Almannavarnir greiða umframorkunotkun í Grindavík Almannavarnir hafa ákveðið að hjálpa fasteignaeigendum í Grindavík við að standa straum af kostnaði vegna hærri rafmagns- og hitaveitureikninga á meðan aðgerðir til að verja hús fyrir frostskemmdum í kjölfar náttúruhamfaranna stóðu yfir. 12.4.2024 16:49
Bjarkey stal senunni á fyrsta ríkisstjórnarfundi Bjarna Ný ríkisstjórn Bjarna Benediktsonar kom saman á sínum fyrsta ríkisstjórnarfundi í morgun. Ríkisstjórnin var kynnt á þriðjudaginn og lyklaskipti fóru fram á miðvikudagsmorgun. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir nýr matvælaráðherra skartaði rauðri blússu og svörtu pilsi í tilefni dagsins. 12.4.2024 10:09
Allir samningar í höfn til að koma upp neyslurými í Borgartúni Ekkert er því til fyrirstöðu að koma upp neyslurými í Borgartúni, eins og stefnt hefur verið að um nokkra hríð. Teymisstjóri skaðaminnkunar hjá Rauða krossinum segir aðstæður vímuefnanotenda hafa versnað síðustu mánuði eftir að eina neyslurými landsins var lokað. Þetta sé því mikið fagnaðarefni. 11.4.2024 20:31
Lausnargjaldið ógreitt en gögnin hvergi að sjá Háskólinn í Reykjavík hefur enn ekki greitt lausnargjald fyrir gögn sem stolið var af rússneskum hakkarahópi í byrjun árs. Þrátt fyrir það hafa gögnin ekki verið birt. Lektor í tölvunarfræði segir þetta óvenjulegt fyrir hópinn en fleiri íslensk fyrirtæki hafi lent í því sama. 11.4.2024 15:01
Bein útsending: Yfirlýsing forsætisráðherra og umræður Bjarni Benediktsson forsætisráðherra mun fara með yfirlýsingu fyrir Alþingi klukkan 15. Þetta er fyrsti þingfundur eftir páskafrí og eftir að Katrín Jakobsdóttir sagði af sér sem forsætisráðherra og tilkynnti framboð til embættis forseta. 10.4.2024 14:27
Fluttur á sjúkrahús eftir alvarlegt vinnuslys Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að byggingasvæði á Völlunum í Hafnarfirði á öðrum tímanum í dag vegna vinnuslyss. Karlmaður festist undir þakplötu sem verið var að steypa og gaf sig. Hann var klukkustund síðar fluttur á sjúkrahús. 10.4.2024 13:53
Byggja þurfi upp örugga framtíð fyrir börnin í Grindavík Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands segir brýnt að leita allra leiða til að tryggja að börnin í Grindavík geti snúið þangað aftur og litið glaðan dag. Grindvíkingar kunni vel að meta samhuginn sem þjóðin hefur sýnt undanfarna mánuði. 10.4.2024 13:49
Jón Viðar skrifstofustjóri á skrifstofu opinberra fjármála Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað Jón Viðar Pálmason skrifstofustjóra á skrifstofu opinberra fjármála. 9.4.2024 16:46
Vinstri græn ekki að gleypa eitraða pillu Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra og formaður VG segir ríkisstjórnarflokkana þrjá hafa sest niður um helgina, eftir að Katrín Jakobsdóttir tilkynnti framboð sitt til forseta, með það að markmiði að halda samstarfinu áfram. 9.4.2024 15:46
„Þú lagar ekki ónýtan bíl með því að skipta um bílstjóra“ Þingmaður Viðreisnar segist enga trú hafa á því að nokkuð breytist hjá ríkisstjórninni með hrókeringum ráðherrastóla. Vandamálið hafi ekki verið hver sitji hvar heldur það hvernig ríkisstjórnarflokkunum þremur hefur illa tekist að ná saman málefnalega. 9.4.2024 15:12