Erlendar
85 86 87 88 89 90 91 92 93 … 264 ›
Charlotte lagði San Antonio Mjög óvænt úrslit urðu í NBA deildinni í nótt þegar lið Charlotte Bobcats vann annan sigur sinn á leiktíðinni á útivelli gegn San Antonio Spurs eftir framlengingu 95-92. Þetta var annað tap San Antonio á leiktíðinni og hafa bæði töpin komið á heimavelli liðsins. Tony Parker skoraði 25 stig fyrir San Antonio en nýliðinn Adam Morrison skoraði 27 fyrir Charlotte. Körfubolti 16.11.2006 14:39
Leikmönnum Reading bárust morðhótanir Lögregla hefur nú til rannsóknar morðhótanir sem sem tveimur af leikmönnum Reading bárust eftir að þeir urðu valdir að meiðslum markvarða Chelsea í leik liðanna fyrir nokkru, þegar þeir Petr Cech og Carlo Cudicini hlutu báðir höfuðmeiðsli. Þeim Ibrahima Sonko og Stephen Hunt hafa að sögn lögreglu borist nokkrar morðhótanir á æfingasvæði liðsins. Enski boltinn 16.11.2006 14:31
Jóhann samdi við GAIS til tveggja ára Jóhann B. Guðmundsson hefur endurnýjað samning sinn við sænska úrvalsdeildarfélagið GAIS til næstu tveggja ára en það staðfesti Ólafur Garðarsson, umboðsmaður hans, við Fréttablaðið í gær. Sjálfur segist hann vera hæstánægður með samninginn sem og veruna hjá GAIS sem er staðsett í Gautaborg. Fótbolti 15.11.2006 21:48
Enn tapar Wetzlar Wetzlar, lið Róbert Sighvatssonar í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta, er enn án sigurs eftir stórt tap gegn Hamburg á útivelli í kvöld 36-23. Minden lá heima gegn Flensburg 32-26, Kiel lagði Kronau/Östringen 37-32 og Magdeburg skellti Dusseldorf 37-31 á útivelli. Handbolti 15.11.2006 22:25
Brassar lögðu Svisslendinga Brasilíumenn lögðu Svisslendinga 2-1 í vináttuleik í knattspyrnu í kvöld. Varnarmaðurinn Luisao frá Benfica kom Brössum yfir á 22. mínútu og fyrirliðinn Kaka hjá AC Milan breytti stöðunni í 2-0 aðeins 12 mínútum síðar. Alexandre Frei minnkaði muninn fyrir Svisslendinga á 70. mínútu, þó markið hafi reyndar verið skráð sem sjálfsmark á Maicon, en lengra komust þeir ekki þrátt fyrir ágæt tilþrif í lokin. Fótbolti 15.11.2006 21:41
McClaren ánægður Steve McClaren sagðist vera ánægður með frammistöðu sinna manna í kvöld þegar enska landsliðið gerði 1-1 jafntefli við Hollendinga í vináttuleik í Amsterdam. Hann sagði sóknarleikinn hafa gengið vel smurt fyrir sig og hrósaði nýliðunum sem fengu tækifæri í kvöld. Fótbolti 15.11.2006 21:33
Þjóðverjar þurftu að sætta sig við jafntefli Þjóðverjar þurftu í kvöld að sætta sig við 1-1 jafntefli gegn lægra skrifuðum Kýpurmönnum í D-riðli undankeppni EM. Michael Ballack kom Þjóðverjum yfir á 16. mínútu með marki beint úr aukaspyrnu, en Yiannakis Okkas jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks. Þjóðverjar töpuðu þar með sínum fyrstu stigum í D-riðli og deila toppsætinu með Tékkum, en Írar burstuðu San Marino 5-0 í riðlinum í kvöld þar sem Robbie Keane skoraði þrennu fyrir Íra. Fótbolti 15.11.2006 21:13
Jafnt hjá Hollendingum og Englendingum Hollendingar og Englendingar gerðu 1-1 jafntefli í vináttuleik í knattspyrnu á Amsterdam Arena í Hollandi í kvöld. Wayne Rooney kom enska liðinu yfir á 37. mínútu með sínu fyrsta mark í rúmt ár fyrir England, en Rafael var Vaart jafnaði á 86. mínútu fyrir Hollendinga. Leikurinn var sýndur beint á Sýn. Fótbolti 15.11.2006 20:51
Englendingar leiða í hálfleik Englendingar hafa yfir 1-0 gegn Hollendingum þegar flautað hefur verið til leikhlés í vináttuleik þjóðanna á Amsterdam Arena í Hollandi. Það var Wayne Rooney sem skoraði mark enskra á 37. mínútu. Leikurinn hefur verið fjörugur og er sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Fótbolti 15.11.2006 19:48
