SA segja lykilmálum verið gleymt í stjórnarsáttmála Málin sem gleymdust í nýundirrituðum stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar að mati Samtaka atvinnulífsins eru skýrari áherslur á lækkun skulda og forgangsröðun ríkisútgjalda. Þá hafi farist fyrir að ræða sjálfbærni bótakerfanna í sáttmálanum. Loforð um skattalækkanir séu óljós. Innherji 1. desember 2021 16:00
Þurfti að draga þrisvar í sæti vegna klúðurs Birgir Ármannsson, sem kjörinn var forseti Alþingis í dag, klúðraði hlutun þingmanna í sæti á Alþingi tvisvar í dag. Hann þurfti því að vísa þingmönnum tvisvar úr salnum og gera nokkrar tilraunir til að ná röðuninni réttri. Innlent 1. desember 2021 14:24
Birgir Ármannsson kjörinn forseti Alþingis með 48 atkvæðum Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur verið kjörinn forseti Alþingis. Hann tekur við embættinu af Steingrími J. Sigfússyni, sem sinnti hlutverkinu á síðasta kjörtímabili. Innlent 1. desember 2021 13:18
Minnir þingmeirihlutann á hverfulleika lífsins Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flytur fyrstu stefnuræðu nýrrar ríkisstjórnar á Alþingi í kvöld þegar hundrað og þrjú ár eru liðin frá því Ísland varð fullvalda ríki. Kosið verður í forsætisnefnd, aðrar fastanefndir og alþjóðanefndir þingsins eftir hádegi. Innlent 1. desember 2021 11:52
Allir leggist á eitt í baráttu við verðbólgu Fjármálaráðherra segir mikilvægt að aðilar vinnumarkaðarins leggist á eitt með Seðlabankanum og stjórnvöldum í að koma verðbólgunni niður. Hagur eldri borgara og öryrkja verði bættur á næsta ári og stefnt að nýjum samningum um þeirra kjör. Innlent 30. nóvember 2021 19:20
Telur hljóð og mynd ekki fara saman Þingmaður Miðflokksins segir að á meðan uppbygging sé boðuð í samgöngumálum sé dregið úr fjárfestingu í málaflokknum. Innlent 30. nóvember 2021 19:01
Hvaða þingmenn kusu gegn hagsmunum kjósenda eftir ólöglega endurtalningu í norðvestur? Hæstiréttur Íslands dæmdi kosningar ógildar í Borgarbyggð árið 2002 (dómur 458/2002) því eitt ógilt atkvæði hefði geta breytt niðurstöðu kosninganna. Aðrar kosningar voru haldnar. Hagsmunir kjósenda voru látnir njóta vafans. Skoðun 30. nóvember 2021 13:31
Halldóra endurkjörin og Björn Leví valinn með hlutkesti Halldóra Mogensen var endurkjörin þingflokksformaður Pírata á þingflokksfundi í dag. Þá hlaut Björn Leví Gunnarsson jafnframt embætti formanns flokksins en hann var valinn með hlutkesti líkt og þingflokkurinn hefur gert við upphaf hvers löggjafarþings. Innlent 30. nóvember 2021 13:19
Hættumerki, vannýtt tækifæri og öryrkjar sitji áfram eftir Stjórnarandstaðan gagnrýnir að ennþá vanti upp á leiðréttingar fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega í nýju fjárlagafrumvarpi. Þá vanti mikið upp á að framlög til heilbrigðs-og loftslagsmála séu í takt við stjórnarsáttmálann. Innlent 30. nóvember 2021 12:31
Bjarni segir hvorki þörf á skattahækkunum né niðurskurði á næstu árum Bjartsýni ríkir í fyrsta fjárlagafrumvarpi og fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem reiknar með meiri afkomubata ríkissjóðs en áður var áætlað. Það skili sér til fyrirtækja og heimila því hvorki þurfi að hækka skatta né skera niður til að halda upp góðri opinberri þjónustu. Barnabætur verið auknar og frítekjumark eftirlaunafólks tvöfaldað. Innlent 30. nóvember 2021 11:56
Samstarf í þingnefndum hafi gengið illa á síðasta kjörtímabili Ný ríkisstjórn Íslands ætlar að taka aftur formennsku allra nefnda, að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd undanskilinni. Sigurður Ingi Jóhannsson segir það rökrétt framhald af slæmri samvinnu meðal stjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar í nefndum. Skiptar skoðanir eru meðal stjórnarandstöðunnar um málið. Innlent 29. nóvember 2021 21:31
Sáttmálinn fellur í misgóðan jarðveg Það er mjög jákvætt að styrkja eigi þjóðarsjúkrahúsið segir forstjóri Landspítalans um nýjan stjórnarsáttmála. Framkvæmdastjóri Landverndar segir hins vegar náttúru Íslands fjarverandi í sáttmálanum. Formaður öryrkja ætlar að reyna að vera bjartsýnn. Innlent 29. nóvember 2021 19:02
Orri Páll formaður þingflokks VG Orri Páll Jóhannsson er nýr formaður þingflokks Vinstri grænna. Þetta var ákveðið á fundi þingflokksins síðdegis. Hann tekur við stöðunni af Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur sem verður varaformaður þingflokksins. Innlent 29. nóvember 2021 16:34
Þessum er treyst fyrir áherslumálum ríkisstjórnarinnar Viðmælendur Innherja sem erum öllum hnútum kunnugir innan stjórnarflokkanna þriggja eru sammála um að í nýundirrituðum stjórnarsáttmála Vinstri grænna, Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins fái allir flokkarnir þrír eitthvað fyrir sinn snúð. Innherji 29. nóvember 2021 13:05
