

Brot Íslandsbanka við sölumeðferð eignarhluta ríkisins í bankanum verða til umræðu á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis sem hefst klukkan 13.
Finnur Árnason, formaður stjórnar Íslandsbanka, segir að boðað verði til hluthafafundar bankans þann 28. júlí. Hann segir síðustu daga hafa verið erfiða. Nýr bankastjóri er tekinn við.
„Við þurfum að fá að sjá spilin um það hver var aðdragandinn því það er einfaldlega ekki trúverðugt að einhver undirbúningur hafi verið upp á tíu hafi leitt til niðurstöðu sem er drekkhlaðin lögbrotum.“
Stjórn Íslandsbanka hefur komist að samkomulagi við Birnu Einarsdóttur um starfslok hennar hjá bankanum og ráðið Jón Guðna Ómarsson í starf bankastjóra. Jón Guðni hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra fjármála bankans og mun sinna því áfram þar til ráðið hefur verið í þá stöðu.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, hefur ákveðið að stíga til hliðar „með hagsmuni bankans að leiðarljósi“. Segist hún gera það til að „ró geti myndast vegna sáttar Íslandsbanka við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands“.
Stjórn Neytendasamtakanna hefur tekið ákvörðun um að færa viðskipti félagsins frá Íslandsbanka vegna þeirra brota sem stjórnendur hans hafa gerst uppvísir að í tengslum við sölu hluta í bankanum.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, fékk 10,9 milljónir greiddar aukalega árið 2021 vegna yfirvinnu í tengslum við undirbúning hlutafjárútboðs og skráningar bankans á markað.
Það að Íslandsbanki hafi hvorki greint hagsmunaárekstra með fullnægjandi hætti né tryggt að þeir sköðuðu ekki hagsmuni viðskiptavina þegar bankinn seldi hluti í sjálfum sér er ein af stærstu orðsporsáhættum bankans í sáttinni við fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Þetta segir Andri Fannar Bergþórsson, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, lögmaður hjá Advel lögmönnum og fyrrverandi nefndarmaður í fjármálaeftirlitsnefnd.
Stjórn Íslandsbanka ætlar að bjóða til hluthafafundar á næstu dögum. Á fundinum mun stjórn og stjórnendur bankans fjalla um framkvæmd bankans á útboði Bankasýslu ríkisins sem fram fór þann 22. mars árið 2022.
Indó hefur fengið inn til sín hátt í fjögur hundruð nýja viðskiptavini síðan á föstudaginn. Haukur Skúlason, framkvæmdastjóri og annar af stofnendum Indó, segist ekki geta fullyrt hvort það tengist sáttinni sem Íslandsbanki gerði við fjármálaeftirlitið.
Stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins segir sátt fjármálaeftirlits Seðlabankans og Íslandsbanka um sölu bankans á 22,5 prósenta hlut ríkisins í bankanum öllu verri heldur en þau hafi átt von á.
Í fréttatilkynningu segir að Bankasýsla ríkisins lýsi yfir miklum vonbrigðum með vinnubrögð Íslandsbanka við útboð á 22,5 prósent eignarhlut ríkisins í bankanum, í ljósi þess sem fram kemur í nýgerðri sátt bankans við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands. Boðað verður til hluthafafundar vegna málsins.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir skýrsluna um söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka áfellisdóm. Það sé eðlileg krafa almennings að stjórnendur bankans axli með einhverjum hætti ábyrgð.
Birting sáttar sem Íslandsbanki gerði við Fjármálaeftirlitið strandar ekki á undirskrift stjórnenda bankans samkvæmt svörum frá samskiptastjóra. Skrifað var undir sáttina í gær og verður hún væntanlega gerð opinber á morgun. Þá skýrist meðal annars hvort kaup eiginmanns samskiptastjóra í bankanum hafi verið lögleg.
Menningar- og viðskiptaráðherra skorar á stjórnendur Íslandsbanka að birta sátt sem bankinn gerði við Fjármálaeftirlitið, ekki síðar en í dag. Hún segir framkomu stjórnenda bankans í garð almennings einkennast af virðingarleysi.
Formaður stjórnskipunar og eftirlitsnefndar segir svör bankastjóra Íslandsbanka varðandi sáttagreiðslu bankans við fjármálaeftirlitið í meira lagi loðin. Hún kallar eftir útskýringum fjármálaráðherra sem beri ábyrgð á málinu og segir ekki eðlilegt að menn leggi á flótta þegar svara er krafist. Bjarni Benediktsson hyggst ekki tjá sig um málið að svo stöddu.
