Varnarmálaráðherra Ísrael fyrirskipar algjört umsátur um Gaza Varnarmálaráðherra Ísrael segist hafa fyrirskipað algjört umsátur um Gaza. Ekkert vatn, enginn matur, ekkert rafmagn, ekkert eldsneyti, er haft eftir honum í erlendum miðlum. Erlent 9. október 2023 10:18
Ísraelsher segist hafa tekið yfir og Selenskí skýtur á Íran Daniel Hagari, talsmaður ísraelska hersins, segir herinn nú við stjórnvölinn á öllum svæðum. Eins og stendur sé ekki barist innan Ísrael en mögulega séu liðsmenn Hamas þar í felum. Erlent 9. október 2023 08:43
Ísrael þarf að láta hart mæta hörðu Morguninn 7. október ruddist fjöldi liðsmanna Hamassamtakanna inn í Ísrael. Samkvæmt nýjustu fréttum myrtu þeir yfir 700 Ísraela og særðu yfir 2000. Þeir tóku auk þess yfir 130 gísla. Innrásin kom öllum í Ísrael að óvörum og einn helgasti hátíðisdagur Gyðinga breyttist skyndilega í martröð. Hryðjuverkamönnunum tókst að rjúfa varnarvegg Ísraels að Gazasvæðinu áður en þeir dreifðu sér um nærliggjandi byggðir. Skoðun 9. október 2023 07:30
Um það bil 1.100 látnir og útlit fyrir meiri blóðsúthellingar Íbúum í borginni Sderot í suðurhluta Ísrael hefur verið sagt að halda sig heima við í dag. Borgarstjórinn Alon Davidi segir hryðjuverkamenn í og umhverfis borgina og þá heyrast byssuskot á götum úti. Erlent 9. október 2023 06:46
Íran hafi komið að skipulagningu árásanna yfir nokkurra vikna skeið Yfirmenn íranska hersins hjálpuðu til við að skipuleggja óvænta árásarhrinu Hamassveita á Ísrael yfir nokkurra vikna skeið, og gáfu grænt ljós á árásina síðasta mánudag. Erlent 8. október 2023 23:58
Menn uppskera eins og þeir sá Fjöldi Ísraela og Palestínumanna liggur í valnum í átökum sem nú geysa í Ísrael og Palestínu og mun tala fallinna enn hækka á næstu dögum. Öll fórnarlömb átakanna eru fórnarlömb síonismans - jafnt Ísraelar sem Palestínumenn. Skoðun 8. október 2023 23:30
„Þetta verður langvinnt, erfitt og blóðugt“ Veruleg hætta er á því að átökin sem nú standa yfir í Ísrael og á Gaza-svæðinu muni dreifa sér víðar. Þetta segir Arnór Sigurjónsson sérfræðingur í varnarmálum. Innrás Ísrael á Gaza-svæðið sé óhjákvæmileg enda hafi yfirvöld þar heitið því að uppræta Hamas-samtökin. Erlent 8. október 2023 20:33
„Þetta er ekki venjulegt stríð, það eru engar reglur“ Öryggisráð Ísraels hefur lýst formlega yfir stríði í landinu. Minnst sjö hundruð Ísraelar eru látnir, aðeins lítill hluti þeirra hermenn, og fjögur hundruð Palestínumenn. Mörg þúsund til viðbótar hafa særst. Íslensk kona sem er búsett í Jerúsalem segir ástandið ekki hafa verið svona slæmt síðan í Jom kippúr stríðinu. Staðan sé martraðakennd. Erlent 8. október 2023 19:59
Utanríkisráðherra sendir flugvél til Ísrael fyrir íslenska strandaglópa Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hefur ákveðið að senda farþegaflugvél á vegum íslenska ríkisins til Ísraels í þeim tilgangi að ferja 120 Íslendinga aftur heim. Innlent 8. október 2023 15:32
