Innlent

Fimm Rússar handteknir

 Lögregla handtók fimm rússneska sjómenn í Hafnarfirði fyrir búðarhnupl, um sex leytið í gærkvöldi.

Mennirnir gengu hreint til verks og klæddu sig í fatnað, í einhverjum tilfellum beint fyrir framan starfsfólk, og gengu út.

Skipsfélagarnir voru allir ölvaðir að sögn lögreglu og gistu fangageymslur. Undir kvöld leitaði lögregla í rússneska togaranum Bootes í Hafnarfjarðarhöfn að frekara þýfi og vitorðsmönnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×