Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 11. október 2026 13:02 Fundur á vegum verkefnisins fór meðal annars fram á Bessastöðum. Samtal Niðurstöður þjóðarsamtals sem fram fór á tuttugu og þremur stöðum á landinu í gær verða kynntar í Hörpu í dag. Forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta segir þátttakendur í Háskóla Íslands hafa kallað eftir fleiri slíkum samtölum. Umræðurnar hafi verið uppbyggilegri þegar fólk sat augliti til auglitis en það eigi að venjast úr athugasemdakerfum.
Ungt fólk leiddi umræðurnar undir yfirskriftinni Tölum saman en fólk á öllum aldri tók þátt. Verkefninu var ýtt úr vör af Höllu Tómasdóttur forseta Íslands og sneri að því hvernig samfélag fólk vill skapa til framtíðar. Að verkefninu stendur Samtal, félag til almannaheilla, í samstarfi við ungt fólk, skóla, félagasamtök, stofnanir og stjórnvöld um allt land. Þátttakendur frá öllum heimsins hornum Stúdentahreyfingin sameinaðist um viðburð í Háskóla Íslands. Lísa Margrét Gunnarsdóttir, forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta, segir það hafa verið eina samtalið sem fór fram á ensku. Hjá þeim hafi komið saman fólk af að minnsta kosti átta eða níu þjóðernum. Gervigreind, menntun og samfélagsmál hafi meðal annars brunnið á þátttakendum. „Við vorum öll svolítið sammála um hið sammannlega,“ segir Lísa. Þrjár klukkustundir reyndust ekki of langar Lísa segir skýrt hafa komið fram við öll borð að þátttakendur vildu fá fleiri tækifæri til slíkra umræðna. Fólk væri orðið vant því að ræða stór samfélagsmál í gegnum skjái og í athugasemdakerfum, þar sem umræðan gæti orðið neikvæð. Lísa Margrét Gunnarsdóttir er forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta.LÍS „Það sem við tókum eftir í þessu samtali í eigin persónu er að það er þegar fólk situr saman og horfist í augu að þá verður samtalið miklu uppbyggilegra,“ segir Lísa. Ein niðurstaðan sé því sú að vilja endurtaka viðburðinn og jafnvel standa reglulega fyrir slíkum samtölum. Gervigreind dregur saman umræðurnar Niðurstöður samtalanna verða kynntar í Hörpu í dag, þegar fjörutíu ár eru liðin frá upphafi leiðtogafundarins í Höfða. Gervigreind hefur verið nýtt til að taka saman það sem kom fram á viðburðunum um land allt. Lísa segir að við kynninguna verði dregið fram það sem hafi verið sameiginlegt í umræðunum. Kórar komi jafnframt fram og forsetinn setji frið og samtal á dagskrá. Hún lýsir niðurstöðunum sem sneiðmynd af því sem ungt fólk og þjóðin er að hugsa. Þótt ungt fólk hafi leitt umræðurnar hafi þátttaka allra kynslóða verið mikilvæg. Þeir sem komast ekki í Hörpu geti fylgst með kynningunni í streymi. „En það sem mér fannst eiginlega fallegast var bara að markmiðið var samtal og það tókst alveg svakalega vel.“
Halla Tómasdóttir Forseti Íslands Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Fleiri fréttir Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Sjá meira