Búa heima hjá manni sem þau hafa aldrei hitt Heilt bæjarfélag þurfti að gista fjarri heimilum sínum í nótt. Einhverjir leituðu til ættingja og vina og aðrir til fjöldahjálparstöðva Rauða krossins. Þegar fréttastofu bar þar að garði á ellefta tímanum í morgun var ansi þungt yfir fólki sem virtist þó gera það besta úr stöðunni. Flestir voru af erlendu bergi brotnir, margir með börn. Innlent 11. nóvember 2023 19:26
Kvika á 800 metra dýpi og auknar líkur á eldgosi Veðurstofan greinir frá því að samkvæmt nýjustu gögnum hafa líkur á eldgosi aukist frá því í morgun og gæti það hafist hvenær sem er á næstu dögum. Þá liggur kvika á 800 metra dýpi þar sem hún er grynnst. Einnig eru auknar líkur á eldgosi á hafsbotni og því þurfi að búa sig undir möguleika á sprengigosi. Innlent 11. nóvember 2023 18:50
„Verður hægt að fara heim aftur?“ Grindvíkingarnir Ögn Þórarinsdóttir og Hildur Fjóla Bridde eru í nokkru áfalli eftir að hafa yfirgefið heimili sín í gær. Óvissan er algjör. Innlent 11. nóvember 2023 16:39
Neyðarsöfnun hafin vegna jarðhræringa við Grindavík Rauði krossinn á Íslandi hefur sett í gang neyðarsöfnun vegna jarðhræringanna við Grindavík. Þetta kemur fram í tilkynningu. Innlent 11. nóvember 2023 15:16
Virkja viðbragðsáætlun stjórnvalda og ferðaþjónustunnar Í ljósi þróunar jarðhræringa á Reykjanesi hefur viðbragðsáætlun stjórnvalda og ferðaþjónustunnar verið virkjuð. Markmið hennar er að tryggja skipulögð og samhæfð viðbrögð allra aðila á neyðartímum. Innlent 11. nóvember 2023 15:07
Ekki nógu margir Grindvíkingar búnir að tilkynna sig Ekki hafa nógu margir Grindvíkingar tilkynnt verustað sinn í síma 1717. Slíkt er forsenda þess að hægt sé að skipuleggja skólahald. Innlent 11. nóvember 2023 14:58
„Hugur minn er allur hjá fólkinu mínu“ Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkurbæjar, segir að hugur sinn sé fyrst og fremst hjá fólkinu sínu í Grindavík vegna atburða gærkvöldsins. Hann segir um að ræða ofboðslegt áfall og er þakklátur fyrir aðstoðina. Innlent 11. nóvember 2023 13:04
Grindvíkingar fá ekki að fara heim næstu daga Fram kom á upplýsingafundi almannavarna að miklar líkur væru á eldgosi. Líkur væru á stærra eldgosi en við höfum séð síðustu ár. Íbúar munu ekki fá að fara heim næstu daga. Unnið er að því að koma börnum í skóla og finna þeim húsnæði sem ekki geta verið hjá ættingjum, vinum eða vandamönnum. Innlent 11. nóvember 2023 12:30
Veðurstofan: Kvikuflæðið margfalt á við það sem áður hefur mælst Hraði aflögunarinnar sem mælst hefur í GPS gögnum í umbrotunum á Reykjanesskaga nú er margfaldur á við það sem mældist í fyrri jarðhræringum á Reykjanesskaga. Kvikuflæðið er sömuleiðis margfalt meira. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofunni. Ólíklegt er talið að kvika komi upp á hafsbotni en líkur á eldgosi á næstunni verða að teljast verulegar. Innlent 11. nóvember 2023 11:36
Svona var upplýsingafundur almannavarna Upplýsingafundur almannavarna vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga og rýmingar í Grindavíkurbæ var haldinn klukkan 12:00 í dag. Innlent 11. nóvember 2023 11:21
Atburðir gærkvöldsins óvæntir: Töluvert gjóskufall myndi fylgja gosi í sjó Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur, segir að atburðir gærkvöldsins hafi verið óvæntir. Kvika hafi hlaupið suður og líkurnar á gosi, mögulega úti í sjó hafi aukist. Innlent 11. nóvember 2023 11:03
Grindvíkingar enn að jafna sig á skjálftariðunni í morgunsárið Fjöldahjálparstjóri hjá Rauða krossinum segir að 75 manns hafi gist í fjöldahjálparstöð Rauða krossins í Kórnum í Kópavogi sem opnuð var vegna rýmingar í Grindavík. Innlent 11. nóvember 2023 10:23
Heppilegt að fáir bátar hafi verið í höfn í Grindavík Hafnarstjóri Grindavíkurhafnar segir það heppilegt að nú sé sá tími árs þar sem fáir bátar eru við höfn í Grindavík. Hann telur um 20 til 30 báta enn vera við höfn. Innlent 11. nóvember 2023 10:07
Upplýsingafundur almannavarna í hádeginu Upplýsingafundur almannavarna vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga og rýmingar í Grindavíkurbæ verður haldinn klukkan 12:00 í dag. Innlent 11. nóvember 2023 09:50
Kvikugangurinn gæti verið allt að tólf kílómetrar Land virðist hafa gliðnað um allt að 120 sentímetra. Jarðskjálftavirknin hefur færst nær hafi og kvikugangurinn lengst. Innlent 11. nóvember 2023 09:37
Um 800 skjálftar frá miðnætti Enn er stöðug skjálftavirkni þótt hún hafi róast eitthvað. Kvikugangurinn virðist enn undir Grindavík. Innlent 11. nóvember 2023 09:14
