Tilkynning um spor á Skaga líklega ekki eftir hvítabjörn Lögreglunni á Norðurlandi vestra hefur ekki borist tilkynning í kvöld en á laugardagskvöld var tilkynnt um möguleg spor eftir hvítabjörn. Innlent 16. apríl 2020 22:16
Ógnuðu manni með skotvopni í Vesturbænum Tveir karlmenn um þrítugt voru handteknir eftir að tilkynning barst um að þeir hefðu ógnað þriðja manninum með skotvopni í vesturbæ Reykjavíkur um klukkan 19:00 í kvöld. Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til. Innlent 16. apríl 2020 20:42
Áfram í farbanni vegna dauðsfalls í Úlfarsárdal Landsréttur staðfesti að karlmaður um fimmtugt skuli áfram sæti farbanni fram í júní í tengslum við rannsókn á mannsláti í Úlfarsárdal í desember. Maðurinn er grunaður um að hafa valdið dauða manns sem féll þá fram af svölum á þriðju hæð fjölbýlishúss. Innlent 16. apríl 2020 17:35
Rannsaka hvort strokupiltarnir hafi ógnað starfsmönnum vistheimilisins Þrír piltar struku á stolnum bíl af vistheimili fyrir ungmenni á Suðurlandi seint í gærkvöldi. Lögregla hélt úti miklum viðbúnaði vegna málsins en piltarnir voru loks handteknir við útihús í Þykkvabæ. Innlent 16. apríl 2020 12:05
Lögregla lýsir eftir Björgu Ólavíu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Björgu Ólavíu Ólafsdóttur, 48 ára, til heimilis í Kópavogi. Innlent 16. apríl 2020 11:27
Konan sem lýst var eftir er fundin Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti í kvöld eftir eldri konu sem ekki hafði sést til síðan síðdegis í dag. Konan er nú fundin. Innlent 16. apríl 2020 09:44
Lögreglan sektar ekki strax fyrir nagladekkjanotkun Frá og með gærdeginum 15. apríl er notkun negldra hjólbarða óheimil á Íslandi. Þessi regla er þó háð tíðarfari og því undir löggæsluyfirvöldum komið hvenær nákvæmlega hafist er handa við að sekta fyrir notkun slíkra hjólbarða. Bílar 16. apríl 2020 07:00
Strokudrengir fundust í Þykkvabæ eftir mikla leit Þrír drengir voru handteknir í aðgerðum lögreglunnar á Suðurlandi, sérsveitar Ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslunnar skömmu eftir miðnætti. Drengirnir struku af meðferðarheimili eftir að hafa ógnað starfsmanni og stolið bíl. Innlent 16. apríl 2020 01:38
Gróf líkamsárás á þrjá menn í Hafnarfirði til rannsóknar Lögregla á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú alvarlega líkamsárás sem gerð var í húsi í Hafnarfirði í byrjun þessa mánaðar. Innlent 15. apríl 2020 17:06
Oft algjör slembilukka að konurnar séu á lífi Þúsundir eru heima hjá sér um þessar mundir. Veikir eða í sóttkví eða hræddir við það að veikjast. Við getum ekki hitt margar í einu, skólarnir eru ekki fúnkerandi sem skildi og börnin því meira heima Lífið 15. apríl 2020 10:29
Netþrjótar segjast hafa gómað fólk við klámáhorf Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fengið nokkuð af tilkynningum um að fólk hafi fengið ógnandi og grófa pósta þar sem reynt sé að kúga fé úr fólki. Innlent 15. apríl 2020 10:10
Réðust á karlmann á sjötugsaldri sem var úti að ganga með hundinn Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út skömmu eftir klukkan 22 í gærkvöldi þar sem tilkynnt var um líkamsárás í hverfi 105. Innlent 15. apríl 2020 07:16
Fjölskylda Söndru biður fólk um að skoða upptökur úr myndavélum Fjölskylda og vinir Söndru Lífar sem saknað hefur verið síðan á fimmtudag hófu í morgun leit að henni við Seltjarnarnes. Innlent 14. apríl 2020 13:00
Leitin á Álftanesi kom til vegna ábendingar vegfarenda Umfangsmikil leit á Álftanesi í gærkvöldi og fram á nótt að Söndru Líf Þórarinsdóttur reyndist árangurslaus. Innlent 14. apríl 2020 10:06
Grunaður um innbrot í fyrirtæki í Kópavogi Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók mann í Kópavogi skömmu eftir klukkan 20 í gærkvöldi. Innlent 14. apríl 2020 06:14
