Stúlkan fannst heil á húfi Stúlka, sem björgunarsveitir og lögreglan á Norðurlandi eystra leitaði að á miðvikudagskvöld við Akureyri er komin í leitirnar. Innlent 23.7.2026 01:09
Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir 14 ára stúlku. Talið er að hún sé klædd í gráa peysu og gallabuxur. Innlent 22.7.2026 22:19
Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri Lögreglan á Norðurlandi eystra leitar manneskju á Akureyri. Allar björgunarsveitir á Eyjafjarðarsvæðinu hafa verið kallaðar út til aðstoðar við leitina. Innlent 22.7.2026 21:21
Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Mótorhjólakappinn Ómar Geirsson varð var við bilun í fornhjólinu sínu á leið heim frá Akureyri en stuttu seinna fór að rjúka undan hjólinu að aftan. Mótorhjólið brann til kaldra kola fyrir augunum á honum en hann hafði keypt það skömmu áður og var nýkominn með það úr ástandsskoðun. Innlent 15. júlí 2026 22:24
Ljóðrænt hótel á Akureyri Íslensk ljóðlist er í hávegum höfð á nýju hóteli í miðbæ Akureyrar. Handskrifuð ljóð og bréf frá Davíði Stefánssyni prýða veggi hótelsins. Lífið 14. júlí 2026 20:00
„Þetta mun breyta öllu fyrir okkur“ KA mun vígja nýja stúku síðar í mánuðinum og eftir ár verður ásýnd svæðisins orðin allt önnur. Sport 14. júlí 2026 09:31
Krummafótur um helgina Sviðslistahátíðin Krummafótur fer fram í fyrsta sinn á Akureyri um helgina. Um er að ræða grasrótarhátíð og fer opnunarhátíðin fram heima hjá stofnanda hátíðarinnar. Lífið 10. júlí 2026 16:27
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Viðbragðsáætlun var virkjuð á Sjúkrahúsinu á Akureyri í dag vegna fjarskiptavanda. Innlent 6. júlí 2026 09:57
„Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Yfirlögregluþjónn á Vesturlandi er sáttur eftir tónlistarhátíðina Lopapeysuna sem fór fram á Akranesi um helgina. Gönguhópar skiluðu sínu. Innlent 5. júlí 2026 13:54
„Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Fjórir karlmenn á þrítugs- og fertugsaldri voru handteknir á Akureyri vegna stórfelldrar líkamsárásar í gærkvöldi. Tveir voru fluttir á bráðamóttökuna með beinbrot. Innlent 4. júlí 2026 17:10
„Klukkan er fimm einhvers staðar“ Pollamótið hófst með pompi og prakt á Akureyri í dag. Elstu keppendurnir eru á sextugs- og sjötugsaldri en sumir voru ekki með hugann endilega við boltann. Lífið 3. júlí 2026 20:44
Bylgjulestin fer norður á morgun Bylgjulestin brunar nú til Akureyrar og verður í beinni útsendingu á morgun milli klukkan 12 og 16 á Pollamótinu og N1 mótinu. Lífið samstarf 3. júlí 2026 10:59
Skilur eftir minningar alveg eins og leikurinn Tvö þúsund strákar í fimmta flokki í fótbolta munu keppa á N1-mótinu á Akureyri um helgina. Mótið hófst í dag og bærinn er fullur af fólki. Framkvæmdastjóri íþróttafélagsins KA segir mótið fara mjög vel af stað og minningarnar verði ekki síður til utan vallar. Fótbolti 1. júlí 2026 20:32
Mikilvægt framfaraskref fyrir allt landið Skóflustunga vegna byggingar á nýrri álmu við Sjúkrahúsið á Akureyri, SAk er mikið fagnaðarefni. Með því hefst framkvæmdin formlega og eru það tímamót sem lengi hefur verið stefnt að og marka upphafið að einu mikilvægasta heilbrigðisverkefni á landsbyggðinni. Skoðun 28. júní 2026 13:32
