Tískumerkin greiða minna en svarar framleiðslukostnaði Margar tískufataverslanir hafa greitt verksmiðjum í Bangladesh minna fyrir vörur en sem svarar framleiðslukostnaðinum. Sérfræðingur segir þetta koma niður á starfsmönnum verksmiðjanna. Erlent 9. janúar 2023 08:42
Bandarískir bændur fá leyfi til að gera sjálfir við traktorana sína Bændur í Bandaríkjunum hafa unnið sigur í baráttunni gegn einum stærsta framleiðanda landbúnaðarvéla í heiminum og munu héðan í frá geta gert við eigin traktora eða látið gera við þá á verkstæðum sem eru ekki í eigu Deere & Co. Erlent 9. janúar 2023 06:59
Sjónvarpið lækkaði um hundrað þúsund eftir verðsamanburð Það getur margborgað sig að gera verðsamanburð þegar leggja á í dýr tækjakaup, líkt og sannaði sig þegar Ellý Hauksdóttir Hauth keypti sér nýtt sjónvarp á dögunum. Við verðsamanburð tók hún eftir rúmlega 170 þúsund króna verðmun á sjónvarpi af sömu gerð og stærð milli Ormsson og ELKO. Síðan hefur sjónvarpið lækkað um hundrað þúsund krónur hjá ELKO. Neytendur 8. janúar 2023 18:01
Krefjast fundar með ráðherrum sem allra fyrst vegna tolla VR, Landssamband íslenzkra verzlunarmanna, Rafiðnaðarsambandið og Félag atvinnurekenda hafa óskað eftir fundi með Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra og Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra til að ræða lækkun og niðurfelllingu tolla í þágu neytenda. Neytendur 5. janúar 2023 15:48
Svikarar narra leigjendur í neyð með fölskum gylliboðum Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir að um alveg sérlega ósvífna tegund af svikastarfsemi sé að ræða en brögð eru að því að óprúttnir hrappar geri út á neyð leigjenda. Þeir auglýsa íbúðir til leigu, sem er tilbúningur en heimta sérstakt umsóknargjald svo leigjendur eigi möguleika á að sækja um íbúðina. Innlent 5. janúar 2023 12:47
Endurheimti ekki bílinn fyrr en hann hringdi í lögregluna Ferðalangur sem geymdi jeppa sinn hjá Lagningu á meðan á utanlandsferð stóð segist hafa neyðst til að hringja á lögreglu til að endurheimta bílinn sinn frá fyrirtækinu. Fleiri viðskiptavinir hafa fengið þau svör að bíll þeirra finnist ekki. Neytendur 5. janúar 2023 10:01
Mandarínurnar brugðust Agli og fleirum þessi jólin Egill Helgason sjónvarpsmaður er afar ósáttur við mandarínusendinguna til Íslands nú í desember. Neytendur 4. janúar 2023 14:33
Mikilvægara að draga úr neyslu heldur en að flokka Óflokkað rusl fyllir skemmur Sorpu eftir neyslugleði þjóðarinnar um jól og áramót. Of mikilli ábyrgð er velt yfir á herðar neytenda þegar kemur að umhverfismálum. Innlent 4. janúar 2023 08:01
Domino's hækkar aftur verð á þriðjudagstilboði sínu Domino's á Íslandi hefur hækkað verð á þriðjudagstilboði sínu úr 1.100 krónum í 1.200 krónur. Rúmt ár er síðan fyrirtækið hækkaði verð á tilboðinu úr þúsund krónum í 1.100 eftir að verðið hafði þá haldist óbreytt í ellefu ár. Neytendur 3. janúar 2023 14:56
Sekta fimmtán veitingastaði í mathöllum Fimmtán veitingastaðir í mathöllum landsins hafa verið sektaðir um fimmtíu þúsund krónur fyrir að bregðast ekki við athugasemdum Neytendastofu um ófullnægjandi verðmerkingar. Alls gerði Neytendastofu athugasemd við merkingar hjá 37 af 54 veitingastöðum. Neytendur 2. janúar 2023 17:03
Margvíslegar verðhækkanir um áramót Landsmenn geta átt von á margvíslegum verðhækkunum um áramótin en misjafnt er hvað snertir hvern. Vísir fór á stúfana og skautaði yfir landslagið hvað varðar verðhækkanir á þjónustu á landinu. Eðli máls samkvæmt er listinn þó langt í frá tæmandi. Neytendur 1. janúar 2023 11:18
