
Icelandair

Mjög bjartsýnn á að það takist að safna þrjátíu milljörðum í nýtt hlutafé
Forstjóri Icelandair Group er bjartsýnn á að það takist að safna hátt í þrjátíu milljörðum í aukið hlutafé. Fyrirtækið verði í lykilhlutverki þegar kemur að því að reisa við efnahag landsins. Stefnt er að hlutafjárútboði um miðjan júní fyrir almenning og fagfjárfesta.

Leggur til að ríkið láni fyrir hlutabréfum í nýju dótturfélagi
Þingmaður Samfylkingarinnar segir eðlilegt að ríkið komi félaginu til hjálpar vegna þeirra þrenginga sem kórónuveirufaraldurinn hafði í för með sér en eigendur verði að takast á við fortíðarvanda félagsins.

Boeing sagt skoða uppfærðar útgáfur af bæði 757 og 767
Boeing-verksmiðjurnar eru sagðar skoða þann möguleika að hefja framleiðslu nýrrar útgáfu af bæði Boeing 757 og 767-vélunum. Þetta eru þær flugvélartegundir sem Icelandair notar.

Stefna að 29 milljörðum í hlutafjárútboði
Markmið fyrirhugaðs hlutafjárútboðs Icelandair Group er að safna rúmlega 29 milljörðum króna í aukið hlutafé.

Segja augljóst að ríkið þurfi að aðstoða Icelandair
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, kveðst ekki hrifin af þeirri hugmynd að ríkið eignist hlut í Icelandair. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, telur að ríkið þurfi að stíga inn í með meira afgerandi hætti en stjórnvöld gáfu til kynna í dag.

Útilokar enga möguleika um hvort ríkið eignist hlut í Icelandair
Ef Icelandair tekst að safna því hlutafé sem félagið stefnir að þá eru stjórnvöld tilbúin að koma til aðstoðar með aðkomu að lánalínum með ríkisábyrgð.

Ríkið tilbúið í samtal við Icelandair um lán eða ábyrgð á lánum
Á ríkisstjórnarfundi í dag var samþykkt tillaga fjögurra ráðherra um að ríkið væri tilbúið að eiga samtal við Icelandair um veitingu lánalínu eða ábyrgð á lánum til félagsins.

Samfylkingin vill styðja Icelandair með hlutabréfakaupum
Formaður Samfylkingarinnar segir eðlilegt að íslensk stjórnvöld fari sömu leið og önnur ríki sem eignast hafi hlut í flugfélögumá móti stuðningi sínum við þau. Fjármálaráðherra segir það eiga að vera síðasta úrræðið.

Krefst þess að Icelandair greiði rúman milljarð í skaðabætur
Breska flugfélagið Oryx jet hefur krafist þess að Icelandair Group greiði félaginu um milljarð króna í skaðabætur vegna tjóns sem starfsmaður á Keflavíkurflugvelli olli á vél félagsins.

Flugmaður sem missti vinnuna hjá Icelandair: „Að fá uppsögn núna á þessum tíma er mjög erfitt“
Sara Hlín Sigurðardóttir hefur starfað hjá Icelandair síðan árið 2005. Hún er meðal þeirra 431 flugmanna sem missti stöðu sína hjá félaginu í gær en alls hafa 96% flugmanna misst vinnuna þar.

Segir Icelandair þurfa innspýtingu sem fyrst til þess að blæða ekki út
Hlutafjárútboð flugfélagsins Icelandair er væntanlegt en staða félagsins er slæm vegna faraldurs kórónuveirunnar.

Traustar flugsamgöngur einn helsti drifkraftur þjóðarbússins
Í nýlegri skýrslu IATA sem byggir á gögnum frá Oxford kemur fram að flugsamgöngur við landið séu einn helsti drifkraftur íslensk efnahagslífs. Félag íslenskra atvinnuflugmanna hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem skorað er á stjórnvöld að tryggja framtíð Icelandair.

Andað léttara - en hvað með Icelandair Group?
Tekjulítil og tekjulaus fyrirtæki í ferðaþjónustu anda léttara eftir að ríkisstjórnin kynnti björgunaraðgerðir sínar í gær.

„Furðulegt að ríkið skuli ekki gefa upp merki um að það ætli að styðja við Icelandair“
Þrír bankar vinna með Icelandair að væntanlegu hlutafjárútboði. Fagfjárfestar segja að engar ákvarðanir verði teknar um frekari fjárfestingar fyrr en allar upplýsingar liggja fyrir. Formaður FÍA gagnrýnir að stjórnvöld komi ekki beint að félaginu.

Veltir upp hugmyndinni um að ríkið eignist ráðandi hlut í Icelandair
Þingmaður Samfylkingarinnar veltir því fyrir sér hvort rétt sé að þjóðin eignaðist ráðandi hlut í Icelandair samhliða ríkisaðstoðinni. Hann vitnar í fordæmi hjá þjóðum í Evrópu máli sínu til stuðnings.

