Innlent
253 254 255 256 257 258 259 260 261 … 334 ›
Flugmálastjórn gæti tekið við eftirlitinu Flugumferðarstjórn hefur ekki orðið fyrir neinum áhrifum þó að herinn hafi hætt eftirliti með flugumferð. Flugmálastjórn gæti tekið við eftirlitshlutverkinu, að mati flugmálastjóra. Varaformaður Samfylkingarinnar vill að Nató borgi. Innlent 9.9.2006 22:06
Aldrei fleiri sjálfboðaliðar Metþátttaka var í söfnun Rauða kross Íslands, Göngum til góðs, sem fór fram í gær. Að þessu sinni var safnað fyrir börn í sunnanverðri Afríku sem misst hafa foreldra sína úr alnæmi. Sjálfboðaliðar gengu hús úr húsi í gær og söfnuðu fjárframlögum en einnig er hægt að gefa með því að hringja í söfnunarnúmer. Innlent 9.9.2006 22:06
Íbúar komust út af sjálfsdáðum Eldur kviknaði í kjallara íbúðarhúss á Hlíðarvegi í Kópavogi um sexleytið í gærmorgun. Íbúar kjallarans urðu eldsins varir og komu sér út af sjálfsdáðum. Það sama gerði fjögurra manna fjölskylda sem býr á efri hæð hússins. Tveir voru fluttir á sjúkrahús vegna gruns um reykeitrun. Innlent 9.9.2006 22:05
Samkaup skoða kaup á Lóni Þrír íhuga kaup á rekstri Lóns á Þórshöfn, en eigendur verslunarinnar óskuðu eftir að hún yrði tekin til gjaldþrotaskipta fyrir helgi. Fyrirtækið Samkaup er meðal þeirra sem sýnt hafa áhuga. Innlent 9.9.2006 22:05
Sérstök deild kynferðisbrota Stofnun sérstakrar kynferðisbrotadeildar er á meðal þess sem lagt er til í nýju skipuriti um löggæslu á höfuðborgarsvæðinu sem er nú í umsagnarferli hjá dómsmálaráðuneytinu og ríkislögreglustjóra. Innlent 9.9.2006 22:05
Fjórtán ára daglegir neytendur fíkniefna Fjórtán ára gömul börn, sem eru daglegir neytendur fíkniefna, hafa reglulega leitað sér lækninga á meðferðarheimilum. Forstöðumaður Barnaverndarstofu segir árangur af forvarnarstarfi meðal grunnskólabarna vera ótvíræðan. Innlent 9.9.2006 22:06
Karlmenn um þriðjungi fleiri Starfandi erlendir ríkisborgarar á Íslandi voru 9.010 í fyrra eða 5,5 prósent af heildarfjölda starfandi sem er aukning um 3,2 prósent frá árinu 1998 samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Innlent 9.9.2006 22:06
186 viðtöl í Barnahúsi Alls voru 186 rannsóknarviðtöl tekin við börn í Barnahúsi á síðsta ári vegna gruns um að þau hefðu sætt kynferðisofbeldi. Bragi Guðbrandsson forstjóri segir að árin 2004 og 2005 hafi fleiri börn þurft að mæta í dómshús en Barnahús vegna skýrslutöku. Innlent 9.9.2006 22:06
Óþarft sérákvæði um heimilisofbeldi Formaður refsiréttarnefndar segir það hafa verið einróma álit nefndarinnar að sérákvæði um heimilisofbeldi væri óþarft. Ágúst Ólafur Ágústsson telur sérákvæði til bóta. Dómsmálaráðherra vill sjá hvernig lagabreytingin reynist. Innlent 9.9.2006 22:06
Orsök fjölda alvarlegra slysa Fjölmörg alvarleg umferðarslys hafa orðið vegna aksturs yfir óbrotna línu á þjóðvegum landsins. Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi umferðarstofu, segir mjög algengt að ekið sé yfir heilar línur og telur víst að ökumenn geri sér ekki grein fyrir hættunni sem því fylgir. Innlent 9.9.2006 22:05