Vaktin: Ekki víst að gosórói sjáist á mælum áður en gos hefst Vísindamenn telja miklar líkur á eldgosi á Reykjanesskaga eftir atburði gærkvöldsins. Grindvíkingar munu ekki fá að fara heim næstu daga eftir farsæla rýmingu í gærkvöldi. Ástandið er stöðugt endurmetið. Innlent 11. nóvember 2023 08:36
Það sem gerðist í nótt Hér er að finna samantekt á því sem gerðist í nótt. Kvikugangur virðist nú liggja undir Grindavík. Nokkuð mikil kvika virðist vera að safna saman og atburðurinn stærri en áður var búist við. Búið er að rýma Grindavík, kalla flesta viðbragðsaðila af svæðinu og varðskipið Þór fær fjær bænum. Innlent 11. nóvember 2023 07:34
Kvikugangur færir sig í átt til sjávar sem gæti þýtt sprengigos Miklar breytingar hafa orðið á skjálftavirkninni sem mælst hefur við Sundhnjúkagíga og aflögun sem mælst hefur á Reykjanesskaga. Náttúruvársérfræðingur Veðurstofu Íslands tjáði fréttastofu í nótt að kvikugangurinn virtist vera að teygja sig í suðvestur. Innlent 11. nóvember 2023 05:34
Kvikugangurinn töluvert stærri en talið var Jarðvísindamenn funduðu með almannavörnum um þrjúleytið í nótt. Bæði GPS gögn og gervitunglamyndir staðfesta að síðan í gærkvöldi hefur myndarlegur kvikugangur myndast og er hann töluvert stærri en talið var. Stór sprunga gæti opnast á svæðinu frá Sundhjúkagígum og áfram í gegnum Grindavík. Innlent 11. nóvember 2023 03:50
Full af þakklæti en algjör óvissa varðandi morgundaginn Systkinin Michal og Isabella voru á meðal þeirra sem urðu á vegi fréttamanns í fjöldahjálpastöðinni í Kórnum í Kópavogi eftir miðnætti. Þau voru hluti af fimmtán starfsmönnum Vísis hf. í Grindavík. Innlent 11. nóvember 2023 03:39
Þakklát fyrir að hræddir hundarnir fengu einnig húsaskjól Auðbjörg María Ólafsdóttir er ein þeirra sem yfirgaf Grindavík í gærkvöldi, en fjórir hundar fylgdu henni og segist hún afar snortin og þakklát Rauða krossinum fyrir að skjóta yfir hópinn skjólshúsi. Innlent 11. nóvember 2023 03:11
Margir leitað skjóls í fjöldahjálparstöðvum Margir hafa leitað skjóls í þremur fjöldahjálparmiðstöðvum sem opnaðar voru vegna rýmingar í Grindavík, á Selfossi, Reykjanesbæ og í Kópavogi. Innlent 11. nóvember 2023 02:08
Langur bíltúr framundan til ömmu og afa við Grundarfjörð Steinar Nói Kjartanson og fjölskylda er meðal þeirra Grindvíkinga sem hafa neyðst til að yfirgefa heimili sitt. Fjölskyldan er á leiðinni til Grundarfjarðar svo langur bíltúr er fyrir höndum. Þau ætluðu að sofa í Grindavík í nótt þar til tilkynning um allsherjarrýmingu barst. Innlent 11. nóvember 2023 01:23
Ræða Víðis í heild sinni Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna, greindi frá því á upplýsingafundi upp úr ellefu að Almannavarnir hafi lýst yfir neyðarstigi og að í samráði við Lögreglustjórann á Suðurnesjum hafi verið tekin ákvörðun um að rýma Grindavík. Innlent 11. nóvember 2023 00:19
Þrjár varaaflstöðvar tilbúnar á Keflavíkurflugvelli Þrjár varaaflsstöðvar eru til taks fyrir Keflavíkurflugvöll ef rafmagn fer af svæðinu vegna mögulegs eldgoss. Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia segir neyðarstjórn Isavia fylgjast vel með þróun mála vegna jarðhræringanna á Reykjanesi. Innlent 10. nóvember 2023 23:57
Stærri kvikugangur en í síðustu eldgosum og mikil kvika Veðurstofa hefur upplýst að ekki sé hægt að útiloka að kvikugangur nái til Grindavíkur og geti opnast. Að sögn sviðsstjóra almannavarna er um stærri kvikugang að ræða en sást í síðustu eldgosum á Reykjanesskaga og er mikil kvika undir jörðinni. Innlent 10. nóvember 2023 23:47
Allt það helsta um rýminguna: Íbúar loki gluggum og aftengi rafmagnstæki Rýming er hafin í Grindavík vegna kvikugangs sem gæti myndast undir bænum. Almannavarnir biðla til íbúa að koma sér burt úr bænum innan fáeinna klukkustunda, fyrir klukkan þrjú í nótt. Öllum í Grindavík er skylt að yfirgefa heimili sín. Innlent 10. nóvember 2023 23:38
Bein útsending: Upplýsingafundur vegna rýmingar og skjálfta Almannavarnir hafa boðað til upplýsingafundar vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga. Samkvæmt heimildum fréttastofu stendur til að rýma Grindavík en fækkað hefur verulega í bænum í kvöld. Innlent 10. nóvember 2023 23:06
Gríðarlegar skemmdir: „Það eru engin orð sem geta lýst þessu“ „Þetta er náttúrulega alveg hræðilegt. Það eru engin orð sem geta lýst þessu,“ segir Birna Óladóttir íbúi á hjúkrunarheimilinu í Grindavík. Gríðarlegar skemmdir eru á hjúkrunarheimilinu eftir skjálftana síðdegis og í kvöld. Innlent 10. nóvember 2023 22:33