Lögregla lýsir enn eftir dreng Lögreglan lýsir enn eftir dreng að beiðni barnaverndaryfirvalda. Fyrst var lýst eftir drengnum í upphafi vikunnar. Innlent 24. nóvember 2023 15:12
Fjórir handteknir í tengslum við hnífaárás Fjórir hafa verið handteknir í tengslum við hnífaárás í Reykjavík í nótt. Til skoðunar er hvort árásin tengist annarri árás á Litla hrauni í gær. Sú árás átti sér stað á alræmdu torgi innan fangelsisins sem fangelsismálayfirvöld hafa varað við árum saman. Innlent 24. nóvember 2023 11:32
Hnífstunguárás í nótt sögð tengjast árásinni á Litla-Hrauni Hnífstunguárás sem framin var í nótt tengist annarri árás á Litla-Hrauni í gær. Þetta herma heimildir Ríkisútvarpsins. Eggvopni var sömuleiðis beitt í árásinni á Litla-Hrauni og sú árás er sögð tengjast skotárásinni í Úlfarsárdal í byrjun mánaðar. Innlent 24. nóvember 2023 09:21
Ölvaður nemandi átti erfitt með að stjórna tilfinningum sínum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til rétt eftir miðnætti í nótt vegna nemanda menntaskóla sem hafði orðið ölvaður á skólaballi og átti í erfiðleikum með að stjórna tilfinningum sínum. Innlent 24. nóvember 2023 06:40
Sá sem er grunaður um stunguárásina fékk átta ára dóm í fyrra Maðurinn sem er grunaður um að stinga samfanga sinn á Litla-Hrauni í dag hlaut í lok síðasta árs átta ára fangelsisdóm fyrir skotárás í miðbæ Reykjavíkur. Hann heitir Ingólfur Kjartansson og er rúmlega tvítugur. Innlent 23. nóvember 2023 19:56
Rannsaka fíkniefnasölu við leiksskóla í Hafnarfirði Lögreglan fékk í dag tilkynningu um fíkniefnasölu við leikskóla í Hafnarfirði. Innlent 23. nóvember 2023 18:14
Rannsaka þjófnað í Bolungarvík sem hleypur á mörgum milljónum Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar þjófnað í Bolungarvík sem átti sér stað um helgina. Innlent 23. nóvember 2023 17:47
Þungt haldinn eftir stunguárás á Litla-Hrauni Lögreglan var kölluð út í fangelsið Litla-Hrauni vegna atviks sem þar átti sér stað í dag um tvöleytið. Einn var fluttur á sjúkrahús eftir líkamsárás. Samkvæmt heimildum Vísis var eggvopni beitt og sá sem fyrir árásinni varð er þungt haldinn. Lögregla segir rannsókn á árásinni á frumstigi. Innlent 23. nóvember 2023 14:58
Strætisvagn á hliðina á þjóðveginum Strætisvagn fór á hliðina í kvöld á þjóðveginum á Norðurlandi vestra. Innlent 23. nóvember 2023 00:20
Grunnskólanemi féll niður af svölum í Ásgarði Nemandi í Garðaskóla í Garðabæ féll niður af svölum inni í íþróttahúsinu Ásgarði í dag með þeim afleiðingum að hann fótbrotnaði. Lögreglan hefur málið til skoðunar. Innlent 22. nóvember 2023 21:01
Tók hjól af barni vegna snjóboltakasts Lögreglan fékk í dag tilkynningu um ökumann sem tók reiðhjól af dreng í Hlíðahverfinu í Reykjavík. Drengurinn er sagður hafa kastað snjóbolta í bíl mannsins. Innlent 22. nóvember 2023 18:45
Þremur sleppt en gæsluvarðhald tveggja framlengt Tveir hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í tengslum við skotárásina í Silfratjörn í Úlfarsárdal í byrjun mánaðar. Þremur var sleppt úr haldi. Innlent 22. nóvember 2023 17:01
Lögregla kölluð til vegna líkamsárásar og slagsmála á veitingastað Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tvær tilkynningar um slagsmál í gærkvöldi eða nótt. Í öðru tilvikinu reyndist einn slasaður og var annar handtekinn fyrir líkamsárás. Innlent 22. nóvember 2023 06:32
Tilkynntar nauðganir ekki færri í þrettán ár Umtalsverð fækkun hefur verið á tilkynningum um kynferðisbrot til lögreglu. Ekki hafa færri nauðganir verið tilkynntar á síðustu þrettán árum. Verkefnastjóri hjá lögreglunni segir tölurnar líkjast því sem sást í Covid-faraldrinum. Innlent 21. nóvember 2023 13:00
Taka upp sjálfvirkt meðalhraðaeftirlit í Dýrafjarðargöngum Sjálfvirkt meðalhraðaeftirlit verður tekið upp í Dýrafjarðargöngum á fimmtudaginn. Markmið eftirlitsins er að auka umferðaröryggi. Innlent 21. nóvember 2023 11:00
Einn ók á ljósastaur sem féll á annan Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi eða nótt vegna umferðarslyss á mótum Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar. Þar hafði bifreið verið ekið á ljósastaur, með þeim afleiðingum að staurinn féll ofan á aðra bifreið. Innlent 21. nóvember 2023 06:56
