Lýsa mögulega eftir mönnunum sex í kvöld eða á morgun Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, segir að mögulega verði lýst eftir sex mönnum sem lögregla reynir nú að hafa uppi á, til viðbótar við þá sex Rúmena sem komið verður í sóttkví eða einangrun í sóttvarnarhúsinu við Rauðarárstíg. Það komi í ljós í kvöld eða á morgun. Innlent 14. júní 2020 19:00
Þriðji maðurinn fundinn en sex leitað til viðbótar Lögreglan leitar nú að sex mönnum til viðbótar í tengslum við mál Rúmenanna sem handteknir voru á föstudag. Innlent 14. júní 2020 16:50
Mennirnir tveir ekki smitaðir Rúmensku mennirnir tveir sem fundust á hótelum á höfuðborgarsvæðinu eftir að lögregla lýsti eftir þeim reyndust ekki vera smitaðir af kórónuveirunni samkvæmt niðurstöðu úr sýnatöku. Þetta segir Rögnvaldur Ólafsson, verkefnastjóri hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Innlent 14. júní 2020 15:17
Lýsa enn eftir Pioaru Alexandru Ionut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir enn eftir rúmenskum karlmanni, Pioaru Alexandru Ionut, sem kom til landsins fyrripart síðustu viku í sex manna hópi. Innlent 14. júní 2020 10:37
Lögregla búin að finna tvo þeirra Rúmena sem lýst var eftir Lögregla er búin að finna tvo af þeim þremur Rúmenum sem lýst var eftir í gær vegna gruns um að þeir séu smitaðir af kórónuveirunni. Sá þriðji er enn ófundinn. Innlent 14. júní 2020 10:07
Lögregla stöðvaði afmælisveislu eiganda skemmtistaðar Veitingastöðum er skylt að loka klukkan 23 samkvæmt reglum yfirvalda. Innlent 14. júní 2020 07:06
Þetta eru mennirnir sem lögreglan lýsir eftir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu birti rétt í þessu Facebook-færslu þar sem birtar eru myndir af tveimur þeirra þriggja manna sem lýst er eftir vegna gruns um að þeir séu smitaðir af kórónuveirunni. Innlent 13. júní 2020 23:43
Fleiri kvartanir vegna hávaða innandyra en færri utandyra Hávaðakvörtunum til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu 4. maí til og með 10. júní hefur fækkað lítillega, samanborið við sama tímabil á síðasta ári. Kvörtunum vegna hávaða innandyra hefur fjölgað talsvert, en á móti hefur þeim fækkað vegna hávaða utandyra. Innlent 13. júní 2020 20:30
Mennirnir tveir sem voru handteknir eru með virk smit Mennirnir tveir sem voru handteknir á Suðurlandi vegna búðarhnupls í gær og greindust með kórónuveiruna í dag verða fluttir í farsóttarhúsið við Rauðarárstíg á morgun. Þeir reyndust ekki vera með mótefni við veirunni og eru því með virk smit og geta smitað aðra Innlent 13. júní 2020 19:46
Sóttvarnalæknir hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir hinum smituðu Sóttvarnalæknir hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir hinum smituðu sem handteknir voru fyrir þjófnað á Selfossi á grundvelli sóttvarnalaga. Innlent 13. júní 2020 17:40
Fjórtán lögreglumenn í sóttkví vegna tveggja smitaðra þjófa Við rannsókn málsins kom í ljós að hinir handteknu áttu að vera í sóttkví. Innlent 13. júní 2020 16:48
Fengu tilkynningu klukkan 10 um partý sem hafði staðið í alla nótt Lögreglu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning rétt rúmlega 10 í morgun um samkvæmi sem hafði staðið í alla nótt. Innlent 13. júní 2020 11:46
Mikið um útköll hjá lögreglu vegna partýhávaða Lögregla handtók í gærkvöldi mann vegna gruns um líkamsárás í Kópavogi. Innlent 13. júní 2020 07:12
Hnuplaði barnaolíu og barnapúðri úr verslun í Njarðvík Fingralangur aðili var handsamaður í verslun í Njarðvík í gær en lögreglu hafði borist tilkynning um þjófnað úr versluninni. Innlent 12. júní 2020 12:23
Veittist að leigubílstjóra Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út á sjöunda tímanum í morgun eftir að leigubílstjóri óskaði aðstoðar eftir að maður hafði veist að honum og rokið út úr bílnum án þess að borga fyrir farið. Innlent 12. júní 2020 11:07
