Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Birgir Olgeirsson skrifar 10. október 2026 21:01 Ingvar Þóroddsson vill auka aðgengi að verkjalyfjum og öðrum lausasölulyfjum. Vísir/Einar/Anton Brink Verkjalyf og önnur lausasölulyf gætu orðið fáanleg í matvöruverslunum og á bensínstöðvum, verði frumvarp þingmanna Viðreisnar að lögum. Fyrsti flutningsmaður segir markmiðið að bæta aðgengi að lyfjunum og auka samkeppni. Hann vonast til að breytingin skili sér í lægra verði.
Nú fást lausasölulyf að jafnaði í apótekum. Lyfjastofnun getur þó leyft verslunum að selja ákveðin lyf ef meira en tuttugu kílómetrar eru í næsta apótek. Verði frumvarpið að lögum mætti selja öll lausasölulyf í almennum verslunum, óháð fjarlægð frá apóteki. Lyfin yrðu afgreidd af starfsfólki. Viðskiptavinir mættu aðeins taka þau sjálfir úr hillum ef Lyfjastofnun veitti sérstakt leyfi til þess. Bindur vonir við lækkun verðs Ráðherra gæti sett reglur um til dæmis styrkleika og geymslu lyfja og hversu mikið hver viðskiptavinur mætti kaupa. Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar, var spurður hvort þetta gæti lækkað lyfjaverð. „Auðvitað getur maður ekkert sagt nákvæmlega til um það en maður getur bundið vonir við það að með þessum hætti myndi aukast samkeppni ef fleiri aðilar eru að selja þessi lyf. Maður getur þá bundið vonir við að það myndi leiða til verðlækkana,“ sagði Ingvar í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. Tekur Norðmenn sem dæmi Í greinargerð frumvarpsins er fjallað um hættu á fleiri parasetamóleitrunum þegar aðgengi að lyfinu eykst. Ingvar segir að reglur ráðherra og Lyfjastofnunar eigi að draga úr þeirri áhættu. Hann hefur ekki rætt við heilbrigðisráðherra eða aðra stjórnarflokka um stuðning við frumvarpið. Ingvar bendir á að apótek á Akureyri, þar sem hann býr, séu flest lokuð á kvöldin. Sjálfur fótbrotnaði hann í skíðaferð í Noregi fyrr á árinu og komst af sjúkrahúsinu nærri miðnætti. „Lillehammer er nú ekki stór bær og þar var ekkert apótek opið en ég komst í Paratabs og Íbúfen á bensínstöð. Ef Norðmenn geta haft þetta svona held ég að við ættum að geta gert það líka,“ bætir Ingvar við.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Lyf Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Sjá meira