„Þurfum að fara að stíga fast til jarðar“ Fjórir voru handteknir í gær vegna gruns um skipulagða glæpastarfsemi og viðamikil vopnalagabrot. Sérsveit tók þátt í aðgerðum, sem eru taldar hafa orðið til þess að afstýra hættuástandi á staðnum. Dómsmálaráðherra segir komið að því að stíga fast til jarðar í baráttunni við glæpahópa. Lögregla reiknar með að boða til blaðamannafundar í dag vegna aðgerðanna í gær. Innlent 22. september 2022 11:32
Erla hafi logið upp á þá án aðstoðar lögreglu Magnús Leópoldsson, einn þeirra sem sat saklaus í gæsluvarðhaldi í 105 daga eftir að hafa verið bendlaður við hvarf Geirfinns Einarssonar árið 1976, segir niðurstöðu Endurupptökudóms vera hárrétta. Hann segir Erlu hafa logið um aðild hans að málinu án þess að vera undir pressu frá lögreglunni. Innlent 22. september 2022 10:31
Fólk getur varla hreyft sig án þess að vera tekið upp Sérfræðingur í netöryggismálum segir notendaskilmála öryggismyndavéla oft fela í sér að söluaðili búnaðarins geti notað myndefnið á nánast hvaða hátt sem er. Þá séu myndavélar komnar það víða að fólk geti varla hreyft sig lengur án þess að eiga von á að vera tekið upp. Innlent 22. september 2022 08:01
Starfsfólk elti mann sem hafði stolið úr verslun Starfsfólk verslunar í Kópavogi hringdi í lögreglu klukkan rétt rúmlega sex í gærkvöldi eftir að maður hafði stolið úr búðinni. Starfsfólkið hafði elt manninn en lögreglan hafði síðar afskipti af honum og vettvangsskýrsla rituð. Innlent 22. september 2022 06:31
Notuðu hestamennsku sem yfirvarp fyrir kannabisræktun Fjórir karlmenn eru ákærðir fyrir mjög umfangsmikla kannabisræktun á bóndabæ á Suðurlandi. Samkvæmt vitnisburði lögreglunnar átti húsráðandi, sem ekkert vit hafði á kannabisræktun, samskipti við annan höfuðpaur ræktunarinnar með hestamennskudulmáli. Innlent 21. september 2022 21:01
„Mildi að engan sakaði“ Ríkislögreglustjóri segir hættuástandi hafa verið afstýrt í dag. Fjórir voru handteknir af sérsveit ríkislögreglustjóra en í yfirlýsingu segir að tveir þeirra hafi verið taldir vopnaðir og hættulegir og að handtökurnar snúi að skipulagðri glæpastarfsemi og vopnalagabrotum. Innlent 21. september 2022 17:51
Fundu tvö kíló af fíkniefnum í töskum móður og sextán ára sonar Liðlega tvö kíló af amfetamíni og kókaíni fundust falin í ferðatöskum mæðgina er komu til Seyðisfjarðar með Norrænu að morgni þriðjudagsins 13. september síðastliðinn. Þetta kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi. Innlent 21. september 2022 16:13
Sérsveitin í aðgerð á iðnaðarsvæði í Mosfellsbæ Sérsveit ríkisslögreglustjóra og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu standa nú í aðgerð á iðnaðarsvæði í Mosfellsbæ. Sérsveitin handtók einnig karlmann í Kópavogi fyrr í dag. Innlent 21. september 2022 15:37
Með ólæknandi krabbamein og þráir réttlæti Erla Bolladóttur greindi frá því á blaðamannafundi í dag að hún væri með krabbamein sem læknar teldu ólæknandi. Hún þráir ekkert heitar en að mál hennar fái réttlát endalok. Það kemur til greina að fara með mál hennar til Mannréttindardómstóls Evrópu. Innlent 21. september 2022 14:27
Lögreglumenn lýstu lygilegum rannsóknaraðferðum Lögreglumenn lýstu því fyrir dómi í gær hvernig þeir notuðu gögn frá Europol til að tengja tvo íslenska menn við huldumenn á netinu sem skipulögðu einn umfangsmesta fíkniefnainnflutning Íslandssögunnar. Innlent 21. september 2022 12:00
