Tíðindalítið hjá lögreglu fyrstu nótt takmarkana Greina má gríðarlegan mun á dagbók lögreglu frá því í nótt samanborið við aðfaranótt sunnudags í síðustu viku. Samkomutakmarkanir tóku gildi á miðnætti og lokuðu skemmtistaðir klukkan 11 og þurftu allir að vera komnir út fyrir miðnætti. Innlent 25. júlí 2021 09:09
Maðurinn er kominn í leitirnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Sigurði Nökkva Aðalsteinssyni, 24 ára. Hann er 182 sentímetrar á hæð, grannvaxinn og með ljóst, stutt hár. Innlent 24. júlí 2021 07:41
Höfnuðu á ljósastaur og sökuðu hvor annan um að hafa ekið bílnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti tveimur tilkynningum um innbrot í póstnúmeri 105 í Reykjavík með fjórtán mínútna millibili í gærkvöldi. Þá voru ökutæki stöðvuð víða á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt þar sem grunur er um að ökumaður hafi verið undir áhrifum fíkniefna eða áfengis. Innlent 24. júlí 2021 07:17
Umferðartafir á Hellisheiði vegna umferðarslyss í mikilli þoku Viðbragðsaðilar eru nú á vettvangi efst í Kömbunum þar sem umferðarslys varð fyrir stundu. Innlent 23. júlí 2021 18:03
Sérsveitin þvingaði bíl út af vegi undir Esju Lögreglan veitti mönnum eftirför allt frá Norðlingaholti og upp í Kjalarnes síðdegis í dag. Tveir voru handteknir vegna málsins. Innlent 23. júlí 2021 14:17
Foreldrar í uppnámi eftir að ógnandi hópur kastaði eggjum í þátttakendur ReyCup Mikil ókyrrð ríkir meðal keppenda og foreldra á fótboltamótinu ReyCup eftir að hópur ungmenna kastaði eggjum í keppendur á aldrinum 13 til 16 ára. Málið hefur verið tilkynnt til lögreglu. Innlent 23. júlí 2021 11:18
Eftirlýstur fannst við að brjótast inn í bíla Tvær líkamsárásir voru tilkynntar lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi. Tilkynnt var um líkamsárás og þjófnað í heimahúsi í miðbæ Reykjavíkur en vitað er hver gerandinn er og er málið nú í rannsókn. Hin líkamsárásin varð einnig í miðbænum en tveir voru handteknir og vistaðir í fangaklefa í þágu rannsóknar. Innlent 23. júlí 2021 06:39
Mikil aukning í innbrotum og eignaspjöllum milli mánaða Hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu voru 955 í júní samkvæmt mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Það er fjölgun frá síðasta mánuði. Tilkynningum um innbrot og eignaspjöll hefur fjölgað mikið en ofbeldisbrotum hefur fækkað. Innlent 22. júlí 2021 11:04
Eldur í bifreið Upp úr klukkan sex í gærkvöldi var tilkynnt um eld í bifreið í Háaleitis- og Bústaðahverfi. Slökkvilið réð niðurlögum eldsins. Innlent 22. júlí 2021 06:31
Banaslys í Fljótsdal Kona sem var í fjallgöngu í suðurdal Fljótsdals á Austurlandi í dag slasaðist og lést hún af völdum áverka sem hún varð fyrir. Innlent 21. júlí 2021 18:47
Vopnað rán og hópárás í miðbænum Upp úr klukkan sjö í gærkvöldi barst lögreglu tilkynning um vopnað rán í verslun í miðbæ Reykjavíkur. Maður hafði ógnað starfsmanni með brotinni glerflösku og rænt peningum. Gerandinn var farinn af vettvangi þegar lögreglu bar að en fannst seinna um kvöldið. Innlent 21. júlí 2021 06:32
Sex handteknir eftir slagsmál í göngugötunni Sex voru handteknir eftir að slagsmál brutust út í göngugötunni í miðbæ Akureyrar í kvöld. Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á sjúkrahús. Innlent 20. júlí 2021 21:56
Dæmdur nauðgari í sex mánaða gæsluvarðhald vegna almannahagsmuna Joshua Ikechukwu Mogbolu, sem setið hefur í gæsluvarðhaldi í fangelsinu á Hólmsheiði vegna gruns um nauðgun, hefur verið úrskurðaður í sex mánaða gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna. Innlent 20. júlí 2021 11:13
Brutust inn í skúr en vildu meina að hann hafi verið opinn Tilkynnt var um innbrot í skúr í miðbænum í nótt. Þegar lögreglu bar að garði voru þrír einstaklingar í skúrnum. Þeir gáfu þær skýringar að skúrinn hafi verið opinn þegar að var komið. Þetta segir í dagbók lögreglu. Innlent 20. júlí 2021 06:28
Maðurinn sem flúði land grunaður um manndráp kominn aftur til Íslands Rúmenskur karlmaður sem braut farbann og flúði land á dögunum er kominn aftur til landsins. Maðurinn er grunaður um að hafa orðið Daníel Eiríkssyni að bana og var í farbanni til 1. september. Innlent 19. júlí 2021 17:03
Segir ásakanir ÁTVR vera rógburð og vill afsökunarbeiðni Arnar Sigurðsson, eigandi áfengisvefverslunarinnar Santewines, segir að allar ásakanir ÁTVR um skattsvik og undanskot séu rógburður. Hann fer fram á að kærurnar verði dregnar til baka og ÁTVR biðjist afsökunar í helstu fjölmiðlum. Viðskipti innlent 19. júlí 2021 12:52