Ógnvekjandi sögur berast frá Ísrael: „Ég sá fólk deyja allt um kring“ Ísraelsk kona sem var gestur á tónlistarhátíð skammt frá Gasaströndin þegar hryðjuverkasamtökin Hamas gerðu árás faldi sig undir tré í þrjár klukkustundir meðan skotregn dundi úr öllum áttum. Fjölskyldur ungs fólks sem var á næturklúbbi nærri Kibbutz Re'im á sama tíma segja enga hjálp frá yfirvöldum að fá, en margra gesta klúbbsins er enn saknað. Erlent 8. október 2023 13:41
Vaktin: Að minnsta kosti 260 manns voru skotnir á tónlistarhátíð Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísrael hefur lýst yfir herlögum í landinu vegna stríðsins sem hófst þar í gærmorgun. Minnst sex hundruð Ísraelar hafa fallið í árásum Hamas og þrjú hundruð Palestínumenn fallið í gagnárásum Ísraela. Erlent 8. október 2023 12:57
Níu hundruð fallnir: „Hryllingur að horfa upp á þetta“ Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels telur að stríðið þar í landi muni vara í langan tíma. Minnst sex hundruð Ísraelsmenn, þar af 44 hermenn eru sagðir látnir. Þrjú hundruð Palestínumenn eru jafnframt sagðir hafa fallið frá því að stríð hófst í gærmorgun. Erlent 8. október 2023 12:33
Vinna að því að koma Íslendingunum heim Sigurður K. Kolbeinsson, fararstjóri níutíu manna hóps Íslendinga sem er staddur í Jerúsalem í Ísrael, segir unnið að því að koma hópnum heim. Það er til að mynda gert í samvinnu við neyðarteymi Icelandair. Innlent 8. október 2023 10:43
Harðir bardagar standa enn yfir Þrjú hundruð Ísraelsmenn, hið minnsta, eru látnir eftir árásir Hamas-samtakanna sem hófst í gærmorgun, samkvæmt sendiráði Ísraels í Tyrklandi. Erlent 8. október 2023 08:12
Óttast að átökin verði langvinn Fyrrverandi formaður Félagsins Ísland-Palestína óttast að yfirstandandi átök Ísraelshers og hernaðararms Hamas-samtakanna komi til með að verða langvinn. Samkomulag sem feli í sér skipti á pólitískum föngum og stríðsföngum þurfi líklega til að lægja öldurnar. Erlent 8. október 2023 00:00
Ísraelsferð níutíu Íslendinga í uppnámi en allir heilir á húfi Íslenskur fararstjóri sem staddur er í Jerúsalem með hóp níutíu farþega segir hópinn heilan á húfi, en sé engu að síður uggandi yfir að ferðin sé komin í uppnám. Mörg hundruð manns eru látnir báðum megin landamæra Ísraels og Palestínu. Erlent 7. október 2023 17:25
„Við erum í stríði“ Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, hefur lýst yfir stríði í kjölfar eldflaugaárása Hamas-samtakanna gegn Ísrael. Erlent 7. október 2023 09:36
Segir eldflaugaregn í Ísrael stríðsyfirlýsingu Varnarmálaráðherra Ísrael segir að Hamas-samtökin hafi lýst yfir stríði gegn Ísrael með eldflaugaárás sem átti sér stað í nótt, snemma morguns á staðartíma. Erlent 7. október 2023 08:12
Níu bornir til grafar í Jenin eftir innrás Ísraelsmanna Íbúar í flóttamannabúðunum í Jenin á hernumdu svæðunum á Vesturbakkanum í Palestínu báru þá sem féllu í innrás Ísraelshers á búðirnar til grafar í dag. Erlent 5. júlí 2023 20:01
Ísraelsmenn segja aðgerðum í Jenín lokið Ísraelsmenn segjast hafa hætt aðgerðum sínum í flóttamannabúðunum í Jenín á Vesturbakkanum eftir tveggja sólarhringa átök. Erlent 5. júlí 2023 07:30
