Seltjarnarnes
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 13 ›
Grótta svarar Kríu: Geta ekki krafist að Grótta dragi úr þjónustu sinni við yngri iðkendur Handknattleiksdeild Gróttu hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna þeirrar sem Kría sendi frá sér fyrr í dag. Kríumenn, sem hafa æft og spilað í íþróttahúsi Gróttu síðustu ár, vönduðu þeim síðarnefndu ekki kveðjurnar í yfirlýsingu sinni. Handbolti 25.7.2021 17:00
Enn hækkar íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu Samkvæmt nýbirtum tölum Þjóðskrár Íslands hækkaði íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu að meðaltali um 1,4 prósent milli maí og júní. Árshækkun mælist nú 16 prósent og hefur ekki verið hærri síðan í október 2017. Viðskipti innlent 21.7.2021 11:47
Kynntu fyrirhugaðar stofnvegaframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu Betri samgöngur ohf. og Vegagerðin halda í dag fund þar sem farið verður yfir þær stofnvegaframkvæmdir sem fyrirhugaðar eru á höfuðborgarsvæðinu næstu árum. Um er að ræða kynningarfund um stofnvegaframkvæmdir Samgöngusáttmálans og verður streymt frá fundinum í beinni útsendingu. Innlent 6.7.2021 09:16
Martraðarnágrannar hafa valdið ónæði í mörg ár Kaupandi íbúðar í þriggja hæða fjölbýlishúsi á Seltjarnarnesi hefði líklega aldrei keypt hana ef seljendur hefðu sagt henni alla söguna af nágrönnum hennar. Kaupandinn vill ekki koma fram undir nafni af ótta við nágranna sína. Þá hefur hún áhyggjur af börnum sem búa í húsinu. Innlent 3.7.2021 21:21
Kría ekki áfram á Seltjarnarnesi: „Við erum heimilislausir“ Kría, nýliðar í Olís-deild karla í handbolta á næstu leiktíð, eru án heimilis eftir að félagið fékk þær fréttir að liðið gæti ekki lengur æft né spilað heimaleiki sína á Seltjarnarnesi. Handbolti 24.6.2021 20:31
Krefjast 12 milljóna króna af Seltjarnarnesbæ vegna vanrækslu barnaverndar Hin nítján ára gamla Margrét Þ. E. Einarsdóttir og faðir hennar Einar Björn Tómasson hafa stefnt Seltjarnarnesbæ vegna vanrækslu barnaverndar bæjarfélagsins í máli Margrétar. Margrét krefst þess að Seltjarnarnesbær greiði henni níu milljónir króna í miskabætur og Einar krefst þriggja milljóna króna í miskabætur. Innlent 22.6.2021 12:57
Seldi Bubba húsið með því skilyrði að fá frímiða á alla tónleika Gunnar Kr. Gunnarsson, 83 ára Seltirningur, seldi ástsæla tónlistarmanninum Bubba húsið sitt á dögunum. Eitt af þeim skilyrðum sem Gunnar setti við söluna var að hann fengi miða á alla tónleika Bubba það sem eftir er ævinnar. Lífið 18.6.2021 15:30
Íbúum fjölgar í Reykjavík og Kópavogi en fækkar í Hafnarfirði og á Seltjarnarnesi Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 721 á tímabilinu frá 1. desember 2020 til 1. júní sl. og í Kópavogi fjölgaði um 439 á sama tímabili. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Þjóðskrá um fjölda íbúa eftir sveitarfélögum. Innlent 3.6.2021 07:10
Þak í eigu bæjarins skapar mikinn vanda fyrir íbúa á Eiðistorgi Íbúi á Eiðistorgi hefur ekki getað lagfært húsnæði sitt vegna glerþaks yfir torginu í eigu Seltjarnarnesbæjar. Bærinn segist ekki hafa fengið ósk um kostnaðarþátttöku en húsfélag krafðist þess að bærinn færi í framkvæmdir á þakinu árið 2019. Innlent 9.4.2021 21:00
