Þróun eldgossins komi ekki á óvart Töluvert hefur dregið úr hraunflæðinu úr eldstöðvunum í Meradölum frá því í gær og mældist meðalrennsli frá klukkan 17 í gær fram til 11 í morgun 18 rúmmetrar á sekúndu. Til samanburðar var meðalrennsli 32 rúmmetrar á sekúndu fyrstu þrjá tímana eftir að gosið hófst í gær. Á sama tíma hefur sprungan styst úr 300 metrum í um það bil 100 metra. Innlent 4. ágúst 2022 18:33
Bein útsending: Eldgosið við Fagradalsfjall í nærmynd fram á kvöld Vísir verður með beina útsendingu frá eldgosinu við Fagradalsfjall þar sem nokkur fjöldi fólks hefur safnast saman til að njóta sjónarspilsins. Innlent 4. ágúst 2022 17:19
Veitingamenn á Suðurnesjum hugsa sér gott til glóðarinnar Jóhann Issi Hallgrímsson veitingamaður er nú að skoða hvort ekki megi koma upp veitingavagni á gosslóð til að þjónusta þær þúsundir sem ekki hlýða Víði og vilja skoða gosið. En skortur á starfsfólki setur strik í reikninginn. Innlent 4. ágúst 2022 14:39
„Fávitavarpið“ endurvakið í Meradölum Íslenskur Facebook-hópur sem gekk út á að birta myndir af fólki sem tróð sér inn í beinar vefútsendingar frá eldgosinu í Fagradalsfjalli á síðasta ári hefur verið endurvakinn, nú þegar gos er hafið á Reykjanesskaga að nýju, nánar til tekið í Meradölum. Lífið 4. ágúst 2022 13:31
Kraftur gossins sé sá sami en á minna svæði Nýjustu tölur hraunrennslis vegna eldgossins í Meradölum eru ekki komnar til Veðurstofunnar en þær fást eftir mælingar vísindaflugsins í hádeginu. Náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni segir sprunguna hafa minnkað en kraftinn vera þann sama á minna svæði. Innlent 4. ágúst 2022 12:35
Ekki æða af stað upp í fjall, segir Víðir Eldgosið í Merardölum hefur haldið uppteknum hætti frá því að það hófst eftir hádegi í gær. Því er enn beint til almennings að fara ekki að gosinu fyrr en viðbragðsaðilar hafa náð utan um aðstæður þar. Tveir slösuðust í Fagradalsfjalli í gær - en Víðir Reynisson segir það hörkuferðalag að fara upp að gosinu. Innlent 4. ágúst 2022 11:43
„Eins og gosið komi upp í hringleikahúsi“ Tómas Guðbjartsson, læknir og útivistarmaður, brýnir fyrir þeim sem ætla að skoða eldgosið við Meradali að kynna sér leiðina og aðstæður vel áður en haldið er af stað. Hann líkir gosstöðvunum við hringleikahús. Innlent 4. ágúst 2022 10:36
Myndaveisla frá Meradölum: RAX flaug yfir gosstöðvarnar Mikið var um dýrðir á Reykjanesskaga í gær þegar eldgos hófst í Meradölum. RAX, ljósmyndari Vísis, fór að sjálfsögðu á flugvél sinni að gosstöðvunum og myndaði þær í bak og fyrir. Innlent 4. ágúst 2022 09:11
Ferðamenn flykktust að eldgosinu Mikill fjöldi fólks lagði leið sína að gosstöðvunum í Meradölum í gær til þess að freista þess að sjá eldgosið með eigin augum. Ferðamenn, innlendir sem erlendir, sem fréttastofa ræddi við í gær, voru allir mjög spenntir. Innlent 4. ágúst 2022 07:38
Töluvert dregið úr hraunflæði frá því í gær Eldgosið í Meradölum hélt uppteknum hætti í nótt og breyttist lítið að sögn náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofunni. Þá er norðvestanátt í kortunum og því ætti dreifing gass frá eldstöðinni að haldast óbreytt. Innlent 4. ágúst 2022 06:42
Grindvíkingar vonuðust eftir eldgosi og á góðum stað Grindvíkingar eru rólegir yfir eldgosi við Geldingadali. Eldgos þýðir færri jarðskjálftar og svo virðist sem það hafi komið upp á góðum stað. Fannar Jónsson, bæjarstjóri Grindavíkur, segir mikilvægt að tryggja öryggi þeirra sem vilji skoða eldstöðvarnar en fólk verði að fylgja fyrirmælum. Innlent 3. ágúst 2022 21:30
Dáðust að náttúrufegurðinni við gosið Ekki leið langur tími frá því að gos hófst að nýju nærri Fagradalsfjalli þar til fólk byrjaði að streyma að gosstöðvunum til að bera sjónarspilið augum. Innlent 3. ágúst 2022 20:51
Börn eiga ekki erindi að eldstöðvunum Börn eiga ekki erindi upp að eldstöðvunum við Geldingadali. Bæði vegna gasmengunar og erfiðrar gönguleiðar. Þetta segir Elín Björk Jónasdóttir, hópstjóri veðurþjónustu hjá Veðurstofu Íslands, en börn og fullorðnir með undirliggjandi sjúkdóma eru viðkvæmari gagnvart gasmengun. Innlent 3. ágúst 2022 20:30
Töluvert stærra gos og virðist byrja af meiri krafti Eldgosið sem hófst við Geldingadali í dag er töluvert stærra en það sem sást í fyrra og virðist byrja af meiri krafti. Þrátt fyrir það telst gosið vera lítið og er lítil hætta á því að það ógni byggð eða innviðum á nærliggjandi svæði. Innlent 3. ágúst 2022 18:53
