Stjórnsýsla

Starfsmaður forsætisráðuneytisins smitaður af kórónuveirunni
Starfsmaður í forsætisráðuneytinu hefur greinst með kórónuveiruna sem veldur COVID-19 sjúkdómnum.

Gerir sjö tillögur að úrbótum á rekstri ríkislögreglustjóra
Óskýr valdmörk í skipulagi lögreglu hafa valdið vaxandi togstreitu um yfirstjórnunarhlutverk ríkislögreglustjóra á undanförnum árum.

Núgildandi mannanafnalöggjöf feli í sér mannréttindabrot
Fyrrverandi formaður mannanafnanefndar, fagnar frumvarpi dómsmálaráðherra sem meðal annars kveður á um að nefndin verði lögð niður. Íslenskufræðingur segir núgildandi lög fela í sér mannréttindabrot.

Minnihlutinn mótfallinn 600 milljóna viðbótarlántöku Sorpu
Borgarstjórn samþykkti í gær erindi Sorpu bs. um heimild til tímabundinnar viðbótarlántöku upp á 600 milljónir til að mæta rekstrarvanda byggðasamlagsins.

Enn beðið eftir áliti hæfnisnefndar um stöðu ríkislögreglustjóra
Hæfnisnefnd hefur enn ekki skilað ráðherra áliti sínu um mat á umsækjendum um stöðu ríkislögreglustjóra.

Stjórnsýsluúttekt á embætti ríkislögreglustjóra tilbúin
Úttekt Ríkisendurskoðunar um embætti ríkislögreglustjóra er lokið og hefur skýrsla verið send Alþingi til meðferðar.

Vill þak á fjölda sendiherra og að stöður verði almennt auglýstar
Guðlaugur Þór Þórðarson vill að byrjað verði að auglýsa sendiherrastöður, en að ráðherra verði jafnframt heimilt að skipa sendiherra án auglýsingar.

Landspítalinn hafi hagað sér eins og fórnarlamb
Stjórnendur Landspítalans brugðust ekki við vanda bráðamóttökunnar, þrátt fyrir að hann hafi verið þeim augljós um langt skeið að mati tveggja sænskra sérfræðinga.

Stjórnvöld skipa stýrihóp vegna kórónuveirunnar
Skipaður hefur verið sérstakur stýrihópur „um samfélagsleg og hagræn viðbrögð við Covid-19 veirunni.“

Segir ekki verið að skera niður stuðning við nýsköpun
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, nýsköpunarráðherra, segir að stór ákvörðun á borð við þá að leggja niður Nýsköpunarmiðstöð Íslands sé erfið. Slíka ákvörðun þurfi að undirbyggja vel þegar áhrifin eru augljós á jafnmargt starfsfólk og raun ber vitni.

„Fólk er auðvitað dálítið hissa“
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, nýsköpunarráðherra, hefur tekið ákvörðun um að leggja Nýsköpunarmiðstöð Íslands niður frá næstu áramótum.

Ætlar að leggja niður Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Nýsköpunarráðherra ætlar að leggja niður Nýsköpunarmiðstöð Íslands um næstu áramót og finna nýjan farveg þeim verkefnum sem haldið verður áfram. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir nýsköpunarráðherra tilkynnti þetta á fundi ríkisstjórnar í morgun.

Ísland áfram á gráa listanum
Ísland verður áfram á gráum peningaþvættislista samtakanna Financial Action Task Force (FATF) fram í júní hið minnsta.

Stjórn Sorpu samþykki 600 milljóna viðbótarlántöku
Stjórn Sorpu kynnti erfiða fjárhagsstöðu byggðasamlagsins og fyrirhugaðar aðgerðir til að bregðast við henni á fundi með kjörnum fulltrúum í morgun.

Dæmdir eiga einnig rétt á bótum vegna hlerana
Lögmaður segir til skammar að fórnarlömb hlerana þurfi að sækja rétt sinn sérstaklega.

Laun yfirmanna hjá lögreglunni hækkuðu um 48% með samkomulagi Haraldar
Föst mánaðarlaun tveggja yfirlögregluþjóna og sjö aðstoðaryfirlögregluþjóna hækkuðu um 48% að meðaltali með samningi sem Haraldur Johannessen, fyrrverandi ríkislögreglustjóri, gerði við umrædda starfsmenn embættisins.

Almenningur á að njóta vafans
Þegar úrskurðarnefnd um upplýsingamál metur hvort opinberum aðila beri að veita almenningi upplýsingar, sem óskað er eftir, þá velur hún ítrekað að túlka upplýsingalög með þrengsta mögulega móti. Ekkert bendir til að það hafi verið ætlun löggjafans.

Ráðherra segist ekki hafa heimild til að grípa inn í hælismál
Dómsmálaráðherra nefnir ekki Shahidi-fjölskylduna írönsku í Facebook-færslu þar sem hún færir rök gegn því að stjórnmálamenn hafi afskipti af veitingu alþjóðlegrar verndar.

Skipunarferli ríkissáttasemjara „á lokastigi“
Vonast er til þess að næstu dagar muni leiða í ljós hver verður næsti ríkissáttasemjari.

Klúður við lagasetningu skálkaskjól pukurs með nöfn umsækjenda um stöðu útvarpsstjóra
Umboðsmaður Alþingis óskar þess við menntamálaráðherra að lagaleg ónákvæmni verði skoðuð.

Jakob Björnsson er látinn
Jakob Björnsson, fyrrverandi orkumálastjóri, er látinn, 93 ára að aldri.

Segir háttsemi stjórnvalda ekki hafna yfir gagnrýni
Claudie Ashonie Wilson, lögmaður íranskrar fjölskyldu sem átti að vísa úr landi í dag, segir enn óvissu ríkja um rétt fjölskyldunnar til dvalar hér á landi.

Brynhildur Guðjóns er nýr leikhússtjóri Borgarleikhússins
Tekur við af Kristínu Eysteinsdóttur sem óskað hefur eftir því að hætta.

Fýkur ofan af sýslumanni
Björgunarsveitarfólk berst nú við fjúkandi þakplötur í Hlíðarsmára í Kópavogi, þar sem sýslumannsembættið er til húsa.

Björn skellir skuldinni á stjórnina og fjölskyldutengsl endurskoðanda
Björn H. Halldórsson, sem gegndi stöðu framkvæmdastjóra Sorpu bs. þangað til í dag, telur ábyrgðinni á framúrkeyrslu félagsins varpað á sig.

Bæjarfulltrúi gengst við ásökunum um einelti: „Ég er ekki stolt af því en gengst við því“
Bæjarfulltrúi í Vesturbyggð sem óskaði eftir tímabundnu leyfi frá störfum í kjölfar ásaka um einelti viðurkennir í færslu á Facebook síðu sinni að hafa beitt einelti í starfi og segist þykja það miður.

Annað rútufyrirtækjanna innheimtir og greiðir vask en hitt ekki
Kynnisferðir telja samkeppnina við Leifsstöð ósanngjarna.

Tímabundni forstjóri UST skipaður til frambúðar
Sigrún Ágústsdóttir er nýr forstjóri Umhverfisstofnunar.

Gefur Renda tertu í tilefni af draugslegri rannsókn á starfsemi Lindarhvols
Tvö ár síðan starfsemi Lindarhvols lauk en fátt að frétta.

Bæjarstjóri segir ekki rétt að kvörtunum vegna eineltismála sé ekki svarað
Foreldrar nemenda við Patreksskóla hafa lýst yfir óánægju með skort á upplýsingum um eineltismál sem kom upp í skólanum.