Sverrir Ingi stóð vaktina í hjarta varnarinnar í sigri Sverrir Ingi Ingason, landsliðsmiðvörður í fótbolta, karla hóf leikinn í miðri vörn Midtjylland þegar liðið sigraði Silkeborg, 2-0, á heimavelli sínum í annarri umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í dag. Fótbolti 30. júlí 2023 14:29
Manchester City tapaði fyrir Atlético Madrid Atlético Madrid bar sigur úr býtum með tveimur mörkum gege einu þegar liðið atti kappi við Manchester City í æfingaleik liðanna í Seúl í Suður-Kóreu í dag. Fótbolti 30. júlí 2023 13:52
Hólmbert Aron tryggði Holstein Kiel sigurinn í fyrstu umferð deildarinnar Hólmbert Aron Friðjónsson skoraði sigurmark Holstein Kiel þegar liðið hafði betur gegn Eintracht Braunschweig en liðin leiddu saman hesta sína í fyrstu umferð þýsku B-deildarinnar í fótbolta karla í dag. Fótbolti 30. júlí 2023 13:41
Erik ten Hag þögull sem gröfin um Højlund Erik ten Hag vildi ekkert tjá sig um væntanlega komu danska framherjans Rasmusar Højlund til Manchester United þegar hann ræddi við Skysports í aðdraganda æfingaleiks liðsins gegn Borussia Dortmund sem leikinn verður á morgun. Fótbolti 30. júlí 2023 13:34
Kólumbía í bílstjórasætið eftir glæsilegan sigur á Þjóðverjum Kólumbía fór með 2-1 sigur af hólmi þegar liðið mætti Þýskalandi í annarri umferð riðlakeppninnar á heimsmeistaramótinu í fótbolta kvenna í Sydney í Ástralíu í dag. Fótbolti 30. júlí 2023 11:38
Liverpool vann sannfærandi sigur í Singapúr Liverpool lagði Leicester City að velli með fjórum mörkum gegn engu þegar liðin áttust við í æfingaleik í Singapúr í morgun. Fótbolti 30. júlí 2023 10:55
Mbappé orðaður við Liverpool Slúðurdálkar enskra fjölmiðsla slá því upp að forráðamennn Liverpool hafi rætt við kollega sína frá franska félaginu Paris Saint-Germain um að fá Kylian Mbappé til liðs við sig á lánssamningi. Fótbolti 30. júlí 2023 10:10
Noregur kláraði riðlakeppnina með stæl Noregur vann stórsigur, 6-0, þegar liðið mætti Filippseyjum í lokaumferð heimsmeistaramótsins í fótbolta kvenna á Eden Park í Nýja-Sjálandi í morgunsárið. Fótbolti 30. júlí 2023 09:39
Komið að ögurstundu fyrir Noreg Norska landsliðið gæti verið á heimleið af Heimsmeistaramóti kvenna eftir daginn í dag. Ekkert nema sigur gegn Filipseyjum dugar þeim mögulega til að komast áfram úr A-riðli. Fótbolti 30. júlí 2023 08:01
„Ég segi nei“ Reece James, leikmaður Chelsea í ensku úrvalsdeildinni, hefur gefið það til kynna að hann hafi engan áhuga á að ganga í raðir Arsenal. Enski boltinn 30. júlí 2023 07:01
FH biðu ekki boðanna eftir að félagaskiptabanni liðsins var aflétt Eins og greint var frá á Vísi í gær hefur félagaskiptabanni FH verið aflétt og hafa FH-ingar strax tekið til óskiptra málanna við að styrkja hópinn, en tveir nýjir leikmenn eru á leið til liðsins. Fótbolti 29. júlí 2023 22:04
Félagaskipti Højlund til Manchester United klár Manchester United og Atalanta hafa komist að samkomulagi um kaupverð á danska framherjanum Rasmus Højlund en United mun reiða fram rúmar 70 milljónir evra alls. Fótbolti 29. júlí 2023 19:30