Ætlar í mál við Seltjarnarnesbæ og hugsanlega einstaka starfsmenn Seltjarnarnesbær hefur hafnað bótaskyldu í máli Margrétar Lillýar Einarsdóttur, stúlku sem ólst upp við vanrækslu og ofbeldi móður án eiginlegra afskipta barnaverndaryfirvalda á Seltjarnarnesi. Margrét Lillý ætlar að höfða bótamál gegn bænum og hugsanlega einstaka starfsmönnum sem komu að máli hennar. Innlent 31.3.2021 12:09
Fyrrverandi bæjarstjóri og framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins ákærður fyrir skattalagabrot Embætti héraðssaksóknara hefur ákært Jónmund Guðmarsson, fyrrverandi bæjarstjóra Seltjarnarness og fyrrverandi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins fyrir meiriháttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum. Innlent 29.3.2021 16:59
Gömul byssa kom upp með síðustu skóflunni Húseigandi á Seltjarnarnesi sem vinnur að endurbótum á húsinu sínu gróf niður á forvitnilegan hlut þegar forláta byssa kom upp með skóflunni. Ljóst er að byssan hefur legið lengi í jörðu en finnandinn hefur á huga á að fá hana til varðveislu. Innlent 18.3.2021 19:01
Ráðast í annað útboð þannig að Gosa og Drottningu verði skipt út Til stendur að hefja innkaupaferli á tveimur nýjum síðalyftum fyrir Bláfjöllum. Síðar verður svo hafinn undirbúningur að kaupum á fleiri lyftum fyrir Bláfjöll og Skálafell, auk þess að snjóframleiðslu verði komið upp. Innlent 18.3.2021 07:37
„Stórundarlegt“ að ekki hafi verið brugðist við Bæjarfulltrúi minnihlutans í Seltjarnarnesbæ telur stórundarlegt að bæjaryfirvöld hafi ekki enn brugðist við athugasemdum slökkviliðs vegna brunavarna á Eiðistorgi. Ólýðandi sé að eignir bæjarins séu að valda skemmdum á eignum bæjarbúa. Bærinn segir brunamál á Eiðistorgi í vinnslu. Innlent 5.3.2021 11:59
Brunavarnir á Eiðistorgi í lamasessi: Íbúar sagðir verða fyrir tjóni vegna sinnuleysis bæjaryfirvalda Miklar brotalamir eru á brunavörnum á Eiðistorgi. Flóttaleiðir íbúa á eftirhæðum eru ekki fyrir hendi. Þeir hafa ekki getað sinnt nauðsynlegu viðhaldi og eru íbúðir farnar að skemmast. Þak í eigu Seltjarnarnesbæjar skapar stærsta vandann. Sveitarfélagið hefur ekkert aðhafst. Innlent 4.3.2021 21:01
Ólíklegt að allt höfuðborgarsvæðið verði rýmt ef til eldgoss kemur Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík og formaður almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins, segir mjög ólíklegt að höfuðborgarsvæðið allt yrði rýmt ef eldgos brytist út í nálægð við höfuðborgina. Rýmingaráætlun almannavarna ganga út á að rýma ákveðna hluta höfuðborgarsvæðisins. Innlent 27.2.2021 21:15
Suðvesturhornið nötrar og stærsti skjálftinn 5,7 að stærð Jörð hefur skolfið á suðvesturhorni landsins í morgun og virðist ekkert lát á skjálftavirkni. Fyrstu skjálftar fundust upp úr klukkan tíu og enn skelfur jörð þegar klukkan er að verða ellefu. Skjálftar hafa fundist á höfuðborgarsvæðinu, vestur í Stykkishólm og austur á Helllu. Innlent 24.2.2021 10:07
„Þetta rændi æsku minni og það er þessu fólki að kenna“ Stúlka, sem ólst upp við vanrækslu og ofbeldi móður án eiginlegra afskipta barnaverndaryfirvalda á Seltjarnarnesi, fagnar gagnrýnum úrskurði Barnaverndarstofu um slæleg vinnubrögð á Nesinu. Hún ætlar að berjast fyrir því að börn geti treyst kerfinu. Innlent 8.2.2021 20:01
Alvarlegar athugasemdir gerðar við meðferð Seltjarnarnesbæjar á máli stúlkunnar Barnaverndarstofa telur verulega annmarka hafa verið á meðferð barnaverndaryfirvalda á Seltjarnarnesi á máli stúlku, sem segist hafa búið við ofbeldi og vanrækslu á heimili í bænum um árabil. Lögmaður stúlkunnar telur yfirvöld hafa brotið gegn henni með alvarlegum hætti. Innlent 5.2.2021 12:14
