„Rosa fínt“ ef fólk hætti að kveikja í sinu Eldur var í sinu á þremur stöðum við vegkant á Vesturlandi, í nágrenni við Brúarfoss og Fíflholt á Mýrum. Slökkvilið frá Borgarnesi brást við kallinu og slökkti eldinn greiðlega en að öllum líkindum var um íkveikju að ræða. Eldarnir voru með nánast nákvæmlega kílómeters millibili. Innlent 10. júní 2024 12:09
Banaslys á Vesturlandsvegi í Borgarfirði Banaslys varð á Vesturlandsvegi skammt frá Hraunsnefi í Norðurárdal í Borgarfirði á níunda tímanum í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Innlent 10. júní 2024 10:25
Tveir fluttir á sjúkrahús: Þriðja útkallið á einum sólarhring Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út að beiðni Lögreglunnar á Vesturlandi í kvöld vegna umferðarslyss á þjóðvegi 1 við Hraunsnef í Borgarfirði. Tveir voru fluttir með þyrlunni, sem lenti við Landspítalann í Fossvogi um klukkan 22:15. Innlent 9. júní 2024 22:54
Sækja veikan jeppamann á Langjökli Björgunarsveitir frá Borgarfirði og Árnessýslu eru nú á leið til aðstoðar veikum ferðamanni á jeppa á Langjökli. Flytja á ferðamanninn til móts við sjúkrabíl sem er á leiðinni að jöklinum. Innlent 31. maí 2024 19:24
Ekur 44 kílómetra með ruslið og er ósáttur við sorphirðugjald Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfu íbúa í Borgarbyggð um að felld verði úr gildi ákvörðun sveitarfélagsins Borgarbyggðar um álagningu gjalds vegna reksturs grenndar- og móttökustöðvar sorps í sveitarfélaginu. Gjaldið er um 32 þúsund krónur. Innlent 22. maí 2024 06:16
Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Eitt glæsilegasta fuglasafn landsins í einkaeigu er í veiðihúsinu við Hítará á Mýrum í Borgarbyggð, en þar má sjá fjölbreytt úrval af allskonar uppstoppuðum fuglum, meðal annars Geirfugl. Innlent 19. maí 2024 21:04
Hefur áhyggjur af nýfæddum lömbum á Höfða Dýralæknir sem kannaði aðstæður á sauðfjárbúi í Borgarfirði sem MAST fylgist sérstaklega með segir aðbúnað nokkurra dýra þar óviðunandi. Hún gagnrýnir að slíkt eigi sér stað á sama tíma og stofnunin segist vera að sinna skyldum sínum í málinu. Innlent 14. maí 2024 13:49
Þurfi að gera úrbætur en ástandið verið ýkt Settur yfirdýralæknir hjá Mast segir að stofnunin hafi farið fram á að sauðfjárbú í Borgarfirði geri talsverðar úrbætur í búskapnum. Þá hafi ábúendum þar verið gert að fækka fé en erfitt sé að gera það í miðjum sauðburði. Hann telur ástandið á bænum ekki eins slæmt og menn vilja vera láta. Innlent 13. maí 2024 16:00
Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Örvar Bessason er reynslumikill matreiðslumaður til sjós og lands. Hann lærði sjókokkinn fyrir um 30 árum og starfaði sem kokkur á frystitogurum árum saman. Þess á milli vann hann á veitingastöðum í landi. Hans næsta verkefni er að gera Grillhúsið í Borgarnesi að heitasta veitinga- og samverustaðnum í Borgarnesi. Viðskipti innlent 13. maí 2024 14:45
Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Helgi Magnús Hermannsson og Jóhannes Birgir Skúlason hafa fest kaup á Grillhúsinu sem rekur veitingastaði á Laugavegi og Sprengisandi í Reykjavík. Þá hefur hópur fjárfesta undir forystu Örvars Bessasonar keypt Grillhúsið í Borgarnesi. Viðskipti innlent 13. maí 2024 14:03