Hjóli Gísla Arnar stolið þrátt fyrir lás af dýrustu gerð Hjóli leikarans Gísla Arnar Garðarssonar var stolið fyrir utan Borgarleikhúsið í laugardagskvöld á meðan Gísli var að sýna sýninguna Ég hleyp. Það tók þjófinn aðeins örfáar sekúndur að nappa hjólinu. Innlent 21. september 2022 11:36
Talinn vera innbrotsþjófur en var í raun húsráðandi Klukkan hálf tíu í gær barst lögreglu tilkynning um yfirstandandi innbrot á heimili í Grafarholti. Lögreglan mætti á svæðið en þá kom í ljós að innbrotsþjófurinn var í raun húsráðandi og hafði læst sig úti. Innlent 21. september 2022 06:51
„Kannski mættu þeir sem fjölluðu um málið læra eitthvað“ Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra svarar ummælum Þórðar Snæs Júlíussonar og segist furða sig á skrifum Þórðar. Hann segist hvorki vera í liði með lögreglunni né blaðamönnum heldur lögum landsins. Innlent 20. september 2022 17:59
MDE skeri úr um lögmæti aðgerða lögreglunnar á Norðurlandi eystra Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður á Stundinni, hefur falið Gunnari Inga Jóhannssyni lögmanni sínum, að óska eftir því að Mannréttindadómstóll Evrópu skeri úr um lögmæti framgöngu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Innlent 20. september 2022 17:30
Þórður Snær segir rannsókn Páleyjar ráðast af hagsmunum Samherja Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, hefur birt aðsenda grein á fréttavef sínum, þar sem hann setur fram alvarlegar ásakanir á hendur Páley Borgþórsdóttur og lögregluembættinu á Norðurlandi eystra. Innlent 20. september 2022 12:13
Grunsamlegir menn reyndust vera í leit að ánamöðkum Lögreglunni í Hafnarfirði barst tilkynning um grunsamlegar mannaferðir klukkan rétt rúmlega tíu í gærkvöldi. Lögreglan hafði uppi á mönnunum en þeir reyndust einungis vera í leit að ánamöðkum. Innlent 20. september 2022 06:28
Dvaldi í Leifsstöð í tvær vikur Landsréttur staðfesti nýverið úrskurð héraðsdóms þess efnis að karlmaður skyldi nauðungarvistaður á geðdeild í allt að 21 sólarhring. Hann hefur verið á geðdeild frá því að lögregla fylgdi honum þangað úr Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þar hafði hann haldið til í tvær vikur eftir að hafa misst af flugi. Innlent 19. september 2022 19:46
Þrjú ungmenni grunuð vegna sprenginganna Lögreglan á Suðurlandi hefur haft hendur í hári þriggja einstaklinga sem grunaðir eru um að hafa sprengt sprengjur á Selfossi. Þrímenningarnir eru taldir hafa búið til að sprengt heimagerðar sprengjur á undanförnum dögum en eru undir tuttugu ára aldri. Innlent 19. september 2022 17:47
Handtekinn eftir hnífstungu í Reykjavík Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið mann í Reykjavík eftir að sá hafði stungið annan mann með hníf. Innlent 19. september 2022 06:07
Fjórtán ára með falsað ökuskírteini Það var nóg að gera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gær en rétt rúmlega klukkan tíu í gærkvöldi var bifreið stöðvuð í Kópavogi. Ökumaður var beðinn um að sýna ökuskírteini en hann framvísaði fölsuðu skírteini. Ökumaðurinn er einungis fjórtán ára gamall og því að minnsta kosti þrjú ár í bílpróf en lögregla vann að málinu með aðkomu foreldra. Innlent 18. september 2022 07:27
