Hann var ekki að „fíla“ sig á Íslandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. nóvember 2013 11:15 Mychal Green. Mynd/NordicPhotos/Getty
Mychal Green hefur spilað sinn síðasta leik í Dominos-deildinni í körfubolta því bandaríski leikmaður Skallagríms er farinn heim. Pálmi Þór Sævarsson, þjálfari Skallagríms taldi það best fyrir alla að enda samstarfið enda var kappinn óánægður á Íslandi. „Þetta var samkomulag á milli okkar tveggja. Hann var ekki að „fíla“ sig á Íslandi, hvorki persónulega eða þá körfuboltann. Það var farið að bitna á liðinu og við komumst að sameiginlegri niðurstöðu að það væri best fyrir alla aðila að enda þetta," sagði Pálmi Þór Sævarsson, þjálfari Skallagríms um brotthvarf Green. En hvað með eftirmann Green? „Við erum vonandi að ná að ganga frá því í dag. Hann verður ekki með á móti Njarðvík og ég efast um að hann verði kominn fyrir Keflavíkurleikinn," segir Pálmi sem er að lenda í þessu annað árið í röð. „Þetta fylgir mér virðist vera," sagði Pálmi í léttum tón og bætir svo við: „Við verðum bara að taka á þessu," sagði Pálmi. Mychal Green skoraði 25,7 stig í fyrstu þremur deildarleikjunum en var síðan aðeins með 7 stig á 33 mínútum í tapi á móti Kanalausu Stjörnuliði. „Hann byrjaði að spila ágætlega en svo var allt farið að fara í taugarnar á honum. Honum fannst boltinn á Íslandi vera of harður og eitthvað svoleiðis. Bara væl,“ sagði Pálmi. Mychal Green er þegar búinn að finna sér lið í Lúxemborg og var því ekki lengi atvinnulaus. „Hann fer aftur í sama lið og hann var í fyrra. Það var heppilegt fyrir okkur því við losnum við hann og hans skuldbindingar," sagði Pálmi. Pálmi viðurkennir að mikill tími hafi farið síðustu daga í að finna nýjan bandarískan leikmann. „Ég er búinn að sofa lítið. Þetta er samt að hafast og með heppni gætum við verðið komnir með mann fyrir Keflavíkurleikinn en ég efast reyndar um það," sagði Pálmi. Skallagrímur verður án Bandaríkjamanns á móti Njarðvík í kvöld en það eru síðan sex dagar í heimaleik á móti Keflavík.
Dominos-deild karla Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Sjá meira