Skilyrði að koma Borgarnesi á kortið Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar Hjörleifsson gerði það að skilyrði fyrir því að kynna stig Íslands í Eurovision, að fá að koma Borgarnesi á kortið í leiðinni. Þangað flutti hann fyrir ári síðan, nýtur sín vel og segir það merki um að hann sé að eldast og þroskast. Lífið 12. maí 2024 18:44
Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Lögreglan var kölluð til þegar upp úr sauð milli dýraverndunarsinna og ábúenda á sveitabæ í Borgarfirði í gær. Dýraverndarsinnar fóru með hey til til kindanna og ábúandi kom og ógnaði þeim með spjóti. Mikið hefur verið fjallað um slæman aðbúnað sauðfjár á bænum síðustu daga. Innlent 11. maí 2024 15:33
Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Dýraverndunarsamband Íslands sakar MAST um að tryggja ekki velferð dýra á bæ í Borgarfirði. Forsvarsmenn samtakana segja sauðfé í vanhöldum og nýborin lömb finnist dauð úti á túni. Innlent 9. maí 2024 19:46
Dáin og deyjandi dýr en engin neyð? Í gærdag sendi Dýraverndarsamband Íslands (DÍS) frá sér ákall til yfirvalda um að bjarga dýrum í sárri neyð að bænum Höfða í Þverárhlíð í Borgarbyggð. Um er að ræða sauðfé í alvarlegum vanhöldum og er að hluta komið út fyrir girðingar að bænum, beit er þar lítil sem engin og girðingar ekki heldar. Skoðun 9. maí 2024 08:31
Fylgjast grannt með gangi mála Matvælastofnun hefur á undanförnum mánuðum haft afskipti af sauðfjárbúskap á bæ í Borgarfirði, sem gera má ráð fyrir að sé Höfði í Þverárhlíð. Mikil umræða hefur verið um slæman aðbúnað sauðfjár á bænum Höfða í Þverárhlíð á samfélagsmiðlum og í fréttum síðustu vikur. Innlent 8. maí 2024 21:48
„Ef ég gæti hnoðað einn úr tíu bestu væri það himnaríki á jörð“ Guðríður Jóna, oftast kölluð Stella, bjó allt sitt líf ásamt þremur bræðrum, Erlendi, Eiríki, og Guðmundi, í eyjunni Knarrarnesi á Mýrum. Lífið 8. maí 2024 19:00
„Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Forstjóri Matvælastofnunar segir stofnunina ekki sofandi á verðinum og að þau séu að sinna velferð dýra á bænum Höfða í Þverárhlíð í Borgarbyggð. Stofnunin sé með stöðugt eftirlit á bænum og aðstæður dýranna ekki þannig að þau séu í lífshættu. Von er á yfirlýsingu frá MAST um málið í dag. Innlent 8. maí 2024 16:07
Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð Dýraverndunarsamband Íslands (DÍS) segir Matvælastofnun ekki sinna lögbundnu hlutverki sínu að verja velferð dýra á bænum Höfða í Þverárhlíð í Borgarbyggð. Stjórn samtakanna hefur sent frá sé ákall um að dýrunum á bænum verði tafarlaust komið til bjargar. Bent hefur verið á slæman aðbúnað dýra við bæinn um árabil. Innlent 8. maí 2024 13:38
Ósáttur með tal eftirlitsmannsins í kaupfélaginu en sektin stendur Nautgripabóndi á Vesturlandi þarf að greiða 350 þúsund króna stjórnvaldssekt vegna brota á reglum um útivist nautgripa eftir að matvælaráðuneytið staðfesti ákvörðun Matvælastofnunar. Bóndinn kærði málið til ráðuneytisins þar sem hann setti meðal annars út á eftirlit stofunarinnar og sér í lagi hegðun eftirlitsmanns Matvælastofnunar í Kaupfélagi Borgfirðinga. Innlent 6. maí 2024 14:54
Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Kúanöfn í íslenskum fjósum eru fjölbreytt og mörg þeirra mjög skemmtileg. Algeng nöfn eru eins og Skjalda, Branda, Skrauta og Blíða en í fjósinu á Hvanneyri eru ráðherranöfn vinsæl og þar stendur Áslaug Arna sig einstaklega vel í mjöltum. Innlent 5. maí 2024 20:07
„Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Litlu mátti muna að illa færi þegar eldur kviknaði í gróðri við sumarbústað í Borgarfirði í gær. Eldurinn breiddist út á ógnarhraða út frá örlitlum neista og eigendurnir stóðu eftir bjargarlausir. Innlent 2. maí 2024 20:56
„Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ Litlu mátti muna þegar sinueldur kviknaði við sumarbústað systkinanna Arons Más Ólafssonar leikara og Birtu Lífar Ólafsdóttur hlaðvarpsstjórnanda í Munaðarnesi í dag. Aron og faðir hans voru við framkvæmdir við bústaðinn þegar eldur kviknaði í gróðri í kring um þá. Lífið 1. maí 2024 20:03
Sinueldur í Munaðarneslandi Sinueldur logar í Munaðarneslandi á Vesturlandi. Viðbragðsaðilum hefur tekist að ná tökum á brunanum en enn logar í einhverjum glæðum. Svæðið sem brann var ekki stórt en á mjög erfiðu svæði þar sem eldurinn átti upptök sín í birkiskógi. Innlent 1. maí 2024 16:15
Afmennska að bjarga ekki dýrum í neyð! Við öll er látum okkur málefni dýravelferðar varða, höfum endurtekið séð ábendingar um alvarleg vanhöld skepna á bænum Höfða í Þverárhlíð í Borgarfirði. Skoðun 29. apríl 2024 14:00
Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Guðrún Sigurjónsdóttir bóndi á Glitstöðum í Borgarfirði tók sig til og skrifaði grein þar sem hún furðar sig á stjórnsýslu landsins. Hún fari sínu fram hverju sem tautar og raular. Innlent 29. apríl 2024 13:13
Kýr ropa á 40 til 60 sekúndna fresti Kýr losa mikið metan en til að vita nákvæmlega hvað það er mikið er tilraun í gangi í fjósinu á Hvanneyri þar sem metanlosun þeirra er mæld í sérstökum bás, á meðan þær éta fóður með sérstöku íblöndunarefni, sem á að minnka metanlosun þeirra. Og það sem meira er, kýr eru ropandi meira og minna allan daginn, eða á 40 til 60 sekúndna fresti. Innlent 20. apríl 2024 20:05
Opið bréf til matvælaráðherra - dýraníð í Borgarbyggð Sæl Bjarkey. Ég ætla að brjóta þá hefð í ávarpi til nýs ráðherra að óska þér til hamingju með stólinn. - Ég mun hins vegar hvergi draga af þeim árnaðaróskum þá er þú hefur virkjað aðgerðir í því sem nú verður fjallað um, já ekki bara það heldur alvöru opinbera íslenska dýravernd skv. lögum um velferð dýra! Skoðun 16. apríl 2024 11:31
Mikill kálfadauði veldur kúabændum áhyggjum Ráðunautar Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins hafa síðustu mánuði unnið að innleiðingu nýs kynbótamats sem vonir standa til að muni hjálpa íslenskum bændum í baráttunni við of mikinn kálfadauða, en um 17% af þeim 26 til 27 þúsund kálfum, sem fæðast árlega koma dauðir í heiminn, sem þýðir 4.500 til 4.600 kálfar á ári. Innlent 15. apríl 2024 16:05
„Rödd ársins“ kemur úr Borgarnesi Hanna Ágústa Olgeirsdóttur, Borgnesingur með meiru var valin “Rödd ársins” söngkeppninnar VOX DOMINI 2024, sem fór fram nýlega í Salnum í Kópavogi. Hanna Ágústa lenti einnig í fyrsta sæti í opnum flokki keppninnar. Lífið 10. apríl 2024 19:20
Innflutningur er ekki bændum um að kenna Mikill innflutningur á matvælum til landsins er ekki íslenskum bændum að kenna segir formaður ungra bænda og vísar þar til stjórnvalda, sem verði að sýna vilja í verki. Innlent 24. mars 2024 21:01