„Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Telma Tómasson skrifa 22. október 2026 16:31 Helga er formaður ME-félagsins á Íslandi. Aðsend/Vísir/Vilhelm Formaður ME-félagsins á Íslandi fangar nýrri skýrslu sem segir að gríðarlega sjúkdómbyrði vera á þeim sem eru með ME, langvinnt covid, POTS og skylda sjúkdóma. Félagið muni sjá til þess að niðurstöður skýrslunnar gleymist ekki ofan í skúffu. „
Þetta er stórkostlegt afrek, öll þessi vinna sem hefur farið fram í starfsnefnd hjá embætti landlæknis og góð vinna og að mér skilst í fyrsta skipti sem fulltrúar frá sjúklingasamtökum fá að taka þátt í svona starfi. Það er að skila sér í gríðarlega góðri skýrslu sem hefur mikla þýðingu fyrir okkur sem erum svona að mestu leyti ósýnileg enn sem komið er,“ segir Helga F. Edwardsdóttir, formaður ME-félagsins, í samtali við fréttastofu. Í dag var birt skýrsla vinnuhóps heilbrigðisráðherra um sjúkdómana og með henni fylgdu 42 tillögur um hvernig mætti bæta þjónustu við þá sem glíma við sjúkdómana. „Þetta er svo mikil og stór viðurkenning á því að þessir sjúkdómar séu til, hversu alvarlegir þeir eru og hvernig hið opinbera, heilbrigðiskerfið og almenningur eigi að bregðast við og aðstoða okkur í meðferðum og með rannsóknum.“ Fái jafnvel rangar greiningar Helga segir að einhverjir læknar og heilbrigðisstarfsfólk hafi skilning á sjúkdómunum en þeir séu samt sem áður ekki nægilega margir. „Fólk fær ekki aðstoð og jafnvel bara rangar greiningar,“ segir hún. „Þau hafa verið að senda fólk í rangar meðferðir sem getur haft versnandi áhrif á einkennin.“ Skýrslan sé til þess fallin að koma í veg fyrir slíkt. Þá sé meðal tillagnanna að fræða heilbrigðisstarfsfólk frekar um sjúkdómana, einkenni þeirra og meðferð við þeim. ME-félagið hyggst sjá til þess að skýrslunni „verði ekki snúið ofan í skúffu“. Fulltrúar félagsins séu þegar byrjaðir að funda með Sjúkratryggingum Íslands og Tryggingastofnun. „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast.“ Þúsundir séu með sjúkdóminn Ekki sé haldið opinberlega utan um greiningartölur á Íslandi. Vegna þessa miðar ME-félagið við rannsóknar sem gerðar hafa verið í Evrópu og ráða út frá þeim að um 4500 manns séu með ME á Íslandi og gætu jafn margir verið með langvinnt covid. „Akureyrarklíníkin hefur verið starfandi í rúmlega tvö ár og hún sér um að greina ME og langvinnt covid og þau eru búin að taka hátt í þúsund manns í greiningarviðtöl og þar af eru kannski um tveir þriðju sem fá ýmist ME eða langvinnt covid-greiningu,“ segir Helga. „Ég veit að það eru núna um þrjú hundruð manns á biðlista eftir að koma í greiningarviðtöl þannig að þörfin er mikil á að sinna þessum hópum.“
Heilbrigðismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sjúkratryggingar Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Fleiri fréttir Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Sjá meira