Orlando - Denver í beinni á miðnætti Leikur Orlando Magic og Denver Nuggets verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í kvöld. Hér er um að ræða mjög forvitnilegan leik fyrir margra hluta sakir, því Denver hefur ekki landað sigri í Orlando síðan í mars 1992. Körfubolti 15.11.2006 19:34
Segja Eggert gera tilboð fyrir helgi Breska dagblaðið Independent heldur því fram í dag að Eggert Magnússon muni gera formlegt 75 milljón punda kauptilboð í knattspyrnufélagið West Ham fyrir helgina. Því er jafnframt haldið fram að stjórn félagsins muni hugsa málið yfir helgina og mæla með því eftir helgina ef stjórnarmönnum verður tilboðið að skapi. Enski boltinn 15.11.2006 18:42
Newell heldur starfi sínu Mike Newell, knattspyrnustjóri enska knattspyrnuliðsins Luton Town, slapp með harða aðvörun frá fundi sínum með stjórn félagsins í dag eftir að hann lét hrokafull ummæli falla um konu sem var aðstoðardómari á leik liðsins á laugardaginn var. Newell baðst afsökunar á yfirlýsingum sínum og sagði að svona lagað kæmi ekki fyrir aftur. Enski boltinn 15.11.2006 18:33
Real Madrid skrifar undir risasamning Spænska knattspyrnustórveldið Real Madrid hefur skrifað undir nýjan sjö ára sjónvarpsréttarsamning við óuppgefinn aðila að verðmæti 800 milljóna evra, eða rúma 72 milljarða króna. Ramon Calderon, forseti Real, segir þetta stærsta sjónvarpssamning íþróttafélags í sögunni og ætlar að gefa upp nafn sjónvarpsstöðvarinnar sem hér um ræðir eftir nokkra daga. Fótbolti 15.11.2006 17:38
Martin Jol vill meiri hörku í lið Tottenham Martin Jol hefur skorað á leikmenn sína að sýna meiri hörku á knattspyrnuvellinum og segir að leikmenn sína skorti nauðsynlegt "drápseðli" til að veita efstu liðunum í deildinni verðuga samkeppni. Enski boltinn 15.11.2006 17:26
Loeb verður ekki með í Wales Þrefaldi heimsmeistarinn í rallakstri, Frakkinn Sebastien Loeb, ætlar ekki að keppa í Bretlandsrallinu sem fram fer í Wales í næsta mánuði. Loeb handleggsbrotnaði í reiðhjólaslysi í september og hefur ekki ekið síðan, en hann tryggði sér samt titilinn eftir að hafa náð góðu forskoti á Marcus Grönholm og ætlar því ekki að taka áhættu á að meiða sig frekar. Sport 15.11.2006 17:00
Davidson ekur fyrir Super Aguri Breski ökuþórinn Anthony Davidson verður ökumaður japanska Super Aguri liðsins í Formúlu 1 á næsta ári ásamt Takuma Sato. Davidson hefur verið æfingaökumaður fyrir BAR/Honda síðustu þrjú ár, en fær nú tækifæri til að reyna sig fyrir alvöru á meðal þeirra bestu. Hann á að baki tvær keppnir sem aðalökumaður með liði Minardi árið 2002 og eina með Honda á síðasta tímabili. Formúla 1 15.11.2006 16:56
Valencia hefur augastað á Lippi og Buffon Fréttir á Spáni herma að yfirmaður knattspyrnumála hjá Valencia hafi lýst því yfir að félagið ætli sér að hreppa Ítalana Marcello Lippi og Gianluigi Buffon til liðs við sig á næstunni. Þetta var rætt á stjórnarfundi hjá félaginu. Fótbolti 15.11.2006 16:47
Bayern ætlar að versla í sumar Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Bayern Munchen, segir félagið tilbúið að eyða háum fjárhæðum til leikmannakaupa í sumar og á von á að heimsklassa leikmaður verði keyptur til félagsins fyrir allt að 30 milljónir evra. Fótbolti 15.11.2006 16:37
Van Gaal hefur litlar mætur á Wayne Rooney Louis van Gaal, fyrrum þjálfari hollenska landsliðsins og Barcelona og nú verandi þjálfari AZ Alkmaar í Hollandi, segir að enskir knattspyrnumenn geti lært eitt og annað af þeim hollensku. Hann segir Wayne Rooney eiga langt í land með að verða heimsklassa leikmann. Fótbolti 15.11.2006 16:25