Hætta á að námsframboð dragist saman Bæjarstjóri Akureyrar segir eftirspurn eftir námi í bænum meiri en kerfið ræður við. Ríkið þurfi að grípa til aðgerða og styðja við menntastofnanir bæjarins. Hætta sé á að námsframboð dragist saman. Innlent 27. júní 2026 17:16
Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Vísindaskóli unga fólksins á Akureyri er hápunktur sumarsins hjá mörgum en hann er fyrir börn á aldrinum ellefu til þrettán ára. Ýmis námskeið eru á boðstólum og í ár fengu krakkarnir fræðslu um jafnréttismál, málefni norðurslóða, sorpmál og margt fleira. Innlent 25. júní 2026 23:45
Sálin tekin úr skólunum Ræða Karls Frímannssonar, skólameistara Menntaskólans á Akureyri, við útskrift skólans 17. júní sl. hefur vakið mikla athygli. Skoðun 25. júní 2026 07:01
Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Tekjur samstæðu Samherja námu 78,4 milljörðum króna á síðasta ári og nam hagnaður fyrir skatta, afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) 10,7 milljörðum króna og jókst um 1,8 milljarða milli ára. Viðskipti innlent 23. júní 2026 14:26
Þrjú alvarleg ofbeldisbrot Erilsamri viku er nú lokið á Akureyri en þar höfðu síðustu daga farið fram Bíladagar, útskriftir úr mennta- og háskóla með tilheyrandi veisluhaldi, mótorhjólahittingur og fleira. Aðalvarðstjóri segir þrjú alvarleg ofbeldisbrot hafa verið tilkynnt til lögreglu. Innlent 23. júní 2026 10:46
Framtíð menntastofnana á Akureyri varðar okkur öll Á þessum árstíma fyllast samfélagsmiðlar af færslum og myndum af útskriftum og fagnaðarstundum. Þá minnir einnig Júbilantahátíð Menntaskólans á Akureyri okkur árlega á þann mikilvæga sess sem menntun hefur í sögu bæjarins og lífi þúsunda Íslendinga. Skoðun 23. júní 2026 08:02
Segir ákall frá samfélaginu að gera eins fyrir stelpur og stráka Framkvæmdastjóri KA og mótsstjóri N1-mótsins á Akureyri segir mótinu ekki stillt upp í samkeppni við Króksmótið á Sauðárkróki. N1-mótið fyrir sjötta flokk kvenna í knattspyrnu verði til í framhaldi af N1-móti stráka á sama aldri sem haldið hefur verið fjörutíu ár. Innlent 22. júní 2026 15:37
BSO-stöðin komin á nýtt heimili Húsnæði Bifreiðastöðvar Oddeyrar, BSO, er komið á nýjan stað. Húsið stendur nú á bílaplani Jólagarðsins og fær varanlegan stað í garðinum á næstu mánuðum. Eigandi hússins segir það fá að halda sinni upprunalegu mynd. Innlent 22. júní 2026 13:18
„Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Króksmót ÓB sjötta flokks stúlkna í knattspyrnu var haldið á Sauðárkróki um helgina. Mótsstjóri segir mótið hafa gengið vel en þátttaka hafi þó verið dræmri en síðustu ár. Samkeppni við stærra mót setji strik í reikninginn og óljóst sé hvort að mótið verði haldið að ári. Innlent 22. júní 2026 12:38
Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Lögreglan á Akureyri rannsakar nú alvarlega líkamsárás á skemmtistað í nótt en alls eru þrjár líkamsárásir til rannsóknar þar á bæ eftir stóru Bíladagahelgina. Einn var handtekinn í nótt vegna rúðubrota en þá var einnig margt um unglingadrykkju um helgina. Lögreglan segir að skipuleggjendur Bíladaga hafi verið til fyrirmyndar. Innlent 21. júní 2026 10:33