Selfoss nældi í þrjú dýrmæt stig í fallbaráttunni Selfoss nældi í dýrmæt stig í fallbaráttunni í Bestu deild kvenna í dag með 1-0 sigri á Keflavík. Úrslitin þýða að Keflavík hefur nú tapað fjórum leikjum í röð og eru aðeins tveimur stigum frá botnsætinu. Fótbolti 29. júlí 2023 19:19
Þróttur valtaði yfir Þór/KA fyrir norðan Þróttur gerði góða ferð norður yfir heiðar í dag þar sem liðið lagði Þór/KA 0-4 í Bestu deild kvenna. Þetta var þriðji sigur Þróttara í röð í deildinni. Fótbolti 29. júlí 2023 18:12
Guðlaugur Victor beint í byrjunarlið Eupen | Jafntefli í fyrsta leik Guðlaugur Victor Pálsson fór beint í byrjunarlið Eupen í fyrsta leik tímabilsins í dag, eftir að hafa formlega gengið til liðs við liðið í gær. Hann spilaði allan leikinn í miðri vörn liðsins í 2-2 jafntefli gegn Westerlo. Fótbolti 29. júlí 2023 16:11
Valgeir hafði betur gegn Hákoni í toppslag sænsku úrvalsdeildarinnar Häcken vann 3-1 sigur gegn Elfsborg í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Valgeir Lundal spilar með Häcken og Hákon Rafn Valdimarsson er markvörður Elfsborg. Fótbolti 29. júlí 2023 15:05
Jamaíka vann sinn fyrsta sigur í sögu HM Jamaíka vann Panama með einu marki gegn engu á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í dag. Þetta var fimmti leikurinn í sögunni sem kvennalið þjóðarinnar spilar á HM og sigurinn því sögulegur. Fótbolti 29. júlí 2023 14:33
Frakkar á toppi F-riðils eftir sigur gegn Brasilíu Frakkland vann Brasilíu 2-1 í æsispennandi leik á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. Frakkland er á toppi F-riðilsins eftir úrslitin. Með sigri hefði Brasilía getað tryggt sig í 16-liða úrslitin en nú er allt mögulegt. Fótbolti 29. júlí 2023 12:14
David Beckham tilbúinn að taka til hendinni hjá Manchester United Ein allra mesta goðsögnin í sögu Manchester United og meðeigandi í Inter Miami segist tilbúin til að koma að rekstri United en telur að Glazier fjölskyldan þurfi að fara. Þetta kemur fram í viðtali á The Athletic. Fótbolti 29. júlí 2023 11:00
Svíar í sextán liða úrslit eftir stórsigur á Ítölum Svíþjóð gerði sér lítið fyrir og vann Ítalíu 5-0 á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. Þær sænsku komust í þriggja marka forystu rétt fyrir hálfleik og bættu svo tveimur mörkum við í þeim síðari. Þær eru því komnar í sextán liða úrslit og mæta Bandaríkjunum, Hollandi eða Portúgal. Fótbolti 29. júlí 2023 09:52
Bestu mörkin: Upphitun fyrir 14. umferð Bestu deildar kvenna Það verður leikinn heil umferð í dag í Bestu deild kvenna en 14. umferð mun fara fram að öllu leyti í dag. Vigdís Lilja Kristjánsdóttir úr Breiðablik og Snædís María Jörundsdóttir úr settust í sófann hjá Helenu Ólafsdóttur spáðu í spilin fyrir umferðina, ræddu undir 19 ára landsliðið og árangur þeirra í lokamóti Evrópumótsins sem fór fram fyrir stuttu. Fótbolti 29. júlí 2023 08:01
