Lögregla fær skýrari mynd á nóttina á Edition
Frönsku ferðamennirnir sem fundust látnir á Edition hótelinu í Reykjavík voru búsettir á Írlandi og á lögregla í samtölum við bæði frönsk og írsk lögregluyfirvöld vegna málsins. Skýrari mynd er komin á atburðarásina að sögn lögreglu en rannsókn málsins er enn á frumstigi.