Akureyri

Akureyri

Mannfjöldi: 20.050 (2025). Flatarmál: 136 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Akureyri, Hrísey, Grímsey.

Fréttamynd

„Per­sónu­legir þættir koma hér hvergi nærri“

Alma Möller heilbrigðisráðherra segir persónulega þætti koma hvergi nærri ákvörðun um skipun næsta forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. Hún segist hæf til sjá um málið þó svo að hún hafi lýst sig vanhæfa til að fjalla um uppsögn ferliverksamninga á spítalanum. Alma segir þó að úrvinnsla málsins muni fara eftir því hverjir umsækjendur verða.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Segist sak­laus

Kristján Einar Sigurbjörnsson, betur þekktur sem Kleini, segist saklaus af öllum ásökunum sem hafa komið fram varðandi kynferðisbrot sem lögreglan a Akureyri rannsakar. Samkvæmt heimildum fréttastofu er Kristján grunaður í málinu.

Innlent
Fréttamynd

Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upp­lýsingum

Hafsteinn Karlsson var á leið til Íslands frá Kaupmannahöfn með konu sinni á fimmtudaginn þegar stefnan var óvænt tekin á Akureyri vegna veðuraðstæðna á Keflavíkurflugvelli. Við tóku um átta klukkustundir af óvissu í komusalnum á Akureyrarflugvelli þar sem mörghundruð manns var gert að bíða í fleiri klukkutíma. 

Innlent
Fréttamynd

Á­fengis­sala í brekkunni hafi reynst vel

Lögreglan þurfti að grípa inn í við Hlíðarfjall síðustu helgi þegar örtröð myndaðist við bílastæðið. Forstöðumaður skíðasvæðisins segir áfengissölu í brekkunni hafa reynst einkar vel og tekur fram að fjöldi erlendra ferðamanna á svæðinu hafi aukist verulega á síðustu árum.

Innlent
Fréttamynd

Missti tökin og hengdur á loft í beinni

Leikfélag Akureyrar frumsýndi í kvöld Birting, klassíska stórsýningu úr smiðju Voltaire. Níels Thibaud Girerd, aðalleikari sýningarinnar, lofaði flugeldasýningu þegar Tómas Arnar Þorláksson sótti meðlimi leikfélagsins heim fyrir frumsýninguna í kvöld, þar sem hann endaði á því að vera hengdur upp í beinni útsendingu.

Lífið
Fréttamynd

Metfjöldi gesta tvo daga í röð

Um 3.400 manns lögðu leið sína í Hlíðarfjall á Akureyri í dag og nánast jafnmargir í gær. Stjórnendur telja aðsóknina þá mestu frá upphafi talninga og reikna með að helgin verði sú stærsta í sögu skíðasvæðisins.

Innlent
Fréttamynd

Þórsarar fá nýtt í­þrótta­hús

Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi í morgun samkomulag um byggingu nýs íþróttahúss á félagssvæði Þórs. Íþróttahúsinu eru áætlaðir 4.600 fermetrar og þar af verður íþróttasalur með um 2.400 fermetra gólfflöt. Gert er ráð fyrir að það muni kosta á bilinu 3 til 4,5 milljarða króna.

Sport
Fréttamynd

Verra að vera í bíl en gangandi í svif­rykinu

Í mikilli svifryksmengun er betra að fara labbandi í vinnuna en keyrandi, að sögn formanns Félags lækna gegn umhverfisvá. Erlendar rannsóknir sýna að tíðni hjartaáfalla og heilablóðfalla aukist þá daga sem mengun er mikil. 

Innlent
Fréttamynd

Þor­steinn fær á­heyrn Hæsta­réttar

Þorsteinn Hermann Þorbjörnsson, sem var sakfelldur í Landsrétti fyrir að svipta sambýliskonu sína lífi á heimili þeirra í Naustahverfi á Akureyri í apríl árið 2024, hefur fengið leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar til Hæstaréttar.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er náttúru­lega bara rotið og galið“

Þórhallur Jónsson, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, telur flokksstarfi sínu fyrir Sjálfstæðisflokkinn lokið eftir að hann laut í lægra haldi gegn Berglindi Ósk Guðmundsdóttur í oddvitaslag. Hann segir margt rotið innan flokksins á Akureyri. 

Innlent
Fréttamynd

Berg­lind rétt marði Þór­hall

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, fyrrverandi þingmaður, er nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri. Berglind hlaut 51 prósent atkvæða gegn 46 prósentum Þórhalls Jónssonar varabæjarfulltrúa sem sóttist einnig eftir oddvitasætinu. Þrír skiluðu auðu.

Innlent
Fréttamynd

Kæra freyði­vínsviðburð með Lilju Al­freðs

Framsóknarfélag Akureyrar og nágrennis kærði í dag viðburð sem kvennahreyfing Framsóknar hefur boðað með Lilju Alfreðsdóttur formannsframbjóðanda til siðanefndar flokksins. Fundurinn fer fram nokkrum dögum fyrir flokksþing þar sem næsti formaður verður valinn.

Innlent
Fréttamynd

Hvernig verður Akur­eyri svæðisborg?

Hvernig verður bær borg?Síðasta haust ályktaði Alþingi að fela ríkisstjórninni framkvæmd sérstakrar borgarstefnu fyrir árin 2025–2040. Með samþykkt borgarstefnu hefur Alþingi viðurkennt mikilvægi þess að efla Akureyri sem formlega svæðisborg.

Skoðun
Fréttamynd

Fram­boð sem byggir á trú á Akur­eyri

Ég er 32 ára þriggja barna móðir. Börnin mín eru 10 ára, 2 ára og 3 mánaða. Eins og margar fjölskyldur á Akureyri finn ég daglega hvernig ákvarðanir sveitarfélagsins hafa raunveruleg áhrif á lífið okkar, hvort við fáum leikskólapláss, hvernig skólastarfi er háttað, hvernig opinber þjónusta er veitt, hvort hér sé húsnæði sem okkur hentar og að hér séu tækifæri og atvinnuöryggi.

Skoðun
Fréttamynd

Stofn­endur Vélfags ekki hafðir með í ráðum

Lögmaður stofnenda Vélfags segir að þeim sé haldið utan við fyrirætlanir stjórnarformanns þess. Þá hafi þeir ekki óskað eftir því að eignir væru fjarlægðar úr starfsstöðum félagsins. Staðhæfingar stjórnarformanns og lögmanns Vélfags í fjölmiðlum séu rangar.

Viðskipti innlent