Lífeyrissjóðir
1 2 3 4 5 6 7 8 … 19 ›
Sanngjarnt lífeyriskerfi: Það er dýrara að vera fatlaður Á Alþingi Íslendinga er nú til meðferðar frumvarp sem myndi fela í sér einhverjar mestu breytingar á örorkulífeyriskerfinu á Íslandi fyrr og síðar verði það samþykkt. ÖBÍ réttindasamtök hafa komið á framfæri fjölda athugasemda og tillagna um breytingar á frumvarpinu. Skoðun 22.5.2024 07:45
Skúli Hrafn kemur nýr inn í stjórn Eyris Invest fyrir LSR Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, einn stærsti hluthafi Eyris Invest, hefur ákveðið að tilnefna einn af sjóðstjórum sínum í stjórn fjárfestingafélagsins. Eyrir er langsamlega stærsti hluthafinn í Marel með um fjórðungshlut og hefur veitt óafturkallanlegt samþykki sitt um að samþykkja yfirtökutilboð sem JBT áformar að leggja formlega fram síðar í þessum mánuði. Innherji 13.5.2024 14:26
Akta: Frumvarp ráðherra samkeppnishamlandi fyrir minni sjóðastýringar Framkvæmdastjóri Akta segir mikilvægt að jafnræðis sé gætt á meðal rekstrarfélaga verðbréfasjóða þegar kemur að nýjum lögum um aukið frelsi varðandi viðbótarlífeyrissparnað. Atriði í frumvarpinu séu samkeppnishamlandi fyrir minni fyrirtæki á markaðnum og gangi gegn hagsmunum þeirra sem eigi viðbótarlífeyrissparnað. Innherji 7.5.2024 12:34
CRI hefur greitt upp allar skuldir og hraðar ráðningum á öllum sviðum Íslenska hátæknifyrirtækið CRI, sem framleiðir metanól úr koltvísýringi og vetni, segist vera í „einstakri stöðu“ samhliða því að félagið er að fara inn í vaxtarskeið en fyrirséð er að eftirspurn eftir grænu metanóli sem skipaeldsneyti muni aukast um milljónir tonna á komandi árum. Eftir að hafa klárað milljarða fjármögnun um mitt síðasta ár, leidd af norska orkurisanum Equinor, er CRI orðið skuldlaust og boðar núna miklar ráðningar á öllum sviðum starfseminnar. Innherji 5.5.2024 11:51
Lífeyrissjóðir verða ekki hlutlausir fjárfestar, segir formaður Gildis Haft hefur verið á orði að lífeyrissjóðir eigi að láta einkafjárfestum eftir að leiða þau fyrirtæki sem fjárfest er í. Stjórnarformaður Gildis segir að í ljósi þess hve umsvifamiklir lífeyrissjóðir séu á hlutabréfamarkaði hérlendis muni þeir gegna veigameira hlutverki en að vera hlutlaus fjárfestir. Innherji 22.4.2024 19:18
Einblína á trausta ávöxtun til langs tíma Síðar á árinu fagnar SL lífeyrissjóður 50 ára starfsafmæli sínu. Stjórn, framkvæmdastjóri og starfsfólk er mjög stolt af farsælli sögu sjóðsins enda hefur hann lengi haft sérstöðu meðal íslenskra lífeyrissjóða. Samstarf 22.4.2024 11:27
Stjórnvöld vilja ekki bjóða erlendum fjárfestum upp á sérstöðu Íslands Ef það er raunverulega markmiðið að auka beina erlenda fjárfestingu og skapa umhverfi sem eflir hlutabréfamarkaðinn þá væri réttast að selja minnihluta í Landsvirkjun samhliða skráningu á markað og eins opna meira á erlent eignarhald í sjávarútvegi, að mati framkvæmdastjóra eins stærsta lífeyrissjóðs landsins. Þótt Kauphöllin fari stækkandi þá endurspegli hún ekki vel íslenska hagkerfið á meðan stjórnvöld halda verndarhendi yfir þeim atvinnugreinum sem eru með sérstöðu á heimsvísu. Innherji 18.4.2024 06:30
Lífeyrissjóðir stækkuðu stöðuna í Marel og fara með um 40 prósenta hlut Íslensku lífeyrissjóðirnir, einkum þeir stærstu, juku lítillega við hlutabréfastöðu sína í Marel í fyrra á afar sveiflukenndum og krefjandi tímum á markaði en að teknu tilliti til óbeins eignarhlutar í Eyri Invest fara sjóðirnir núna með samanlagt um fjörutíu prósenta hlut í félaginu. Bandaríska fyrirtækið JBT áformar að gera formlegt yfirtökutilboð í Marel í næsta mánuði en það er meðal annars háð skilyrði um samþykki að lágmarki 90 prósent hluthafa. Innherji 17.4.2024 11:33
