KR Íslandsmeistari 2011 - myndir Það var glatt á hjalla hjá KR-ingum í Ásgarði í gær en þá varð körfuboltalið félagsins Íslandsmeistari eftir afar sannfærandi sigur á Stjörnunni. KR vann einvígi liðanna, 3-1. Körfubolti 20. apríl 2011 08:00
Finnur: Það var komin tími á mig „Þetta er yndisleg tilfinning, ég er búin að horfa á bræður mína báða taka þennan titil, en núna var komið að mér,“ sagði Finnur Atli Magnússon, leikmaður KR, eftir leikinn í kvöld. KR tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn gegn Stjörnunni í Ásgarði í kvöld eftir að hafa unnið einvígið 3-1. Körfubolti 19. apríl 2011 23:12
Marcus: Frábært að spila fyrir framan þetta fólk „Ég get ekki útskýrt hvernig mér líður,“ sagði Marcus Walker, leikmaður KR, eftir sigurinn gegn Stjörnunni í kvöld. KR varð Íslandsmeistari eftir að hafa unnið Stjörnuna 3-1 í einvíginu. Körfubolti 19. apríl 2011 22:58
Pavel: Ég á heiminn „Manni líður bara eins og ég eigi heiminn,“ sagði Pavel Ermolinskij, leikmaður KR, eftir að lið hans hafði hampað Íslandsmeistaratitlinum í Iceland-Express deild karla. KR vann Stjörnuna 3-1 í einvíginu um titilinn stóra. Körfubolti 19. apríl 2011 22:49
Brynjar Þór: Auðveldasti titillinn Brynjar Þór Björnsson varð í kvöld Íslandsmeistari í þriðja sinn með KR og segir hann þennan titil hafa verið þann auðveldasta á ferlinum. Körfubolti 19. apríl 2011 22:47
Teitur: KR-ingarnir bara betri Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, segir að betra liðið hafi unnið rimmuna um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta en KR varð í kvöld meistari eftir sigur á Stjörnunni, 3-1, í lokaúrslitunum. Körfubolti 19. apríl 2011 22:46
Fannar: Tilfinningin alltaf betri og betri Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, lyfti í kvöld Íslandsmeistarabikarnum á loft í þriðja sinn á ferlinum - ávallt með KR. Hann varð Íslandsmeistari í fimmta sinn alls en hann náði þeim áfanga tvívegis er hann spilaði með Keflavík. Körfubolti 19. apríl 2011 22:38
Hrafn: Ég svíf um á skýi „Ég er bara í skýjunum og svíf bara um,“ sagði Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, eftir að lið hans hafði tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í Iceland-Express deilda karla. Körfubolti 19. apríl 2011 22:34
Brynjar um Walker: Stórkostlegur "Hann er stórkostlegur og það var ótrúlegt að fylgjast með því hvernig honum óx ásmegin eftir því sem leið á tímabilið.“ Körfubolti 19. apríl 2011 21:52
Umfjöllun: KR Íslandsmeistari eftir sannfærandi sigur í Garðabænum KR-ingar eru Íslandsmeistarar í körfubolta karla í þriðja sinn á fjórum árum og í tólfta sinn frá upphafi eftir sannfærandi fjórtán stiga sigur á Stjörnunni í kvöld, 109-95, í fjórða leik liðanna úrslitaeinvígi Iceland Express deildar karla í Ásgarði í Garðabæ. KR vann því úrslitaeinvígið 3-1. Körfubolti 19. apríl 2011 21:04
Brjóta KR-ingar hundrað stiga múrinn áttunda leikinn í röð? KR-ingar geta sett nýtt met í úrslitakeppninni í kvöld skori liðið hundrað stig eða meira í fjórða leik lokaúrslitanna á móti Stjörnunni. KR-ingar geta því ekki aðeins tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn því með því að skora hundrað stig bæta þeir met Keflvíkinga frá 2003. Körfubolti 19. apríl 2011 18:15
Marcus Walker: Mamma er besti vinur minn Marcus Walker er lykilmaður í liði KR sem í kvöld getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta með sigri á Stjörnunni í fjórða leik liðanna í lokaúrslitum Iceland Express-deildar karla. Körfubolti 19. apríl 2011 16:00
Teitur: Fór aðeins yfir strikið Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, viðurkennir að hann hafi farið yfir strikið í gagnrýni sinni á dómara eftir síðasta leik sinna manna gegn KR í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn um körfubolta. Körfubolti 19. apríl 2011 13:30
Keflavík vann alla titlana í kvennaflokki Keflavík náði sögulegum árangri nú í vetur en liðið er eftir tímabilið handhafi allra Íslandsmeistaratitla í kvennaflokki, frá yngsta flokki til meistaraflokks. Körfubolti 18. apríl 2011 19:45
Frábær seinni hálfleikur tryggði sigurinn KR er komið í 2-1 gegn Stjörnunni í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitil karla í körfubolta eftir sigur á heimavelli í gærkvöldi, 101-81. Körfubolti 18. apríl 2011 07:00
