
Viðskipti

Nýrri Evrópulöggjöf ætlað að skapa sameiginlegan markað í fjármálaþjónustu
Íslensk fjármálafyrirtæki þurfa að búa sig undir stóraukna erlenda samkeppni á næstu árum.

Gangsetningu kísilvers PCC á Bakka seinkar um tvær vikur
Verktaki við byggingu kísilvers PCC á Bakka við Húsavík mun ekki afhenda verksmiðjuna fyrr en í fyrsta lagi í fyrstu viku febrúar.

Fasteignasalar sjá ekki lægra verð í kortunum
Íbúðalánasjóður segir að í ljósi sögunnar geti sumir nú verið varir um sig eftir að fasteignaverð lækkaði í nóvember og um 78 prósent íbúða seldust undir ásettu verði. Fasteignasalar spá verðhækkunum en auknu jafnvægi.

Nýherji og dótturfélögin sameinast undir nafninu Origo
Nýherji og dótturfélögin Applicon og TM Software hafa sameinast undir nafninu Origo.

Jói Fel kaupir bakarí á Selfossi og Hellu
Tekur við rekstrinum um áramótin.

Treysta Fjarðarkaupum fyrir jólunum
KYNNING Verslunin Fjarðarkaup í Hafnarfirði er einstök á sinn hátt. Þar er vöruúrval einstaklega fjölbreytt og persónuleg þjónusta laðar að trygga viðskiptavini. Mikil alúð er lögð við kjötborðið sem svignar undan kræsingum nú fyrir jólin.

Jónsi í Sigur Rós og fjölskylda hans opnar verslun fulla af eigin hönnun
Verslunin er til húsa í Fischersundi 3 og heitir einfaldlega Fischer.

Valitor greiddi 1.450 milljónir fyrir bresk fyrirtæki
Greiðslukortafyrirtækið Valitor greiddi tæplega 1.450 milljónir króna fyrir bresku greiðslumiðlunarfyrirtækin Chip & PIN Solutions og IPS Ltd. en tilkynnt var um kaup Valitor á félögunum með skömmu millibili fyrr á árinu.

Methagnaður í fyrra hjá Kúkú Campers
Húsbílaleigan Kúkú Campers skilaði 154 milljóna króna hagnaði í fyrra og stækkaði mikið milli ár. Eigandi segir íslenska ferðaþjónustu í fjötrum vegna krónunnar í ár og fyrirtækið ætli að setja aukinn fókus á Ameríkuútrás þar sem tækifærin eru mikil.

Áfengisgjaldið þungur baggi fyrir lítil frumkvöðlabrugghús
Brugghúsið Lady Brewery segir álagningu áfengisgjalds afar erfiða fyrir frumkvöðla sem bruggi gæðabjór í litlu magni. Þar sem bruggunin sé smá í sniðum og áfengisstyrkur bjórsins um 6,1 prósent, þurfi fyrirtækið að greiða 452 krónur á hvern lítra til hins opinbera í formi áfengisgjalds.

Kvika kaupir fyrirtækjaráðgjöf Beringer Finance á Íslandi
Kvika tekur yfir flest verkefni Beringer Finance á Íslandi og Baldur Stefánsson verður framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar bankans. Gengið var endanlega frá samkomulagi vegna kaupanna í gær, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Norðursigling velti milljarði í fyrra
Rekstrartekjur hvalaskoðunarfyrirtækisins Norðursiglingar á Húsavík í fyrra námu 1.041 milljón króna. Jukust þær um 34 prósent frá árinu á undan.

Forstjórinn og fjármálastjórinn keyptu fyrir 18 milljónir
Forstjóri og fjármálastjóri Icelandair Group keyptu í gær hlutabréf í félaginu fyrir tæpar átján milljónir króna.

Góð viðbót í hönnunarflóru landsins
Samningar hafa tekist á milli íslensku húsgagnaverslunarinnar vinsælu Snúrunnar og dönsku keðjunnar Bolia. Bolia hefur verið starfandi í fimmtán ár og má nú finna í Svíþjóð, Hollandi og á fleiri stöðum. Rakel Hlín Bergsdóttir, eigandi Snúrunnar, er að vonum í skýjunum.

Reiknistofa bankanna innleiðir nýjan greiðslumáta í samstarfi við Swipp
Markmiðið með samstarfinu er að innleiða nýja lausn fyrir farsímagreiðslur hér á landi. Með þessari nýju lausn er viðskiptavinum gert kleift að greiða í verslunum, millifæra og innheimta greiðslur með notkun símans.