Nákvæmari uppbótartími á Englandi Knattspyrnusambandið á Englandi og samtök dómara þar í landi, PGMOL, hafa tilkynnt það að á komandi leiktíð verður tekið harðar á leiktöfum og reynt að hafa það þannig að boltinn verði sem mest í leik. Svipuð nálgun og hefur verið á undanförnum heimsmeistaramótum í knattspyrnu karla og kvenna þannig að þegar ekki er verið að spila fótbolta er þeim tíma bætt við uppbótartímann. Fótbolti 28. júlí 2023 23:02
Salzburg rak þjálfarann skömmu áður en hann var ráðinn til Al-Ahli Dagurinn hjá Matthias Jaissle, fyrrum þjálfara RB Salzurg, var heldur betur áhugaverður. Fyrr í dag var honum sagt upp sem þjálfara austurríska liðsins en í lok hans var hann ráðinn þjálfari Sádi arabíska liðsins Al-Ahli. Samningur hans við Al-Ahli er til þriggja ára. Fótbolti 28. júlí 2023 21:45
Viktor Jónsson með fernu í fyrsta tapi Aftureldingar í Lengjudeildinni Skagamenn eru fyrsta liðið sem hefur náð að leggja Aftureldingu af velli í Lengjudeild karla í knattspyrnu. ÍA lagði heimamenn úr Mosfellsbænum 2-5 og hleypa spennu í baráttuna um efsta sætið í deildinni sem gefur beint sæti í úrvalsdeildinni. Afturelding hafði ekki tapað leik og náð í 35 stig af 39 mögulegum fyrir þennan leik. Fótbolti 28. júlí 2023 21:15
Keflavík fær úkraínskan framherja fyrir fallbaráttuna Keflvíkingar hafa styrkt sig fyrir komandi fallbaráttu í Bestu deild karla í knattspyrnu. Liðið hefur samið við úkraínska framherjann Robert Gegedosh sem kemur til liðsins frá St. Lucia sem leikur í efstu deild á Möltu. Keflvíkingar sitja á botni deildarinnar með 10 stig þegar 16 umferðum er lokið. Fótbolti 28. júlí 2023 19:31
Alfreð Finnbogason skoraði og lagði upp fyrir Lyngby í jafntefli Þrír íslenskir leikmenn byrjuðu fyrir Lyngby þegar liðið gerði jafntefli við Viborg 2-2 á útivelli í annarri umferð efstu deildar Danmerkur í dag. Alfreð Finnbogason skoraði annað mark liðsins en ásamt honum byrjuðu þeir Sævar Atli Magnússon og Kolbeinn Finnsson einnig leikinn. Þetta var fyrsta stigið sem Lyngby nær í þetta tímabilið. Fótbolti 28. júlí 2023 19:00
Juventus í bann frá þátttöku í Sambandsdeild Evrópu og Chelsea sektaðir Juventus mun ekki leika í Sambandsdeild Evrópu eins og þeir höfðu unnið sér rétt til að gera á næsta tímabili. Liðið endaði í sjöunda sæti Serie A sem gaf keppnisréttinn í keppninni en vegna brota á fjármálareglum knattspyrnunnar (Financial fair play) þá munu þeir ekki fá að keppa í Sambandsdeildinni. Þá fá Chelsea sekt fyrir að gefa ekki upp réttar upplýsingar um sín fjármál Fótbolti 28. júlí 2023 18:17
Bæjarar fljúga til London til að reyna að kaupa Kane Tveir af hæstráðendum Bayern München ætla að ferðast til London til að freista þess að kaupa Harry Kane af Tottenham. Fótbolti 28. júlí 2023 16:45
Mané verður samherji Ronaldos hjá Al Nassr Sadio Mané er á leiðinni til sádi-arabíska félagsins Al Nassr sem Cristiano Ronaldo leikur með. Fótbolti 28. júlí 2023 15:16
Stálrósirnar unnu þrátt fyrir að vera færri í klukkutíma Kína vann Haití, 1-0, í síðasta leik dagsins á heimsmeistaramótinu í fótbolta kvenna. Fótbolti 28. júlí 2023 13:03