Uppsagnir fylgja breytingum Magnúsar Geirs sem helgar sig listrænni stjórnun Þremur starfsmönnum á skrifstofu Þjóðleikhússins og samningum við fimm fastráðna leikara hefur verið sagt upp. Uppsagnirnar eru hluti af breytingum á skipulagi Þjóðleikhússins. 5.3.2020 14:00
Langþráðir boltavellir við Vesturbæjarskóla Nýir boltavellir og leiksvæði með trampólínum og pókóvöllum koma við Vesturbæjarskóla í sumar. Kostnaðaráætlun hljómar upp á 90 milljónir króna. 5.3.2020 11:29
Læknar halda sig frá samkomum Læknafélag Íslands hefur frestað fundum sem fara áttu fram á vegum félagsins í kvöld og á morgun vegna kórónuveirunnar. 4.3.2020 16:16
Jaroslava meðal hinna handteknu í Hvalfjarðargangamálinu Fimm handteknir í umfangsmiklu fíknefnamáli. Nokkur kíló af amfetamíni gerð upptæk. 4.3.2020 15:15
Smitin orðin tuttugu Tala smitaðra hér á landi vegna kórónuveirufaraldursins sem geisar er komin í tuttugu manns. Fjögur sýni hafa greinst jákvæð í dag. Þetta staðfestir Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, í samtali við fréttastofu. 4.3.2020 12:14
Fimmtíu manns í ferðaþjónustu misstu vinnuna í febrúar Fjörutíu manns var sagt upp störfum hjá Icelandair Hotels í febrúar. 33 misstu vinnuna í síðustu viku en áður hafði sjö manns verið sagt upp. 4.3.2020 10:50
Banaslys í Mosfellsbæ Pólskur karlmaður á sextugsaldri lést þegar gólfplata hrundi í nýbyggingu í Sunnukrika í Mosfellsbæ um miðjan dag í gær. 4.3.2020 10:20
Þrjú jákvæð sýni í viðbót og fjórtán alls smitaðir Í dag hafa fimm tilfelli af COVID-19 sjúkdómum verið greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Samtals hafa því fjórtán einstaklingar á fimmtugs og sextugsaldri verið greindir hér á landi. 3.3.2020 16:29
Alvarlegt slys á byggingasvæði við Sunnukrika Alvarlegt slys varð við Sunnukrika í Mosfellsbæ nú á þriðja tímanum í dag. Að sögn Valgarðs Valgarðssonar, aðalvarðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, féll gólfplata í byggingu við götuna. 3.3.2020 14:56
Gunnar tók Guðrúnu í bóndabeygju Gunnar Þorgeirsson er nýr formaður Bændasamtaka Íslands. Hann hlaut 29 atkvæði gegn 21 atkvæði Guðrúnar Tryggvadóttur, sitjandi formanns, í formannkosningu sem fram fór í dag. 53 voru á kjörskrá og greiddu 52 atkvæði. Tveir skiluðu auðu. 3.3.2020 14:34