LIVE fjárfesti fyrir 1,5 milljarð í First Water og fer með sex prósenta hlut Lífeyrissjóður verslunarmanna fjárfesti fyrir 1,5 milljarða króna með beinum hætti í landeldinu First Water þegar fiskeldið kláraði stórt hlutfjárútboð í fyrra og var þá verðmetið á liðlega 25 milljarða. Stjórnarformaður sjóðsins, næst stærsti lífeyrissjóður landsins, kallar eftir því að settur verði aukinn kraft í greiningu vænlegra innviðafjárfestinga svo hægt sé að virkja sem fyrst tækifærin sem bíða á því sviði. Innherji 22.3.2024 15:55
Telja að tekjurnar fari í um 50 milljarða og verði umfram spár greinenda Samkvæmt afkomuáætlun sem stjórnendur Alvotech hafa gefið út er ráðgert að heildartekjur líftæknilyfjafélagsins geti á þessu ári orðið um 400 milljónir Bandaríkjadala, um fjórfalt meira en í fyrra, og mögulega tvöfaldast árið eftir. Þær áætlanir gætu tekið talsverðum breytingum á næstunni þegar Alvotech klárar sölusamninga í Bandaríkjunum en hin nýja tekju- og afkomuspá, sem markaðsaðilar hafa beðið eftir, er engu að síður nokkuð yfir væntingum greinenda. Innherji 21.3.2024 10:53
Gagnrýnir séríslenskt kerfi þar sem lífeyrissjóðum er leyft að móta veruleikann Hjörleifur Pálsson, sem hefur setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja í Kauphöllinni um árabil, fer hörðum orðum um þá þróun sem hefur orðið ofan á með tilnefningarnefndir og telur að þar hafi forsvarsmenn skráðra félaga „almennt sofið fljótandi að feigðarósi.“ Ekki sé hægt að aftengja stjórnir og hluthafa starfi nefndanna, eins og er að gerast, en þannig er búið að eftirláta völdin öllum öðrum en þeim sem hafa reynslu af rekstri og stjórnun skráðra félaga. Innherji 17.3.2024 11:23
Lífeyrissjóðir opinberra starfsmanna studdu ekki kaupréttarkerfi Regins Tvær stærstu hluthafar Regins, lífeyrissjóðirnir LSR og Brú, greiddu ekki atkvæði með tillögu stjórnar fasteignafélagsins um innleiðingu á kaupréttarkerfi fyrir lykilstjórnendur sem var kynnt fjárfestum í aðdraganda aðalfundar fyrr í vikunni. Ekki náðist nægjanlegur meirihlutastuðningur fyrir tillögunni eftir að lífeyrissjóðurinn Gildi bókaði andstöðu við kaupréttarsamningana og taldi rétt að hluthafar myndu taka afstöðu til helstu skilmála þegar slík kerfi væru tekin upp. Innherji 15.3.2024 10:19
Unnið með bönkunum í erlendri fjármögnun að hafa tekið yfir íbúðalánin Efnahagsreikningur og rekstur viðskiptabankanna hefur tekið stakkaskiptum frá 2019, þegar þeir voru í raun bara „fyrirtækjabankar“ að sögn seðlabankastjóra, og viðskiptalíkanið er orðið mun sterkara eftir að bankarnir tóku nánast yfir íbúðalán heimilanna sem hefur unnið með þeim í erlendri markaðsfjármögnun. Hann segir að hagræðið sem hafi náðst með þeirri breytingu sé komin til vera og öll rök hnígi að því að lífeyrissjóðir einblíni á að kaupa sértryggð bankanna fremur en að standa sjálfur í beinum lánveitingum. Innherji 14.3.2024 12:10
Tillaga um kaupréttarkerfi fékkst ekki samþykkt eftir andstöðu frá Gildi Áform stjórnar Regins um innleiðingu á kaupréttarkerfi fyrir lykilstjórnendur hlaut ekki samþykki nægjanlega mikils meirihluta hluthafa á aðalfundi fasteignafélagsins sem lauk fyrr í dag. Lífeyrissjóðurinn Gildi, fimmti stærsti hluthafi félagsins, hafði lagt fram bókun í aðdraganda fundarins og lagst gegn tillögu stjórnarinnar. Innherji 12.3.2024 21:31