Hreggviður: Það vita það allir á Íslandi að við erum betra liðið "Þessi varnarleikur á eftir að skila okkur Íslandsmeistaratitlinum,“ sagði Hreggviður Magnússon, leikmaður KR, eftir sigurinn í kvöld. KR vann þriðja leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn, 101-81, og leiðir einvígið 2-1. Körfubolti 17. apríl 2011 22:29
Marcus og Mamma: Klárum dæmið í næsta leik "Það sem hefur alltaf skilað okkur sigrum er varnarleikur okkar í síðari hálfleik. Um leið og liðið nær að stoppa 2-3 sóknir frá andstæðingnum þá smitað þar frá sér og við eflumst,“ sagði Walker. Körfubolti 17. apríl 2011 22:08
Teitur: Þetta var bara búið í hálfleik "Við spiluðum vel í fyrri hálfleik, en áttum aldrei séns í þeim síðari,“ sagði Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir ósigurinn í kvöld. Körfubolti 17. apríl 2011 21:59
Hrafn: Besta vörn sem ég hef séð frá liðinu "Við hrukkum heldur betur í gírinn í þriðja leikhlutanum,“ sagði Hrafn Krisjánsson, þjálfari KR, eftir sigurinn í kvöld. Körfubolti 17. apríl 2011 21:54
Umfjöllun: KR átti í engum vandræðum með Stjörnuna KR-ingar settust í bílstjórasætið í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í kvöld þegar þeir unnu Stjörnuna, 101- 81, í þriðja leik liðanna og leiða því einvígið 2-1. KR keyrði yfir Stjörnuna í þriðja leikhlutanum og voru tuttugu stigum yfir þegar einn leikhluti var eftir. Marcus Walker átti enn einn stórleikinn og skoraði 33 stig. Körfubolti 17. apríl 2011 21:04
Stjörnumenn jöfnuðu metin Stjarnan jafnaðií gær metin í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta með sigri á KR á heimavelli, 107-105. Körfubolti 15. apríl 2011 07:00
Fannar: Mættum allir klárir í kvöld „Þetta var virkilega flottur leikur þar sem tvö góð lið mættust,“ sagði Fannar Helgason, leikmaður Stjörnunnar, eftir sigurinn í kvöld. Körfubolti 14. apríl 2011 22:23
Marvin: Vildum sýna okkar rétta andlit „Við vildum sýna fólki í kvöld að við værum ekki svona lélegir eins og í síðasta leik,“ sagði Marvin Valdimarsson, leikmaður Stjörnunnar, eftir dýrmætan sigur gegn KR-ingum í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Körfubolti 14. apríl 2011 22:11
Teitur: Sviðsskrekkurinn er núna farinn „Núna mætti þessi sterka liðsheild okkar sem var búin að koma okkur þetta langt í mótinu,“ sagði Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir sigurinn á KR í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Stjarnan vann KR 107-15 í hörku spennandi leik og jafnaði því einvígið 1-1. Körfubolti 14. apríl 2011 21:52
Umfjöllun: Dramatískur sigur hjá Stjörnunni Það verður ekkert af því að KR sópi Stjörnunni í úrslitaeinvígi Iceland Express-deildar karla. Stjörnumenn svöruðu fyrir sig á heimavelli í kvöld, unnu leikinn, 107-105, og jöfnuðu þar með einvígið í 1-1. Körfubolti 14. apríl 2011 20:55
Miðinn á enska bikarúrslitaleikinn hækkar um 22 prósent Enska knattspyrnusambandið hefur ákveðið að hækka miðaverðið á úrslitaleik enska bikarsins sem fer fram á Wembley 14. maí síðastliðinn. Dýrasti miðinn á leikinn kostar nú 115 pund eða rúmlega 21 þúsund íslenskar krónur. Enski boltinn 14. apríl 2011 19:00
Fjögur af átta liðum hafa komið til baka eftir skell í fyrsta leik Fjögur af átta liðum sem hafa fengið skell í fyrsta leik í úrslitaeinvígi karla (+20 stiga tap) hafa svarað því með því að jafna einvígið í næsta leik. Stjarnan tekur á móti KR í Ásgarði í kvöld en KR-ingar unnu fyrsta leikinn með 30 stiga mun í DHL-höllinni. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Körfubolti 14. apríl 2011 18:15
Brynjar: Stefnum á að klára einvígið í þrem leikjum KR-ingurinn Brynjar Þór Björnsson segir að það sé stefna KR-liðsins að klára Stjörnuna 3-0 í úrslitaeinvíginu um körfubolta og lyfta bikarnum á heimavelli á sunnudag. Körfubolti 14. apríl 2011 17:30
Teitur: Verðum ekki yfirspenntir í kvöld KR-ingar tóku lærisveina Teits Örlygssonar í Stjörnunni í bakaríið í fyrsta leik liðanna í úrslitum Iceland Express-deildar karla. KR vann leikinn með 30 stigum. Körfubolti 14. apríl 2011 15:30
Ágúst Björgvinsson hættur með Hamarsliðin Ágúst Björgvinsson verður ekki áfram í Hveragerði en hann hefur þjálfað meistaraflokka karla og kvenna hjá Hamar undanfarin tvö tímabil og var þar á undan með karlalið Hamars í tæp tvö tímabil. Körfubolti 13. apríl 2011 20:42