Launþegum fjölgar í byggingariðnaði og ferðaþjónustu
Matið er byggt á bráðabirgðatölum og undanskildir eru einyrkjar með rekstur á eigin kennitölu en það er algengt rekstrarform í byggingariðnaði, landbúnaði og skapandi greinum.

Sekt lækkar hlutabréf
Á föstudaginn hrundu hlutabréf í Deutsche Bank og lækkaði gengi hlutabréfanna um rúmlega átta prósent.

Kusk á hvítflibbann
Breski smásölukóngurinn Sir Phillip Green hefur undanfarin misseri fengið kusk á hvítflibbann vegna sölu á stórverslanakeðjunni BHS.

Einn af þeim forstjórum í heiminum sem náð hefur hvað mestum árangri
Paul Bisaro, starfandi stjórnarformaður Actavis, hefur verið nefndur einn af þeim forstjórum í heiminum sem náð hefur hvað mestum árangri á liðnu ári samkvæmt árlegri samantekt sem birtist í Harvard Business Review. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Íslenskur fjallabíll í framleiðslu
Framleiðsla á alíslenskum fjallabíl er að hefjast hér á landi og standa vonir til að fyrsti bílinn komi á göturnar í lok árs. Bíllinn er hannaður af Íslendingum og verður settur saman á Íslandi.

Meniga stefnir yfir milljarð í ár
Hugbúnaðarfyrirtækið Meniga hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands 2014 sem afhent voru á Nýsköpunarþingi í gær.

Krónan er ávísun á haftastefnu í tíu ár
Ætli Íslendingar að halda í krónuna verða þeir að reikna með lítilli einkaneyslu í skugga hafta um árabil. Seðlabankinn brást of seint við. Núverandi vaxtastigi hefði átt að vera náð fyrir ári, segir Ásgeir Jónsson hagfræðingur.

Krónan er ávísun á gjaldeyrishöft í áratug
Ætli Íslendingar að halda í krónuna er ólíklegt að gjaldeyrishöft verði afnumin á næstu fimm til tíu árum. Í skugga þeirra verður að endurbyggja íslenska myntsvæðið með lágu raungengi og lítilli einkaneyslu, að sögn Ásgeirs Jónssonar, forstöðumanns greiningar Arion Banka.

Hlutabréf Marels hækka um 1,3 prósent
Gengi hlutabréfa Marels hækkaði um 1,3 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgdi gengi bréfa Össurar, sem fór upp um 0,82 prósent. Önnur hlutabréf á Aðallista hreyfðust ekki úr stað.

Rannsókn sérstaks saksóknara á Exeter Holdings á lokastigum
Rannsókn sérstaks saksóknar á viðskiptum Exeter Holdings ehf. með stofnfjárbréf í Byr er langt komin en það er þó óljóst hvenær og hvort ákærur verði gefnar út.

Jóni vikið úr starfi hjá Stoðum
Jóni Sigurðssyni hefur verið veitt lausn frá störfum sem framkvæmdastjóri Stoða samkvæmt tilkynningu sem Eiríkur Elís Þorláksson, stjórnarformaður Stoða, sendi frá sér í dag.

Gengi hlutabréfa Eik banka lækkaði um 0,59 prósent
Gengi hlutabréfa í Eik bank í Færeyjum lækkaði um 0,59 prósent í Kauphöllinni í dag. Þetta var einkennandi fyrir daginn.

Gengi hlutabréfa Össurar lækkaði um 1,52 prósent
Gengi hlutabréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar lækkaði um 1,52 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgdu bréf Marels, sem lækkaði um 1,07 prósent og færeyska olíuleitarfélagsins Atlantic Petroleum. Gengi hlutabréfanna fór niður um 0,62 prósent.

Hlutabréf Marels lækkuðu um 1,19 prósent
Gengi hlutabréfa í Marel lækkaði um 1,19 prósent í Kauphöllinni í dag og gengi bréfa í stoðtækjafyrirtækinu Össuri um 0,52 prósent. Önnur hreyfing var ekki á markaðnum í dag.

Hlutabréf Össurar hækkuðu um 0,52 prósent
Gengi hlutabréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar hækkaði um 0,52 prósent í Kauphöllinni í dag. Bréf Færeyjabanka lækkaði um 0,62 prósent á sama tíma.