Reykjanesbær

Iceland-verslanir í Reykjanesbæ og á Akureyri flæktu kaupin
Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Samkaupa hf. á eignum 12 verslana Basko verslana ehf. sem staðsettar eru á höfuðborgarsvæðinu, en greint var frá kaupunum á sunnudag.

Tvö kísilver bjargi rekstrinum á Helguvíkurhöfn fyrir bæinn
Reykjanesbær þarf að greiða um 200 milljónir til Reykjaneshafnar til að hún standi undir sér. Neikvætt eigið fé rúmir sex milljarðar króna.

Barði í Bang Gang orðinn að styttu
Stytta af tónlistarmanninum Barða Jóhannssyni, oft kenndum við Bang Gang, var afhjúpuð á Rokksafni Íslands í Hljómahöll í Reykjanesbæ í dag.

Pólsk menningarhátíð í Reykjanesbæ
Pólverjar eru 60% allra þeirra af erlendum uppruna sem búa í Reykjavensbæ

Deila um niðurrif sundhallar Keflavíkur
Forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar segir hollvinasamtök gömlu sundhallarinnar í bænum þyrla upp moldviðri í deilum um niðurrif hússins.

Innflytjandi sá tækifæri í affallsvatni orkuvers
Hún flutti til Íslands sextán ára gömul frá Palestínu en er nú búin að byggja upp nýsköpunarfyrirtæki sem býr til fæðubótarefni úr affallsvatni virkjunar.

Eitt skrautlegasta fyrirtæki landsins fær milljón á kíló
Litskrúðugasta fyrirtæki landsins gæti verið á Ásbrú á Keflavíkurflugvelli og það fær milljón fyrir hvert kíló af efni sem það vinnur úr þörungum.

Íslenska ríkið grætt ellefu milljarða króna á sölu fasteigna Varnarliðsins
Íslenska ríkið hefur hagnast um ellefu milljarða króna á sölu fasteigna Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Fjárfestar undirbúa húsbyggingar á gamla varnarsvæðinu.

Fortíðarþrá dregur gamla hermenn aftur til Íslands
Fyrrverandi bandarískir hermenn, sem sinntu herskyldu á Íslandi, sækja í að skoða gamla varnarsvæðið og segjast bera hlýjar tilfinningar til Íslendinga.

Biggi flugþjónn ósáttur við akstursbann: „Ætlum við að búast við því að allir ökumenn séu hugsanlega morðingjar?“
Birgir Örn Guðjónsson, áður þekktur sem Biggi lögga, segist ósammála lögreglustjóranum um aksturbann Fornbílaklúbb Íslands á Ljósanótt.

Fornbílaklúbburinn æfur vegna akstursbanns á Ljósanótt
Lögreglustjórinn segir ákvörðunina byggja á öryggissjónarmiðum.

Námsárangur fór fram úr villtustu væntingum
Breytt verklag í grunnskólum Reykjanesbæjar skilaði mun betri námsárangri barna. Átakið kostaði ekki krónu. Skimunarpróf til að finna þá sem þurftu að bæta sig. Bæjarstjóri segir dæmið sanna að heilt þorp þurfi til að ala upp barn

Lyfti samfélaginu upp á annað plan
Gömlu jólatrésskemmtanir Duus verslunarinnar í Keflavík frá 1900 til 1920 verða endurvaktar næstu helgi.

Reykjanesbær er „ekki gamli bærinn minn“
Tónlistarmaðurinn Gunnar Þórðarson vill ekki að lag hans Gamli bærinn minn verði spilaður yfir flugeldasýningunni á Ljósanótt.

Skýrar vísbendingar um veiðistöð fyrir landnám
Fornleifarannsókn í Höfnum á Reykjanesi hefur leitt í ljós mannvirki sem reist voru um það bil hálfri öld áður en Ingólfur Arnarson á að hafa numið land.

Dýrasti fiskur á Íslandi dafnar í affalli virkjunar
Einn verðmætasti matfiskur heims, Senegal-flúra, er að ná sláturstærð í eldisstöð Stolt Sea Farm á Reykjanesi.

„Ætla að taka Breivik á þetta“
Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann á sextugsaldri fyrir að hafa haft í frammi ógnandi framkomu og hótað sýslumanninum í Keflavík og öðrum starfsmönnum líkamsmeiðingum og lífláti á skrifstofu embættisins í Keflavík árið 2012.

„Ég er auðvitað mamma, þótt ég sé ekki með barnið mitt hjá mér"
Mikilvægt er að fósturmissir og andvana fæðingar séu ekki tabú og að samfélagið viðurkenni stöðu þeirra sem lenda í þessum erfiðu áföllum sem foreldrar. Ungar konur sem misstu börn sín eftir 22 vikna meðgöngur, mæla með því að foreldrar eigi myndir af látnum börnum sínum. Rétt er að vara við myndum sem sjást í meðfylgjandi myndskeiði.

Krefjast eignarnáms á landsréttindum á Reykjanesi
Landsnet leitaði í dag eftir heimild atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra til að taka tiltekin landsréttindi á Reykjanesskaga eignarnámi til að geta hafið framkvæmdir við Suðurnesjalínu 2, háspennulínu milli Hafnarfjarðar og Grindavíkurbæjar. Á blaðamannafundi sem haldinn var í dag kom fram að samningar hafa tekist við fjóra af hverjum fimm landeigendum um 62% lands á leið væntanlegrar línu en ítrekaðar samningsumleitanir við aðra landeigendur reyndust árangurslausar.

Tré ársins er fjallagullregn í Reykjanesbæ
Skógræktarfélag Íslands útnefndi tré ársins 2011 við hátíðlega athöfn að Greniteigi 9 í Reykjanesbæ þriðjudaginn 13. september. Tréið er af tegundinni fjallagullregn (Laburnum alpinum) og gerir sérstaða þess og fegurð það vert útnefningar að því er fram kemur í tilkynningu frá Skógræktarfélagi Íslands.