Leit að Söndru Líf lokið í dag Leit að Söndru Líf Þórarinsdóttur Long stóð yfir til klukkan 17:30 í dag en þá var henni frestað til morguns. Gert er ráð fyrir að skipulag leitarinnar verði með sama hætti á morgun auk þess sem drónar verða nýttir til leitar ef veður leyfir. Innlent 13. apríl 2020 18:32
Þrjú handtekin grunuð um frelsissviptingu Þrjú voru handtekin í miðborg Reykjavíkur rétt fyrir miðnætti nóttina sem leið, grunuð um frelsissviptingu, brot á vopnalögum og vörslu fíkniefna. Innlent 13. apríl 2020 07:27
„Prestar búa yfir þagnarskyldu og þarna er verið að rjúfa hana að mínum skilningi“ „Prestar búa yfir þagnarskyldu og þarna er verið að rjúfa hana að mínum skilningi,“ segir Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, um ásökun Skírnis Garðarsonar, prests, á hendur konunnar sem grunuð er um skjalafals í bakvarðasveit á hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík. Innlent 12. apríl 2020 17:30
Nokkrir hafa nýtt sér neyðarsvörun Bjarkarhlíðar vegna heimilisofbeldis yfir páskana Nokkrir hafa nýtt sér neyðarsvörun Bjarkarhlíðar, miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis, vegna heimilisofbeldis yfir páskana. Málin eru öll metin alvarleg að sögn verkefnastýru og þeim komið í farveg hjá viðeigandi aðilum. Innlent 12. apríl 2020 16:18
Halda leitinni að Söndru Líf áfram í dag Leit lögreglu og björgunarsveita að Söndru Líf Þórarinsdóttur Long hófst að nýju klukkan sex í morgun. Innlent 12. apríl 2020 09:49
Prestur fylltist áhyggjum þegar hann sá bakvörðinn á fréttamyndum í þyrlunni Skírnir Garðarson prestur sakar sömu konu og grunuð er um skjalafals í bakvarðasveit á hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík, um að hafa beitt svikum til þess að fá fjárhagsaðstoð úr líknarsjóði Lágafellskirkju árið 2013. Innlent 11. apríl 2020 23:31
Fresta leit til morguns Leit að Söndru Líf Þórarinsdóttur Long hefur verið frestað til morguns. Leit hefur staðið yfir frá því klukkan þrjú í nótt án árangurs. Innlent 11. apríl 2020 18:58
Morðið í Hafnarfirði: Lögregla var á heimilinu fimm tímum fyrir andlátið Lögreglan í Hafnarfirði hafði áður verið kölluð til vegna ástands mannsins, sem grunaður er um að hafa orðið móður sinni að bana aðfaranótt mánudags. Fimm klukkustundum síðar er hann talinn hafa raðist á móður sína. Yfirlögregluþjónn segir að ekki hafi verið lagaskilyrði til að fjarlægja manninn af heimilinu í fyrra útkallinu. Innlent 11. apríl 2020 18:30
Mikill þungi í leitinni að Söndru Líf Mikill þungi hefur verið í leitinni að Söndru Líf Þórarinsdóttur Long, 27 ára gamalli konu, sem hvarf á skírdag. Í heildina taka 170 manns þátt í leitinni frá björgunarsveitunum á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 11. apríl 2020 16:52
Gæsluvarðhald í Hvalfjarðagangamálinu framlengt Fjórir karlmenn, sem handteknir voru í aðgerðum lögreglunnar við Hvalfjarðargöng í 29. febrúar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 10. maí í þágu rannsóknar. Innlent 11. apríl 2020 14:39
Nærri allar björgunarsveitir höfuðborgarsvæðisins leita Söndru Lífar Nánast allar björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu hafa verið kallaðar út í leit að Söndru Líf Þórarinsdóttur Long, 27 ára gamalli konu. Ekki er vitað um ferðir hennar síðan á skírdag og er fjölskylda hennar mjög áhyggjufull. Þau segja mjög ólíkt henni að láta ekki vita af sér. Innlent 11. apríl 2020 12:00
Lýst eftir Söndru Líf Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir nú eftir 27 ára gamalli konu, Söndru Líf Þórarinsdóttur Long en ekki er vitað um ferðir hennar síðan á skírdag. Innlent 11. apríl 2020 07:51
Sólgleraugum stolið í innbroti í miðbænum Lögreglan tekur sér ekki frí yfir páskahátíðina og var þó nokkrum útköllum sinnt í nótt og í gærkvöld. Innlent 11. apríl 2020 07:12
Kona úr bakvarðasveit handtekin vegna gruns um skjalafals og lyfjastuld Lögreglan handtók konu úr bakvarðasveit heilbrigðisstofnunar Vestfjarða sem starfað hefur í vikunni á hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík. Innlent 10. apríl 2020 14:10