Innlent

Fréttamynd

Haldið sofandi á gjörgæslu

Jonathan Motzfeldt, formanni grænlenska landsþingsins, er enn haldið sofandi í öndunarvél á Landspítalanum en hann var fluttur þangað frá Grænlandi á fimmtudag. Motzfeldt hefur verið greindur með lungnabólgu og nýrnabilun vegna bakteríusýkingar.

Innlent
Fréttamynd

Verulega dregur úr nýskráningum bíla

Sala nýrra bíla það sem af er þessu ári er umtalsvert meiri en fyrir ári síðan en tæplega þúsund fleiri bílar hafa verið seldir nú en þá sem þó var algjört metár hvað sölu á nýjum bílum snerti.

Innlent
Fréttamynd

Kostirnir eru króna eða ESB

Aðeins tveir raunhæfir kostir eru varðandi framtíðarskipan gengismála á Íslandi. Annaðhvort núverandi staða með flotgengisstefnu krónunnar eða upptaka evru með inngöngu í myntbandalagið og Evrópusambandið. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu Viðskiptaráðs sem kemur út í dag.

Innlent
Fréttamynd

Farþegarnir blandast áfram

Eftir að breytingum á Flugstöð Leifs Eiríkssonar lýkur í vor eiga komu- og brottfarar­farþegar enn eftir að blandast.

Innlent
Fréttamynd

Hafa reynslu af vinnu erlendis

Íslenska orkufyrirtækið Enex, sem vinnur að rannsóknum á jarðvarma í þremur sveitarfélögum í austanverðri Slóvakíu, hefur tekið þátt í meira en fimm verkefnum á erlendri grundu. Meðal annars hefur fyrirtækið tekið þátt í stórum verkefnum í El Salvador, Ungverjalandi, Póllandi og Slóvakíu.

Innlent
Fréttamynd

Enn ein bílvelta á Hólssandi

Erlendur ferðamaður velti bílaleigubíl sínum á Hólssandi í fyrrakvöld. Hann var einn í bílnum og sakaði ekki. Varðstjóri lögreglunnar á Húsavík segir þennan veg sérstaklega varasaman. Það sem af er sumri hafi orðið þar einar átta bílveltur.

Innlent
Fréttamynd

Seðlarnir komnir á netið

Fólk getur nú nálgast álagningarseðla sína rafrænt á þjónustusíðu ríkisskattstjóra, www.rsk.is, með veflykli sínum. Opnað var fyrir þessa þjónustu klukkan fjögur í gærdag.

Innlent
Fréttamynd

Ræðismaður Svía á Húsavík

Utanríkisráðuneyti Svíþjóðar hefur ákveðið að stofna sænska ræðisskrifstofu á Húsavík. Íslensk stjórnvöld hafa veitt samþykki sitt til að Þórunn Harðardóttir gegni starfi sem ræðismaður fyrir Svíþjóð og hefur Þórunn verið skipuð heiðursræðismaður fyrir sveitarfélögin Norðurþing og Akureyri.

Innlent
Fréttamynd

Margir búa utan borgar

Fimmtungur starfsmanna á skrifstofu borgarstjórnar og borgarstjóra býr í bæjar­félögunum kringum borgina. Starfsmennirnir eru 25. Tveir þeirra búa í Kópavogi, tveir í Hafnarfirði og einn á Seltjarnarnesi.

Innlent
Fréttamynd

Stjórnarmenn bera ábyrgð

„Það er alveg ljóst að Byggðastofnun tók þessa ákvörðun og þeir sem sitja í stjórninni bera þá ábyrgð líka.“ Þetta sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, starfandi forsætisráðherra, um málefni Eignarhaldsfélags Vestmannaeyja og samskipti þess við Byggðastofnun. Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Byggðastofnunar, hefur sagt að peningum hafi verið veitt til félagsins vegna þrýstings frá ríkisstjórninni.

Innlent
Fréttamynd

Ekki á sundi heldur á göngu

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk tilkynningu um það um hádegið í gær að maður væri á sundi mitt í Grafarvogi, og fylgdi það sögunni að hann væri nánast á bólakafi í sjónum.

Innlent
Fréttamynd

Vilja fá alla umfram mjólkurframleiðslu

Gríðarleg eftirspurn er eftir íslenskum mjólkurafurðum hjá verslanakeðjunni Whole Foods Market í Bandaríkjunum. Innkaupastjóri keðjunnar segir fyrirtækið geta tekið allar þær mjólkurvörur sem Íslendingar geta framleitt.

Innlent
Fréttamynd

Engin varanleg mengun

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands telur varanlega mengun vegna bensínslyssins í Ljósavatnsskarði í dag vera litla sem enga. Valdimar Brynjólfsson framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands segir mest af bensíninu hafa lent á veginum og vegkantinum en vegurinn er mikið upphækkaður á þessum stað.

Innlent
Fréttamynd

Bækur fundust í gröf

Sá merkilegi atburður gerði í dag að bækur fundust í fyrsta sinn við fornleifauppgröft hér á landi á Skriðuklaustri í dag. Bækurnar lágu í kistum tveggja manna sem eru líklega munkar úr klaustrinu. Því er talið að bækurnar séu sálmabækur. Uppgröfturinn hefur leitt í ljós marga fagra hluti. Enn bíða grafir rannsóknir í klausturkirkjunni að Skriðu og því líklegt að uppgröfturinn leiði fleira óvænt í ljós.