Lögreglan lýsir eftir ellefu ára dreng Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti í dag eftir dreng að beiðni barnaverndaryfirvalda. Innlent 20. nóvember 2023 14:11
Gerðist glæpamaður til að bjarga lífi sonar síns Dagbjört Ósk Steindórsdóttir byrjar hvern einasta dag á því að kíkja á símann til að athuga hvort lögreglan eða spítalinn hafi hringt í hana. Sonur hennar hefur verið í mikilli neyslu síðustu sextán árin. Hún segist óttast framhaldið og vilja sjá betri úrræði fyrir fólk í hans stöðu. Innlent 20. nóvember 2023 09:38
Fjölmiðlar svekktir yfir því að fá ekki að fara inn í Grindavík Miðstöð fyrir erlenda fjölmiðla vegna náttúruhamfaranna í Grindavík var opnuð í dag. Þýskur fréttamaður á heimleið segist svekktur yfir að hafa ekki fengið að fara inn í Grindavík. Innlent 19. nóvember 2023 21:42
Íbúar og fyrirtæki mega fara til Grindavíkur Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að hleypa íbúum ríflega eitt hundrað heimila í Grindavík inn í bæinn í dag. Þá verður starfsfólki fyrirtækja leyft að fara inn í bæinn eftir klukkan 15. Innlent 19. nóvember 2023 08:18
Handtóku mann og losnuðu svo ekki við hann Karlmaður var handtekinn í gærkvöldi fyrir ógnandi tilburði og að fara ekki að fyrirmælum lögreglu. Eftir að varðstjóri hafði rætt við manninn á lögreglustöð var hann hvattur til að fara heim til sín að hvíla sig. Hann kom í tvígang aftur á lögreglustöðina og endaði á því að fá að gista fangageymslur. Innlent 19. nóvember 2023 07:41
Ekki sjálfsögð krafa að fara inn á hættusvæði Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að hleypa afmörkuðum hópi Grindvíkinga inn í bæinn í dag. Búið er að hafa samband við alla þá sem mega fara að sækja verðmæti. „Vakin er athygli á því að það er ekki sjálfsögð krafa að fara inn á hættusvæði sem hefur verið rýmt af öryggisástæðum.“ Innlent 18. nóvember 2023 08:38
Allir unglingarnir kurteisir Í gærkvöldi var tilkynnt um unglingasamkvæmi í uppsiglingu í hesthúsahverfi í Kópavogi. Allir unglingarnir voru kurteisir og skildu afskipti lögreglu af samkvæminu. Innlent 18. nóvember 2023 08:00
Áfram í gæsluvarðhaldi vegna skotárásar í Úlfarsárdal Fimm menn voru í dag úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í þágu rannsóknar lögreglu á skotárás í Úlfarsárdal í Reykjavík í byrjun mánaðarins. Innlent 17. nóvember 2023 17:03
Áfram í gæsluvarðhaldi: Kryfja smáhund sem fannst í frysti Kona á fimmtugsaldri, sem grunuð er um að hafa orðið karlmanni að bana í íbúð í Bátavogi í Reykjavík, mun sæta gæsluvarðhaldi til 7. desember næstkomandi. Rannsókn lögreglu krefst þess að smáhundur sem fannst dauður í frysti á vettvangi verði krufinn. Innlent 17. nóvember 2023 12:16
Krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir öllum fimm Gæsluvarðhald yfir fimm mönnum, sem grunaðir eru um aðild að skotárásinni að Silfratjörn í Úlfarsárdal þann 2. nóvember síðastliðinn, rennur út í dag. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir öllum fimm. Innlent 17. nóvember 2023 11:09
Aukið viðbragð í kjölfar grunsamlegra mannaferða Löggæsla í Grindavík hefur verið aukin eftir að tilkynningar bárust um grunsamlegar mannaferðir að næturlagi. Lögregla stendur nú vaktina allan sólarhringinn. Fjölmiðlum er hins vegar meinaður aðgangur að bænum í dag. Innlent 16. nóvember 2023 12:05
Vy-þrif kærð til lögreglu Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur kært þriffyrirtækið Vy-þrif til lögreglu fyrir ólöglega matvælageymslu í kjallara í Sóltúni í Reykjavík. Fyrirtækið hafði frest til 14. nóvember til að bregðast við erindi eftirlitsins en gerði það ekki. Innlent 16. nóvember 2023 10:45
Veittu áfengi á skemmtistað eftir lokun Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út eftir að tilkynnt var um að verið væri að veita áfengi á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur eftir lokun. Innlent 16. nóvember 2023 07:19
Fluttur á bráðamóttöku eftir fall niður stiga í Kópavogi Vinnuslys varð í Kópavogi í dag þar sem starfsmaður ónefnds fyrirtækis féll niður stiga stigahúss. Starfsmaðurinn var aumur á nokkrum stöðum og með svima eftir fallið. Hann var flutt á bráðamóttöku til skoðunar. Innlent 15. nóvember 2023 17:24