Innflutningurinn skipulagður Tveir Litháar sitja í gæsluvarðhaldi eftir að alls rúm ellefu kíló af ætluðu amfetamíni fundust í tveimur bifreiðum mannanna við komu hingað til lands með ferjunni Norrænu á Seyðisfirði á fimmtudaginn. Innlent 9.9.2006 22:06
Ætlar að auka öryggiskennd Hverfisráð miðborgar ætlar að leita leiða til þess að auka öryggiskennd þeirra sem vilja sækja miðborgina heim, hvort sem er í miðri viku eða um helgar. Kannanir sýna að margir landsmenn telji að þeim sé hætta búin af því að vera í miðborginni að kvöldi til. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðinu. Innlent 9.9.2006 22:06
Styrkja dreng með hvítblæði Hátíð til styrktar tíu ára dreng með hvítblæði fer fram í Grindavík í dag. Meðal þeirra sem koma fram eru KK, íbúar Latabæjar, Skítamórall og Rúnar Júlíusson. Allir sem taka þátt í hátíðinni gefa sína vinnu og rennur aðgangseyririnn til fjölskyldu drengsins. Hátíðin verður haldin í Festi og hefst klukkan fimm. Innlent 9.9.2006 22:05
Skeikaði aðeins um fimmtán sentimetra Risabor Impregilo braut sér leið gegnum seinasta haftið í aðrennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar í gær. Á fimmtán kílómetra leið skeikaði aðeins um fimmtán sentimetra. Mikil fagnaðarlæti brutust út þegar áfanganum var náð. Innlent 9.9.2006 22:06
Ekki rof á skyldum gagnvart NATO Íslendingar bregðast ekki skyldum sínum gagnvart NATO þótt ratsjáreftirlit sé takmarkað, að mati Geirs Haarde, forsætisráðherra. Hann segir varnarviðræðunum við Bandaríkjamenn eiga að ljúka fyrir mánaðamót. Innlent 9.9.2006 21:47
Fann fórnarlambið á vefsíðu fyrir samkynhneigða Pilturinn sem kom sér í kynni við mann í gegnum netið gagngert til að drepa hann, fór inn á vef fyrir samkynhneigða, þar sem hann taldi að þá væri auðveldara að fá viðkomandi til að hitta sig. Hann dvelur nú á unglingaheimili. Innlent 9.9.2006 21:41
Haftið rofið Stærsti jarðborinn lauk hlutverki sínu í aðrennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar í morgun. Herdís Sigurgrímsdóttir var fyrir austan og fylgdist með ferlíkinu brjóta niður síðasta berghaftið. Innlent 9.9.2006 21:35
Brýnt að bregðast við misskiptingu Rúmlega 2500 manns gengu til góðs í dag og söfnuðu fé handa börnum í suðurhluta Afríku. Einn göngumanna var forseti Íslands sem telur einnig brýnt að stjórnvöld, sveitarfélög og almenningur hrindi af stað þjóðarátaki til að jafna lífskjörin á Íslandi. Innlent 9.9.2006 21:31
Samið um dreifingu "Barna" við breskt fyrirtæki Ný íslensk kvikmynd, Börn, verður frumsýnd í kvöld. Samningar hafa tekist við virt breskt fyrirtæki um sölu og dreifingu myndarinnar erlendis. Innlent 9.9.2006 18:48
Hestamenn og vegfarendur verði á varðbergi Svokallaður Grafarvogsdagur stendur nú yfir en honum lýkur með flugeldasýningu klukkan 22:00 í kvöld. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að vitað sé að hross geti fælst við flugelda og því biður lögreglan í Reykjavík bæði hestamenn og vegfarendur að vera á varðbergi. Innlent 9.9.2006 18:35