Fann tvo menn sem voru fastir og skutlaði þeim alveg upp að hrauninu Gylfi Blöndal var á ferð með vini sínum nálægt gosstöðvunum í Geldingadal þegar hann rakst á tvo blaðamenn mbl.is á leið að gosinu. Þeir voru fastir en Gylfi var á mun betri bíl en þeir og skutlaði þeim alveg upp að lekandi hrauninu með aðstoð blaðamannapassa þeirra. Innlent 3. ágúst 2022 17:34
Svona var blaðamannafundurinn vegna eldgossins Almannavarnir hafa boðið til fjölmiðlafundar klukkan 17:30 í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð. Tilefnið er eldgosið sem hófst við Geldingadali á öðrum tímanum í dag. Innlent 3. ágúst 2022 16:46
Kristján Már fjarri góðu gamni og missir af gosinu Kristján Már Unnarsson, fréttamaður Stöðvar 2, er reyndasti fréttamaður landsins, þegar kemur að umfjöllun um eldgos og aðrar jarðhræringar. Lífið 3. ágúst 2022 16:24
„Þetta er með meiri heppnisstundum í lífinu“ Guðrún Lára Pálmadóttir og eiginmaður hennar voru með þeim fyrstu til að sjá eldgosið með eigin augum í dag. Hún segir aðdragandann vera með meiri heppnisstundum lífs síns. Innlent 3. ágúst 2022 16:17
Blásið til upplýsingafundar vegna eldgossins Almannavarnir hafa boðað til blaðamannafundar klukkan 17:30 vegna eldgossins sem hófst við Geldingadali í dag. Fundinum verður streymt í beinni útsendingu á Vísi. Innlent 3. ágúst 2022 16:15
Gosið leggst vel í Grindvíkinga Guðrún Kristín Einarsdóttir er formaður slysavarnadeildarinnar Þórkötlu í Grindavík, sem er deild innan Landsbjargar. Hún var hress þegar Vísir heyrði í henni, gosið leggst bara vel í hana. Innlent 3. ágúst 2022 16:14
Búið að loka fyrir akstur á vegslóðum við gosstöðvarnar Neyðarstig almannavarna var virkjað um klukkan þrjú í dag vegna eldgossins sem hafið er í Geldingadölum. Þetta ákvað ríkislögreglustjóri í samráði við lögregluna á Suðurnesjum. Innlent 3. ágúst 2022 16:01
Í þyrlu á ystu nöf yfir gosinu Þar er aldeilis ekki fyrir lofthrædda að standa vaktina sem fréttatökumenn hjá Stöð 2 og RÚV þegar eldgos eru annars vegar. Innlent 3. ágúst 2022 15:55
„Hressandi að fá eitt eldgos í viðbót“ Bogi Adolfsson formaður björgunarsveitarinnar Þorbjarnar í Grindavík segir að allar björgunarsveitir á Suðurnesjum hafi verið kallaðar út, þau séu að ná tökum á málunum og fara yfir stöðuna. Hann hvetur almenning til að hlusta á tilmæli. Innlent 3. ágúst 2022 15:36
Léttir að gosið sé hafið Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkurbæjar, segir í samtali við fréttastofu að það sé ákveðinn léttir að það sé farið að gjósa, sérstaklega á svona góðum stað. Enginn mannvirki séu í grennd við gosstöðvar en það kom honum ekkert sérlega á óvart að gosið skyldi hefjast í dag. Innlent 3. ágúst 2022 15:04
Grín og alvara í bland vegna eldgossins Eldgos er hafið á ný og viðbrögð á samfélagsmiðlum í takt við það. Netverjar deila ýmist skoðunum á gosinu sjálfu eða afleiðingum þess á meðan Domino's býður upp á frítt gos í tilefni dagsins. Lífið 3. ágúst 2022 14:55
Bein útsending frá eldgosinu Eldgosið er hafið á Reykjanesskaga, nánar tiltekið í vestanverðum Meradölum. Innlent 3. ágúst 2022 14:47
„Lítið og nett hraungos“ Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur, segir í samtali við fréttastofu að gosið sem hófst á Reykjanesi í dag sé lítið og nett. Virknin sé að draga sig saman í ákveðna gíga og þá muni gjósa úr gígopum frekar en sprungunni. Innlent 3. ágúst 2022 14:37
Eldgos hafið við Fagradalsfjall Eldgos hófst í Meradölum á Reykjanesi á öðrum tímanum í dag í framhaldi af mikilli skjálftavirkni á svæðinu undanfarna daga. Jarðeldar sáust greinilega á vefmyndavélum frá svæðinu og staðfestu sérfræðingar Veðurstofunnar í framhaldinu að um eldgos væri að ræða. Innlent 3. ágúst 2022 13:34
Næstu kynslóðir þurfi að búa sig undir tíð eldgos Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur segir að næstu kynslóðir landsmanna þurfi að búa sig undir tíð eldgos á Reykjanesskaganum. Innlent 3. ágúst 2022 10:56
Vaktin: Reykjanesið skelfur Eldgos er hafið á Reykjanesskaga. Jarðeldar sjást greinilega á vefmyndavélum frá svæðinu þar sem eldgos kom upp í mars í fyrra. Innlent 3. ágúst 2022 10:22