Pétur Árni keypti hið sögufræga hús Kjarvals Pétur Árni Jónsson, framkvæmdastjóri HEILD fasteignafélags og aðaleigandi útgáfufélags Viðskiptablaðsins, hefur fest kaup á hinu sögufræga Kjarvalshúsi sem stendur við Sæbraut 1 á Seltjarnarnesi. Viðskipti innlent 3.2.2021 07:26
Líkamsárás, iPad-þjófnaður og fjársvik Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um líkamsárás á Seltjarnarnesi skömmu fyrir klukkan tvö í nótt. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Innlent 16.1.2021 07:29
Aflýsa öllum áramótabrennum á höfuðborgarsvæðinu Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa ákveðið að fella niður allar áramótabrennur sem skipulagðar hafa verið á höfuðborgarsvæðinu í ár. Ákvörðunin var tekin í ljósi þess að samkomubann miðast við tíu manns og „mikilvægt að sveitarfélögin hvetji ekki til hópamyndunar,“ segir í tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar. Innlent 15.12.2020 14:36
Slökkvilið kallað út vegna reykjar á Seltjarnarnesi Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um svartan reyk úr kjallara á Seltjarnarnesi. Viðbragðsaðilar eru á leið á vettvang. Innlent 12.12.2020 13:06
Umferðaróhapp við Gróttu Útkall barst viðbragðsaðilum á höfuðborgarsvæðinu nú á sjöunda tímanum vegna umferðaróhapps við Gróttu. Innlent 9.12.2020 18:25
Davíð í Unity keypti glæsihýsi Skúla Mogensen af Arion Davíð Helgason, einn af stofnendum hugbúnaðarfyrirtækisins Unity Technologies, hefur keypt glæsihýsið við Hrólfsskálavör 2 á Seltjarnarnesi af Arion banka. Húsið, sem er eitt verðmætasta íbúðarhús landsins, var áður í eigu Skúla Mogensen, stofnanda og fyrrverandi forstjóra WOW air. Viðskipti innlent 2.12.2020 08:16
Nagladekk spila langstærstan þátt í myndun svifryks Greining nýrrar rannsóknar bendir til þess að nagladekkjanotkun spili langstærstan þátt í myndun svifryks frá umferð á höfuðborgarsvæðinu en aðrir áhrifaþættir eru vegyfirborð, umferðarmagn, hraði og þjónusta; söltun og skolun. Ein af niðurstöðum rannsóknarinnar er að draga þurfi verulega úr nagladekkjanotkun. Innlent 27.11.2020 15:01
Forstjóri Landspítalans keypti glæsihýsi á Nesinu Páll Matthíasson og eiginkona hans, Ólöf Ragnheiður Björnsdóttir, festu kaup á glæsilegu einbýlishúsi við Látraströnd 15 á Seltjarnarnesi. Hjónin seldu íbúð sína í miðbæ Reykjavíkur fyrr á árinu og hafa því fært sig yfir í nágrannasveitarfélagið. Lífið 26.11.2020 18:36
Uppbyggingin á skíðasvæðunum á byrjunarreit Stjórn Sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hafnaði á fundi sínum í upphafi mánaðarins öllum tilboðum í framkvæmdir á skíðasvæðunum í Bláfjöllum. Innlent 16.11.2020 11:56
Skemmdarverk á strætóskýlum algengt en sorglegt vandamál „Þetta er bara ótrúlega sorglegt og ótrúlega leiðinlegt og maður skilur ekki alveg hvað vakir fyrir þeim sem gera svona,“ segir Guðmundur Heiðar Helgason, upplýsingafulltrúi Strætó í samtali við Vísi. Innlent 31.10.2020 15:26
Líkamsárás í austurbænum og trampólín braut stofuglugga Skömmu eftir klukkan átta í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um líkamsárás í hverfi 108 í Reykjavík. Innlent 23.10.2020 06:30
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent