Eyða fjórum sólarhringum á ári í umferð
Hver íbúi höfuðborgarsvæðisins tapar að jafnaði tæpum fjórum sólarhringum á ári í umferðartöfum. Tafirnar kosta samfélagið um og yfir hundrað milljarða króna árlega og nú er kallað eftir hraðari samgöngubótum enda glata landsmenn hvern dag án framkvæmda háum fjárhæðum.