Ekki vera Vilhjálmur! Á dögunum birti Vilhjálmur Bjarnason fyrrv. þingmaður, grein í Morgunblaðinu um lífeyrissjóði og eftirlaunakjör og var þar margt áhugavert frá greinarhöfundi en annað því miður ekki alveg rétt. Skoðun 11.3.2024 16:01
Nálgast erlenda markaði af meiri varkárni en snörp leiðrétting ekki í kortunum Hlutabréfavísitölur beggja vegna Atlantsála eru í hæstum hæðum um þessar mundir og forsvarsmenn sumra íslenskra lífeyrissjóða segjast því nálgast erlenda hlutabréfamarkaði af meiri varkárni en áður. Aðrir eru hins vegar hóflega bjartsýnir um ávöxtunarhorfur til næstu ára og sjá að „óbreyttu ekki skýr teikn á lofti um snarpa leiðréttingu“ á mörkuðum, að mati eins sjóðstjóra. Innherji 11.3.2024 13:45
Lífeyrissjóðir fái eignir Heimstaden á 15 milljarða afslætti Sjóður í eigu nokkurra lífeyrissjóða í stýringu Stefnis er sagður munu greiða 61 milljarð króna fyrir allt hlutafé í leigufélaginu Heimstaden. Fasteignamat eigna Heimstaden er tæpir 76 milljarðar króna. Viðskipti innlent 10.3.2024 13:00
LSR setti öll sín atkvæði á Guðjón í stjórnarkjörinu hjá Festi Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, stærsti hluthafinn í Festi, greiddi fráfarandi forstjóra Reita öll atkvæði sín í stjórnarkjöri smásölurisans á hitafundi sem fór fram í morgun. Djúpstæð gjá hefur myndast milli stærstu einkafjárfestanna í hluthafahópi Festar og sumra lífeyrissjóða, sem beittu sér gegn því að fulltrúi þeirra færi í stjórn, en hlutabréfaverð félagsins féll um þrjú prósent í dag og hefur ekki verið lægra á þessu ári. Innherji 6.3.2024 20:20
Lífeyrissjóðir vilja að rýmkaðar heimildir eigi við um allar óskráðar eignir Landssamtök lífeyrissjóða kalla eftir því að heimildir til þess að fjárfesta í óskráðum eignum verði rýmkaðar. Fjármála- og efnahagsráðherra er með frumvarp til umsagnar um að lífeyrissjóðir fái auknar heimildir til að fjárfesta í óskráðum fasteignafélögum á íbúðamarkaði en sjóðirnir vilja auka heimildina án tillits til kjarnareksturs. Innherji 4.3.2024 13:50
Ný nálgun á húsnæðismál Húsnæði fyrir alla. Hver hefur ekki heyrt þessa setningu hljóma? Hugsunin er falleg enda er húsnæði mannréttindamál. Hver einstaklingur á rétt á að hafa þak yfir höfuðið. Skoðun 2.3.2024 15:00
Tæplega sjötíu prósent íslenskra fanga hafa aldrei greitt í stéttarfélag eða lífeyrissjóð Tæplega sjötíu prósent íslenskra fanga hafa aldrei greitt í stéttarfélag eða lífeyrissjóð og fæstir þeirra sem ljúka afplánun taka virkan þátt á vinnumarkaði. Þetta eru helstu niðurstöður úr könnun sem Afstaða, félag fanga og annarra áhugamanna um bætt fangelsismál og betrun, gerði í íslenskum fangelsum. Skoðun 28.2.2024 07:01
Guðjón og Gylfi ætla að berjast um sæti í stjórn Festi Guðjón Auðunsson, fráfarandi forstjóri Reita fasteignafélags, og Gylfi Ólafsson, fyrrum forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, hafa boðið sig fram til stjórnar hjá Festi. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Viðskipti innlent 26.2.2024 17:07
Evrópskir fjárfestar og lífeyrissjóðir koma að kaupum á 23 milljarða hlut í Alvotech Tveimur dögum eftir að Alvotech fékk formlegt samþykki um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir sín stærstu lyf hefur íslenska líftæknilyfjafyrirtækið gengið frá sölu á bréfum í félaginu fyrir tæplega 23 milljarða, meðal annars til evrópskra fjárfesta. Fjármunirnir verða nýttir að hluta til að styrkja framleiðslugetuna en hlutabréfaverð Alvotech hefur rokið upp í viðskiptum í Kauphöllinni í morgun. Innherji 26.2.2024 11:07