Vegfarandi myrti árásarmann í Tel Aviv Ísraelsmenn hafa haldið hernaðaraðgerðum sínum í flóttamannabúðum í borginni Jenin á Vesturbakkanum áfram í dag. Ellefu Palestínumenn hafa fallið í innrás Ísraelshers í búðirnar, yfir hundrað særst og um 120 verið handteknir. Erlent 4. júlí 2023 19:21
Ók á vegfarendur og stakk í Tel Aviv Ungur Palestínumaður ók bíl inn í hóp fólks á strætisvagnabiðstöð og stakk fólk með eggvopni í Tel Aviv í Ísrael í dag. Herskáir hópar Palestínumanna líta á hryðjuverkið sem svar við umfangsmikilli hernaðaraðgerð Ísraela á Vesturbakkanum. Erlent 4. júlí 2023 14:50
Tíu látnir í Jenín og þúsundir flýja búðirnar Þúsundir Palestínumanna hafa nú flúið flóttamannabúðirnar í borginni Jenín eftir að Ísraelsher gerði árásir á búðirnar úr lofti og af jörðu niðri. Herinn segist vera í aðgerðum gegn palestínskum vígamönnum sem hafi aðsetur í búðunum. Erlent 4. júlí 2023 07:22
Mesta hernaðaríhlutun Ísraels í 20 ár Ísraelski herinn réðst í morgun inn í borgina Jenin á yfirráðasvæði Palestínumanna á Vesturbakkanum í veigamestu hernaðaraðgerð sinni þar í um tuttugu ár. Að minnsta kosti átta Palestínumenn hafa verið felldir og tugir særðir. Erlent 3. júlí 2023 19:30
Segja aðgerðirnar á Vesturbakkanum geta varað í fleiri daga Fulltrúi Ísraelshers segir að aðgerðir hans gegn vígahópum á Vesturbakkanum gætu varað í nokkra daga. Átta Palestínumenn eru nú sagðir látnir í aðgerðum Ísraelsmanna sem er lýst sem þeim umfangsmestu í tuttugu ár. Erlent 3. júlí 2023 16:01
Fimm látnir í umfangsmiklum aðgerðum Ísraela á Vesturbakkanum Ísraelsmenn eru sagðir hafa hafið umfangsmestu hernaðaraðgerðir sínar á Vesturbakkanum í mörg ár. Aðgerðirnar hófust í nótt, með árásum úr lofti og á jörðu niðri. Að minnsta kosti fimm Palestínumenn liggja í valnum og tugir eru særðir. Erlent 3. júlí 2023 08:15
Refsa þurfi Ísraelsmönnum til að koma á friði Margverðlaunaður ísraelskur blaðamaður segir að Ísraelsmenn muni ekki láta af hernaði sínum og aðskilnaðarstefnu gagnvart Palestínumönnum fyrr en alþjóðasamfélagið refsi þeim. Núverandi ríkisstjórn landsins væri versta fasista- og öfgatrúarstjórn frá stofnun Ísraelsríkis. Erlent 29. júní 2023 23:31
Áhyggjur vegna byggingaráforma á Vesturbakkanum Bandaríkjamenn segjast hafa þungar áhyggjur af þróun mála á Vesturbakkanum eftir að í ljós kom að fyrirætlanir um að byggja 4.560 nýjar íbúðir á Vestubakkanum verða teknar fyrir af Yfirskipulagsráði Ísrael í næstu viku. Erlent 19. júní 2023 08:44
Sema gagnrýnir Ísraelstónleika Kaleo Sema Erla Serda, aktívisti, skýtur föstum skotum á hljómsveitina Kaleo í nýlegri Facebook færslu vegna fyrirhugaðra tónleika þeirra í Ísrael seinna í mánuðinum. Innlent 13. júní 2023 18:51
Kaleo: Ekki spila í Ísrael Í ár eru 75 ár síðan hundruðir þúsunda íbúa Palestínu voru hraktir frá heimalandi sínu, heimili þeirra jöfnuð við jörðu og landi þeirra stolið í þeim tilgangi að stofna Ísraelsríki. Síðan þá hafa ísraelsk stjórnvöld hernumið stærstan hluta Palestínuríkis, hrakið milljónir á flótta, skipulega myrt fólk og börn. Skoðun 1. júní 2023 13:01
Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Innlent