til sölu. Sigga óskar eftir tilboði í gripinn. Lífið 14. maí 2025 14:40
Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Umfagnsmikil eftirlitsaðgerð var á Suðurlandsvegi í morgun þar sem fjöldinn allur af vörubílum var stöðvaður. Meðal brota voru akturs- og hvíldartímabrot og vanbúnin ökutæki. Innlent 14. maí 2025 14:37
Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis Bílar Íslendinga sem teknir eru með erlendis eru almennt ekki bættir sé þeim stolið erlendis samkvæmt skilmálum TM. Það sé vegna þess að áhætta á stuldri erlendis sé önnur en hérlendis. Innlent 14. maí 2025 13:09
Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Yfirlögregluþjónn á Vesturlandi segir löngu kominn tíma á eftirlitsaðgerðir eins og efnt var til á Suðurlandsvegi í morgun þar sem hver vörubíllinn á fætur öðrum var stöðvaður. Til skoðunar er allt frá reglum um akstur og hvíld yfir í samkeppnisstöðu í atvinnuflutningum, hvort sem er með vörur eða ferðamenn. Vörubílstjórar fagna eftirliti en setja þó spurningamerki við framkvæmdina. Innlent 14. maí 2025 12:10
Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Tónlistarmaðurinn Patrik Snær Atlason, betur þekktur sem Prettyboitjokkó, festi nýverið kaup á glæsilegum ljósgráum jeppa af tegundinni Mercedes-Benz G-Class, árgerð 2018. Patrik birti mynd af bílnum á Instagram í gær. Lífið 14. maí 2025 12:07
Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Lögregluembætti landsins og skattayfirvöld gripu til eftirlitsaðgerða á Suðurlandsvegi rétt fyrir utan borgarmörkin í morgun. Töluverður fjöldi lögreglumanna er á vettvangi. Innlent 14. maí 2025 11:06
Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Guðbrandur Jónatansson og konan hans lentu í óheppilegu atviki þegar bílnum þeirra var stolið á meðan þau bjuggu á Spáni. Þau keyptu allar nauðsynlegar tryggingar en samt sem áður ætlar TM ekki að bæta þeim tapið. Innlent 13. maí 2025 21:03
Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Íbúi við Miklubraut hefur miklar áhyggjur af því að bifreið, sem stendur óhreyfð við heimili hans og er full af bensínbrúsum, muni springa í loft upp. Hann biðlar til yfirvalda að fjarlægja ökutækið. Innlent 12. maí 2025 19:30
Síðasti dropinn á sögulegri stöð Búið er að loka dælunum á bensínstöð N1 við Ægisíðu fyrir fullt og allt. Síðasta dropanum var dælt á stöðinni um síðustu mánaðamót. Viðskipti innlent 12. maí 2025 18:50
Íbúasamtök vilja láta endurskoða rafrænt eftirlit Bílastæðasjóðs Meðlimir Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur (ÍMR) vilja láta endurskoða nýtt fyrirkomulag Reykjavíkurborgar um rafrænt eftirlit Bílastæðasjóðs með bílastæðum borgarinnar. Þeir óska einnig eftir betri sorphirðu og að rútumál miðborgarinnar verði tekin til skoðunar. Innlent 9. maí 2025 18:17
Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa Einum svokallaðra páfabíla Frans páfa heitins verður breytt í færanlega heilsugæslu fyrir börn á hinu stríðshrjáða Gasasvæði. Bílinn notaði páfinn meðal annars á ferðalagi sínu til Betlehem árið 2014. Erlent 5. maí 2025 13:35
Tork gaur: BMW neglir fallegan framenda Í sjötta þætti Tork gaur skoðar James Einar Becker BMW X3 30e M-Sport. Er þetta fjórða kynslóð X3 sem BMW framleiðir og er þetta tengiltvinn bíll. James Einar hefur þetta að segja um bílinn. Lífið samstarf 2. maí 2025 08:41