Bankasýsla ríkisins segist ekki hafa haft neina aðkomu að sátt Íslandsbanka og Fjármálaeftirlitsins í tengslum við bankasöluna á síðasta ári. Bankasýslan segist ekki geta brugðist við fréttunum þar sem sáttin hefur ekki verið birt.
Áfram er mikill þróttur í útlánum banka þrátt fyrir brattar stýrivaxtahækkanir að undanförnu. Hagfræðingur bendir á að tíminn frá því að ákveðið sé að fara af stað í fjárfestingarverkefni og þar til banki láni til þeirra geti verið nokkuð langur. Þess vegna þurfi að bíða aðeins lengur til að sjá hver áhrifin verði af nýlegum vaxtahækkunum.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, íhugar ekki að segja af sér þrátt fyrir að bankinn hafi gerst sekur um alvarlegt lögbrot og verið gert að greiða 1,16 milljarða króna sekt. Þingmaður segir útskýringar stjórnar bankans tilraun til að afvegaleiða umræðuna.
Lektor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands segir erfitt að svara því hvort best sé að velja sér óverðtryggða eða verðtryggða sparnaðarreikninga á þeim verðbólgutímum sem nú eru uppi. Hann segir best að vera með eins fjölbreytta sparnaðarreikninga og hægt er, líkt og um bland í poka væri að ræða.
Breytinga er að vænta í áherslum íslensku bankanna við fjármögnun á markaði og ljóst að þeir munu þurfa að breikka kaupendahópinn að ótryggðum skuldabréfum samhliða því að þau verða í meira mæli gefin út á innanlandsmarkaði. Markaðsfjármögnun bankakerfisins, sem hefur orðið mun dýrari síðustu misseri vegna umróts og óvissu á alþjóðamörkuðum, er að fara verða „erfiðari“ en áður, að sögn seðlabankastjóra.
Sigurbjörg Ólafsdóttir hefur verið ráðin í starf fjármálastjóra Kaldalóns hf. Hún hefur undanfarin ár gegnt starfi forstöðumanns fasteigna- og innviðateymis Arion Banka.
Óverðtryggður sparnaðarreikningur Íslandsbanka er orðinn sá stærsti á einstaklingssviði bankans. Framkvæmdastjóri einstaklingssviðsins segir verðbólgutíð þar spila stærstan þátt. Aldrei hafi eins margir spáð í sparnað og nú.
Íslandsbanki hækkaði vexti sína síðastliðinn föstudag og hafa þá allir stóru viðskiptabankarnir hækkað vexti sína eftir stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans í síðasta mánuði.
Landsréttur hefur staðfest sýknu Seðlabanka Íslands og íslenska ríkisins í máli sem Arion banki höfðaði til þess að fá 88 milljóna króna stjórnvaldssekt hnekkt. Fjármálaeftirlit Seðlabankans lagði sektina á bankann vegna brots á reglum um innherjaupplýsingar.
Jakobsson Capital telur líklegt að samrunaviðræður Íslandsbanka og Kviku ljúki þannig að tryggingafélagið TM og Kvika eignastýring, sem greiningarfyrirtækið verðmetur á samtals 57 milljarða króna, verði seld til Íslandsbanka. Á meðan markaðsvirði Kviku er svona lágt þykir greinandanum sala eigna fýsilegasti kosturinn í stöðunni en eftir stæði mjög arðsamt lánasafn.
Snörp gengislækkun á undanförnum mánuðum veldur því að markaðsvirði íslenskra banka er nú orðið sambærilegt og bókfært virði eiginfjár. Lækkunin helst í hendur við meðaltalsþróun hjá fimm stærstu bönkum á hinum Norðurlöndunum, að sögn sjóðstjóra, en það má rekja til þess að horfur séu á minni arðsemi, hægari vöxt í vaxtartekjum, meiri kostnaði og aukinnar áhættu í rekstri.
Arion banki hækkar vexti sína á inn- og útlánum í dag í kjölfar nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands.
Skilanefnd einkahlutafélagsins Kaupþings hefur formlega lokið störfum með samþykkt 413 krafna.
Seðlabankastjóri segir aðgerðir bankans með vaxtahækkunum og hertum lánaskilurðum hafa kælt niður húsnæðismarkaðinn. Sömuleiðis hafi eignamyndun í íbúðarhúsnæði aukist. Brýnt sé að lánastofnanir bjóði lántakendum skilamálabreytingar á lánum miðað við þarfir hvers og eins, sérstaklega eftir að tímabil fastra vaxta á lánum rennur út.