Verð á flugeldum hækkar vegna gengissveiflu Flugeldasala björgunarsveitanna hefst formlega í dag en verð á flugeldum hækkar frá því í fyrra vegna gengissveiflu. Formaður Landsbjargar segir flugeldasölu langmikilvægasta fjáröflunarliðinn þrátt fyrir að síðustu ár hafi björgunarsveitirnar reynt að hafa eggin í fleiri körfum. Innlent 28. desember 2022 12:54
Fóru beinustu leið að skila og skipta gjöfum Fyrsti opnunardagur verslana eftir jól var í dag og má því gera ráð fyrir því að margir hafi nýtt tækifærið til að skila eða skipta jólagjöfum sem hentuðu ekki alveg. En hversu rúmur er skilafresturinn og er algengt að fólk skili jólagjöfum? Neytendur 27. desember 2022 21:01
Liður í góðum viðskiptaháttum að hafa rúman skilafrest Mikil aukning er á fyrirspurnum til Neytendasamtakanna vegna of naums skilafrest á vörum. Formaður samtakanna segir að þrátt fyrir að engin eiginleg lög nái yfir skilafrest þá sé það liður í góðum viðskiptaháttum að gefa viðskiptavinum sínum rúman frest til að skila vörum sem þeir hafa ekki not fyrir. Þær verslanir sem komi vel fram við viðskiptavini séu bæði langlífar og dafni jafnan betur. Neytendur 27. desember 2022 12:59
Jólagjafir íslenskra vinnustaða: Gjafabréf upp á 100 þúsund, frídagar og matarpakkar Það kenndi ýmissa grasa í jólagjöfum íslenskra fyrirtækja þetta árið. Gjafabréf eru ávallt vinsæl og þá hefur færst í aukana að fyrirtæki bjóði starfsfólki þann valkost að gefa andvirði gjafar til góðgerðamála. Vísir tók saman hvað leyndist í jólapökkunum hjá starfsmönnum íslenskra fyrirtækja og stofnana nú í ár. Innlent 24. desember 2022 16:00
Ófögur reynslusaga af samskiptum við leigufélagið Ölmu Katrín María Blöndal hefur hörmungasögu að segja af samskiptum sínum við leigufélagið Ölmu sem hefur verið mjög í deiglunni að undanförnu vegna hækkunar á leigu og hörku í samskiptum við leigjendur sína. Katrín María telur einsýnt að þar á bæ sé hugsað um eitt og aðeins eitt; að græða á þeim sem minna mega sín. Innlent 23. desember 2022 09:49
Verðið á jólamatnum hækkar hressilega milli ára Þó flestir loki augunum í aðdraganda jóla, vilji „njódda og livva“ eins og skáldið sagði, og leyfa sér er hætt við að þeim hinum sömu bregði í brún þegar kreditkortafyrirtækin senda út sína reikninga eftir jól. Neytendur 22. desember 2022 16:10
Mikilvægt að farþegar leiti réttar síns Raskanirnar á flugferðum í vikunni höfðu áhrif á tugi þúsunda farþega og er enn verið að vinna í því að koma hlutunum í eðlilegt horf. Samgöngustofa og Neytendasamtökin hafa fengið fjölmargar fyrirspurnir frá farþegum vegna bóta. Farþegar eigi alltaf rétt á ákveðinni þjónustu og jafnvel skaðabótum, þó það sé meira álitsefni. Innlent 22. desember 2022 15:08
Kökudeig Evu Laufeyjar innkallað: „Gjörsamlega miður mín“ Katla hefur gefið út sölustöðvun og innköllun af markaði á smákökudeigi sem fyrirtækið framleiddi í samstarfi við Evu Laufey. Um er að ræða tvær tegundir af kökudeigi sem notið hefur gríðarlegra vinsælda og seldist upp hjá framleiðanda. Fjölmargir hafa tjáð sig um deigið í nokkrum samfélagsmiðlahópum og sagt frá hræðilegri lykt sem gýs upp þegar það er tekið úr umbúðunum. Eva Laufey segist miður sín vegna málsins. Neytendur 22. desember 2022 11:00
