Alexandra og stöllur hennar steinlágu fyrir toppliðinu Alexandra Jóhannsdóttir var í byrjunarliði Fiorentina sem tók á móti AS Roma í toppbaráttuslag ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Fótbolti 14. janúar 2023 15:44
Birkir Bjarna lagði upp mark í sigri Adana Demirspor Birkir Bjarnason var í byrjunarliði Adana Demirspor þegar liðið fékk Ankaragucu í heimsókn í tyrknesku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 14. janúar 2023 15:09
Man United skuldar öðrum félögum rúmlega 53 milljarða króna Fjárhagsstaða enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United hefur verið til umfjöllunar nýverið eftir að félagið leyfði Cristiano Ronaldo að fara frítt og ákvað að fylla skarðið sem hann skyldi eftir sig með lánsmanni frá Besiktas í Tyrklandi en er í eigu B-deildarliðs Burnley. Enski boltinn 14. janúar 2023 08:01
Fór í gegnum allan tilfinningaskalann Sara Björk Gunnarsdóttir, sem ákvað að leggja landsliðsskóna á hilluna í gær, hefur farið í gegnum allan tilfinningaskalann á löngum ferli. Fyrsta Evrópumótið stendur upp úr. Fótbolti 14. janúar 2023 07:02
Sonur Ronaldinho til reynslu hjá unglingaliði Barcelona Ronaldinho var tvisvar kosinn besti fótboltamaður í heimi sem leikmaður spænska stórliðsins Barcelona og nú reynir sonur hans að feta í fótspor hans. Fótbolti 13. janúar 2023 23:00
Napoli pakkaði Juventus saman í toppslagnum á Ítalíu Juventus hafði unnið átta leiki í röð án þess að fá á sig mark áður en að mætti toppliði Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, í kvöld. Juventus átti aldrei möguleika gegn Napoli í kvöld en leiknum lauk með 5-1 sigri heimamanna í Napoli. Fótbolti 13. janúar 2023 21:45
Skipað að sýna Infantino á öllum leikjum HM í Katar Gianni Infantino, forseti FIFA, er duglegur að koma sér í fréttirnar þessi misserin og þá helst á á neikvæðan hátt. Það er ljós að vinsældir hans eru ekki að aukast og gagnrýnin eykst dag frá degi. Fótbolti 13. janúar 2023 18:01
Tvær milljónir manna vildu miða á fyrsta leik Cristiano Ronaldo Cristiano Ronaldo mun spila fyrsta leikinn sinn á Arabíuskaganum þegar Al Nassr mætir franska félaginu Paris Saint Germain í vináttuleik í næstu viku. Það er óhætt að segja að það sé áhugi á leiknum í Sádí Arabíu. Fótbolti 13. janúar 2023 17:30
Sókn vinnur leiki en vinnur vörn titla? Ítalska knattspyrnan er nú aftur farin á fleygiferð eftir langt og sorglegt hlé vegna heimsmeistarakeppninnar í Katar. Sorglegt auðvitað vegna þess þjóðin öðlaðist ekki þátttökurétt á mótinu og er þetta annað heimsmeistaramótið í röð þar sem þessi örlög biðu landsliðsins. Fótbolti 13. janúar 2023 16:00
„Maður finnur að líkaminn er að þreytast“ Sara Björk Gunnarsdóttir segir þetta réttan tímapunkt til að kalla það gott með íslenska landsliðinu. Hún segir að það hafi blundað í sér frá því á Evrópumótinu síðasta sumar að láta gott heita. Fótbolti 13. janúar 2023 14:31
Shakira lætur Pique heyra það í nýju lagi Kólumbíska tónlistarkonan Shakira lætur fyrrverandi eiginmann sinn, knattspyrnumanninn Gerard Pique, heyra það í nýju lagi sem kom út í gær. Hjónin fyrrverandi skildu í sumar eftir ellefu ára hjónaband þegar upp komst um framhjáhald Pique. Tónlist 13. janúar 2023 14:19
Ungstirni Dortmund sagt vera fjórum árum eldra en talið var Nafn þýska ungstirnisins Youssoufas Moukoko hefur blandast inn í aldurssvindlið sem skekur kamerúnskan fótbolta. Moukoko er sagður vera fjórum árum eldri en hann á að vera. Fótbolti 13. janúar 2023 14:00
Gummi Ben með einhverja tilfinningu fyrir Napoli: Lýsir stórleiknum í kvöld Stórleikur kvöldsins í ítalska fótboltanum er leikur Napoli og Juventus í Napolíborg en þetta eru tvö efstu liðin í Seríu A eftir sautján umferðir. Fótbolti 13. janúar 2023 13:00
Sveindís Jane í þætti UEFA um stjörnur kvennaboltans: Stolt að vera blönduð Íslenski landsliðsframherjinn Sveindís Jane Jónsdóttir er andlit íslenskrar knattspyrnu í nýjum heimildaþáttum evrópska knattspyrnusambandsins. Fótbolti 13. janúar 2023 11:30
Sara Björk hætt í íslenska landsliðinu Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, hefur ákveðið að hætta að spila með landsliðinu. Fótbolti 13. janúar 2023 10:25