Komu að nöktum karlmanni í átökum í aftursæti bíls í Mosfellsbæ Lögregla kom að pari í átökum í aftursæti bíls í Mosfellsbæ síðdegis í gær. Innlent 12. júní 2020 07:19
Góðkunningi lögreglunnar klippti á lás og stal rafmagnshlaupahjóli Klukkan hálf sex í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um þjófnað á rafmagnshlaupahjóli í Laugardal. Innlent 11. júní 2020 06:23
Lögreglan hefur áhyggjur af ofbeldismenningu meðal íslenskra ungmenna Lögreglan hvetur foreldra og forráðamenn til þess að vera vakandi fyrir áhættuhegðun á meðal unglinga, þá sérstaklega yfir sumartímann. Innlent 10. júní 2020 17:50
Handtóku ölvaðan mann grunaðan um íkveikju Maðurinn var vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn málsins. Innlent 10. júní 2020 06:19
Hótaði lögreglumanni lífláti og reyndi að ráðast á lögreglukonu Embætti héraðssaksóknara hefur ákært karlmann á fertugsaldri fyrir brot gegn valdstjórn og lögreglulögum með því að hafa hótað lögreglumanni lífláti og ítrekað reynt að ráðast á lögreglukonu. Innlent 9. júní 2020 12:34
Sveiflaði hníf og hrelldi fólk Lögreglan á Suðurnesjum handtók um síðustu helgi karlmann í annarlegu ástandi sem var að sveifla hníf og hrella fólk. Innlent 9. júní 2020 08:31
Ráðþrota vegna manns sem berar sig fyrir framan börn Foreldrar barna í Rimahverfi í Grafarvogi eru ráðalausir vegna karlmanns sem ítrekað berar sig úti í glugga á heimili sínu á meðan börn leika sér á leikvelli fyrir framan íbúðina. Innlent 8. júní 2020 19:46
Tvö alvarleg mál gegn Alzheimersjúklingum á stuttum tíma „hreinn og klár glæpur“ Vilborg Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Alzheimersamtakanna, telur að það brot gegn Alzheimersjúklingum séu of algeng hér á landi. Innlent 8. júní 2020 11:35
Ákærður fyrir að sparka í andlit lögreglumanns og hóta honum lífláti Embætti héraðssaksóknara hefur ákært karlmann á þrítugsaldri fyrir að hafa sparkað í andlit lögreglumanns og hótað honum lífláti við handtöku. Málið er þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Innlent 8. júní 2020 10:41
Auglýstu heimaslátrað lambakjöt til sölu á samfélagsmiðlum Matvælastofnun hefur óskað eftir rannsókn lögreglu vegna sölu á lambakjöti sem talið að sé heimslátrað sauðfé. Innlent 8. júní 2020 10:20
Mikið kvartað undan háværum samkvæmum og „mannabein“ reyndust úr hundi Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust margar kvartanir um hávaða frá samkvæmum í og við heimahús í gærkvöldi og nótt. Í Hafnarfirði var tilkynnt um hugsanlegan funda á mannabeinum en þau reyndust líklega vera úr hundi. Innlent 7. júní 2020 07:33
Börðu menn og rændu veski Tveir karlmenn voru handteknir eftir að þeir réðust á tvo menn og rændu veski í vesturhluta Reykjavíkur í gærkvöldi. Þá var kona flutt á bráðamóttöku sem tilkynnt var um að hefði dottið og hlotið höfuðmeiðsli. Innlent 6. júní 2020 14:00
Ákærð fyrir fíkniefnaframleiðslu og umhverfisspjöll í Hvalfjarðargangamálinu Sex hafa verið ákærð fyrir framleiðslu amfetamíns og fyrir að hafa valdið mengunarhættu í Hvalfjarðargangamálinu svokallaða sem komst í fréttir með handtöku fólksins í og við Hvalfjarðargöng í lok febrúar. Innlent 6. júní 2020 13:28
Óttast að fíkniefnabangsarnir finnist víða Hlaupbangsar sem innihalda fíkniefni eru í umferð á Norðurlandi vestra. Óttast er að bangsarnir séu víðar á landinu. Ekki hefur fundist bein tenging við hlaupbangsamálið á Suðurnesjum. Innlent 5. júní 2020 19:16
Fíkniefnahlaup á Norðurlandi vestra Lögreglan á Norðurlandi vestra segir áreiðanlegar upplýsingar hafa borist þess efnis að hlaupabangsar eða hlaupkubbar sem innihalda fíkniefni séu í umferð á svæðinu. Innlent 5. júní 2020 11:57