Telur að vandræði flugbransans séu rétt að byrja
Guillaume Faury, framkvæmdastjóri evrópska flugvélaframleiðandans Airbus, telur að sú niðursveifla sem flugbransinn um víða veröld stendur nú frammi fyrir vegna útbreiðslu kórónuveirunnar sé enn á frumstigi.

Stefna á almennt hlutafjárútboð
Icelandair Group, móðurfélag Icelandair sem tilkynnti í gær um stærstu hópuppsögn Íslandssögunnar, hyggst efna til hlutafjárútboðs á næstunni sem yrði opið almenningi.

Flugmenn Icelandair standa með fyrirtækinu í gegnum súrt og sætt
Alls missti 421 flugmaður vinnuna hjá Icelandair í dag í stærstu hópuppsögn Íslandssögunnar þegar rúmlega 2000 manns var sagt upp störfum hjá fyrirtækinu.

Flugfreyjur með yfir þrjátíu ára starfsreynslu misstu vinnuna
Rúmlega 95 prósent flugfreyja og -þjóna hjá Icelandair missa vinnuna um mánaðamótin þegar uppsagnir rúmlega tvö þúsund starfsmanna flugfélagsins taka gildi. Formaður Flugfreyjufélagsins segir uppsagnirnar fleiri en hún hefði óttast.

Stjórnvöld bíða eftir hlutafjáraukningu Icelandair
Í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag kom fram að forsætisráðherra útilokar ekkert varðandi mögulega aðkomu ríkisins að Icelandair og ítrekar mikilvægi fyrirtækisins. Von sé á frekari aðgerðum enda séum við í miðjum storminum í dýpstu kreppu lýðveldissögunnar.

Icelandair segir upp rúmlega 2000 manns
Icelandair Group mun ráðast í yfirgripsmiklar aðgerðir sem taka gildi um mánaðamótin.

Hluthafar sagðir opnir fyrir því að auka hlutafé Icelandair
Helstu hluthafar Icelandair eru opnir fyrir þeirri hugmynd að leggja félaginu aukið hlutafé á næstu vikum.

Telur nauðsynlegt fyrir Icelandair að fá fjármagn frá lífeyrissjóðum
Lífeyrissjóðir bíða eftir hlutafjárútboði Icelandair en þeir eiga tæpan helming í félaginu. Formaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna segir að aðeins verði fjárfest ef fyrirsjáanlegt sé að fjármunir skili viðunandi ávöxtun. Fyrrverandi forstjóri Icelandair telur að félagið fari í þrot komi sjóðirnir ekki með fjármagn.

Samfylkingin segir að tryggja þurfi framtíð Icelandair
Samfylkingin vill að stjórnvöld hafi frumkvæði að því að koma Icelandair til aðstoðar og hvetja þannig hluthafa til að koma með aukið fjármagn í rekstur félagsins.

Ellefu lífeyrissjóðir eiga nærri helming hlutafjár í Icelandair
Ellefu lífeyrssjóðir eru meðal tuttugu stærstu hluthafa í Icelandair þar af er Lífeyrissjóður verslunarmanna annar stærsti hluthafi í félaginu. Formaður VR segir að ekki verði lagt upp í björgunarleiðangur fyrir Icelandair nema félagið standi vörð um réttindi fólks. Þá þurfi fyrst og fremst að huga að því við fjárfestingu að hún sé fýsileg fyrir sjóðsfélaga.

Sammála um að ríkið þurfi að koma Icelandair til aðstoðar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, og Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, telja báðir að ríkisstjórnin eigi að hafa frumkvæði að því að lýsa því yfir að stjórnvöld muni koma Icelandair til aðstoðar.

Fjöldauppsagnir hjá Icelandair eftir helgi
Koma mun til fjöldauppsagna hjá Icelandair strax eftir helgi. „Við verðum því miður að grípa til mjög erfiðra og mikilla aðgerða til að minnka útflæði fjármagns.“ Þetta segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.

Skrýtið ef ekki eigi að verja störf í flugi
Formaður félags atvinnuflugmanna segir það skrýtið ef ríkisstjórnin ætlar ekki að verja störf í flugi. Stærsti niðurskurður Icelandair blasir við. Ferðamálaráðherra segir fyrirtækið með ærið verkefni í höndunum.

Icelandair flýgur tugi ferða með lækningavörur frá Kína til Evrópu
Þremur Boeing 767 breiðþotum Icelandair verður breytt tímabundið til að sinna hið minnsta 45 fraktflugferðum frá Sjanghæ í Kína til Munchen í Þýskalandi.

Boðað til starfsmannafundar hjá Icelandair
Að því er segir í tilkynningu til starfsmanna um fundinn mun Bogi Nils Bogason, forstjóri fyrirtækisins, fara yfir stöðu mála og svara þeim spurningum sem starfsmenn kunna að hafa.