Karólína Lea um Glódísi: Liðfélagarnir í Bayern eru í áfalli hvað hún er góð Karólína Lea Vilhjálmsdóttir talar vel um liðsfélaga sinn Glódísi Perlu Viggósdóttur en þær eru saman í bæði Bayern München og íslenska A-landsliðinu. Fótbolti 13. janúar 2023 08:00
Dagný ánægð með hversu mikið hefur breyst á undanförnum fimm árum Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona og fyrirliði West Ham United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, er ánægð með þá breytingu sem hefur orðið á undanförnum árum þegar kemur að barneignum kvenna í íþróttum. Enski boltinn 13. janúar 2023 07:01
HK fær einn heitasta leikmann Lengjudeildarinnar Nýliðar HK eru byrjaðir að styrkja sig fyrir komandi átök í Bestu deild karla næsta sumar. Liðið tilkynnti í kvöld að það hefði samið við Marciano Aziz til tveggja ára. Íslenski boltinn 12. janúar 2023 22:45
Felix sá rautt í tapi Chelsea gegn Fulham João Félix byrjar lánstíma sinn hjá Chelsea ekki vel þar sem hann fékk beint rautt spjald í sínum fyrsta leik fyrir félagið. Til að bæta gráu ofan á svart þá tapaði Chelsea einnig leiknum gegn nágrönnum sínum í Fulham. Enski boltinn 12. janúar 2023 22:00
Fjölnir vann óvæntan sigur á Val | Fram fór létt með Leikni Tveir leikir fóru fram í Reykjavíkurmóti karla í knattspyrnu í kvöld. Fjölnir vann einkar óvæntan sigur á Val að Hlíðarenda á meðan Fram vann öruggan sigur á Leikni Reykjavík. Íslenski boltinn 12. janúar 2023 20:50
Ísland henti frá sér sigrinum Ísland glutraði niður eins marks forystu í vináttuleik gegn Svíþjóð í kvöld. Svíar skoruðu tvívegis undir lok leiks og unnu 2-1 sigur eftir að Sveinn Aron Guðjohnsen hafði komið Íslandi yfir í fyrri hálfleik. Fótbolti 12. janúar 2023 19:55
Jesper mun ekki spila á Íslandi næsta sumar Danski varnarmaðurinn Jesper Juelsgård hefur samið við B-deildarliðið Fredericia í heimalandinu. Hann mun því ekki spila fótbolta á Íslandi næsta sumar en eftir að samningi hans við Val var rift opinberaði Jesper að hann væri til í að vera áfram hér á landi ef rétt tilboð bærist. Íslenski boltinn 12. janúar 2023 18:00
Potter: Að stýra Chelsea er erfiðasta starfið í fótboltanum Graham Potter hefur ekki byrjað vel sem knattspyrnustjóri Chelsea en fyrstu vikurnar eftir HM í Katar hafa verið einstaklega erfiðar. Fótbolti 12. janúar 2023 17:31
Þjálfari argentínska landsliðsins segir að Messi gæti spilað á HM 2026 Heimsmeistaramótið í Katar átti að vera síðasta HM hjá Lionel Messi en nú er landsliðsþjálfarinn farinn að tala um næsta mót að fjórum árum liðnum. Fótbolti 12. janúar 2023 11:31
Fimm íslensk félög fá alls ellefu milljónir frá UEFA vegna stelpnanna okkar Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, greiðir nú í fyrsta sinn umbunargreiðslu vegna þátttöku leikmanna félaga á Evrópumóti kvenna í fótbolta. Fótbolti 12. janúar 2023 09:47
Infantino boðaður í skýrslutöku hjá lögreglu Gianni Infantino, forseti FIFA, var yfirheyrður af lögregluyfirvöldum í Sviss öðru sinni í vikunni vegna meintra glæpa hans. Hann á að hafa hvatt til misbeitingar valds og hindrað refsiaðgerðir lögreglu- og dómsvaldsins. Fótbolti 12. janúar 2023 09:30
Mancini segir frá hinstu ósk vinar síns Vialli Roberto Mancini, landsliðsþjálfari Ítalíu, hefur greint frá síðustu samskiptunum sem hann átti við fyrrum liðsfélaga sinn og vin til margra ára, Gianluca Vialli. Vialli lést eftir baráttu við krabbamein 6. janúar síðastliðinn. Fótbolti 12. janúar 2023 08:31
United búið að ná samkomulagi við Burnley en þurfa enn að bíða Það verður sífellt líklegra að Hollendingurinn Wout Weghorst gangi til liðs við Manchester United. Samkomulag er í höfn á milli United og Burnley en Besiktas mun eiga síðasta orðið. Fótbolti 11. janúar 2023 23:15
Real í úrslit ofurbikarsins en sigurinn gæti orðið dýrkeyptur Real Madrid er komið í úrslit spænska ofurbikarsins en liðið vann í kvöld sigur á Valencia eftir framlengingu og vítaspyrnukeppni. Tveir leikmenn Real þurftu að fara af velli í leiknum vegna meiðsla. Fótbolti 11. janúar 2023 22:24
Messi skoraði í sigri PSG Lionel Messi skoraði seinna mark PSG í 2-0 sigri liðsins gegn Angers í frönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. PSG er aftur komið með sex stiga forskot á toppnum. Fótbolti 11. janúar 2023 22:09