Fékk flugferð fyrir fjölskylduna á 400 þúsund sem átti að kosta tæpar 1,3 milljón króna Jóhann Bergmann, sem staddur er í Boston ásamt fjölskyldu sinni, segir farir sínar ekki sléttar. Hann segir að Boston-reisa Bergmanns-klansins, eins og hann orðar það, eigi eftir að fara í sögubækurnar. Innlent 21. desember 2022 16:41
Innkalla grísahakk vegna beinflísa Með hliðsjón af öryggi og velferð neytenda hefur Stjörnugrís ákveðið að taka úr sölu og innkalla Grísahakk frá Stjörnugrís. Neytendur 21. desember 2022 14:39
Arion banki hækkar vexti Arion banki hefur ákveðið að hækka vexti í kjölfar stýrisvaxtahækkunar Seðlabanka Íslands þann 23. nóvember síðastliðinn. Ákvörðunin gildir frá og með deginum í dag. Viðskipti innlent 21. desember 2022 10:21
Innkalla hættulegan stól Ikea hefur innkallað skrifborðsstól af gerðinni Odger í kolgráum vegna hættu á að fóturinn brotni með tilheyrandi fall- og slysahættu. Neytendur 21. desember 2022 09:54
Gjaldahækkanir dynja á bíleigendum um áramót Álögur á bíleigendur um áramótin hækka mun meira en sem nemur verðlagshækkunum, samkvæmt bandormi ríkisstjórnarinnar, sem Alþingi samþykkti fyrir helgi. Talsmaður FÍB segir skattahækkanirnar bitna verst á íbúum dreifbýlisins, sem þurfa að sækja þjónustu um langan veg. Neytendur 20. desember 2022 23:47
Ormsson, Ilva og Heimkaup sektuð fyrir Taxfree auglýsingar Neytendastofa hefur sektað Heimkaup, Ormsson og Ilvu fyrir að tilgreina ekki prósentuhlutfall verðlækkunar þegar fyrirtækin auglýstu taxfree afslátt af vörum sínum. Ormsson var auk þess sektað fyrir að auglýsa sjónvörp á afslætti í lengri tíma en sex vikur þrátt fyrir að þau hafi aldrei verið seld á tilgreindu fyrra verði. Neytendur 20. desember 2022 16:13
Bíómiðinn kominn yfir tvö þúsund kall og neytendur jafn hneykslaðir og 2008 Þau tímamót urðu nýverið að verð á bíómiða er í fyrsta sinn komið yfir tvö þúsund krónur. Neytendur sem fréttastofa tók tali sögðu verðið sláandi en lýsandi fyrir efnahagsástandið í landinu. Þá bíti verðbólgan fast í jólainnkaupunum þetta árið. Neytendur 20. desember 2022 11:12
Viðskiptafréttir ársins 2022: Skattsvik, klikkaður fasteignamarkaður og úrræðagóðir Akureyringar Árið 2022 í viðskiptalífinu einkenndist af því að í fyrsta sinn frá því snemma árs 2020 komst lífið aftur í venjubundið horft eftir tveggja ára kórónuveirufaraldur. Viðskipti innlent 18. desember 2022 10:00
Gríðarleg lækkun á tollum skili sér ekki til neytenda Tollar á frönskum kartöflum hafa verið lækkaðir um þrjátíu prósentustig en eru enn hæstu tollar sem finnast á Íslandi. Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir tollalækkunina ekki skila sér til neytenda í lægra verði heldur auknu framboði. Innlent 17. desember 2022 13:03
„Íslendingar eru algjörir bruðlarar“ Nú þegar kuldakast ríður yfir landið og sundlaugum hefur verið lokað til að spara heitt vatn hefur umræða um notkun heitra potta á heimilum sprottið upp á samfélagsmiðlum. Fiskikóngurinn og einn helsti pottasölumaður landsins, Kristján Berg Ásgeirsson segir Íslendinga gjarnan bruðla með heitt vatn. Mörg tonn af vatni fari í notkun á hitaveitupottum. Neytendur 17. desember 2022 07:37
Hlupu móðir úr strætó á milli verslana í leit að Prime Öngþveiti skapaðist í verslunum í dag þegar börn freistuðu þess að kaupa sér nýja íþróttadrykkinn Prime. Sumir ferðuðust á milli verslana með strætó í leit að drykknum sem tröllríður nú samfélagsmiðlum. Verslunarstjóri hjá Krónunni segist aldrei hafa séð annað eins ástand. Neytendur 16. desember 2022 21:00