Á 184 kílómetra hraða á Biskupstungnabraut Lögregla á Suðurlandi stöðvaði ökumann við ofsaakstur á Biskupstungnabraut við Tannastaði í liðinni viku. Maðurinn mældist á 184 kílómetra hraða, sem er rúmlega tvöfaldur hámarkshraði. Hann var sviptur ökurétti á staðnum og bíður málsmeðferðar á ákærusviði. Innlent 19. júlí 2021 10:52
Maðurinn sem festi handlegg í rúllubindivél ekki alvarlega slasaður Karlmaður sem klemmdi handlegg í rúllubindivél í Grímsnesi í gær er ekki alvarlega slasaður, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu á Suðurlandi. Innlent 19. júlí 2021 10:39
Hrækt framan í öryggisvörð í miðbænum Upp úr klukkan átta í gærkvöldi barst lögreglu tilkynning um mann sem var að áreita gangandi vegfarendur auk viðskiptavina og starfsfólk verslunar í miðbænum. Maðurinn hrækti einnig framan í öryggisvörð verslunarinnar. Þetta og fleira segir í dagbók lögreglu. Innlent 19. júlí 2021 06:26
Hoppaði á bílum og stakk lögregluna af Rétt fyrir hádegi í dag fékk lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynningu um mann sem var að hoppa upp á bíla í miðbæ Reykjavíkur. Þegar lögreglu bar að garði tók maðurinn til fótanna og komst undan lögreglu, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Innlent 18. júlí 2021 19:40
Reyna að losa mann sem festi höndina í vinnuvél Viðbragðsaðilar í Árnessýslu eru nú á vettvangi vinnuslyss við landbúnaðarstörf í Grímsnesi. Maður festi hönd í heyvinnuvél og er unnið að því að losa hann. Innlent 18. júlí 2021 18:29
Mikið um ölvunartilkynningar, hávaðatilkynningar og slagsmál Fjöldi innbrota var tilkynntur til lögreglu síðastliðinn sólarhring og töluvert var um þjófnað. Eitthvað af þýfi fannst líka af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en mikill erill hefur verið hjá henni undanfarinn sólarhring. Mikið var um ölvunartilkynningar, hávaðatilkynningar og slagsmál og voru allir fangaklefar fullir eftir nóttina. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu, sem ekki gafst tími til að rita í fyrr en nú. Innlent 18. júlí 2021 14:57
Sjúkrabíll skemmdist þegar flösku var kastað í hann Undanfarinn sólarhringur hefur verið annasamur hjá viðbragðsaðilum á höfuðborgarsvæðinu, bæði slökkviliðinu og lögreglunni. Innlent 18. júlí 2021 08:31
Mikill erill vegna slagsmála á djamminu Mikill erill var í miðbæ Reykjavíkur undir morgun og þurfti lögregla nokkrum sinnum að stíga inn í slagsmál sem brutust út fyrir utan skemmtistaði. Tvisvar var sjúkrabíll kallaður út að skemmtistað í nótt eftir að gestur datt og meiddi sig. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Innlent 17. júlí 2021 07:14
Hafði upp á stærstum hluta þýfisins af sjálfsdáðum Gunnar Sean Eggertsson, vélfræðingur á Patreksfirði, dó ekki ráðalaus þegar BMW Alpina B-10 bíll hans frá árinu 1991 var strípaður í upphafi árs. Hann lagðist í mikla rannsóknarvinnu sem varð til þess að hann endurheimti stóran hluta þýfisins þótt þjófurinn hafi bíllykilinn enn í sínum fórum. Kom hann lögreglu á snoðir um það sem virkar sem umfangsmikinn þjófnað og útflutning á þýfi. Innlent 17. júlí 2021 07:01
ÁTVR kærir Arnar til lögreglu og skattayfirvalda Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) hefur kært Arnar Sigurðsson, frönsku netverslunina Santewines SAS og innflutningsfyrirtækið Sante ehf. til lögreglu og Skattsins. Fyrirtækið er sakað um að standa ekki skil á innheimtum virðisaukaskatti. Viðskipti innlent 16. júlí 2021 07:45
Ölvunarónæði og hávaði í miðborginni Næturvaktin hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hefur oft verið erilsamari ef marka má fréttaskeyti lögreglu til fjölmiðla í morgun. Vestan Elliðaár var það aðallega í miðborginni sem lögregla sinnti erindum. Innlent 16. júlí 2021 06:26
Yfir hundrað þjófnaðir og innbrot: „Ekki auglýsa það á samfélagsmiðlum að þið séuð ekki heima“ Innbrotahrina gengur nú yfir á höfuðborgarsvæðinu og hafa yfir hundrað þjófnaðir og innbrot verið tilkynnt á síðustu tveimur mánuðum. Lögreglan biðlar til fólks að vera á varðbergi. Innlent 15. júlí 2021 19:15
Fimm með réttarstöðu sakbornings: Tóku efni að virði níutíu milljóna króna Fimm eru með réttarstöðu sakbornings í máli sem talið er tengjast skiplagðri kannabisframleiðslu. Lögregla hefur lagt hald á kannabisefni að virði rúmlega níutíu milljóna króna og upprætt fimm stórar kannabisframleiðslur í íbúðar- og iðnaðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 15. júlí 2021 18:31
Lögregla tengt innbrot í heimahús við færslur á samfélagsmiðlum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur tengt innbrot í heimahús við færslur á samfélagsmiðlum þar sem íbúar greina frá því að þeir séu í fríi og þar með að heiman. Töluvert hefur verið um innbrot og þjófnaði á höfuðborgarsvæðinu undanfarið og telur lögregla fulla ástæðu til að vera á varðbergi. Innlent 15. júlí 2021 14:49