Innlent
Fréttamynd

Óperuhúsi ekki frestað

Kópavogsbær hyggur á niðurskurð sem nemur um hálfum milljarði króna til að stemma stigu við þenslu í efnahagslífinu. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, segir að byggingu óperuhúss verði ekki frestað þrátt fyrir bæjarstjórn hafi ákveðið á dögunum að skera niður um hálfan milljarð króna vegna þenslu.

Innlent
Fréttamynd

Banaslys við Hellisheiðarvirkjun

Tæplega fimmtugur franskur maður lést í vinnuslysi á svæði Hellisheiðarvirkjunar í morgun. Maðurinn féll úr sjö til níu metra hæð þegar lyftari með kranabómu valt.

Innlent
Fréttamynd

Netsími bundinn í jarðlínu

Róbert Bragason, stjórnarformaður Atlassíma, vill koma því á framfæri að notast er við jarðlínur í netsímtölum fyrirtækisins. Í frétt hér á Vísi fyrr í dag var sagt að "ólíkt símkerfi Símans eru símar Atlassíma ekki bundnir við jarðlínur heldur er hringt í gegnum tölvur." Yfirmenn lögreglu og Neyðarlínu vilja að beðið verði með að heimila flutning símanúmera úr talsímakerfinu í netsímakerfi Atlassíma. Þeir óttast að flutningurinn dragi úr öryggi og geti hamlað lögreglurannsóknum.

Innlent
Fréttamynd

British airways taka upp nýja þjónustu

Flugfélagið British airways hefur opnað nýja þjónustu á heimasíðu sinni en nú geta viðskiptavinir félagsins innritað sig á síðu þeirra allt að 24 tímum fyrir brottför. Allt að sex manns geta nú innritað sig í einu, valið fæti í flugvélinni og einnig er hægt að velja barnamáltíð ef börn eru með í ferð.

Innlent
Fréttamynd

Franskur maður lést í vinnuslysi

Franskur maður á fimmtugsaldri lést og annar slasaðist lítillega í vinnuslysi við Hellisheiðarvirkjun um klukkan hálf níu í morgun. Á heimasíðu lögreglunnar segir að mennirnir hafi verið að vinna við tengivirki á virkjanasvæðinu. Annar stóð á vörubretti framan á gafli lyftara í um sjö til níu metra hæð.

Innlent
Fréttamynd

Nokkur ölvun í Eyjum um liðna helgi

Lögreglan í Vestmannaeyjum þurfti að hafa nokkur afskipti af skemmtanahaldi liðinnar helgi sökum ölvunar á fólki. Lögreglan fékk þrjár tilynningar um slagsmál fyrir utan skemmtistaði bæjarins en í öllum tilvikum voru þau afstaðin þegar lögregla kom á staðinn. Engir eftirmálar virðast hafa orðið af slagsmálunum.

Innlent
Fréttamynd

Skattgreiðendur geta nálgast

Skattgreiðendur, sem töldu fram til skatts á Netinu, geta nálgast álagningarseðla frá Ríkisskattstjóra rafrænt á þjónustusíðu ríkisskattstjóra; www.rsk.is með veflykli sínum eftir klukkan fjögur í dag. Aðrir munu fá álagningarseðla senda til sín í pósti á föstudaginn kemur og í byrjun næstu viku. Sama dag verður lögð fram skrá með álagningu opinberra gjalda árið 2006.

Innlent
Fréttamynd

Mikil mengun vegna slyssins

Lögreglan á Húsavík og Akureyri lokaði margra ferkílómetra svæði af í Ljósavatnsskarði laust fyrir klukkan níu í morgun vegna sprengihættu, sem skapaðist eftir að fulllestaður bensínflutningabíll valt á þjóðveginum og þúsundir lítra af bensíni runnu úr geymum hans.

Innlent
Fréttamynd

Framkvæmdum frestað á tónlistar og ráðstefnuhúsi

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að hægja á framkvæmdum við tónlistar og ráðstefnuhús í samkomulagi við Reykjavíkurborg og Portus. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, starfandi forsætisráðherra, sagði eftir ríkisstjórnarfund í morgun að þetta væru skýr skilaboð frá ríkisstjórninni um að hún vildi viðhalda stöðugleikanum. Viðræður verða við Portus á næstu dögum og þá verður endanlega rætt um hvernig staðið verður að framkvæmdunum.

Innlent
Fréttamynd

Stefnt að því að ljúka framkæmkvæmdum næsta vor

Framkvæmdum við stækkun og breytingar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar miðar vel áfram. Stefnt er að því að ljúka framkvæmdunum fyrir tuttugu ára vígsluafmæli flugstöðvarinnar næsta vor. Lokaáfangi verksins er nú að hejast með enn frekari breytingum á 2. hæð flugstöðvarinnar og verulegri stækkun og breytingu á innritunar- og komusal stöðvarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Óskar eftir samvinnu við almenningi

Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir samvinnu við almenning varðandi upplýsingar um fíkniefni. Í fréttatilkynningu frá lögreglunni segir að fíkniefni séu oft fylgifiskur Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum. Það sé því samfélagsleg skylda hvers og eins og því beinir lögreglan því til almennings að koma upplýsingum til lögreglu varðandi hugsanlegan flutning fíkniefna til Vestmannaeyja. Fullri nafnleynd er heitið en hægt er að hafa beint samband við lögregluna í síma 4811665 eða fíkniefnasíma Ríkislögreglustjóra 800-5005.

Innlent