Sjálfstæðisflokkurinn

Fréttamynd

Hildur segir nýjan meiri­hluta þurfa breiða skír­skotun

Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins segist líta til Miðflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks hvað varði meirihluta, þá sitthvoran kostinn. Báðir séu einfaldasta leiðin að myndun meirihluta en Hildur segist vilja mynda meirihluta með breiða skírskotun sem geti endurreist traust til borgarstjórnar.

Innlent
Fréttamynd

„Hvað sagðiru, 42? Það er geð­veikt!“

Hilmar Gunnarsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ var himinlifandi þegar fréttamaður Sýnar bar honum tíðindi af fylgisaukningu flokksins í beinni útsendingu. Flokkurinn er með 42,5 prósent fylgi og meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur.

Innlent
Fréttamynd

Gífur­leg fagnaðar­læti yfir sigurræðu Almars

Almar Guðmundsson bæjarstjóri í Garðabæ og oddviti Sjálfstæðisflokksins var vel fagnað þegar hann hélt sigurræðu í kosningateiti flokksins. Hann segist telja að vinna flokksins hafi fyrst og fremst skilað árangri í kosningunum en flokkurinn bætir við sig manni miðað við fyrstu tölur.

Innlent
Fréttamynd

Meiri­hlutinn á Akur­eyri fallinn

Bæjarlistinn er örlítið stærri en Samfylkingin á Akureyri þegar um fjórðungur atkvæða hefur verið talinn. Samfylkingin bætir þó við sig manni og Bæjarlistinn tapar einum og því er meirihlutinn fallinn.

Innlent
Fréttamynd

Í á­falli yfir fyrstu tölum úr Kópa­vogi

Ásdís Kristjánsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins segist vera himinlifandi með fyrstu tölur. Yrðu það lokatölur fengi Sjálfstæðisflokkurinn hreinan meirihluta í bænum. Annar frambjóðandi flokksins var í áfalli. Allir oddvitar í Kópavogi virðast sáttir við sitt. 

Innlent
Fréttamynd

Nágrannaslagur í Vestur­bænum

Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar og Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, búa með eitt hús á milli sín í Vesturbæ Reykjavíkur

Innlent
Fréttamynd

Mynda Hildur og Pétur meiri­hluta eftir allt saman?

Spennan er því sem næst ærandi þegar styttist í að kjörstöðum verði lokað í Reykjavík. Meirihlutamyndun til hægri er mun líklegri en til vinstri í höfuðborginni miðað við nýja kosningaspá. Afdráttarlaus útilokun í kosningasjónvarpi í gærkvöldi gæti haft mikil áhrif á framhaldið. Gæti svo farið að Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin myndi meirihluta?

Innlent
Fréttamynd

Deilt um orð Hildar um „súkku­laðikleinuna“ Sönnu

Fyrrverandi ráðherra og formaður Samfylkingarinnar sakar oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík um rasisma með því að kalla oddvita Vinstrisins „súkkulaðikleinu“. Mörgum þykja þessar ásakanir innihaldslausar enda sé orðræða um súkkulaðikleinur gömul á Íslandi og eigi ekkert skylt við kynþátt.

Innlent