Stórir hluthafar mótfallnir eða hugsi yfir framboði Þórðar Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, stærsti hluthafinn í Festi sem er móðurfélag Krónunnar, N1 og Elko, leggst gegn því að Þórður Már Jóhannesson verði kjörinn í stjórn félagsins á ný. Fleiri lífeyrissjóðir eru sama sinnis. Viðskipti innlent 23.2.2024 12:16
Lífeyrissjóðamálið fer beint til Hæstaréttar Hæstiréttur hefur fallist á málskotsbeiðni Lífeyrissjóðs verslunarmanna í máli sjóðsfélaga á hendur sjóðnum. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi eignafærslu milli kynslóða, með mismikilli lækkun mánaðarlegra greiðslna eftir aldri, ólögmæta og málinu var skotið beint til Hæstaréttar. Innlent 21.2.2024 18:55
Fjárfestarnir sem veðjuðu á Alvotech – og eygja von um að hagnast ævintýralega Þegar ljóst varð fyrir mánuði að samþykki fyrir markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir stærstu lyf Alvotech væri nánast í höfn áttu íslenskir lífeyrissjóðir samanlagt vel undir þriggja prósenta hlut í þessu langsamlega verðmætasta fyrirtæki í Kauphöllinni – og höfðu þá engir nýir sjóðir bæst í hluthafahópinn frá því að FDA setti félaginu stólinn fyrir dyrnar tíu mánuðum áður. Risastór veðmál sumra sjóðastýringarfélaga á Alvotech, með því að halda stöðu sinni við krefjandi markaðsaðstæður og jafnvel bæta við hana, hefur skilað sjóðum þeirra nærri hundrað prósenta ávöxtun síðustu mánuði á meðan önnur mátu áhættuna of mikla og losuðu um hlut sinn, eins og greining Innherja á umfangi innlendra fagfjárfesta sem eiga bréf í Alvotech skráð hér heima leiðir í ljós. Innherji 21.2.2024 17:34
Fara tilnefningarnefndir með atkvæðisréttinn? Núverandi fyrirkomulag á starfi tilnefningarnefnda er til þess fallið að draga úr gagnsæi. Hluthafar fá ekki að vita hverjir bjóða sig fram og þess vegna er möguleiki hluthafa á að nýta atkvæðisréttinn og velja milli margra hæfra umsækjenda ekki lengur til staðar. Ég tel einsýnt að þetta fyrirkomulag þurfi að endurskoða. Umræðan 20.2.2024 13:00
Fjármálaráðuneytið hefur áfram rangt við niðurfellingu persónuafsláttar öryrkja og ellilífeyrisþega sem eru búsettir á Norðurlöndunum Það er ótrúlega lélegur málflutningur sem Fjármálaráðuneytið hefur við í þeirri vörn sem þeir reyna að setja upp til þess að réttlæta niðurfellingu persónuafsláttar öryrkja og ellilífeyrisþega sem eru búsettir á Norðurlöndum. Vegna þess að þessi niðurfelling hefur ekki áhrif á neinn annan hóp öryrkja. Þeir öryrkja og ellilífeyrisþegar sem eru búsettir innan Evrópusambandsins en utan Norðurlandanna borga ekki neinn skatt á Íslandi samkvæmt tvísköttunarsamningum þar um. Á móti borgar þetta fólk fullan skatt í því ríki sem það á heima og nýtur þar að leiðandi persónuafsláttar í því ríki eftir þeim lögum sem þar gilda. Skoðun 18.2.2024 07:30
Hafa náð samkomulagi við lífeyrissjóðina um lán Grindvíkinga Fjármála- og efnahagsráðherra hefur ritað undir samkomulag við 12 lífeyrissjóði um stuðning ríkissjóðs vegna húsnæðislána lífeyrissjóða til einstaklinga í Grindavík. Innlent 8.2.2024 11:07
Er ekki rétt að leysa húsnæðisvandann? Húsnæðisverð hér er hærra en vera þyrfti og framboð og verð sveiflast mjög mikið með alvarlegum afleiðingum fyrir fjölmarga. Mikilvægt er að greina vandann rétt og grípa til viðeigandi ráðstafana. Skoðun 3.2.2024 14:30