Tveir látnir eftir árásina í London Tveir létust og þrír til viðbótar slösuðust eftir hnífaárás á London Bridge í bresku höfuðborginni. Lögreglan ytra hefur staðfest að maður hafi, vopnaður hnífi og íklæddur gervi-sprengjuvesti hafi ráðist að vegfarendum. Erlent 29. nóvember 2019 23:39
Einn skotinn af lögreglu eftir hnífaárás í London Nokkur fjöldi fólks er talinn hafa slasast eftir hnífaárás á London Bridge í ensku höfuðborginni um klukkan tvö í dag. Lögregla er með mikinn viðbúnað vegna málsins og hefur að minnsta kosti einn verið skotinn í tengslum við árásirnar. Erlent 29. nóvember 2019 15:49
Robinson játar aðild að flutningnum Norður-írski flutningabílstjórinn sem sakaður er um aðild að dauða 39 sem fundist látin í gámi vöruflutningabíls í Grays í síðasta mánuði, hefur játað sök vegna ákæru um aðstoð við ólöglega fólksflutninga. Erlent 25. nóvember 2019 14:15
Uber missir starfsleyfið í London Farveitan Uber hefur misst starfsleyfi sitt í bresku höfuðborginni London. Viðskipti erlent 25. nóvember 2019 10:23
Tíu ár frá alræmdum þjófnaði á tölvupóstum loftslagsvísindamanna Óþekktir tölvuþrjótar stálu tölvupóstum loftslagsvísinda og láku völdum köflum úr þeim til að setja loftslagsþing Sameinuðu þjóðanna í uppnám fyrir tíu árum. Erlent 17. nóvember 2019 09:00
Herinn kvaddur til vegna flóða á Englandi Talið er að hundruð íbúa í Suður-Jórvíkurskíri geti ekki snúið til síns heima í allt að þrjár vikur vegna mikilla flóða þar. Erlent 13. nóvember 2019 11:35
Tveir fimmtán ára drengir á meðal hinna látnu í gámnum Lögregla hefur birt nöfn þeirra 39 sem fundust látin í kæligámi flutningabíls í Essex í Bretlandi þann 23. október síðastliðinn. Erlent 8. nóvember 2019 20:32
Lögreglumaður ákærður fyrir morð á fótboltamanni Fótboltamaðurinn Dalian Atkinson lést árið 2016 og nú fyrst hefur maður verið ákærður fyrir að hafa ollið dauða hans. Enski boltinn 7. nóvember 2019 14:30
Bitar úr lofti hrundu yfir leikhúsgesti á West End Slys urðu á fólki í London í dag þegar að hluti úr lofti Piccadilly leikhússins í West End, leikhúshverfi Lundúna, hrundi yfir áhorfendur á meðan að sýning stóð yfir á verki Arthurs Millers, Sölumaður deyr. (e. Death of a Salesman). Erlent 6. nóvember 2019 21:48
Umboðsmaður Smalling ákærður fyrir að ráðast á kaupsýslumann á krá Umboðsmaður Chris Smalling og Garry Monk er í vandræðum. Enski boltinn 6. nóvember 2019 07:00
Fólkið sem lést í gámnum var allt Víetnamar Upphaflega var talið að 39 manns sem fundust látnir í gámabíl væru Kínverjar. Erlent 1. nóvember 2019 22:33
Biður bræður um að gefa sig fram vegna vörubílsins í Essex Lögregla í Bretlandi hefur lýst eftir tveimur norður-írskum bræðrum í tengslum við rannsókn á dauða 39 manna sem fundust látin í vörubíl í bænum Grays í síðasta mánuði. Erlent 1. nóvember 2019 11:35
Vörubílstjórinn í gæsluvarðhald Dómstóll í Bretlandi úrskurðaði í morgun Maurice Robinson í gæsluvarðhald í tengslum við mál þar sem 39 lík fundust í gámi bíls hans í bænum Grays í síðustu viku. Erlent 28. október 2019 14:38
Þrjú látin laus úr haldi Þrjú sem handtekin voru í tengslum við dauða þeirra 39 sem fundust í gámi vörubíls í Essex hafa verið látin laus úr haldi gegn tryggingu. Erlent 27. október 2019 13:51
