

Hrina eldgosa á Reykjanesskaga hófst í mars 2021 í Geldingadölum. Það níunda varð norðan Grindavíkur í ágúst 2024.
Enn er vinna í gangi við varnargarðinn við Grindavíkurveg þrátt fyrir að hraunflæðið sé einungis örfáum metrum frá. Miðað við hraða hraunsins er ljóst að vinnuflokkurinn getur ekki unnið mikið lengur.
Ný sprunga hefur opnast rétt norðan byggðar í Grindavík. Sprungan opnaðist um klukkan 12:10, norðan götunnar Efrahóps.
Rýma þurfti Grindavík í nótt þegar ljóst var að eldgos væri að fara af stað. Eiginkona John W. Henry eiganda Liverpool var ein af þeim sem þurfti að yfirgefa Bláa lónið.
Ný myndskeið sem tekin eru með dróna sýna skýrt hversu nálægt Grindavíkurbæ gossprungan, sem opnaðist í morgun, er.
„Við sjáum í Grindavík að það eru nýjar sprungur búnar að opnast. Við erum með dróna yfir bænum og við erum að sjá nýjar sprungur. Við erum að sjá gufu sem þýðir að heita vatnið er farið í sundur á einhverjum stöðum. Það er eitt og annað sem á eftir að koma í ljós.“
„Þetta er bara alveg hrikaleg staða. Mikið áfall,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra um yfirstandi eldgos sem hófst nálægt Grindavík í morgun. Hún segir hug sinn hjá íbúum Grindavíkur en biðlar til allra að halda ró sinni.
Eldgosið við Grindavík sést vel frá höfuðborgarsvæðinu og víðar.
Hún Cortina frá Rúmeníu var komin upp að gosstöðvunum snemma í morgun þar sem hún á frí í vinnunni í dag. Hún segist finna til með Grindvíkingum sem innflytjenda og segir þá vera orðna eins konar innflytjenda í eigin landi.
Prófessor í jarðeðlisfræði segir aðeins nokkrar klukkustundir í að hraun nái að renna til húsa innan Grindavíkurbæjar, ef hraunflæði helst óbreytt.
Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar efndi til aukafréttatíma klukkan tólf á hádegi vegna eldgossins norðan Grindavíkur.
Forstjóri líftæknifyrirtækisins ORF segir skrítið að hafa vaknað við þær fréttir í morgun að hraun rynni í átt að gróðurhúsi fyrirtækisins fyrir ofan Grindavík. Það komi honum þó ekki alveg á óvart, enda sitji húsið á sprungunni sem klýfur bæinn.
Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna, segir fjölda fólks hafa þyrpst að Reykjanesskaga til að berja eldgos sem hófst í morgun augum. Hann biður fólk um að vera heima og gefa viðbragðsaðilum vinnufrið til að bjarga því sem bjargað verður.
Eldgosið sem hófst norðan Grindavíkur í morgun verður fyrirferðarmest í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni sem hófst klukkan 10 í morgun.
Hópstjóri náttúruvár hjá Veðurstofu Íslands segir yfirstandandi eldgos vera minna en það síðasta. Hluti hraunsins renni innan varnargarða við Grindavík en meirihluti þess renni í suðvestur, „réttu megin“ við garðana.
Einir fyrstu til að koma og bera gosið augum voru tveir skiptinemar við háskólann. Þau Hanna Kling og Léon Mizera segjast hafa ætlað í dagsferð og voru á skrifstofu bílaleigu þegar þeim bárust fréttir að gos væri hafið. Þau hafi hlaupið út og séð himinbjarmann og ákveðið að breyta um áætlun.
Páll Erland, forstjóri HS Veitna, segir í samtali við Vísi að helsta áhyggjuefnið, hvað varðar orkumál, séu rafmagnsinnviðir við Grindavíkurveg og inni í Grindavíkurbæ.
Menn eru að vinnu við að bjarga jarðýtum og fleiru, sem er alveg við hraunjaðarinn.
Eldgosið norðan Grindavíkur, sem hófst skömmu fyrir klukkan átta í morgun, hefur ekki haft áhrif á starfsemi Keflavíkurflugvallar eða áætlun innanlandsflugs.
Vísindamenn eru í eftirlitsflugi með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Myndir teknar úr þyrlunni benda til þess að gossprunga sé opin beggja megin varnargarðs norðan Grindavíkur.
Af fyrstu myndum úr eftirlitsflugi Landhelgisgæslunnar hefur sprunga opnast beggja vegna varnargarðanna sem byrjað vara að reisa norðan Grindavíkur.
Hraunið sem rennur úr gíg sunnan Hagafells hefur nú náð varnargörðum sem hafa verið í byggingu norðan Grindavíkur.
Hraun úr eldgosinu, sem hófst laust fyrir klukkan 08, rennur að öllum líkum í suður í átt að Grindavíkurbæ. Það kom þó upp norðan varnargarða við bæinn.
Eldgos er hafið norðan við Grindavík. Fyrsta mat á staðsetningu er nálægt Sundhnúk klukkan 7:57 í morgun.
Veðurstofan hefur uppfært hættumatskort í ljósi túlkunar nýjustu gagna. Hætta hefur aukist á öllum svæðum.
„Það er ekki margt annað hægt að gera en að bíða og sjá hvernig málin þróast. Það er búið að rýma bæinn.“
Tugir hafa komið í fjöldahjálparstöð Rauða krossins í Efstaleiti í morgun eftir að Grindavíkurbær var rýmdur á fimmta tímanum, að sögn Aðalheiðar Jónsdóttur teymisstjóra neyðarvarna hjá Rauða krossinum.
Fluglitakóðinn fyrir Reykjanes hefur verið hækkaður og en hann nú appelsínugulur.
Jarðskjálftavirkni hefur færst undir Grindavík og kvika því mögulega komin undir bæinn. Auknar líkur þykja á að eldgos hefjist inni í bænum og þá innan varnargarða.
Skjálftavirknin heldur áfram að færast suður og fleiri skjálftar hafa mælst undir miðri byggðinni í Grindavík á síðustu klukkustund.
Gist var í um níutíu húsum í Grindavík og gengur rýming bæjarins vel.