Hvað á stjórnin að heita? Ný vika, ný ríkisstjórn, en hvað á barnið að heita? Það er of snemmt að segja en gárungarnir eru að vonum farnir af stað með nafngiftirnar. Innlent 29. nóvember 2021 12:07
Segist treysta engum betur í málið en Willum Svandís Svavarsdóttir fráfarandi heilbrigðisráðherra segist engum treysta betur til að taka við heilbrigðisráðuneytinu en Willum Þór Þórssyni, þingmanni Framsóknar. Willum segir gott að geta leitað í reynslubanka Svandísar. Innlent 29. nóvember 2021 10:06
Óli Björn og Ingibjörg nýir þingflokksformenn Óli Björn Kárason þingmaður var í gær gerður að þingflokksformanni Sjálfstæðisflokknum og Ingibjörg Ólöf Isaksen var gerð að formanni þingflokks Framsóknarflokksins. Innlent 29. nóvember 2021 07:26
Leigjendur fordæma stjórnarsáttmálann Í nýjum stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs er ekki að finna neina stefnubreytingu í húsnæðismálum. Skoðun 28. nóvember 2021 17:01
Fyrsti fundur nýrrar ríkisstjórnar Ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs kom saman á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í dag. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar fjölgar um einn frá síðustu ríkisstjórn og eru tólf. Innlent 28. nóvember 2021 16:20
Byrja með „umfangsminni hugmyndir“ um hálendisþjóðgarð „Ef maður er hættur að komast áfram, getur verið ágætt að stíga aðeins aftur á bak.“ Þetta sagði Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, um mögulegan hálendisþjóðgarð í ljósi þess að Sjálfstæðisflokkurinn væri að taka yfir umhverfisráðuneytið. Innlent 28. nóvember 2021 14:37
Þetta ætlar ríkisstjórnin að gera á kjörtímabilinu Loftslagsmál, heilbrigðismál og tæknibreytingar eru einna fyrirferðamestu málaflokkarnir í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar sem kynntur var í dag. Miklum úrbótum er lofað í heilbrigðismálum þar sem skipa á faglega stjórn yfir Landspítalann að norrænni fyrirmynd. Innlent 28. nóvember 2021 14:07
Stjórnarandstaðan heldur formennsku stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar en ekki öðrum Ný ríkisstjórn Íslands ætlar að taka aftur formennsku allra nefnda, að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd undanskilinni. Þar mun stjórnarandstaðan fara áfram með formennsku. Innlent 28. nóvember 2021 13:51
Tilnefna Birgi Ármanns sem forseta Alþingis Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, verður tilnefndur í embætti forseta Alþingis. Þetta sagði Bjarni Benediktsson, formaður flokksins í viðtali við Heimi Má Pétursson eftir kynningu stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar í dag. Innlent 28. nóvember 2021 13:31
Ráðherralisti Sjálfstæðisflokksins: Jón nýr dómsmálaráðherra og Guðrún tekur við af honum Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, verður áfram fjármálaráðherra í nýrri ríkisstjórn. Að öðru leyti verða töluverðar breytingar á ráðherralista Sjálfstæðisflokksins. Innlent 28. nóvember 2021 12:18
Ný ríkisstjórn kynnt á Kjarvalsstöðum Ný ríkisstjórn verður skipuð í dag og verður Vísir í beinni útsendingu frá kynningu nýs stjórnarsáttmála á Kjarvalsstöðum. Þá munu tvö ríkisráð funda á Bessastöðum. Innlent 28. nóvember 2021 12:03
Dagskráin í dag: Fundað á Kjarvals- og Bessastöðum Ný ríkisstjórn verður skipuð í dag og verður Vísir í beinni útsendingu frá kynningu nýs stjórnarsáttmála á Kjarvalsstöðum. Þá munu tvö ríkisráð funda á Bessastöðum. Innlent 28. nóvember 2021 09:46
Áhugavert að börn séu hlynnt klámbanni og telur fulla ástæðu að skoða það Forsætisráðherra telur fulla ástæðu til að skoða hvort tilefni sé til að banna klámáhorf barna. Hann segir áhugavert að börn og unglingar séu fylgjandi slíku banni. Innlent 27. nóvember 2021 21:39
Varð fyrir sérstökum vonbrigðum með forsætisráðherra Þrír frambjóðendur sem kærðu framkvæmd alþingiskosninganna segja það mikil vonbrigði að alþingi hafi staðfest kjörbréf allra þingmanna í gær. Það sé þó ákveðinn léttir að málinu sé lokið í bili. Einn kærenda segist sérstaklega vonsvikinn með afstöðu forsætisráðherra. Innlent 26. nóvember 2021 23:28
Ætla að kynna nýja ríkisstjórn á sunnudaginn Formenn Vinstri grænna, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks ætla að funda með lykilfólki í flokkunum sínum á morgun og kynna fyrir þeim stjórnarsáttmála. Leggi þeir blessun sína yfir stjórnarsáttmálann verður hann kynntur fyrir þjóðinni á sunnudag. Innlent 26. nóvember 2021 13:57
Ný ríkisstjórn á morgun eða hinn Reiknað er með að Katrín Jakobsdóttir flytji stefnuræðu nýrrar ríkisstjórnar á Alþingi á miðvikudag. Stjórnarsáttmáli stjórnarinnar verður annað hvort kynntur á morgun eða á sunnudag. Innlent 26. nóvember 2021 12:01