Lögreglustjórafélag Íslands stofnað Stofnfundur Lögreglustjórafélags Íslands var haldinn á Hvolsvelli í dag. Félagið er stofnað vegna fyrirhugaðra breytinga á skipulagi lögreglunnar og eru félagar allir lögreglustjórar og aðstoðarlögreglustjórar sem sinna mun þeim störfum eftir 1. janúar 2007. Innlent 9.9.2006 16:33
Missa tökin á raunveruleikanum Ofbeldisfullir tölvuleikir og sjónvarpsefni hafa áhrif á þau ungmenni sem veik eru fyrir og geta orðið til þess að þau missi tökin á raunveruleikanum. Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessari þróun hérlendis fremur en annars staðar, segir Hugo Þórisson, barnasálfræðingur, en mál sextán ára pilts sem leitaði uppi mann til að drepa í gegnum netið, hefur vakið mikinn óhug. Innlent 9.9.2006 14:20
Sýning á útsaumuðum handaverkum opnar í Þjóðminjasafninu Ný sýning á útsaumuðum handaverkum listfengra kvenna frá ýmsum tímum verður opnuð í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands í dag klukkan 15. Fjölmörg verk skreyta salinn en allmörg slík eru í eigu Þjóðminjasafnsins. Innlent 9.9.2006 13:59
Vill taka málið upp við yfirstjórn NATO Varaformaður Samfylkingarinnar vill taka það upp við yfirstjórn NATO að ekkert eftirlit sé með ómerktum flugvélum sem hugsanlega reyna að komast inn í íslenska lofthelgi. Innlent 9.9.2006 12:47
Gengið til góðs Söfnun Rauða Krossins, Göngum til góðs hófst í morgun. Að þessu sinni er safnað fyrir börn í sunnanverðri Afríku sem misst hafa foreldra sína úr alnæmi. Innlent 9.9.2006 12:22
Sífellt fleiri börn metin í sjálfsvígshættu Tæplega 50 börn sóttu bráðamóttöku Barna og unglingadeildar vegna sjálfsvígshættu á fyrstu fimm mánuðum ársins. Til að taka á þessum vanda er deildin að fara af stað með verkefni sem heitir Lífið kallar en til þess þarf fjármagn. Innlent 9.9.2006 12:16
Fremur róleg nótt um allt land Fremur rólegt var hjá lögreglu um allt land í nótt. Fangageymslur lögreglunnar í Reykjavík voru þó fullsetnar í morgunsárið en að sögn varðstjóra á vakt höfðu þeir sem þar gistu unnið sér það eitt til saka að vera ofurölvi. Þrír voru teknir fyrir ölvuanarakstur í höfuðborginni í nótt. Innlent 9.9.2006 10:11
50 börn á bráðamóttöku BUGL fyrstu 5 mánuði 2006 Tæplega 50 börn sóttu bráðamóttöku Barna og unglingadeildar vegna sjálfsvígshættu á fyrstu fimm mánuðum ársins. Til að taka á þessum vanda er deildin að fara af stað með verkefni sem heitir Lífið kallar en til þess þarf fjármagn. Innlent 9.9.2006 10:08
Einstakt mál hérlendis Mál sextán ára pilts sem segist hafa leitað sér fórnarlambs á netinu til að ráða af dögum, er algerlega einstakt hérlendis. Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhald yfir piltinum í gær, fyrir að hafa stungið 25 ára mann í bakið með hnífi. Pilturinn ber að hann hafi langað til að drepa mann og því hafi hann lagt til þessa netkunningja síns með hnífi þegar hann fékk tækifæri til. Innlent 9.9.2006 10:04
Eldur í plastkari læsti sig í klæðningu húss Kveikt var í plastkari í Skeifunni um hálffimmleytið í nótt. Þegar slökkvilið kom á staðinn logaði talsvert í karinu og hafði eldurinn náð að læsa sig í klæðningu á húsi sem karið stóð við. Slökkviliðið var þó fljótt að ráða niðurlögum eldsins. Brennuvargurinn er ófundinn. Innlent 9.9.2006 10:06