Deisler í liði Bayern á ný Sebastian Deisler verður í liði Bayern Munchen í fyrsta skipti í átta mánuði um helgina þegar meistararnir mæta Stuttgart í úrvalsdeildinni. Deisler hefur verið frá vegna hnémeiðsla, en þessi fyrrum landsliðsmaður Þjóðverja hefur verið óheppinn með meiðsli allan sinn feril og þjáist einnig ef þunglyndi. Fótbolti 15.11.2006 16:22
Holland - England beint á Sýn í kvöld Hollendingar og Englendingar mætast í vináttuleik í Amsterdam í Hollandi í kvöld og verður leikurinn sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn. Útsending hefst klukkan 18:50 og klukkan 19:30 verður vináttuleikur Svisslendinga og Brasilíumanna sýndur beint á Sýn Extra. Fótbolti 15.11.2006 16:17
Ég á skilið að fá gullknöttinn Fabio Cannvaro, leikmaður Real Madrid og ítalska landsliðsins, segist vonast til að ítalskur leikmaður verði sæmdur gullknettinum þegar hann verður afhentur fljótlega, en hann og Gianluigi Buffon markvörður eru báðir tilnefndir. Fótbolti 15.11.2006 16:09
Óvænt gengi Utah Jazz heldur áfram Utah Jazz er með besta árangur allra liða í NBA deildinni eftir að liðið lagði LA Clippers 112-90 á heimavelli sínum í nótt. Utah hefur unnið 7 leiki og tapað 1, en lið Clippers hafði unnið 5 leiki í röð áður en það lá í Salt Lake City í nótt. Körfubolti 15.11.2006 13:36
Draumur í dós að fá Sigurð Sölvi Geir Ottesen er annar íslenskra leikmanna hjá sænska úrvalsdeildarfélaginu Djurgården. Hinn er Kári Árnason en báðir voru þeir keyptir frá Víkingi árið 2004 þegar Sigurður Jónsson var þjálfari félagsins. Hann var í gær ráðinn aðalþjálfari Djurgården og hittir hann því fyrir gamla lærisveina sína. Fótbolti 14.11.2006 19:42
Sigurður nýr aðalþjálfari Djurgården Sigurður Jónsson hefur verið ráðinn aðalþjálfari sænska úrvalsdeildarliðsins Djurgården. Liðið varð tvöfaldur meistari í fyrra en lenti í sjötta sæti í deildinni í ár. Með liðinu leika þeir Sölvi Geir Ottesen og Kári Árnason sem voru báðir keyptir frá Víkingi í Reykjavík þegar Sigurður þjálfaði meistaraflokk félagsins. Fótbolti 14.11.2006 19:43
Golden State - Toronto í beinni Leikur Golden State Warriors og Toronto Raptors verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í nótt klukkan 3:30. Golden State hefur byrjað ágætlega undir stjórn Don Nelson, en hjá Toronto er fjölmenn sveit Evrópubúa enn að slípa sig inn í NBA deildina. Körfubolti 14.11.2006 19:31
Lemgo skellti Gummersbach Einn leikur var í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld og þar gerði Lemgo sér lítið fyrir og vann Gummersbach 34-29 á heimavelli sínum eftir að staðan hafði verið jöfn 19-19 í hálfleik. Lemgo er fyrir vikið komið í toppsæti deildarinnar með 19 stig eftir 11 leiki - einu stigi meira en Gummersbach. Handbolti 14.11.2006 20:56
Englendingar eru ráðvilltir Hollendingurinn Ruud Gullit, sem meðal annars stýrði liði Newcastle á Englandi, segir að enska landsliðið sé á villigötum. Hann segir merkilegt að landslið með góðan mannskap eins og England geti ekki lagt lið á borð við Makedóníu. Fótbolti 14.11.2006 18:56
Dirk Kuyt meiddur Sóknarmaðurinn Dirk Kuyt hjá Liverpool verður hugsanlega ekki með hollenska landsliðinu í vináttuleiknum gegn Englendingum í Amsterdam annað kvöld, eftir að ökklameiðsli sem hafa hrjáð hann síðustu vikur tóku sig upp að nýju. Fótbolti 14.11.2006 18:41
Það voru mistök að ráða Dowie Peter Varney, framkvæmdastjóri Charlton, segir að félagið hafi gert mistök þegar það réð Ian Dowie sem knattspyrnustjóra í sumar og viðurkennir fúslega að félagið sé að taka áhættu með því að láta Les Reed taka við af honum. Enski boltinn 14.11.2006 18:32