Segja vörubílinn hafa verið í bílalest sem flutti yfir hundrað innflytjendur Ættingjar sumra þeirra 39 sem óttast er að hafi látist um borð í tengivagni vörubíls sem fannst í Essex í Bretlandi í vikunni hafi verið hluti af þriggja bíla vörubílalest. Segja þeir að yfir 100 innflytjendur hafi verið fluttir til Bretlands með vörubílunum. Erlent 26. október 2019 14:30
Hinstu skilaboð ungrar konu sem lést í flutningabílnum Að minnsta kosti sex hinna 39 sem fundust látin í flutningabíl í Essex í Bretlandi í vikunni eru talin vera frá Víetnam. Erlent 25. október 2019 22:22
Karl og kona handtekin vegna fólksins sem lést í gámi Tvennt er grunað um samsæri um mansal og manndráp á 39 manns sem fundust látnir í gám flutningabíls á miðvikudag. Erlent 25. október 2019 12:03
Fólkið sem fannst í gámnum sagt vera frá Kína Lögreglan á Englandi yfirheyrir enn vörubílstjóra sem var handtekinn í gær eftir að þrjátíu og níu lík fundust í bíl hans en bílnum hafði nýlega verið ekið til Englands frá Búlgaríu. Erlent 24. október 2019 10:15
Bílstjórinn sem ók vörubílnum nafngreindur Lögreglan í Essex í Bretlandi hefur nafngreint vörubílstjóranum sem ók vörubílnum sem fannst í nótt og innihélt 39 lík. Vörubílstjórinn heitir Mo Robinson og hefur hann verið handtekinn grunaður um morð. Erlent 23. október 2019 18:06
39 lík fundust í vörubíl í Englandi Lögregla í Englandi segir að 39 lík hafi fundist í vörubíl í Essex, austur af Lundúnum í nótt. Erlent 23. október 2019 08:49
Íslendingar fluttir á sjúkrahús eftir hópárás Tveir íslenskir ferðamenn voru fluttir á sjúkrahús eftir að ráðist var á þá í miðborg Brighton í Bretlandi, aðfaranótt laugardags. Erlent 23. október 2019 08:06
Gascoigne hreinsaður af öllum ákærum Paul Gascoigne hefur verið hreinsaður af öllum ákærum um kynferðisbrot. Enski boltinn 17. október 2019 22:45
Breskur barnaníðingur myrtur í fangelsi Richard Huckle hlaut 22 lífstíðardóma árið 2016 fyrir kynferðisbrot gegn allt að tvö hundruð malasískum börnum. Erlent 14. október 2019 21:18
Belgísk prinsessa handtekin á loftslagsmótmælum í London Lafði Moncada, Prinsessan María-Esmeralda, yngsta dóttir Leópolds III belgíukonungs, systir Alberts II. konungs og föðursystir núverandi konungs Belgíu, Filippusar var handtekin á loftslagsmótmælunum sem staðið hafa yfir í London. Erlent 12. október 2019 16:01
Fyrsta tap Englands í tíu ár England tapaði sínum fyrsta leik í undankeppni stórmóts í 10 ár þegar liðið beið í lægri hlut fyrir Tékkum ytra í undankeppni EM 2020 í kvöld. Fótbolti 11. október 2019 21:45
Fimm stungnir í hnífaárás í Manchester Lögregla í Manchester hefur handtekið mann á fimmtugsaldri sem grunaður er um verknaðinn. Erlent 11. október 2019 13:14
Mæður bornar á brott Lögreglan fjarlægði með valdi mæður sem tóku þátt í fjöldamótmælum í miðborg Lundúna í gær. Erlent 10. október 2019 06:45
Rebekah Vardy lak öllu um persónulega hagi Rooney-fjölskyldunnar í The Sun Risamál er komið upp í breskum slúðurmiðlum og var það Coleen Rooney sem opnaði á málið með færslu á Twitter. Lífið 9. október 2019 11:30
Rappari varð fyrir árás á tónleikum BBC Tónleikum BBC 1Xtra live í Birmingham í gær var skyndilega aflýst eftir að rapparinn Krept varð fyrir árás baksviðs. Erlent 6. október 2019 11:11
Banksy-verk seldist á metfé Það er hæsta verð sem fengist hefur fyrir Banksy-verk. Viðskipti erlent 4. október 2019 08:08