Handtekinn fyrir misskilning og boðin áfallahjálp Tilkynnt var um vopnaðan mann á göngu á Kársnesbraut á sjötta tímanum í dag. Sérsveitin var kölluð til og maðurinn handtekinn en síðar kom í ljós að um misskilning var að ræða. Innlent 17. september 2022 19:47
Maður og kona réðust á dreng og flúðu vettvang Lögreglu barst tilkynning í gær um að maður og kona hafi ráðist á dreng og sparkað í hann. Þegar lögregla kom á staðinn voru þau farin en lögreglu hefur ekki tekist að bera kennsl á parið. Innlent 17. september 2022 07:19
Torkennilegur hlutur reyndist vera rafsígaretta Sprengjusérfræðingar ríkislögreglustjóra voru kallaðar til við Ránargötu í miðbæ Reykjavíkur í dag eftir að tilkynnt var um torkennilegan hlut. Hluturinn reyndist vera rafsígaretta sem einhver hafði skilið eftir. Innlent 16. september 2022 15:21
Reyndi að stinga lögreglu af fullur og próflaus Lögreglan á Suðurlandi hefur ákært pólskan ríkisborgara á þrítugsaldri fyrir að aka undir áhrifum áfengis án ökuréttinda en ökumaðurinn sinnti ekki fyrirmælum lögreglu um að stöðva akstur. Hann olli árekstri er hann reyndi að flýja lögreglu. Ákæran er birt í Lögbirtingablaðinu. Innlent 16. september 2022 14:06
Árásarmaðurinn ekki ungmenni Maðurinn sem grunaður er um að hafa stungið átján ára pilt í undirgöngum við Sprengisand í Reykjavík í gær er fullorðinn einstaklingur. Hann var í gær handtekinn og úrskurðaður í síbrotagæslu. Innlent 16. september 2022 10:44
Vistaður í fangageymslu vegna áreitni í garð kvenna í miðbænum Karlmaður var handtekinn í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi og vistaður í fangageymslu vegna áreitni í garð kvenna. Maðurinn var auk þess í mjög annarlegu ástandi og taldi lögregla réttast að láta manninn gista þar til rofar til. Innlent 16. september 2022 06:33
Átján ára stunginn á leiðinni á íþróttaæfingu Átján ára piltur var stunginn þrívegis í undirgöngum við Sprengisand í Reykjavík seinnipartinn í gær. Pilturinn er með þroskaskerðingu en hann var á leið á íþróttaæfingu þegar ráðist var á hann. Árásarmaðurinn reyndi að hafa af honum hjól áður en hann réðst til atlögu. Innlent 15. september 2022 22:20
Myndband sýnir Hollywood-lega tilburði innbrotsþjófsins sem seig niður um gat í loftinu Innbrotsþjófur sem lagði töluvert á sig til þess að brjótast inn í verslunina Prinsinn í Árbænum í vikunni fór tómhentur út. Eigandi verslunarinnar veltir því fyrir sér hvort að viðkomandi sé að undirbúa sig undir eitthvað stærra. Innlent 15. september 2022 21:00
Ákærður fyrir tilraun til manndráps með því að þríhöfuðkúpubrjóta vinnufélaga sinn Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tvær tilraunir til manndráps 17. júní síðastliðinn, með því að hafa slegið tvo vinnufélaga sína með hamri. Annar þeirra þríhöfuðkúpubrotnaði. Innlent 15. september 2022 15:47
Sérsveitin varar við sprengjufikti: „Það hafa orðið banaslys“ Sérsveitarmaður sem var á vettvangi á Selfossi í morgun ítrekar varnaðarorð lögreglu um alvarleika þess að meðhöndla sprengiefni. „Það hafa orðið banaslys á Íslandi við sprengjufikt, útlimamissir einnig og fólk hefur misst sjón. Þannig þetta er alveg stranglega bannað,“ segir sérsveitarmaður sem var kallaður á vettvang þegar tilkynnt var um torkennilegan hlut nærri Fjölbrautarskóla Suðurlands og Vallaskóla. Innlent 15. september 2022 15:14